Þjóðviljinn - 05.07.1984, Síða 16

Þjóðviljinn - 05.07.1984, Síða 16
MANNLIF Austfirðir Enn er myndað eystra Karl Hjelm í Neskaupstað: Alltaf haft áhuga fyrir landinu og náttúrunni Hefurðu sýnt myndirnar þín- ar? Ljósmyndaáhuginn lifir enn á Austfjörðum, sem kalla má vöggu Ijósmyndunar á Islandi (sjá viðtal við Ingu Láru Bald- vinsdóttur). Því slógum við á þráðinn til eins áhugaljósmyndara þar ey- stra, Karls Hjelm í Neskaupstað. Hvað vakti áhuga þinn á Ijós- myndum? „Ég hef alltaf haft áhuga fyrir landinu og náttúrunni. Um ferm- ingu eignaðist ég nokkuð góða vél og fór þá að taka myndir. Svo eignaðist ég vandaða vél um 1974. Ég hef alltaf tekið litmynd- ir. Hvert er þitt uppáhaldsmynd- efni? „Ég hef mestan áhuga á því smáa í náttúrunni eins og blóm- um, pollum, litlum lautum, steinum, ísnálum og öðrum klak- amyndunum." „Ég hef tvisvar haldið sýningar íEgilsbúðíNeskaupstað, 1977 og 1982. Svo hef ég tekið þátt í land- kynningarsýningum, t.d. í Sví- þjóð. Einnig hef ég tekið myndir á allmargar forsíður tímarita". Hvernig fllmu notarðu? „Ég tek eingöngu á Kodak filmur, mest á Kodachrome 25 og Á sjó. Ljósm. Karl Hjelm. fremstur meðdl jafningja db 7 David Pitt & co. h.f. Klapparstíg 16, Sími 13333, Pósthólf 1297, Reykjavík. Ný tölva Fyrir skömmu fór fram kynn- ing á nýrri tölvu hjá Heimilis- tækjum h/f, en fyrirtækið er með umboð fyrir Wang Computers, sem nú hafa sett á markaðinn nýja tölvu sem er einstök sinnar tegundar í heiminum. Aðeins ein tölva er hér á landi og á kynning- unni gafst blaðamönnum tæki- færi til að berja þetta undraverk augum. Pessi tölva er svo ný af nálinni að til þessa hafa aðeins verið pöntuð 400 eintök í öllum heiminum. íslendingar fá tæki- færi til að panta sér gripinn í sept- ember, en þá mun hefjast inn- flutningur á henni af fullum krafti. Pað sem tölvan hefur fram yfir aðrar tölvur er ljósmyndavél eða „lesari“. Lesarinn er tengdur tölvunni og gerir mönnum kleift að fá myndefni á skjáinn. Þetta tæki opnar því nýja möguleika við tölvunotkun, m.a. er hægt að „klippa og líma“, þ.e.a.s-. færa myndir eða texta til eftir þörfum en tölvan geymir samt frumritið í minni sínu. Húsgagnasýning Um þessar mundir stendur yfir húsgagnasýning í verslunarhúsnæði Axis hf, þar sem kynnt eru ný húsgögn sem vöktu mikla athygli á alþjóðlegri húsgagnasýningu í Bella Center sl. vor. Þar vakti MAXIS- stóll sem Pétur B. Lúthersson hannaði einna mesta athygli. Pétur er höfundur MAXIS-línunnar sem þekkt er víða um lönd. Húsgagnasýn- ingin er opin daglega frá kl. 14-18 til 8. júlí í versluninni Smiðjuvegi 9, Kópavogi. 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júlí 1984

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.