Þjóðviljinn - 05.07.1984, Side 23
ÍÞRÓiriR
Jón Páll keppir í Glasgow.
Keppt við
Skota
íslenska landsliðið í
kraftlyftingum er á förum til
Glásgow þar sem á sunnudag
verður háð landskeppni við
Skota. Þetta er fyrsta lands-
keppni íslands í þessari íþrótt
ef Norðurlandamót eru und-
anskilin.
íslenska liðið skipa eftir-
taldir kraftakarlar: Jón Páll
Sigmarsson, Torfi Ólafsson,
Hjalti Árnason, Víkingur
Traustason, Óskar Sigurpáls-
son, Hörður Magnússon,
Baldur Borgþórsson, Freyr
Aðalsteinsson, Halldór Ey-
þórsson og Kári Elísson.
-VS
Valur-KA
í kvöld
Áttundi og síðasti leikurinn á
dagskrá 16-liða úrsUtanna í bikar-
keppni KSÍ verður háður á Vals-
veUinum í kvöld. Þar mætast 1.
deUdarlið Vals og KA og hefst
viðureignin kl. 20.
Þrfr leikir fara fram í 1. deild
kvenna í kvöld kl. 20. ÍA og Valur
leika á Akranesi, ÍBÍ og KR á fsa-
firði og Breiðablik-Víkingur á
Kópavogsvelli. Þá verður leikin
heU umferð í 2. deild kvenna.
Skuldir í
stað ágóða
Heimaleikur gegn 1. deildarliði
Þórs frá Akureyri í 16-Iiða úrslit-
um bikarkeppni KSI varð 3.
deildarliði Austra, Eskifirði, ekki
sú tekjulind sem vonast hafði ver-
ið eftir. Þórsarar samþykktu ekki
að dómaratríó af Austurlandi
dæmdi leikinn og því kom tríóið,
Baldur Scheving, Guðmundur
Haraldsson og Gunnar Jóhanns-
son, með leiguflugvél frá Reykja-
vík. Þegar búið var að greiða
þann kostnað og bflferð þre-
menninganna til og frá Neskaup-
stað þar sem vélin lenti, var allur
ágóði Austramanna af stór-
leiknum horfinn og vel það - þeir
sitja nú uppi með skuldirnar.
-VS
Skíðasvæði
við
Langjökul
í sumar verður opnað nýtt
skíðasvæði við rætur Langjökuls,
í Þjófakrók. Verður það fyrst um
sinn opið um helgar og verður
opnað laugardaginn 7. júlí og
hverja helgi eftir það til 12. ágúst.
Ýmislegt verður gert til að auka
á fjölbreytni fyrir skíðafólk. Þar
verður boðið uppá skiðakennslu
sem Tómas Jónsson fþróttakenn-
ari og skíðaþjálfari sér um. Einnig
verða sérstakar barnaþrautir,
þar sem reynir á hina ýmsu þætti
skíðaíþróttarinnar. Tvær eins
brautir verða fyrir þá sem vi|ja
spreyta sig í þeim.
Leiðin frá Reykjavík á skíða-
svæðið er um 100 km löng ef ekið
er um Kaldadal og er hún
greiðfær öllum bílum. Á HúsafelU
sem er stutt frá er góð tjaldað-
staða með þjónustumiðstöð,
sundlaug, gufubaði og Ijósum.
Fimm KR-mörk!
Vesturbœingar gjörsigruðu nœstefsta lið 1. deildar, ÍBK, í
bikarkeppninni í gœrkvöldi.
KR sigraði Keflavík í þræl-
fjörugum leik sem háður var á
Laugardalsvelli í gærkvöldi. Úr-
slit leiksins urðu 5-1 eftir að stað-
an hafði verið 1-1 í hálfleik. KR
hefur þarmeð tryggt sér miða í
8-liða úrslit bikarkeppni KSÍ en
Keflavík er úr leik.
Það voru Keflvíkingar sem
skoruðu fyrsta mark leiksins á 9.
mínútu, Ragnar Margeirson átti
þá skot sem Stefán Jóhannsson
markvörður KR-inga náði að
verja en hann hélt ekki boltanum
sem barst aftur til Ragnars sem
afgreiddi hann örugglega.
Rúmri mínútu síðar jöfnuðu
síðan KR-ingar, Ágúst Már átti
þá fast skot utan vítateigs sem
hafnaði í bláhorni ÍBK marksins,
1-1. Magnús Garðarsson var síð-
an tvisvar nærri því að koma
Keflvíkingunum yfir. í fyrra
skiptir skaut hann yfir innan
markteigs en í seinna skiptið var
langskot hans slegið í horn.
KR-ingar áttu síðan mun meira
í seinni hálfleiknum og á 19. mín-
útu hálfleiksins uppskáru þeir
mark, Gunnar Gíslason lék á
vamarmann rétt utan vítateigs og
reyndi síðan skot, skotið var laust
en Þorsteinn Bjarnason var of
seinn að átta sig og boltinn hafn-
aði í bláhorninu og KR-ingar
höfðu því náð forystu. Þriðja
mark KR kom síðan tveimur
mínútum seinna. Elías Guð-
mundsson átti þá sendingu inn í
vítateig Keflavík þar sem Sæ-
björn Guðmundsson kastaði sér
á eftir boltanum og skallaði hann
stórglæsilega í markhornið.
Fimm mínútum fyrir leikslok
skoraði KR sitt fjórða mark,
Sverrir Herbertsson átti þá skalla
að markinu sem Þorsteinn varði,
hann hélt hinsvegar ekki boltan-
um sem barst til Agústs Más sem
átti ekki í neinum erfiðleikum að
pota boltanum yfir línuna, 4-1.
Varamaðurinn Jón G. Bjarna-
son átti síðan síðasta orðið, ein-
leikur hans frá miðjum velli og
inn í vítateig keflavíkur endaði
með því að hann sendi boltann
framhjá Þorsteini í markinu.
Þessi leikur er tvímælalaust sá
besti sem KR hefur spilað í sumar
enda uppskáru þeir eins og til var
sáð. Ágúst Már Jónsson barðist
mjög vel allan leikinn. Þeir Sæ-
björn Guðmundsson og nýliðinn
Sævar Leifsson áttu mjög góðan
kafla.
Keflvíkingar urðu fyrir nokkru
áfalli í byrjun síðari hálfleiks er
Valþór Sigþórsson þurfti að yfir-
gefa völlinn, hvort það hafi skipt
sköpum í leiknum skal ósagt látið
en eitthvað hefur vörn þeirra
veikst við það áfall. Ragnar Mar-
geirsson og Magnús Garðarsson
voru bestu meinn Keflavíkur.
Frosti -
Fram hafði það
Stóðst pressu ÍBÍ og tryggði sér sœti í 8-liða
úrslitunum með 1 -0 sigri.
Sigruðu Víðismenn 5-1 í Garðinu
komust í 4-0 fyrir hlé.
Ágúst Már Jónsson skoraði tvö
marka KR í gærkvöldi.
Frömurum tókst að standast
töluverða pressu 2. dcildarliðs
ÍBÍ í síðari hálfleiknum og vinna
sigur, 1-0, í leik liðanna í 16-liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ á ísa-
firði í gærkvöldi. Leikurinn var
mjög hraður og fjörugur og tal-
svert um marktækifæri.
Strax á 6. mínútu barst knöttu-
rinn útúr vítateig Fram eftir
þvögu þar, Benedikt Einarsson
þrumaði viðstöðulaust á markið
en í þverslána og yfir Frammark-
ið. Liðin sóttu til skiptis og á 13.
mínútu komst Ragnar
Rögnvaldsson í dauðafæri við
mark Fram eftir fyrirgjöf Rúnars
Vífilssonar en skaut framhjá.
Tveimur mínútum síðar varði
Magni Björnsson markvörður
ÍBf mjög vel góðan skalla Guðm-
undsTorfasonar. Magni bjargaði
síðan með góðu úthlaupi á 25.
mínútu. Á 29. mín. forðaði Guð-
mundur Baldursson markvörður
Fram marki þrívegis í röð með
því jað verja skot frá sóknar-
mönnum jÍBÍ af stuttu færi.
Sigurmarkið kom á 40. mín-
útu. Ágæt sókn hjá Fram, Guð-
mundur Torfason reif sig lausan
frá varnarmanni af miklum
krafti, komst á auðan sjó og renn-
di boltanum af öryggi í netið, 0-1.
Framarar byrjuðu betur í síðari
hálfleik en heimamenn tóku öll
völd þegar korter var liðið og
sóttu linnulítið til leiksloka.
Framarar vörðust vel en af hörku
og fengu á sig mikið af auka-
Blikar í
banaformi
átti Vilberg Þorvaldsson gott færi
en skaut yfir.
Á 68. mínútu bættu Blikar
fimmta markinu við, eftir skyndi-
sókn og varnarmistök Víðis-
manna tóks Þorsteini Geirssyni
að skora af vítapunkti, 0-5. Eftir
þetta var leikurinn þófkenndur
en Víðismenn gáfust ekki upp og
tókst að skora á 88. mínútu. Guð-
mundur Jens Knútsson var þar að
verki eftir hornspymu.
Guðmundur Jens og Grétar
voru bestir hjá Víði. Sigurjón
Kristjánsson lék mjög vel hjá
Blikunum þó honum tækist ekki
að skora og Ómar átti einnig góð-
an leik. Loftur Ólafsson og
Breiðabliki, og Vilhjálmur Ein-
arsson, Víði, fengu gul spjöld í
fyrri hálfleik. Dómari var Ragnar
Óm Pétursson og dæmdi vel.
-SM/Suðurnesj um.
í rigningarsudda og roki lagði
Breiðablik Víði að velli 5-1 í bik-
arkeppni KSÍ í Garðinum í gær-
kvöldi eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 4-0.
Fyrsta markið var skorað á 6.
mínútu og var þar Jón Einarsson
að verki. Þrátt fyrir harða sókn
Blika tókst þeim ekki að skora
aftur fyrr en á 35. mínútu og var
þá Jón Gunnar Bergs á ferðinni.
Fjómm mínútum seinna skoraði
Ómar Rafnsson með skalla eftir
hornspyrnu, 0-3. Skömmu fyrir
hlé bættu Blikar fjórða markinu
við eftir aukaspyrnu frá hliðar-
línu. Benedikt Guðmundsson
skoraði með skalla.
Víðismenn ætluðu sér greini-
lega að minnka muninn og átti
Grétar Einarsson tvö gót skot
sem Friðrik Friðriksson varði
mjög naumlega í horn. Einnig
spyrnum, en voru skæðir í
skyndisóknum. Tíu mínútum
fyrir leikslok fengu ísfirðingar
tvö góð færi, fyrst skallaði Bene-
dikt rétt yfir mark Fram og síðan
tók Kristinn Kristjánsson auka-
spyrnu; boltinn barst til Jóhanns
Torfasonar sem skaut en Guð-
mundur varði vel í horn. Það var
síðasta hættulega færið í leiknum
og Framarar hrósuðu sigri og sæti
í 8-liða úrslitunum.
Lið ísfirðinga var jafnt yfir
heildina. Magni lék þarna sinn
fyrsta leik í marki ÍBÍ og stóð sig
mjög vel. Guðmundur varði Fra-
mmarkið af stakri prýði og
Guðmundarnir í framlínunni,
Torfason og Steinsson voru frísk-
ir. -GK/Isaflrði
Eins og fram hefur komið, stóðu íslensku þátttakendurnir á Ólympíu-
lelkum fatlaðra í New York sig framar öllum vonum. Haukur Gunnarsson
var þar framarlega í flokki, hlaut tvenn bronsverðlaun, og hér er hann á
verðlaunapalli eftir 400 m hlaupið ásamt Rudi Kocmut frá Júgóslavíu
sem sigraði. Robert Mearens frá Kanada sem varð annar í hlaupinu var
ekki viðstaddur afhendinguna.
Guðmundur Torfason tryggði
Frömurum sigur á (safirði.
Þriðja til-
raun í kvöld
Ekki gátu ÍBV og ÍA leikið í
bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi
fremur en í fyrrakvöld. í gær
reyndist ekki unnt að fljúga til
Vestmannaeyja en leikurinn hef-
ur verið settur á kl. 20 í kvöld.
Vonandi verður þá spakmælið
góða I fullu gildi - allt er þá
þrennt er.
Fimmtudagur 5. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23