Þjóðviljinn - 27.06.1984, Side 16

Þjóðviljinn - 27.06.1984, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsfmi: 81663. 27. júní 1984 140. tölublað 49. örgangur Stigahlíðarlóðirnar „Leyndin kemur ser vel“ Fyrsta lóðin seld á ný ígœr. Fasteignasalar ánægðir með lóðasöluaðferð borgarstjóra. Davíð frestaði fundi í borgarráði. Leynd borgarstjóra yfir kaupverði einstakra ióða í Stigahlíðinni kemur sér vel fyrir fasteignasala sem hafa þar lóðir til sölu. Sölumaður hjá Húsafelli sem hefur fyrstu endursölulóðina á söluskrá sagði í samtali í gær að að sjálfsögðu kæmi þessi leynd sér vel en það færi eftir hverjum og einum lóðarhafa hvort hann ætlaði að braska með þessar lóðir eða ekki. „Það er springáhugi fyrir þess- ari lóð og ég geri ráð fyrir að hún verði seld núna síðar í dag“, sagði sölumaðurinn. Eigandi lóðarinn- ar keypti tvær af borginni þar sem hann gat ekki gert upp við sig hvora lóðina hann vildi en hefur ákveðið að selja aðra þeirra. „Það hafa fjölmargir spurst fyrir um þessa lóð en enginn braskari úr borginni og það er ekki verið að braska með lóðina“, sagði sölumaðurinn. Tilboðsverð í lóð- ina vildi hann ekki gefa upp, en lýsti yfir ánægju með framtak borgarstjóra í lóðasölumálum. Sagðist sölumaðurinn ekki eiga von á því að fleiri lóðir í Stigahlíð- inni kæmu til endursölu. Engar frekari upplýsingar hafa verið lagðar fram um kaupendur og kaupverð Stigahlíðarlóðanna, þar sem borgarstjóri brá sér burt úr borgarlandinu og boðuðum borgarráðsfundi sem átti að vera í gærmorgun hefur verið frestað fram á föstudag. -•g- Sjómœlingabátur Suður-Mjódd IR gegn bensínstöð Sökkt Stjórn íþróttafélags Reykja- víkur hefur á fundi sínum lýst óá- nægju sinni með þá ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að staðsetja bensín- stöð á íþrótta- og útivistarsvæði í Suður-Mjódd í Breiðholti. Hefur Þjóðviljinn greint frá því máli. Stjórn félagsins beinir þeim til- mælum til borgarráðs að það falli frá þessari ætlun sinni og finni stöðinni heppilegri staðsetningu. Ætlunin var að taka þetta mál fyrir á fundi borgarráðs í gær en vegna fjarvista borgarstjóra varð ekki af fundi. -v. r a Faxaflóa Sjómælingabátnum TÝ var ný- verið sökkt í Faxaflóa. Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelg- isgæslunnar kvað hann hvergi vera fyrir og hann reiknaði með að lítið væri eftir af flakinu. Landhelgisgæslan fékk Tý lán- aðan frá bandaríska sjóhernum fyrir nokkrum árum til sjómæl- inga á sumrin. Þegar kom að því að skila bátnum vildi herinn ekk- ert með hann hafa, enda skipið gamalt tréskip smíðað 1956. ís- lensk lög leyfa ekki innflutning á svo gömlum skipum og því brá Landhelgisgæslan á það ráð að sökkva skipinu, samkvæmt upp- lýsingum forstjóra Landhelgis- gæslunnar. _óg Hvalvertíð Mikil Hvalveiði hefur gengið mun betur í ár en í fyrra. Pétur And- résson hjá Hval hf tjáði Þjóðvilj- anum að búið væri að veiða fjórar sandreyðar og 56 langreyði, auk þess sem tvær langreyðar voru á leið í land. Á sama tíma í fyrra var ekki búið að veiða nema 33 lang- reyðar og eina sandreyði. Þess má geta að veiðitími sand- reyðar hefst yfirleitt ekki fyrr en uppúr miðjum ágúst, en lang- reyður veiðast mest í júní og júlí. -ÖS ÖJÓÐVIUINN Margeir Pétursson er ósigrandi fótbrotinn og vann útiskákmótið á' Lækjartorgi í gær. Hér er hann að taf li við Hilmar Karlsson. Margeir keppti fyrir Morgunblaðið, sem er dagblað í Reykjavík. (eik). ____________________12660 kr._______________ Verkfall í Eyjum Um 60 manns eru nú í verkfalli í Vestmannaeyjum vegna á- greinings um álagsgreiðslur vegna eftir- og næturvinnu. Verk- fallið byrjaði í fyrrinótt og nær til starfsmanna bæjarins, sem jafn- framt eru í Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja. Verkalýðsfélagið telur sjálf- sagt að túlka samninga sem svo, að lágmarkslaunin 12660 krónur séu viðmiðun til álags fyrir eftir- og næturvinnu. Bæjaryfirvöld halda því hins vegar fram, að þeim beri að greiða eftir- og næturvinnu ofan á lágu taxtana, sem eru fyrir neðan 12660 króna lágmarkslaunin. Ármann Bjarnfreðsson tals- maður verkafólksins sagði við tíðindamann Þjóðviljans, að hann væri hissa á viðbrögðum bæjarins, þarsem hér væri nú ekki um há laun að ræða. Hann kvaðst einnig vera vonsvikinn þarsem bæjaryfirvöldin vildu ekki í nokkurn máta koma til móts við verkafólkið. Ármann vísaði til samninga annars staðar á landinu, þarsem bæjaryfirvöld væru nægilega stór í sér til að greiða álag ofan á hin lögbundnu lágmarkslaun. Það er mikill sam- hugur hjá launafólkinu í þessari baráttu og enginn vill láta undan yfirvöldunum, sagði Ármann Bjarnfreðsson sem einnig er stjórnarmaður í Verkalýðsfé- laginu. Sigurður Jónsson, forseti bæjarstjórnar Sjálfstæðisflokks- maður og skrifstofustjóri bæjar- ins, sagði við tíðindamann Þjóð- viljans, að 12660 krónur væru greiddar í lágmarkslaun. Bilið á milli lágu taxtanna fyrir neðan lágmarkslaun og þeirra sjálfra væri eiginlega uppbót. Við viður- kennum ekki að það eigi að greiða eftirvinnu og næturvinnu ofan á 12660 krónur heldur á taxtana sjálfa, séu þeir þar fyrir neðan. Slitnað hefur uppúr við- ræðum og ekki enn verið boðað til nýrra. ró/óg Arnarflug Stóraukning hlutafjár Astjórnarfundi Arnarflugs fyrir skömmu var ákveðið að leggja til á aðalfundi félagsins 11. júlí nk. að hlutafé verði aukið um 40.5 miljónir króna. Verðgildi eldri hlutabréfa verður óbreytt þannig að eftir aukninguna verð- ur heildarhlutafé í Arnarflugi 48.3 miljónir króna. Núverandi hluthafar í Arnarflugi eru 730 talsins og verða þeir að neyta forkaupsréttar á nýjum hlutum fyrir 15. ágúst. Nú er ljóst að talsverður halli varð á rekstri Arnarflugs á síð- asta ári eða sem nam 54.4 miljón- um króna. Var þá búið að af- skrifa fyrir 20.6 miljónir. Stjórn Arnarflugs skipa nú Haukur Björnsson formaður, Arngrímur Jóhannsson, Axel Gíslason, Björn Theódórsson og Grétar Br. Kristjánsson. Fram- kvæmdastjóri er Agnar Friðriks- son.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.