Þjóðviljinn - 06.07.1984, Síða 6
LANDÐ
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
FULLTRÚA hjá aöalbókhaldi Fjármála-
deildar.
Verslunarmenntun eöa mikil reynsla við
bókhaldsstörf æskileg.
SKRIFSTOFUMANN hjá hagdeild Fjármála-
deildar,
Verslunarmenntun æskileg.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannadeild
sími 91-26000.
FRÁ MENNTAMÁLA-
RÁÐUNEYTINU
Lausar stöður
Viö Menntaskólann á Egilsstöðum eru lausar til um-
sóknar hálf staða kennara í frönsku og hálf staða í
efnafræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 22. júlí.
Menntamálaráðuneytiö.
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Gerum föst verötilboö yöur
að kostnaðarlausu án skuldbindinga
af yöar hálfu.
Upplýsingar í símum (91) 666709
Sprungu-
og þak-
þétting
FAGVERK S/F
Verktakafyrirtæki
Sími 26098
1. Sprunguviðgerðir með bestu fáanlegum efnum. Efni
þessi standast vel alkalísýrur og seltu, hefur mikla teygju
og góða viðloðun.
2. Gerum við steyptar þakrennur og berum í þær þéttiefni.
3. Þök: Tökum að okkur allar viðgerðir og breytingar á
þökum, þéttum bárujárn, skiptum um járn o.fl. (erum með
mjög gott þéttiefni á slétt þök).
4. GÍuggar: Sjáum um allar viðgerðir og breytingar á
gluggum. Kíttum upp glugga, setjum opnanleg fög, gler-
ísetningar o.m. fleira.
5. Málning: Önnumst alla málningarvinnu utan húss sem
innan.
Áhersla lögð á vönduð vinnubrögð og viðurkennd
efni, viðráðanleg kjör og góða þjónustu. Komum á
staðinn, mælum út verkið, sýnum prufur og send-
um skriflegt tilboð.
Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 26098.
- Geymið auglýsinguna -
Aðalfundur
útgáfufélags Þjóðviljans ,
Aöalfundi útgáfufélags Þjóðviljans sem
halda átti fimmtudaginn 5. júlí hefur veriö
frestað. Hann verður í staö þess haldinn
fimmtudaginn 12. júlí n.k. og hefst kl. 20.30 í
fundarsal Alþýðubandalagsins Hverfisgötu
105, Reykjavík. Stjórnin.
Svo skal böl bœta
MEGAS
TOLLI
BEGGI
KOMMI
BRAGI
gramm!
LauQ^vegur 17 Sirm 12040
Kjötsölumálin
Heilskrokkasalan hefur
gengið sér til húðar
Starri í Garði ræðir um sölu á kindakjöti ogsegir
frá fundi Þingeyinga um það mál
Starri í Garði: - Vonandi er þessi fundur upphaf nýrra og betri
tíma í þessum efnum.
Svo sem alþjóð veit, enda
ítrekað við öll möguleg tæki-
færi í blöðum, útvarpi og sjón-
varpi er það hin opinbera
stefna forystumanna bænda-
samtakanna, Búvörudeildar
SÍS, valdamikilla pólitíkusa
svo sem forsætisráðherra,
landbúnaðarráðherra o.fl
slíkra, að íslenskt kindakjöt er
óseljanleg vara á erlendum
mörkuðum fyrir viðunandi
verð.
Því er slegið föstu, að því er
virðist, af þessum aðilum, að
svona muni þetta verða um ó-
komin ár, sama hvað reynt er,
enda er SIS svo almáttugt í þeirra
augum, að ef það gefst upp við
verkefnið, ja, þá geta engir aðrir
leyst það.
Út á þessa fullyrðingu á svo að
skipuleggja niðurskurð á ca.
þriðjungi sauðfjárstofnsins, miða
aðeins við innanlandsmarkað,
sem stjórnvöld eru þó að eyði-
leggja t.d. með niðurskurði
niðurgreiðslna á búvörur.
Það er í senn furðulegt og
hörmulegt hvað bændur almennt
hafa tekið þessum ósvífna áróðri
með mikil þögn og þolinmæði.
En nú kann svo að fara að í vænd-
um sé breyting þar á. Að frum-
kvæði áhugamanna og í sam-
vinnu við Búnaðarsamband
Suður-Þingeyinga var boðað til
almenns bændafundar í. hér-
aðinu, eins og fram kemur í með-
fylgjandi frétt af þeim fundi. Á
fimdinum kom fram, sem vænta
mátti, að bændur höfðu ekki
síður áhuga á úrræðum frummæl-
endanna, þeirra Andrésar Þor-
varðarsonar og Gunnars Páls
Ingólfssonar en niðurskurðará-
róðri þeim, sem á þeim dynur
daglega. Enda er ekki saman að
jafna rökstuðningi þeirra og mál-
flutningi og hinum hefðbundna
eymdartón samdráttarmanna.
Það verður auðvitað ekki gert
á einum degi, fremur en að
byggja Róm forðum, að byggja
upp kjötiðnað og markaði er-
lendis í stað heilskrokkasölu SÍS,
sem hefur löngu gengið sér til
húðar.
Vonandi er þessi fundur upp-
haf nýrra og betri tíma í þessum
efnum og það er ekki bændastétt-
in ein, sem á mikið undir því
komið, hvernig þessi mál þróast.
Starri í Garði.
Landbúnaður
Búnaðarblaðið Freyr
Búfræðikandidatar leita í auknum mœli í búskap
Tólfta tbl. Freys er komið út
og hefst á grein eftir Matthías
Eggertsson ritstjóra, þar sem
fjallað er um búnaðarfræðs-
luna.
Þá er í ritinu viðtal við Magnús
B. Jónsson, skólastjóra á Hvann-
eyri, þar sem fram kemur að
búfræðikandidatar frá skólanum
leita meira í búskap en áður. Mun
þar ekki að hluta til að leita skýr-
ingarinnar á skorti á ráðunaut-
um? Birt er erindi Egils Bjarna-
sonar ráðunautar þar sem rætt er
um áhrif þess að laga búvöru-
framleiðsluna alfarið að innan-
landsmarkaði. GrétarEinarsson,
sérfræðingur hjá Bútæknideild
RALA á Hvanneyri, ritar um
tækni við bindingu og geymslu
rúllubagga. Rætt er við séra Sig-
mar I. Torfason um bjálkahús á
Hrafnabjörgum í Hjaltastaða-
þinghá. Pétur Þór Jónsson, kenn-
ari á Hvanneyri, ræðir ýmsar or-
sakir slæmrar súgþurrkunar. Þá
birtist fyrsta grein í greinaflokki
Jóns Guðmundssonar líffræðings
um æðarfugíinn. Loks er svo4
verðlagsgrundvöllur búvara 1.
júní 1984, bréf sem blaðinu hefur
borist og sagt frá aðalfundi
Mjólkurbús Flóamanna.
-mhg
Bifröst, aðsetur Húsmæðravikunnar.
Bifröst
Húsmæðravika
Sú 25. sem SÍS og kaupfélögin efna til
Suðurnes
Gefur
málverk
Vatnsleysustrandar-
hreppur fœrir
sjúkrahúsinu í
Keflavík málverk
Kristján B. Einarsson,
oddviti Vatnsleysustrandar-
hrepps afhenti á dögunum, -
fyrir hönd sveitarfélagsins, -
sjúkrahúsi Keflavíkurlæknis-
héraös málverk aö gjöf. Er
það í samræmi viö þá ábend-
ingu Starfsmannafélags
sjúkrahússins að þau
sveitarfélög, sem standa aö
rekstri þess gefi sjúkrahúsinu,
hvert um sig, eitt listaverk,
byggingunni til feguröarauka.
Málverkið er eftir Þórunni
Guðmundsdóttur. Sýnir það bát,
sem er að taka land í Vatns-
leysustrandarvík, algeng sjón á
Suðurnesjum framan af þessari
öld. Þórunn Guðmundsdóttir er
fædd og uppalin í Vogunum en nú
búsett í Sandgerði. -mhg
Hin árlega húsmæðravika
Sambandsins og kaupfélag-
anna var haldin í Bifröst í
Borgarfirði dagana 3.-8. júní
s.l. Þátttakendur voru 56 frá
17 kaupfélögum víösvegar
um landiö. Forstöðumaður
vikunnar var Guðmundur
Guömundsson, fræðslufull-
trúi Sambandsins.
Húsmæðravikan er fræðslu- og
hvfldarvika. Á dagskrá hennar
voru að þessu sinni fræðsluer-
indi, vörukynningar, ferð um
Borgarfjörð, kvöldvökur o.fl.
Þátttakendur voru mjög ánægðir
með vikuna og var forstöðu-
manni hennar og starfsfólki hót-
elsins að Bifröst færðar sérstakar
þakkir í lokin.
Sambandið og kaupfélögin
hafa staðið fyrir slíkri húsmæðra-
viku allt frá árinu 1960 og var
þessi vika því sú 25. í röðinni.
-mhg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. júlí 1984