Þjóðviljinn - 09.06.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.06.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9. - 10. júní 1984 Helgin 9. - 10. júni 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Þaö eru ekki nýjar f réttir, að segja íslendingum, að á Bretlandi séu margir góðir leikarar. Um fátt eru áhorfendur íslenska sjónvarpsins betur upplýstir. Vikuskammturinn af breskri leiklist er að líkindum aldrei undir einni mynd. Ef það er ekki mánudagsleikritið, þá er það framhaldsþátturinn á þriðjudögum eða miðvikdögum eða laugardögum eða sunnudögum eða bíómyndin á föstudögum eða laugardögum, eða jafnvel allt þetta í sömu vikunni. Það kann því einhverjum að þykja undarlegt að sumir skuli sækjast eftir enn meiru og fara til London í leikhús. En þannig er þaðnú. Jean Lapotalre Hugh Whitemore. Leikrit um ósköp blátt áfram og heiðarleg hjón, trú hvort öðru og vinum sínum, sem eru sett í þá hræðilegu aðstöðu að verða að láta leynilögreglunni í té hús sitt og heimili til þess að stunda þaðan njósnir um nágranna þeirra og bestu vini. Þau eru neydd til að veija á milli hollustu við föðurlandið og trúnaðar við vini sína og þeg- ar lögreglan loksins fer og vinirnir hafa verið handteknir, grunaðir um njósnir, þá er líf þeirra í rúst, hamingjudagamir taldir, þau trúa hvorki á fólk né föðurland lengur. Minnst og mest Allar þessar sýningar státuðu af verð- launum og viðurkenningum af einhverju tagi. Judi Dench, sem leikur húsmóðurina í Lygavefi, hafði hlotið verðlaun sem besta leikkona ’83, áreiðanlega að verðleikum því hún var frábær. Glengarry Glen Ross var prinsi og ástinni hans. Þau mættust fyrst í, friðnum, misstu hvort af öðru vegna stríðsins en fundust að lokum á vígvellinum, en þá er hann helsærður. Það voru ungir og glæsilegir söngvarar í hlutverkum Andrei prins og Natöshu, Rus- sell Smythe og Eilene Hannan heita þau, en Napóleon var sunginn af Malcolm Donnelly. Það er að sjálfsögðu ógerlegt að lýsa þessu magnaða verki í fáum orðum, en ef einhver lesandi ætti leið um London næsta haust, þegar Enska þjóðaróperan hefur hvflt sig að lokinni 6 vikna sýningarferð um Bandaríkin, sem nú er hafin, þá yrði sá hinn sami varla svikinn um fágæta skemmtun, ef hann fengi sér miða á Stríð og frið. ENO (English Natio- nal Opera) hefur það á stefnuskrá sinni að syngja fyrir almenning á ensku einungis og það er reynt að halda miðaverði í lágmarki. meirihluta alls staðar að varla þarf að leita að nafni konu nema meðal leikaranna, og einnig þar eru þær miklu færri. Eini staðurinn þar sem líklegt er að konur séu í töluverðum meirihluta er á atvinnuleysisskrá. 80%, ég segi og skrifa áttatíu prósent breskra leikara eru að jafnaði atvinnulausir, svo af því má væntanlega draga þá ályktun, að þó breskt leikhús sé rómað, þá hafi þorri leikaranna það heldur skítt. Konumar hafa það þó verst. Af fastráðnum leikurum breska Þjóðl- eikhússins eru 20 konur á móti 72 körlum. í stjórn leikhússins eru 3 konur á móti 17 körlum. Fastráðnir leikstjórar hússins eru þrír karlar, og á meðal gestaleikstjóra sá ég ekkert kvenmannsnafn enda fágæt. Ein kona er fastráðin leikmyndateiknari á móti tveim körlum. Leikrit eru öll eftir karla. Reyndar gat ég ekki fundið nema fjögur leikhús af þeim rúmlega hundrað, sem auglýsa í Time Out, þar sem leikrit eftir konur voru á boð- skepnuna. Hún tekur mjólkurfötuna með til minja um vinkonu sína og hneykslar með því forframaðan eiginmanninn á Heathrow- flugvelli. En í hvert sinn sem heimþráin gríp- ur hana hugsar hún til kýrinnar. Kýrin verður tákn fyrir heimalandið, Indland. Það var afskaplega gaman, lærdómsríkt og hrífandi að fylgjast með lífsbaráttu þessarar konu, baráttu hennar fyrir manngildi sínu i.nnan fjölskyldunnar og fyrir tilverurétti sín- um sem Indverja á Englandi. Hún heldur í si'ðu hárfléttuna, saríinn og rauða blettinn í enninu, en hafnar gömlum fordómum og neitar að verða á ný undirgefin eftir fimm ára sjálfstæði. Að lokum líst fjölskyldunni ekki á blikuna og kemur henni á geðsjúkrahús, það- an sem hún ákveður að strjúka heim til Ind- lands og leita uppi kúna sína. Síta var óvenjulega heilbrigð manneskja og afar falleg sál, en hún þurfti að berjast á sviðsmynd er úr, en það var sýnt á vegum Kvennaleikhúshópsins. Það er mikill léttir að því að brosa öðru hverju í þessari baráttu. Og það er gott að gera sér grein fyrir því, að í veröldinni eru ekki bara „góðar“ konur og „vondir“ karlar. Konumar hafa misjafna stöðu og em af ýmsu tagi alveg eins og karl- arnir, þær em líka smitaðar af þeirri hörku og giimmd sem er ríkjandiog beitahvomtveggja þar sem þær hafa aðstöðu til. Sá sem er kúgaður finnur sér einhvem annan til að kúga. Því miður. Ef ill meðferð og áþján gerði mann góðan, þá væri engin ástæða til að kvarta. En ill meðferð gerir mann vondan, slægan og hatursfullan, þess vegna er hún andstyggð og ætti að leggjast af. Það vantar ekki óteljandi konur og karla, sem vilja breyta þessu. Það vantar að það breytist. Það vantar að minnsta kosti að það breytist nógu fljótt. Kannski er það af því viðjar uppeldisins, sem veröldin, eins og hún Dæmi af bresku leikhúsi og kvenmannsleysi þess Sjónvarp er sjónvarp. En leikhús er leikhús. í London em yfír 100 leikhús, stór og smá. Þar má sjá suma af leikumnum úr sjónvarp- inu lifandi og í fullri stærð. Þar má einnig sjá marga leikara, sem ekki hafa enn sést í sjón- varpinu, en eiga eftir að gera það og verk eftir höfunda, sem enn em lítt þekktir, en eiga eftir að verða það. Sá gestur, sem dvelur í þessari háborg leiklistar um vikuskeið getur komist yfír að sjá eina til tvær sýningár á dag, ef hann gerir lítið annað. Samt eru hundrað sýningar óséð- ar og framboðið virðist yfirþyrmandi. En þegar betur er að gáð, em þessi ósköp engin ósköp, því í London búa um sjö milljónir manna. Það þýðir eitt leikhús á hverja sjötíu þúsund íbúa. Og varla er þá búist við að allir heimamenn fái sæti. Auk þess er bekkurinn þétt setinn af erlendum ferðamönnum, því ensk leiklist er svo rómuð að hún dregur til sín túristana engu síður en Díana og drottn- ingin, Buckinghamhöll, Trafalgar Square, Nelsons-súlan, Covent Garden, Thames og tvflyftir strætisvagnar. Og ensk leiklist er yfirleitt ósvikin leiklist. Einkum er meðferð máls fimagóð.Erfing j- um Shakespeares rennur ljóslega blóðið til skyldunnar, og þeir sem fá tækifæri til að bera fram enska tungu á sviði, vanda sig svo við framsögnina að meira að segja í ópemnni mátti greina hvert orð. Mér fannst tungulip- urð listamannanna aðdáunarverð. Nema þegar hljóp í hana tilgerð. Tækni án innihalds vill verða leiðigjörn. Innihald skorti þó ekki í leikritin sem ég sá. The Real Thing eftir Tom Stoppard. Heiðar- legt, fyndið, reyndar mjög snjallt leikrit um ástina, the real thing, slungið í samsetningu og með marga botna. Glengarry Glen Ross eftir Bandaríkjamanninn David Mamet, sem Alþýðuleikhúsið kynnti hér í vetur. Stjarna þess höfundar virðist rísandi, því þrjú leikhús í borginni sýndu verk eftir hann samtímis. David Mamet tileinkar Harold Pinter leikrit sitt Glengarry Glen Ross, sem sýnt er í Þjóðl- eikhúsinu (Cottesloe) og fjallar um nokkra miðaldra söiumenn í heimalandi höfundar. Þeir eru allir skilgetin afkvæmi samkeppnis- þjóðfélagsins, ómerkilegir, lygnir smáglæp- onar, sem einskis svífast í viðleitni sinni til að slá hver annan út. Litlir kallar að reyna að vera miklir menn. Og svo Pack of Lies eftir Michael Pennington Tom Stoppard - The Real Thlng einhvers staðar útnefnt besta leikritið og leikhópurinn, þessir 7 karlar, sagður sá besti í borginni. Tom Stoppard er aftur á móti að leggja undir sig Ameríku, a.m.k. Broadway með leikriti sínu um leitina að hinni sönnu ást. Sambúð ástar og frjálslyndis m.a. í ástum er ýmsum erfiðleikum bundin. Það er ekki auðveltaðelska,skiljaogvirða aðra mann- eskjuengefahenni frelsi í ofanálag er nánast ofraun. Mér fannst þetta fjári gott leikrit. EN - mest fannst mér koma til þess, sem minnst fór fyrir, ONE FOR THE ROAD eftir Pinter, og ég hef áður sagt frá því hér í blaðinu. Þar næst til þess, sem mest fór fyrir, óperu Prókófíefs saminni við hið mikla skáld- verk Tolstojs, Stríð og frið. Það kom mér á óvart að sjá svona tilkomumikið „leikhús" í óperu. Víst er ég viðvaningur í óperuhúsum, þekki ekki til annars en þess sem gerist í Þjóðleikhúsinu okkar og Gamla bíó og hefði varla lent þarna nema af því fyrsti óbóleikari hljómsveitarinnar er giftur íslenskri konu og bauð mér, en nú varð ég hissa. Já, þvflíkt leikhús, þvflíkur hljómur. Þvflíkur kór og söngur, svið og sviðstækni. Um hundrað og sjötíu manna kór og hljómsveit ásamt tuttugu einsöngvurum valda engum smátitringi í hljóðhimnunum. Hljómsveitarstjórinn heitir James Lockhart og leikstjóri/framleiðandi Colin Graham og í sameiningu hafa þeir og lið þeirra leyst úr læðingi kraft, sem er næst- um ógnvekjandi íahrifamættísínum.í fjölda- átaki sem þessu býrsvo mögnuð sefjun, að venjulegur saklaus áhorfandi er í verulegri hættu að sogast með, hvert sem ferðinni er heitið. Þetta hefur Wagner vitað. Og þetta vita fleiri. f fjöldasjóinu er máttur, sem bæði pólitíkusar og herforingjar hafa kunnað að nota. Ekki svo að skilja að óperan um Stríð og frið sé aðeins fjöldasjó, þar er jöfnum höndum greint frá afdrifum einstaklinga og örlögum rússnesku þjóðarinnar í mannskæðu stríðinu við her Napóleons. Kórinn túlkar kveinstafi þolendanna, fjöldann, sem berst, fjöldann, sem verst, flýr og fellur. Og til þess að sá fjöldi sýnist enn meiri eru skyggnur óspart notaðar á baktjöldum þannig að lif- andi fólk rennur saman við myndir af fólki, hermönnum í orustum, almenningi á flótta. Moskva er brennd svo hún falli ekki í hendur óvinanna og Napóleon veður reyk í rústum hennar. Svo dettur allt í dúnalogn en tvær ljóskeilur úr himinhæð beinast að deyjandi Staða kvenna í leikhúsinu Annars eru tvær leiðir til að fá leikhúsmiða á niðursettu verði í London. Önnur er sú að standa í biðröð síðasta klukkutímann fyrir sýningu í von um ósóttar pantanir, hin er að kaupa sig inn á forsýningar. Ég sá tvær for- sýningar.Önnurvar í Þjóðleikhúsinu (Lyttelt- on) á gömlu leikriti Venice Preserved) (Fen- eyjar héldu velli) eftirThomas Otway. Höf- undur þessi var fæddur 1652 og af leikskrá má ráða að hann hafi verið einn af merkari arftökum Shakespeares, byrjað sem Ieikari, eins og hann, verið viðkvæmur maður og átt heldur auma ævi, dáið úr hungri og ofdrykkju 33 ára að aldri. Þá hafði hann samið sex leikrit og Venice Preserved var hið næstsíðasta. Leikritið segir frá misheppnaðri uppreisnartiiraun ungra hugsjónamanna í Feneyjum og lýsir togstreitu milli trúnaðar við hugsjónina og trúnaðar í ást og vináttu. í klassískum harmleikjastfl láta hinir ungu of- stólum. Þrjú leikhúsanna voru svokölluð jaðar-leikhús (Fringe-theatres). í einu var um að ræða hátíð ungra höfunda (1984 Yo- ung Writers’ Festival) og þar eru sýnd leikrit eftir Jane Anning og Eileen Dillon. Arts Theatre var að sýna leikrit eftir Pam Gems, Loving Women, (Kvartett kallaðist leikrit eftir hana, sem sýnt var í Iðnó fyrir nokkrum árum) í hinu þriðja The Royal Court Theatre sá ég forsýningu á The Great Celestial Cow eftir Sue Townsend. Nafnið gæti útlagst, Kýrin góð, þú sem ert á himnum, eða bara Blessuð skepnan. Og ef aðrar sýningar voru tæknilega tilkomumeiri var þessi þó indælust. Kýrin góð, þú sem ert á himnum Leikritið fjallar um indverska innflytjend- svo mörgum vígstöðvum í einu, að þar kom að hún var nærri því að bugast. Ungar austurlenskar konur þurfa að berjast við enn flóknara og fastheldnara kúgunarkerfí en við hérna fyrir vestan. Það er ekki aðeins að formlegt vald sé nær allt á hendi karla, heldur er hver ung kona, sem giftir sig, algjörlega undir tengdamóður sína sett. Fjær sér eru bær undir karlaveldi, nær sér undir tengda- mæðraveldi. Hin skelfilega tengdamóðir Sítu (sem er sprenghlægileg, eins og leikritið allt á köflum) skipar henni að hlýða með svofelld- um orðum: - Maðurinn þinn hefur talað. - Og við son sinn segir hún: - Þú hefðir aldrei átt að skilja hana eftir eina á Indlandi svona lengi. Hún hefur öðlast eigin vilja. - Vorkonurá sömu slóðum Þannig er nú kvennasamstaðan á þeim Steinunn Jóhannesdóttir skrifar urhugar lífið í leikslok, þau deyja þarna hvert í annars örmum, vinirnir, sem urðu óvinir og ástkonan unga og svikna, en öldungaráðið heldur velli. Stjarnan í sýningunni er Ian McKelIen, en Michael Pennington leikur aðalhlutverkið þannig, að hann ætti ekki síður skilið að kal- last stjarna. Ungu stúlkuna ástföngnu og ógæfusömu leikur Jane Lapotaire. Jane Lap- otaire er vafalítið afar góð leikkona, því í leikarahóp Þjóðleikhússins komast ekki að- rir en bestu leikarar, sem völ er á og vilja, en hún er ekki ung stúlka. Ég gæti trúað að hún væri nær fimmtugu en fertugu. Og það að hún skuli vera látin leika þrjátíu ár niður fyrir sig, í stað þess að fá hlutverk við hæfi aldurs síns og þroska, leiðir hugann að stöðu kvenna í bresku leikhúsi. Staða þeirra hlýtur að vera nær óþolandi. Það þarf engan speking eða tölfræðing til að gera sér grein fyrir því, að bresku leikhúsi er nær algjörlega stjómað og stýrt af karl- mönnum. Karlmenn eru í svo yfirgnæfandi ur, sem setjast að í Leister, þar sem það var fmmsýnt. Það lýsir árekstmm milli tveggja menningarheima og erfiiðleikunum, sem því eru samfara að taka upp nýja lifnaðarhætti og framandi siði. í leikhópnum em allir Indverj- ar utan ein ensk kona. Og aldrei þessu vant var leikstjórinn kvenkyns (Carole Hayman), sömuleiðis leikmyndateiknarinn (Amanda Fisk) og meirihluti tækniliðsins. Leikritið er byggt á stuttum atriðum og leikararnir fara úr einu hlutverkinu í annað, allir nema konan í miðjunni. Hún leikuraðeins Situ. Souad Far- ess er nafn leikkonunnar og bæði hún og Sita hafa sest að í hugskoti mínu. Saga Situ er saga konu, sem hefur orðið að bjargast sjálf með börnin sín tvö í litla þorp- inu heima á Indlandi eftir að eiginmaður hennar og ættingjar eru farnir á undan til Englands í leit að atvinnu og betri lífskjörum. Hagur þeirra þriggja, sem eftir urðu hvflir á ■ kúnni Prinsessu. Prinsessa er homð mjólk- urkýr, forðabúr og fjölskylduvinur. Að fimm árum liðnum fer Síta með börnin á eftir manni sínum og verður að kveðja blessaða bænum. - Og viti menn - svo undarlega vill til, að fyrsta leikritið, sem ég sé eftir heimkomuna minnir mig svona snarlega á leikritið um Sítu. Það var Nína Björk Árna- dóttir og Vorkonurnar á Hótel Loftleiðum, sem sveimuðu á sömu slóðum Undir teppinu hennar ömmu. Birtist ekki sami gamli kven - týranninn.sitjandiá sínum tróni og gefandi fyrirskipanir með hitlerskum tilburðum, langt komin með að beygja dóttur sína í duft- ið í samvinnu við karlaveldið! Munurinn var sá að íslenska konan leitaði á náðir flösk- unnar, á meðan sú indverska flýði á vit kýrinnar. Það skyldi þó ekki vera svo, að hið vesturlenska kúgunarkerfi sé einnig dálítið flókið og margbrotið engu síður en hið austurlenska. Það er margt, sem flogið getur í hugann í leikhúsinu, og á báðum þessum sýningum sat ég heilluð, af því umfjöllunin um þetta vand- amál, sem er indverskt-íslenskt-alheims- vandamál var svo blæbrigðarík, sár, grimm og ferlega fyndin að hún nálgaðist það að vera sannleikur. Hugh Whitemore - Pack of Lies. Davld I t - Glengary Gien I Úr sýnlngu Kvennalelkhúshópsins á Dear Glrl Félagar f Unlted British Artist - Rigg, Flnney, Shaw, Jackson, Johnson og Hurt. Úr Strföl og frlftl, Malcolm Donelly f hlutverkl Napóleons. er, veitir okkur, eru svo sterkar. Kannski er hegðun okkar í svo föstum skorðum og í eðli sínu svo andstæð þeirri góðu veröld, sem við viljum byggja, að við séum lögmálsbundin til að endurtaka sömu vitleysurnar aftur og aftur, kynslóð eftir kynslóð. - Það góða sem ég vil, geri ég ekki - stendur þar. Eitt af því góða, sem margir vilja, en gera ekki, er að hætta að kúga konur. Eitt af því góða, sem konur vilja, en gera ekki, er að hætta að láta kúga sig. Það dugar ekki að ein og ein skríði undan teppinu hennar ömmu og reyni að finna frjálsara og betra líf en sú gamla þekkti, við verðum að koma í flokkum, jafn margar og ólíkar sem við erum. í lífinu eins og það leggur sig, engu síður en í pólitík og listum. Staða kvenna í leikhúsi verðyr t.d. ekki góð noma tífalt fleiri konur skrifi leikhúsverk og stjórni þeim, kannski hundraðfalt fleiri af því viö erum svo langt, langt á eftir. Lífinu er ekki lýst til hlítar fyrr en því er lýst frá báðum hliðum, öllum hliðum, hlið kvenna, hlið karla, hlið svartra, hlið hvítra, hlið fátækra, hlið ríkra. Nýja blóðið í bresku leikhúsi Ég hafði orð á því í upphafi þessarar grein- ar, að það væru engar fréttir að á Bretlandi væru margir góðir leikarar. En nú ætla ég að segja þær fréttir, að við nánari athugun kem- ur í ljós að leikarar eru margir hundóánægðir með ríkjandi ástand leikhúsmála. Þeir kvarta undan að gróðasjónarmið ráði mestu um efn- isvalið á West End leikhúsunum og einnig því að sama leikritið er látið ganga, þangað til leikarinn er nánast heilaþveginn af endur- tekningum. Þeir kvarta undar. leikstjóra- veldi, sem lítilsvirði leikarann og sjálfstæði hans sem listamanns. Og til þess að brjótast út úr þessu kerfi hafa nokkrar stórstjömur stofnað samtök um eigið leikhús, eigin kvikmynda- og vídeóframleiðslu. Samtök sín kalla þeir UB A (United British Artists) Sam- einaðir breskir listamenn. í þessum hópi eru Diana Rigg, Albert Finney, Glenda Jackson, Maggie Smith, John Hurt, Richard Johnson, Harold Pinter o.fl. Annar óánægjuhópur er atvinnulausir leikarar að sjálfsögðu, en ekki er mér kunnugt um, hvað þeir hyggjast gera í sínum málum. Þriðji hópurinn, sem ekki sættir sig lengur við stöðu sína, er auðvitað KONUR. Si. 5-10 ár hefur leikhúsfólk af kvenkyni reynt að leysa hluta vanda síns með því að stofna kvennaleikhús hér og þar. í nýju hefti . leikhústímaritsins Drama er sagt frá 14 leikhópum kvenna, af ýmsu tagi. Stfll þeirra er misjafn, sumar eru með grín og sprell og aðrar velja alvöruna, þær eru frumlegar og herskáar mikil ósköp, en þær eiga það líka til að vera mjúkar á manninn. Sá ótti kemur fram í blaðinu að þær einangrist eða verði einangraðar í svokölluðum kvennagettóum og nái því aðeins til fárra, en þeirri skoðun er hiklaust haldið á loft að þær séu nýja blóðið í bresku leikhúsi. íslenskt leikhús hefur þegar eignast sínar Vorkonur. Reykjavík 3. júní. Steinunn Jóhannesdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.