Þjóðviljinn - 24.07.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR
Nýjar baráttuaðferðir
Óskað eftir viðrœðum við olíufélögin um bensínverðshœkkun Alberts.
„Lítum síðustu hœkkun alvarlegum augum eftir fyrirheit stjórnvalda"
Þrátt fyrir að aldrei áður hafi
opinber gjöld sem hlutfall af bens-
ínverði verið hærri en eftir síð-
Samningarnir
Segja ekki
upp á
Eyrarbakka
Á Eyrarbakka samþykktu fé-
lagar Verkalýðsfélagsins Bárunn-
ar að segja ekki upp launaliðum
samninga í haust. Þetta gerðist í
atkvæðagreiðslu á föstudag, 42
voru á móti uppsögn, 11 með.
Eiríkur Runólfsson formaður
félagsins taldi að úrslitin hefðu
ráðist að nokkru af atvinnuá-
standi á staðnum. Öllum starfs-
mönnum frystihússins, sem er að-
alvinnukaupandi á Eyrarbakka,
hefur verið sagt upp frá og með 1.
október og þegar er töluvert af
fólki á atvinnuleysisskrá. „Það er
erfitt að fara útí aðgerðir á þess-
um tíma, - meðan ekkert er áð
gera“ sagði Eiríkur.
Þór á Selfossi hefur sagt upp
samningum. Fundir eru boðaðir í
Boðanum á miðvikud. (Hvera-
gerði) og á fimmtudag (Þorláks-
höfn). Fundur verður haldinn
fyrir mánaðamót í Bjarma á
Stokkseyri og nágrenni.
-m
ustu hækkun fjármálaráðherra á
bensínsköttum, þá hefur lítið
heyrst til forráðamanna félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda sem oft
hafa haft sig mjög í frammi við
bensfnverðshækkanir.
„Við höfum verið að undirbúa
aðgerðir og við lítum þessa síð-
ustu hækkun mjög alvarlegum
augum“, sagði Jónas Bjarnason
framkvæmdastjóri FÍB er hann
var spurður hverju aðgerðarleysi
félagsins sætti.
„Okkar aðgerðir beinast að ol-
íufélögunum eins og er. Við höf-
um í dag óskað eftir viðræðum
við þau um innkaup og verð-
myndun á bensíni. Auðvitað snýr
okkar barátta einnig að yfirvöld-
um eins og hingað til. Við höfum
beint okkar kröftum gífurlega
mikið að ráðamönnum og því olli
það okkur vonbrigðum þegar
þessi 40 aura hækkun var ákveðin
á dögunum“, sagði Jónas.
Hann sagði að mikill þrýsting-
ur væri frá félagsmönnum vegna
hinnar geysilegu uppbyggingar
hjá olíufélögunum undanfarið og
þess ríkidæmis sem virðist vera í
kringum þau. „Þá eru olíufélögin
stórir auglýsendur í fjölmiðlum
og til viðbótar virðast dreifing-
arstöðvar þeirra vera fleiri en
þörf er á“.
Jónas sagði að FÍB hefði átt
viðræður við fjármálaráðherra í
vor um verðlagningu á bensíni.
„Ráðamenn gáfu okkar fulltrú-
um góð fyrirheit. Þess vegna kom
þessi hækkun töluvert á óvart og
olli okkur vonbrigðum. Við erum
búnir að funda mikið síðustu
daga og höfum ákveðið að taka
upp nýjar aðferðir í baráttu okk-
ar. Ég get ekki sagt í dag í hvaða
veru þau vinnubrögð verða. Það
fer mikið eftir því hvað viðbrögð
olíufélögin sýna okkar mála-
leitan. Ef við fáum ekki þá af-
stöðu sem við kjósum þá verðum
við að grípa til þeirra aðgerða
sem við teljum nauðsynlegar“,
sagði framkvæmdastjóri FÍB.
-lg-
Ekki er að sjá að Steindór láti
þetta hafa áhrif á þá þjónustu
sem þeir hafa veitt hingaðtil og
halda þeir ótrauðir áfram að
keyra.
I samtali sem Þjóðviljinn átti
við Ólaf Steinar Valdimarsson1
ráðuneytisstjóra kom fram að
málið væri í athugun hjá Sam-
gönguráðuneytinu, engin á-
kvörðun hefði enn verið tekin og
óvíst væri hvenær af því yrði.
Hjá Steindóri fengum við þær
upplýsingar að samgönguráð-
herra væri að skoða hvort hann
geti leyst þetta mál þannig að allir
verði ánægðir, þetta taki allt sinn
tíma og að ekki hafi verið tekið
fram í dómnum hvenær hann
skyldi koma til framkvæmda. Það
sé sanngirnismál að Steindór fái
að halda áfram.
Guðmundur Valdimarsson hjá
Bifreiðastjórafélaginu Frama
vildi hinsvegar meina að
Steindórsbflarnir hefðu verið
aukabflar í leiguakstri í Reykja-
vík frá því í febrúar 1982. Ur-
skurðurinn sé kominn, aðeins sé
tímaspursmál hvenær akstur
þeirra verði stöðvaður, hæsta-
réttardómi verði allir að hlýta.
Þér bjóðast betri kjör
betri en þú hyggur
Nú er lœkkandi útborgun
því bjóðum við eignir með
hagkvcemari greíðslutilhögun
en verið hefur.
Hringdu því strax
og láttu okkur leita &
Fasteignasaia&
Leitarþjonusta
Siinar 687520 6875 21 39424 Bolholti 6 4 hæö
Leigubílar
Gullinbrúva
Steindór
enn
á fullum
dampi
Málið í athugun í
ráðuneyti, ákvörðun
ótekin og óvíst hvað
verður
28 tonn
í loftið
Við Gullinbrú hetur steyptum burðarbit-
um sem bera eiga brúardekkið uppi verið
komið fyrir á stöplum sem steyptir voru nið-
ur á fast í Grafarvoginum. Þyngstu bitamir
vega 28 tonn og eru 26 metrar á lengd.
Bitarnir voru steyptir á bakkanum norðan
megin brúar og um helgina hífðir yfir á
stöplana með þyngsta færanlega krana á
landinu.
Gullinbrú verður 60 metrar að lengd,
með þremur höfum. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdum Ijúki í september eða októ-
ber í haust. Ljósm. Loftur.
Sem kunnugt er féll fyrir
nokkru dómu f svokölluðu
,3teindórsmáli“. Bifreiðastöð-
inni Steindór var gert að stöðva
akstur sinn, þar sem stöðin hafði
ekki tilskilin leyfi tíl leigubifreiða-
aksturs f Reykjavík.
Þriöjudagur 24. júlí 1984 þJÓÐVIUINN - SÍÐA 3