Þjóðviljinn - 24.07.1984, Qupperneq 8
LANDÐ
Hvolsvöllur
Heimili
fyrir
aldraða
Hrossaket
Sláturhross
til
Danmerkur?
Frá hitaveitunni á Laugalandi.
Samið um afnot
af jarðhita
Ríkið og Akureyrarbœr semja um
afnot jarðhitans á Syðra-Laugalandi
Samningurinn gildir í 75 ár
Möguleikar hafa nú opnast til
þess hjá Búvörudeild SÍS að selja
lifandi hross til Danmerkur, sem
verði svo slátrað þar. Mundi þá
verða tekið á leigu sérstakt gripa-
flutningaskip af bestu gerð, svo
vel fari um hrossin á leiðinni.
Búvörudeild hefur haft sam-
band við Hagsmunafélag hrossa-
bænda, sem hvetur félaga sína til
þess að notfæra sér þessa mögu-
leika.
Fóðurblöndur frá Lántmánn-
ens f Svíþjóð hafa verið fluttar inn
á vegum Sambandsins og kaupfél-
Tilraunir þær, sem gerðar hafa
verið með sölu á hrossaketi er-
lendis, hafa ekki tekist sem
skyldi. Magnús Friðgeirsson,
framkvstj. Búvörudeildar, telur,
að á meðan ekki sé til hérlendis
stórgripasláturhús, sem Efna-
hagsbandalagsríkin viðurkenni,
sé svona sala eini möguleikinn til
að selja hrossaket erlendis á við-
unandi verði.
-mhg.
aganna undanfarin ár. Nú eru á
boðstólum hjá þessum aðilum
nýjar gerðir fóðurblandna frá
Verið er að koma upp á Hvols-
velli heimili fyrir aldraða. Að því
standa fjórir hreppar: Hvol-
hreppur, Austur-Landeyja-
hreppur, Fljótshlíðarhreppur og
Vestur-Eyjafjallahreppur.
íbúar þessara hreppa hafa for-
gang að vistrými. Nýti þeir það
ekki til fulls má ráðstafa því, sem
afgangs er, til annarra. Þeir vist-
menn, sem til þess treysta sér, sjá
sjálfir um sitt heimilishald, ann-
ars kemur til kasta starfsfólksins,
sem annast að sjálfsögðu að öllu
leyti um þá vistmenn, sem á því
þurfa að halda.
Tuttugu rými hafa verið aug-
lýst. Eru það 8 einstaklingsher-
bergi og 6 íbúðir. Umsóknar-
frestur var til 15. maí og umsókn-
ir urðu 20. Gert er ráð fyrir að
fyrsti áfangi byggingarinnar verði
fullbúinn 1. des. nk. Haldið
verður áfram að bæta við hús-
næðið en nokkuð á í land að sú
viðbót verði íbúðarhæf.
Heimilinu hafa borist miklar
og góðar gjafir. Halldór Jónsson
frá Sleif gaf því 30. þús. kr. til
minningar um foreldra sína, Jón
Gíslason, oddvita, og Þórunni
Jónsdóttur, ljósmóður í Ey í V-
Landeyjum. Þórunn Guðjóns-
dóttir frá Tungu í Fljótshlíð gaf
heimilinu íbúðarhús sitt að
Hvolsvegi 16 á Hvolsvelli. Húsið
var auglýst til sölu og bárust 5
tilboð. Andvirðinu verður varið
til uppbyggingar heimilisins.
-mhg
fyrirtækinu. Er nýjungin bæði
fólgin í annarri samsetningu fóð-
urefnanna og annarskonar kög-
glum.
Raunar er fóðrið ekki kögglað
heldur valsað og er því í einskon-
ar flögum. Er fóðurblöndu-
vinnsla á Norðurlöndum að fær-
ast í þetta horf, enda eru blönd-
umar taldar étast betur og hægt
að nota í þær miklu fleiri fóðu-
refni en áður. Auk þess er
vinnslan ekki eins orkufrek og
efnatap við hana hverfandi. Um
80% af framleiðslu Lántmánnens
er nú orðin í þessu formi. -mhg
Hinn 13. þ.m. var undirrit-
aður í Reykjavík samningur
milli ríkisins og Akureyrarbæj-
ar um leiguafnot bæjarins af
jarðhita ríkisins að Syðra-
Laugalandi í Eyjafirði. Samn-
inginn undurrituðu af hálfu
ríkisins þeir Albert Guð-
muntísson fjármálaráðherra
og Jón Helgason, dóms- og
kirkjumálaráðherra en Helgi
Bergs bæjarstjóri fyrir hönd
Akureyrarbæjar.
Aðdragandi samningsins er sá,
að haustið 1975 heimilaði þáver-
andi dómsmálaráðherra Akur-
eyrarbæ að bora í landi Syðra-
Laugalands, en sérfræðingar
Orkustofnunar álitu boranir þar
vænlegar. Boranir hófust í nóv.-
lok 1975 og báru brátt góðan ár-
angur. Bæjarstjórn Akureyrar
ákvað að virkja jarðhitann og allt
frá árinu 1977 hefur megin hluti
af vatni hitaveitunnar komið frá
Syðra-Laugalandi.
Viðræður um nýtingu kaup-
staðarins á þessum jarðhitarétt-
indum ríkisins hafa staðið alllengi
yfir, en lauk nú með undirritun
samningsins. Hann felur í sér
leiguafnot kaupstaðarins á jarð-
hitanum til 75 ára. Bærinn fær
heimild til borana í landinu, hver-
skonar umferðar og lagningu
nauðsynlegra leiðslna. Ríkið
heldur eftir um 54 mínútultr. af
80 stiga heitu vatni. Öðru vatni
dælir hitaveitan til Akureyrar.
Greiðslur koma fyrir afnot af
jarðhitanum fyrir liðinn tíma.
Endurgjald frá og með 1. jan.
1984 er 4000 kr. fyrir hvern nýtt-
an sekltr. en það grunngjald
hækkar á árinu 1990 í kr. 5.500.
Fjárhæðirnar breytast í samræmi
við breytingu á lánskjaravísitölu
eins og hún er í okt. 1983. Með
lægra gjaldi fyrstu starfsár hita-
veitunnar telja aðilar sig hafa
tekið eðlilegt tillit til þeirra fjár-
hagslegu skakkafalla, sem hita-
veitan hlaut vegna erfiðleika við
borunina. Kveðið er á um bætur
vegna tjóns á jörðinni vegna um-
svifa hitaveitunnar og hefur gerð-
ardómur bindandi úrskurðarvald
ef um það rís ágreiningur. Hvor
aðili um sig getur óskað endur-
skoðunar á samningnum eftir 20
ár, ef þess er talin þörf. Sitthvað
fleira felur samningurinn í sér
þótt hér verði það ekki tíundað.
Þau ráðuneyti, sem hér eiga
hlut að máli, líta svo á að samn-
ingurinn sé stefnumarkandi fyrir
ríkisvaldið um meðferð og ráð-
stöfun jarðhita, sem það á víðs-
vegar um land. Sé hann því mjög
þýðingarmikill m.a. af þeirri á-
stæðu.
-mhg
ÞAÐ ERUAÐ MINNSIA KOSn TVEIR HLLÍTIR
ÓMISSAND FYRIR ÞIC Á FERÐALÖCUM
Fóðurvörur
Ný gerð
fóðurblandna
Lystugri og fjölbreyttari
8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN