Þjóðviljinn - 06.07.1984, Blaðsíða 1
LANDÐ
MENNING
Atvinnusjúkdómar
Isal tapar
mengunarmáli
Dómur fallinn í máli starfsmanns
sem varð fyrir mengun afsúráli.
Fyrsti dómurinn á Isal vegna mengunar
Grétari Hinrikssyni, verka-
manni, hafa verið dæmdar
bætur vegna heilsutjóns af völd-
um mengunar á vinnustað. Er
þetta fyrsti dómurinn þar sem
Isal er dæmt að greiða bætur
vegna mengunar og var kveðinn
upp í Bæjarþingi Hafnarfjarðar
þ. 26. júní s.I.
Grétar Hinriksson er hlaut
30% varanlega örorku af völdum
lungnasjúkdóms höfðaði mál
gegn ísal. Hann hóf störf í flutn-
ingadeild ísal á árinu 1969. í árs-
byrjun 1971 var honum fengið
það verkefni að vinna við löndun
úr súrálsskipum.
Löndun fór þannig fram að
færiband færði súrálið upp úr
lestinni. Jarðýta var látin síga
niður í lestina og notuð til að ýta
súrálinu að færibandinu. Mörg
vitni báru að í lestinni hefði verið
slíkur rykmökkur að menn sáu
varla handa sinna skil.
Skipta þurfti um loftsíur á vél
ýtunnar á 4 klst. fresti og mótorar
entust illa. Einu mengunarvarn-
irnar sem starfsmönnum voru
fengnar voru gamaldags
heygrímur. Súrálslöndun stóð í
hálfan mánuð allan sólarhring-
inn, engir frídagar. Tveir menn
skiptust á á ýtunni, voru niðri í
lestinni í eina til tvær klst. í senn
og lögðu sig til skiptis í jafnlangan
tíma í skála á hafnarsvæðinu.
Súrálsskip komu á um þriggja
mánaða fresti.
í dómi sátu Már Pétursson,
héraðsdómari í Hafnarfirði og
tveir læknar, þeir Hrafn Tulinius,
prófessor í heilbrigðisfræðum við
H.í. og Magni S. Jónsson, sér-
fræðingur við Borgarspítalann í
lungnasjúkdómum og lyflækn-
ingum. Þjóðviljinn birtir dóminn
í heild sinni.
ss
Sjá bls. 8
Stigahlíðarlóðirnar:
Skattarnir þeirra
eru leyndarmál
Þessi skepna sem er Laugvetningur að ætt og uppruna minnir á
hestamannamót sem hófst á Kaldármelum í gær og stendur fram á
sunnudag. (-eik).
Ný skýrsla
Sjá baksíðu
Borgarspítalinn
Þjóðhagsstofnun
fordæmir óstjórnina
Meira
álag
minni
Þjóðhagsstofnun ásakar ríkisstjórnina um misvœgi í
efnahagsbúskapinum. Vaxandi viðskiptahalli þrátt fyrir hagstœðari
útflutningsskilyrði og vaxandi útflutning.
Samdráttur Þjóðarframleiðslu
verður minni 1984 en spáð var
í ársbyrjun eða 1% til 2% í stað
4% í fyrra, segir orðrétt í skýrslu
efnahagssérfræðinga Þjóðhags-
stofnunar sem enn hefur ekki ver-
ið birt opinberlega. Skýrslan fel-
ur í sér þungan áfellisdóm yfir
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
„Ýmis merki eru um að botni
hafi verið náð í hagsveiflunni“,
segir í skýrslunni. En þjóðar-
framleiðslan er meiri en gert var
ráð fyrir þegar kjarasamningar
voru gerðir í vetur. Þrátt fyrir
þetta hagstæða ástand eru blikur
á lofti: „Framvindan á fyrri hluta
ársins sýnir, að afar mikið hefur
dregið úr verðbólgu. Enn er þó
við verulegt misvægi að glíma í
þjóðarbúskapnum. Þetta mis-
vægi birtist nú fyrst og fremst í
mynd vaxandi viðskiptahalla".
Af þessum ummælum er greini-
legt að efnahagssérfræðingarnir
telja efnahagsóstjórnina yfir-
gengilega þrátt fyrir hagstæðar
forsendur. Þjóðhagsstofnun er
með þessum orðum að benda á
óstjórnina í peningamálum, ríkis-
fjármálum, skipulagsleysið í
fjárfestingum og fádæma rugl-
andi í efnahagsstjórnun landsins.
„Vegna mikils innflutnings það
sem af er ári, eru nú horfur á mun
meiri viðskiptahalla en áður var
gert ráð fyrir eða allt að 4% af
þjóðarframleiðslu, þrátt fyrir
meiri útflutningsframleiðslu og
útflutning en áður var spáð“.
Þrátt fyrir aukningu þjóðarfram-
leiðslu, útflutningsframleiðslu og
útflutning eykst samt viðskipta-
hallinn tvöfalt á við það sem ætl-
að hafði verið. Af því leiðir að
viðskiptahalla verður mætt með
erlendum lántökum sem notaðar
eru til neyslu. Jafnframt gengur á
gjaldeyrisforða landsmanna.
Eftir að ríkisstjórnin er búin að
keyra niður kaupmátt launa nið-
ur í það lakasta sem verið hefur í
þrjá áratugi, stendur samt sem
áður eftir að hallinn við útlönd er
talinn vera um 2.5 miljarður.
Áreiðanlegar heimiídir Þjóð-
viljans telja að þessi nýja óbirta
skýrsla Þjóðhagsstofnunar sé enn
einn áfellisdómurinn yfir efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar.
-óg
tekjur
„Ég er algerlega á móti þessum
breytingum og hef verið það frá
upphafi“ segir Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir formaður Sóknar um
breytinguna sem verið er að gera
á tilhögun ræstinga á Borgarspít-
alanum. En eins og Þjóðviljinn
hefur greint frá, þá hefur
breytingin í för með sér meira
vinnuálag á Sóknarkonur og oft á
tíðum minni laun.
í dæmum sem birt eru með
fréttaskýringu á bls. 17 kemur
fram að breytingin veldur því að
mánaðartekjur sumra kvenna
hafa minnkað um mörg þúsund
krónur. _ÖS
Sjá bls. 11