Þjóðviljinn - 27.06.1984, Page 6
MENNING
freistingar kynslóðar. Hún sjálf
'er ein á sviðinu, þeir eldri eru þar
ekki, þeir sem aldrei létu freistast
eru þar ekki heldur. Reyndar
óþarft að biðja um að fjölgað sé á
sviðinu, þar er þegar her manns.
Og þessi hópur heldur í fáum orð-
um sagt uppi ágætri skemmtun.
Það er margt vel spaugilegt í til-
svörum höfundanna og söngtext-
amir leyna mjög á sér og músík-
in hæfir þeim vel. Þórhildur leik-
stjóri hefur virkjað lið sitt vel.
Það sækir á áhorfendur úr öllum
áttum með góðu fjöri. Stíllinn er
ærslaleiksins svo sem hæfir bæði
texta og þeirri blöndu reyndra og
lítt reyndra krafta sem Stúdenta-
leikhúsið er. Það gat líka komið
fyrir að leikarar yrðu of duglegir,
eins og Hilmar Jónsson í hlut-
verki Dags Snæs Guðmundar-
sonar. Kjartan Bjargmundsson
var Guðmundur, sá sem „mænir
eingöngu á það sem er ekki hér“
eins og segir í ágætum texta Þór-
arins Eldjárns - og er þar með
orðinn á laun stærri fígúra en ís-
lenskur vingull á stormasömum
tímum. Gengu hans dæmi ágæt-
lega upp í sýningunni. Hér skal
nefnt til dæmis samspil þeirra
Höllu, fyrstu kærustunnar (Ása
Svavarsdóttir), og blautrar gólf-
tusku, þegar að því kemur að
æskurómantíkin í kjallaraíbúð-
inni hrynur. Leikarar eru annars
fleiri en upp verði taldir, en oft
tókst þeim og leikstjóra að
bregða upp vel virkum týpum- til
dæmis panelklæddri og orgí -
astískri jafnréttismenntakonu
(Edda Arnljótsdóttir) eða hóp -
eflandi grasætu og eilífðarskólafé-
laga (Helgj Bjömsson).
Var fmmsýningu að vonum vel
fagnað.
ÁB
Einar G. Sveinbjörnsson strýkur boga um strengi í Norræna húsinu í kvöld.
Á
>/#
FRAD
Athugi
Fresturinnrennuru
íþessariviku!
Norrœna húsiö
ruR
AF SKATrSKYLDUM TEKJUM
AF ATVINNUREKSTRI
Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur
af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt-
skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm-
ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund-
inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs-
ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið
skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum
reikningsárs.
Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar
samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands-
bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6
mánaða reikninga.
Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6
mánaða binditíma, en innan 6 ára.
Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að
framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts
á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að
þessu sinni er til 1. júlí n.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans.
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir
Einar og
Þorkell
í kvöld, miðvikudaginn 27.
júní, verða tónleikar í Norræna
húsinu, og hefjast þeir kl. 20.30.
Einar G. Sveinbjörnsson fiðlu-
leikari, sem árum saman hefur
verið konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Malmö í Sví-
þjóð, er kominn heim gagngert
vegna þessara tónleika. Með
honum leikur á píanóið Þorkell
Sigurbjörnson tónskáld. Þessa
ágætu listamenn er óþarfi að
kynna íslenskum tónlistarunn-
endum, svo þekktir sem þeir eru
hérlendis og víðar.
Tónleikar þessir eru haldnir á
vegum „sænska tónlistardagsins“
sem haldinn var í Svíþjóð hinn
26. maí sl. og sænska sendiráðsins
á íslandi.
Á efnisskrá þeirra félaga er
sónata í g-moll fyrir einleiksfiðlu
eftir Johann Sebastian Bach, són-
ata í g-moll eftir Emil Sjörgren,
sónata eftir Jón Nordal, Rom-
ansa eftir Wilhelm Stenhammar
og sónata eftir Bo Linde.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Kjarvalsstaðir
Raf- og
tölvu-
tónlist
í dag hefst á Kjarvalsstöðum
kynning á raf- og tölvutónlist
undir heitinu íslensk hljóðlist.
Þar verður kynning og sögulegt
yfirlit yfir íslenska tæknitónlist.
Flutt verða verk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, Helga Péturs-
son, Kjartan Ólafsson, Lárus
Grímsson, Magnús Blöndal Jó-
hannsson, Snorra Sigfús Birgis-
son, Þorkel Sigurbjörnsson, og
Þorstein Hauksson. Tónleikarnir
verða haldnir á tveimur stöðum í
húsinu, annars vegar í málverka-
salnum, þar sem fólki gefst kost-
ur á að hlusta um leið og málverk
eru skoðuð, og hinsvegar fyrir þá
sem vilja einbeita sér að tónlist-
inni verður lítill salur tekinn frá
þar sem hlustandinn getur ein-
beitt sér í ró og næði án truflana.
Tónleikarnir verða haldnir mið-
vikudaginn 27. júní, fimmtudag-
inn 28. júní, föstudaginn 29. júní
kl. 17.00 og endurteknir kl.
20.30, og síðan á laugardaginn
30. júní kl. 15 og 17. Ný efnisskrá
verður á hverjum degi. Þorsteinn
Haukssson tónskáld hefur undir-
búið tónlistardagskrána. Sími
37485/37700.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
27. júní