Þjóðviljinn - 09.06.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.06.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9. - 10. júni 1984 Aldei þrýtur þeim manni ó- friður, sem áfagra konu, höll við landamœrin, fleiri börn en þrjú og víngarð við veginn. Franskt máltœki Jóhann J.E. Kúld Vornótt Viltu ekki vaka með mér vors um blíða nótt? Finna í lofti ilminn anga, allt svo kyrrt og hljótt. Heyra raddir vorsins vakna með vœngjaþyt og söng. Þá er dýrðleg draumsins vaka, en dulin nóttin lögn. Man ég þig frá minni bernsku, milda vorsins nótt. Reið ég hesti rak frá skerjum, ranna að flceði skjótt. Sólin rauð á sinni göngu signdi fjallaskörð. Mér þótti sem himnavœttir, héldu um lífið vörð. Bréf til Þórðar frænda Ætli Doddi frændi hafi lært í Sovét? Rætt við Úlfar Þormóðsson um nýja bók Fyrirhelgi kom út bókin Bréftil Þórðar frænda-meðvinsamlegum ábendingum til saksóknarans, eftir Úlfar Þormóðsson. Bókin erskrifuð íkjölfar Spegilsmálsins fræga, en Úlfar var ritstjóri Segilsins sem Þórðurfrændi saksóknari lét leggja löghald á síðastliðiö sumar, og að endingu var Úlfar dæmdur í fésektir eða tugthúsvist fyrirguðlast, klám og brotáprentlögum. Bókin er skrifuð á meðan ákærði bíður þessað Hæstirétturtakið máliðfyrir. - Hversvegna er bókin skrifuð? „Til að skýra frá atganginum í Spegilsmál- inu og bera hann saman við gang annarra mála í þessu dæmalausa þjóðfélagi“. - Af hverju urðu öll þessi læti útaf Speglin- um? „Spegillinn reyndi nýja tegund af húmor, hann var öðru vísi en áður gerðist, ákveðin tegund af yfirkeyrðum húmor sem féll ekki í kramið hjá broddborgurum þessa lands. Á- kveðnum aðilum þótti að sér sneitt. Því var gripið til þessarar málsóknar í skjótræði". - Veistu hver kærði upphaflega? „Þórður frændi vildi ekkert um það segja. Hins vegar sagði hann mér að það hefði verið hringt í sig útaf málinu en vildi ekki segja hver“. - Hefurðu sjálfur hugmynd um nafn kær- andans? „Ég þykist vita hver það er, já. Eigum við bara ekki að segja að það séu virðuleg hjón hér í bæ?“ - Hvað rekurðu í bókinni? „Þetta er írónísk úttekt á þjóðfélaginu þann tíma sem ég hef verið að bíða eftir dómi. Auk þess er sýndur vandræðagangur þess manns sem er að bíða eftir dómsúrskurði og skilur ekki hvers vegna hann er kominn í þessa klípu meðan annað svakalegra við- gengst". - Telurðu þig grátt leikinn af kerfinu? „Nei-nei, ég er alveg ómeiddur. Ég tel hins vegar að kerfið hafi talið sig grátt leikið af Speglinum, og þess vegna hafi þeir þurft að bregðast svona við. Hins vegar er rétt að benda á að það er mjög undarlegt að hægt sé að leggja löghald án nokkurra skýringa á vöru uppá hálfa miljón, eins og gerðist með Spegilinn, og stinga í tugthús. Mér skilst að kerfíð í Sovét bregðist við á nákvæmlega sama hátt við fólki sem ekki dansar eftir hinni víðteknu línu. Kanski Doddi frændi hafi lært í Sovét?“ - Hvað hefur allt þetta umstang kostað þig? „Um áramótin síðustu var það búið að kosta mig um 700 þúsund krónur - fyrir utan óþægindin í sálinni sem hljótast af öllu þessu- veseni". Úlfar Þormóðson útgefandi Bréfs til Þórðar frænda. Á föstudag var hann ásamt formannl Auaturstræt?81"8 ^ ‘ 8Ó"nni sjússmn geti leitt til ofdrykkju, og ég benti á að sá fyrsti er nú alloft tekinn fyrir altarinu. Þess má geta að um þessar mundir er biskup að senda frá sér bréf þar sem segir: „Sækist ekki eftir áfengum drykk..“. - Voru þau mikil? Svo var éS líka dæmdur fyrir brot á Eftir nokkra þögn svarar Úlfar: „Já þau prentlögunum. Það var vegna þess aði voru nokkur“. ábyrgðarmanns var ekki getið í haus Spegils- - Fyrir hvað varstu svo að lokum dæmdur? *nS- ®.n ÞaA er ekk* heldur gert í Mogganum „Sko, það er dálítið merkilegt. Upphaflega e^a Þjóðviljanum og ég helt þessvegna að öll; var lagt löghald á Spegilinn sökum kláms og almennileg blöð, þeirra á meðal Spegillinn, ærumeiðinga sem hann þótti hafa að geyma, Þyrftu Þess ekkl neldur • en þegar kæran kom svo eftir tvær til þrjár - Er Þórður Björnsson saksóknari frændi vikur, þá var ekki lengur kært útaf ærumeið- þinn? ingum heldur guðlasti. Nú, þegar yfir lauk „Hann er að minnsta kosti Skagfirðingur!1' var ég svo dæmdur fyrir guðlast, en hegning- - Að lokum, Úlfar, berðu kala til Þórðar arákvæði fyrir shkt munu víst vera komin úr frænda? gildi í mörgum löndum. Mér skils að guðlast- „Nei, alls ekki, en við skulum segja að það ið hafi verið fólgið í því að benda á að fyrsti sé vík milli vina“. 1 Kortfró Reykjavík skömmufyrir aldamótin. Útsýn fró Melshúsum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.