Þjóðviljinn - 24.07.1984, Side 1
LANDIÐ
ÍÞRÓTTIR
sáttasemjara væru samtökin að
sýna mjög afdráttarlausan vilja til
að tíminn fram til 1. september
yrði notaður sem allra best til
samningaviðræðna milli deiluað-
ila, en með vísun til embættis
hans væri sáttasemjari sjálfkrafa
settur yfir viðræðumar.
Valgeir Gestsson formaður
Kennarasambands íslands sagði
að kæmi ekki viðunandi lausn
fram í viðræðunum myndi að lík-
indum verða boðað til verkfalls í
september og þá yrði sáttasemj-
ari lögum samkvæmt að leggja
fram sáttatillögu. Um hana yrðu
síðan greidd atkvæði í allsherjar-
atkvæðagreiðslu innan BSRB.
Yrði hún samþykkt eða minna en
helmingur félagsmanna tæki þátt
í atkvæðagreiðslu væri verkfall úr
sögunni, en öðmm kosti myndi
hið boðaða verkfall koma til fra-
mkvæmda. „Og ég get sagt þér að
komi til þess, þá er mjög mikill
hugur í opinberum starfsmönn-
um og ekki síst kennurum“ sagði
Valgeir Gestsson. ös
Sjá bls. 2
Bensín
Hækkunin
er ríkinu
að kenna
Indriði Pálsson for-
stjóri Shell: Bensín-
verðið frá okkur hef-
ur lœkkað
Hver líter af bensíni kostar í
dag 22.70 kr. Þar af eru um 60%
af verðinu opinber gjöld og hefur
það hlutfall aldrei verið hærra.
„Þegar talað er um hækkun á
bensíni þá er olíufélögunum
kennt um, þó bensínverð hafi í
raun lækkað á síðasta ári. þe. sá
hluti sem við ráðum, innkaups-
verð og innlendi kostnaðurinn.
Hins vegar hafa opinberu gjöldin
hækkað um 60% á einu ári“,
sagði Indriði Pálsson forstjóri
Skeljungs þegar Þjóðviljinn bar
undir hann verðlagningu á bens-
íni
„Það er ansi mikið finnst mér
að halda alltaf sömu prósentunni
þegar gengið er lækkað eins og
gerst hefur á undanfömum mán-
uðum og ámm. Það þýðir ein-
faldlega að opinbem gjöldin
hækka í krónum talið og þegar
þetta er orðið 13 - 14 krónur af
verði hvers bensínlítra þá sér
hver maður að þetta er orðið
nokkuð mikið“, sagði forstjóri
Skeljungs.
-•g-
Sjá bls. 3
Nú er hún ein. Tilhugalífið í vor var með besta móti og nú vona menn í sorg sinni yfir Stóra „Birni“ að svo verði uppskorið sem til var sáð. Mynd - eik.
Sœdýrasafnið
Er birnan með húnum?
Tilhugalífið ígóðu standi í vor og vonir umfjölgun um jólaleytið
Stóri „Björn “ lést úr blóðeitrun og verður líklegast stoppaður upp
Talið er fullvíst að ísbjörninn
sem lést í Sædýrasafninu fyrir
réttri viku hafi látist úr blóð-
eitrun. Sigurður Sigurðsson
dýralæknir á Keldum krufði dýr-
ið og hann sagði í samtali við
ÞjóðvUjann að stór sár hefði ver-
ið á annarri afturilinni sem hefði
grafið í. ísbjörninn „Björn“ sem
hann var kallaður var sá stærsti
sem lifði í dýragörðum í heimin-
um.
„Það er afskaplega sorglegt
þegar svona fer. Skepnan hefur
ábyggilega tekið mikið út og ef
þetta er frá einhverju sem fleygt '
hefur verið niður í gryfjuna,
flösku eða öðm, þá verður að
vona að þetta slys verði mönnum
viðvömn og slíkt komi ekki fyrir
aftur“, sagði Sigurður.
Þrátt fyrir mikla sorg nánustu-
vina bjamdýrsins, þá lifir nú sú
von með mönnum að tíðinda sé
að vænta í ísbjarnargryfjunni um
jólaleytið. Ekki er talið útilokað
að biman sem eftir lifir hafi fest
fang í vor og sé með húnum.
„Maður veit ekki hvað verður
en ástarlífið hefur verið í góðu
lagi bæði í ár eins og undanfarin
tvö ár þó það hafi ekki borið ár-
angur. Það er erfitt að spá til um
þetta. Maður veit aldrei hvenær
þeir hitta í mark“, sagði Jón Kr.
Gunnarsson forstöðumaður Sæ-
dýrasafnsins í gær.
Það er ekki algengt að bjarn-
dýr nái að fjölga sér í dýragörð-
um, best hefur tekist til í þeim
efnum hjá frændum vomm
Dönum að sögn Jóns. Hann sagði
að þetta gæti allt eins og orðið og
ekki, það yrði þá kærkomin
uppákoma.
Dauði ísbjamárins á dögunum
er ekki fyrsta dæmið um ónær-
gætni gesta við dýr í safninu.
Safnverðir hafa oft á tíðum orðið
að sækja alls kyns aðskotahluti
sem fólk hefur kastað að bjam-
dýmnum og öpunum. Og selir
hafa kafnað þegar þeir hafa
gleypt slíka hluti.
Vömðu þeir Jón og Sigurður
mjög við því að fólk væri að gefa
dýmnum eða kasta til þeirra
híutum, það gæti haft alvarlegar
afleiðingar í för með sér eins og
dæmi hafa sannað.
ísbjöminn sem lét lífið af slík-
um bjarnargreiða hefur verið
fleginn og verður líklegast stopp-
aður upp. - lg.
__BSRB_
Samningum sagt upp
Samþykkt að vísa deilunni strax til sáttasemjara og myndað verkfallsráð.
Mjög mikill einhugur ríkti áfundi stjórnar og samninganefndar BSRB
w
Ígær samþykkti stjórn og samn-
inganefnd BSRB með 70 sam-
hljóða atkvæðum að segja upp
launaliðum kjarasamnings síns
og fjórmálaráðuneytisins frá og
með 1. september næstkomandi.
Jafnframt var samþykkt með
samhljóða atkvæðum að vísa
kjaradeilunni þegar í stað til
sáttasemjara, en að sögn Krist-
jáns Thorlaciusar formanns
BSRB er þetta í fyrsta sinn sem
samningaviðræðunum er vísað
svo snemma til sáttasemjara.
Þá var ennfremur samþykkt að
mynda verkfallsráð fyrir 10. ág-
úst sem sýnir þann baráttuvilja
sem nú ríkir í BSRB.
Kristján Thorlacíus sagði að
með því að vísa deilunni strax til