Þjóðviljinn - 27.06.1984, Page 15
Rósa
ekki
meira
með
ÍBÍ?
Að sögn Vestfirska Frétta-
blaðsins er óvíst hvort Rósa Vald-
imarsdóttir, landsliðskona og
þjálfari 1. deildarliðs ÍBÍ í knatt-
spyrnu kvenna, getur leikið
meira með liðinu í sumar. Hún
meiddist í leik gegn Val í síðustu
viku og óttast er að liðbönd hafi
slitnað. Það yrði mikið áfall fyrir
ísafjarðarstúlkurnar, en allt
stefnir í einvígi milli þeirra og
Víkings um áframhaldandi sæti í
1. deild.
IÞROTTIR
Prýðilegur
sóknarleikur
ísland sigraði Noreg 27-22 í Tékkóslóvakíu ígær eftir að hafa
komist í 21-14.
Nýtt lið í
Hafnarfirði
Nýtt lið úr Hafnarfirðinum, ÍH
(íþróttafélag Hafnarfjarðar),
mun taka þátt í 3. deild karla í
handknattleik næsta vetur. Tvö
önnur lið bætast við deildakeppn-
ina, Njarðvíkingar og Sindri frá
Hornafirði þannig að útlit er fyrir
12-liða 3. deild næsta vetur. Þá
hafa tvö félög ákveðið að senda
lið að nýju í 2. deild kvenna, Ár-
mann og Afturelding.
—VS
Sigurjón
sigraði
Sigurjón Arnarsson, GR, sig-
raði í keppni án forgjafar á
Dunlop-unglingamótinu í golfi
sem fram fór á vegum Golfklú-
bbsins Keilis um helgina. Sigur-
jón lék á 149 höggum. Jón H.
Karlsson.GR, varð annar á 153
höggum og þriðji varð Gunnar
Sigurðsson, GR, sem lék á 155
höggum.
Björgvin Sigurbergsson, GK,
sigraði í keppni með forgjöf á 120
höggum netto. Kristján Orn Sig-
urðsson, NK, varð annar á 124
höggum og Páll Erlingsson, GK,
þriðji á 126 höggum. Sigurður
Sigurðsson, GR, fór holu í höggi
á mótinu.
Þá fór fram fyrir stuttu
Bílaborg-open hjá Keili. Sigur-
jón R. Gíslason, GK, sigraði í
A-flokki (forgjöf 0-12) og Sigur-
þór Svavarsson, GS, í B-flokki
(forgjöf 13-23).
„Strákarnir léku þennan leik
prýðilega, sérstaklega sóknar-
leikinn sem var mjög góður.
Vörnin var veiki punkturinn en
það á eftir að lagast. Liðið spilaði
af festu og fór eftir því sem fyrir
það var lagt og uppskeran var því
góð. Mér fannst norska liðið
heldur sterkara en þegar við lék-
um gegn því heima sl. vetur“,
sagði Karl Harry Sigurðsson far-
arstjóri íslenska landsliðsins í
handknattieik í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Island sigraði Noreg 27-22 í
fyrsta leiknum af þremur sem það
leikur í keppnisförinni til Tékk-
óslóvakíu. Leikurinn var jafn
framan af en ísland komst í 13-10
fyrir hlé. Norsarar skoruðu tvö
fyrstu mörk seinni hálfleiks en þá
tók íslenska liðið mikinn sprett
og gerði útum leikinn með því að
komast í 21-14. „Eftir það var
mikið skipt inná og allir fengu að
leika og það varð til þess að
Norðmenn náðu að laga stöð-
una“, sagði Karl.
Atli Hilmarsson var bestur í ís-
lenska liðinu en sem heild vann
liðið vel saman. Þorbjörn Jens-
son hvarf af leikvelli um miðjan
síðari hálfleik, hafði þá hlotið
þrjár brottvikningar.
Atli skoraði 8 mörk, Sigurður
Sveinsson 7 (4 víti), Þorbergur
Aðalsteinsson 4, Bjarni Guð-
mundsson 3, Þorgils Óttar
Mathiesen 2, Kristján Arason 2
og Jakob Sigurðsson eitt. Auk
þeirra léku leikinn Einar og Jens
markverðir, Steinar, Sigurður G.
og Þorbjörn. Alfreð, Guðmund-
ur, Brynjar, Geir og Kristján S.
hvíldu.
íslenska liðið mætir B-liði
Tékka í dag.
-VS
Atli Hilmarsson skoraðf átta mörk í
gær.
Loks heimasigur
Góður lA-sigur
Skagastelpurnar bættu þrem stig-
um í safnið í gærkvöldi þegar þær
sigruðu KR 3-1 í ágætis leik á grasvelli
KR-inga. Þær eru þar með efstar í 1.
deild kvenna í knattspyrnu.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og fékk
Sigurbjörg Sigþórsdóttir þá tvö tæki-
færi til að skora fyrir KR. í fyrra
skiptið skaut hún í stöng en nokkrum
mínútum síðar tókst henni betur upp
og kom þá KR yfir 1-0. Rétt fyrir
leikslok jafnaði Asa Pálsdóttir fyrir
í A er hún fékk boltann óvölduð í víta-
teig KR. Snemma í síðari hálfleik
skoraði Laufey Sigurðardóttir annað
mark ÍA eftir góðan samleik hennar
og Ragnhildar Jónasdóttur. Hins og
svo oft áður hjá KR-stelpunum,
minnkaði mótspyrna þeirra þegar
mótherjarnir náðu forystunni og voru
Skagastúlkurnar mun betri aðilinn
það sem eftir var leiksins. Laufey
bætti þriðja marki ÍA við, með skoti
langt utan af kanti. Á síðustu mínútu
Guðmundur
til GUIF?
Guðmundur Albcrtsson lands-
liðsmaður í handknattlcik er að
líkindum á förum til Svíþjóðar í
haust, og hann hefur beðið um
félagaskipti úr KR. Sennilega
gengur hann þá til liðs við GUIF
en með því liði leikur annar ís-
lendingur, Andrés Kristjánsson.
-VS
leiksins munaði litlu að Oddný Sig-
steinsdóttur tækist að skora fyrir KR,
en Ragna Lóa bjargaði góðu skoti
hennar á markh'nu. -BV
Sverrir til
KR-inga
Sverrir Sverrisson, sem undan-
farin ár hefur verið mesti marka-
skoraði Gróttunnar í handboltan-
um, mun leika með KR í 1.
deildinni næsta vetur. Hann hef-
ur þegar gengið frá félaga-
skiptum sínum og KR-ingar
vænta sér góðs, enda vantaði þá
tilfinnanlega öfiuga skyttu sl. vet-
ur. -VS
ÍBV vann sinn fyrsta heima-
sigur í 2. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi, sigraöi þá KS 2-0 í
slökum rokleik á Helgafellsvelli.
Bergur Ágústsson skoraði með
skalla eftir aukspyrnu á 10. mín-
útu, 1-0. Snemma í seinni hálfleik
fengu Eyjamenn víti er Kára
Þorleifssyni var skellt en Hlynur
Stefánsson skaut í stöng. Þegar
korter var til leiksloka komst svo
Kári á auðan sjó og skoraði ann-
að mark ÍBV.
-JR/Eyjum
Leikbönn
stytt
í gær ákvað belgíska knatt-
spyrnusambandið að milda dóma
yfir 11 af 12 leikmönnum Stand-
ard Liege og Waterschei sem
dæmir voru í mislöng keppnis-
bönn þegar mútumálið fræga
komst upp í byrjun mars sl.
Eric Gerets, landsliðsfyrirliði
Belga, fékk sitt bann stytt úr
tveimur árum niður í 15 mánuði
og Waterschei-leikmaðurinn
Jensen úr 18 mánuðum niður í 12.
Hjá flestum öðrum var refsitím-
inn styttur úr einu ári niður í níu
mánuði. -VS
Austrasigur
Austri frá Eskifirði vann sætan
sigur, 3-0, á Þrótti er liðin mætt-
ust í Neskaupstað í gærkvöldi.
Leikurinn var liður í 3. umferð
bikarkeppni KSÍ og Austramenn
eru komnir í 16-liða úrslit þar
sem þeir fá Þór frá Akureyri í
heimsókn. Sófus Hákonarson
skoraði úr vítaspyrnu á 3. mínútu
og Sigurjón Kristjánsson og
Kristján Svavarson bættu mörk-
um við í seinni hálfleik.
-VS
Jafntefli á
Egilsstöðum
Höttur og Leiknir Fáskrúðsfirði
gerðu jafntefli, 1-1, í uppgjöri efstu
iiða F-riðils 4. deildarinnar í knatt-
spyrnu á Egilsstöðum í gærkvöldi.
Hattarmenn náðu forystunni í fyrri
hálfleik þegar Jón Kristinsson skoraði
með miklu þrumuskoti. Leiknis-
mönnum tókst síðan að jafna eftir hlé,
markvörður Hattar misreiknaði þá
háa sendingu Óskars Tómassonar inn
{vítateiginn, knötturinn hrökk í hann
og í netið, 1-1. Höttur var sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik en Leiknir í
þeim síðari. -VS
Hætta Þórsstúlk-
ur í 1. deildinni?
Svo gæti farið að Þór frá Akur-
eyri drægi kvcnnalið sitt í hand-
knattleik útúr 1. deildarkeppn-
inni næsta vetur. Þór vann sér
sæti í 1. deild sl. vetur en óvíst
mun um þátttöku í ár, baéði vegna
mikils kostnaðar og sökum þess
að liðið missir frá sér leikmenn.
„Það eru engar reglur til um
hvað gera skuli í svona tilfelli,
mótanefnd verður að taka sjálf
um það ákvörðun. Líklega fengi
Fylkir, sem varð í næstneðsta sæti
1. deildar, rétt til að leika við lið-
ið sem varð í þriðja sæti, 2.
deildar (Hauka) um 1. deildarlið-
ið. Einnig kæmi til greina að láta
aðeins 7 lið leika í 1. deild næsta
vetur, eitt myndi þá falla en tvö
kæmu upp úr 2. deild“, sagði Þor-
steinn Jóhannesson mótanefnd-
armaður hjá HSÍ í samtali við
Þjóðviljann í gær.
En það er ekki einu sinni ör-
úggt að Fylkir verði með lið næsta
vetur. Burðarásar liðsins eru að
hverfa á braut, Eva og Rut Bald-
ursdætur útfyrir landsteinana og
Halla Geirsdóttir landsliðsmark-
vörður er gengin til liðs við FH.
Þá kæmi það sennilega í hlut Vík-
inga að leika gegn Haukum um
lausa sætið í 1. deild.
-VS
Evrópuleikur í Eyjum?
Eyjamenn vinna að því að geta í fyrsta skipti leikið
Evrópuleik á heimavelli í haust.
Miklar líkur eru á að Evrópu-
leikur í knattspyrnu verði háður í
fyrsta skipti í Vestmannaeyjum í
haust. Lið ÍBV, sem þó leikur í 2.
deild, er fulltrúi íslands í Evrópu-
keppni bikarhafa, en hingað til
hafa Eyjamenn þurft að leika
heimaleiki sína í Evrópukeppni á
höfuðborgarsvæðinu.
Hingað til hefur búningsað-
staða við Hásteinsvöllinn x'
Eyjum komið í veg fyrir Evrópu-
leiki á honum. Nú er verið að
reisa félagsheimili Týs við völlinn
og í því verða búningsklefar. Að
sögn Ólafs Jónssonar formanns
knattspyrnuráðs ÍBV á þeirri
Eyjamenn hafa alltaf þurft að leika heimaleiki sína á höfuðborgarsvæð-
inu. Hér á Sveinn Sveinsson í höggi við varnarmenn Jena frá A.Þýska-
landi á Kópavogsvelli í fyrrahaust.
vinnu að ljúka um mánaðamótin
ágúst/september í haust, hálfum
mánuði áður en Evrópukeppnin
hefst.
„Auk klefanna þarf göngu-
leiðin frá þeim að vellinum sjálf-
um að uppfylla viss skilyrði og í
því er einnig unnið núna. Ellert
B. Schram, formaður KSÍ, er
trúnaðarmaður UEFA hér á
landi og hann þarf að koma hing-
að og taka völlinn út til að allt sé
löglegt. Þetta ætti að stórlækka
kostnaðinn við þátttökuna í Evr-
ópukeppninni, við spörum uppi-
hald í Reykjavík og ættum að fá
margfalt fleiri á völlinn. Þegar
Feyenoord lék hér vináttuleik,
komu 1900 manns og svipað ætti
að geta orðið nú, það fer þó eftir
því hverjir andstæðingarnir
verða“, sagði Ólafur Jónsson í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Ólafur var spurður hvert væri
óskalið ÍBV í Evrópukeppninni.
„Það lið sem kemur verður bara
óskaliðið - annars reikna ég með
því að lenda gegn liði frá Rúss-
landi eða Albaníu, það eru orðið
einu Austur-Evrópuþjóðirnar
sem við höfum ekki mætt í Evr-
ópukeppni!“ sagði Ólafur.
-JR/VS
Miövikudagur 27. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15