Þjóðviljinn - 24.07.1984, Qupperneq 15
Frá blaðamannafundi um hringferð Kvennalistans: Kristín Halldórsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Helga Jóhannsdóttir.
Mynd Loftur.
Kvennalistinn
4700 km að baki
Kvennalistahringferð um landið lauk á Þingvöllum þarsem blómum
var kastað í Drekkingarhyl.
Boðið fram um allt land í næstu þingkosningum.
Sólarflug
ekki með
í símtali við Guðstein Guð-
mundsson hjá Neytendasamtök-
ununi fyrir skömmu kom fram að
aðeins ein ferðaskrifstofa ætti
ekki aðild að kvörtunarnefnd FÍF
og NS. Sú ferðaskrifstofa er
Flugferðir-Sólarflug.
í samtali við Eyþór Heiðberg
hjá Sólarflugi kom fram að ferða-
skrifstofan er ekki í FÍF og þar að
leiðandi ekki aðili í kvörtunar-
nefndinni.
Ástæðan fyrir því að Sólarflug
er ekki í FÍF er sú, sagði Eyþór,
að hann sagði sig úr félaginu 3.
júní 1983 vegna ágreiningsmáls
sem kom upp. Félag íslenskra
ferðaskrifstofa kærði til ráðu-
neytisins nafn ferðaskrifstofunn-
ar, sem var Flugferðir-ísleiðir.
Eyþór sagði að félagið hugsaði
ekki um sína félagsmenn og er
kæran því til stuðnings. Það hefði
verið miklu betra ef talað hefði
verið við okkur fyrst þá hefðum
við getað breytt nafni fyrirtækis-
ins, sem við svo og gerðum.
Um kvartanir þær sem upp
koma vegna ferða sem þeir
bjóða, sagði Eyþór, að hingað til
hefði Flugferðir-Sólarflug alltaf
getað samið við sína farþega og
hann vonaði að svo yrði áfram.
HS
Líf í tuskunum
á Laugaveginum
Eftir að við sögðum frá versl-
uninni sem selur fötin með sálina
og miðar við stflinn frá árunum
1940-1960 höfum við fengið fyrir-
spurnir um hvar vcrslunin er
staðsett. Nú komum við þvi á
framfæri að hún er við Laugaveg
28 á annarri hæð. Á neðri hæð-
inni eru verslanir og eftir að stik-
að er upp stigann er komist að
versluninni Líf í tuskunum. -jp.
Þannig mun fyrirhuguö stálverksmiöja í Fögruvík líta út.
Stálfélagið
Fjármögnun tryggð
Fj ármögnunar mál Stálfélags-
ins eru nú komin á hreint og
allar líkur eru á því að fram-
leiðsla geti haflst í verksmiðjunni
þar sem hún á að verða staðsett í
Fögruvík á Vatnleysuströnd
næsta vor.
Stofnkostnaður verksmiðjunn-
ar er um 93 miljónir. Hlutafé er
um 30 miljónir þar af hefur fram-
kvæmdasjóður ríkisins keypt hlut
fyrir 9 miljónir. Þeim kaupum var
bundin sú kvöð að fjármálaráð-
herra gæfi ríkisábyrgð fyrir 45
miljón króna láni hjá Norræna
fjárfestingabankanum sem nú
hefur verið samþykkt. Afgangur-
inn af fjármagnskostnaði er feng-
inn með leigukaupum af tækjum
verksmiðjunnar uppá 18 miljón-
ir.
Verksmiðjan sem reist verður í
Fögruvík er keypt frá Svíþjóð af
einum stærstu framleiðendum
steypustyrktarjáms á Norður-
löndum, og er seljandinn jafn-
framt einn stærsti hluthafi í
Stálfélaginu.
Sænska verksmiðjan var rekin
fram undir lok maí en nú hefur
hún verið tekin niður og verður
hafist handa við að setja hana
upp í haust og vetur en næsta vor
á að hefjast í Fögruvík fram-
leiðsla á steypustyrktarjámi.
Fyrst í stað verður notast við inn-
flutt hráefni en brotajárns-
bræðsla mun hefjast árið 1986.
-*g-
Verslunarmannahelgin
Útihátíð
í Viðey
Öll leyfi hafa fengist
Útihátfðin i Viðey um verslun-
armannahelgina eru orðin að
veruleika. OU leyfí hafa fengist,
samið hefur verið við skemmti-
krafta, Hjálparsveit skáta og
lækna. Þetta kom fram f samtali
við Eggert Sveinbjörnsson annan
hvatamann hátíðarinnar.
Eggert sagði að nú hefðu öll
tilskiiin leýfi fengist svo að nú
væri ekkert sem ætti að aftra því
að af Viðeyjarhátíðinni yrði.
Hann sagði að nú væri verið að
smíða danspalla og salernisað-
stöðu sem yrði þá tilbúið um
verslunarmannahelgina.
Hjálparsveit skáta mun sjá um
alla gæslu á svæðinu. Tveir lækn-
ar verða á vakt um helgina. Reist
verður sérstakt sjúkratjald, tveir
sjúkrabátar verða til staðar í um-
sjá Snarfara. Eggert benti á að
það tæki aðeins eina mínútu að
flytja manneskju úr eynni í land
með þessum bátum.
Áætlað er að Viðeyjarhátíðin
hefjist föstudaginn 3. ágúst kl.
13. Þá mun Hafsteinn Sveinsson
hefja flutninga í eynna, sagði
Eggert. Hafsteinn getur flutt
1000-1500 manns á klukkustund.
Flutningsgjaldið verður innifalið
í verðinu á hátíðina, en ekki er
búið að ákveða endanlegt verð,
en 1000-1200 kr. er ekki fjarri
lagi. Sérstakir Viðeyjarpakkar
verða seldir fyrir fólk utan af
landi. Eggert tók dæmi af manni
sem býr á Akureyri og mun það
kosta hann 3260 kr. að fara á há-
tíðina og er þá allt innifalið.
Dansað verður öll kvöld frá kl.
19-03. Ýmsar hljómsveitir munu
leika fyrir dansi s.s. Pardus,
Toppmenn, Hitt og m.fl. Stór
brenna verður á laugardagsk-
völdinu og svo verður skotið upp
flugeldum. Sérstök keppni verð-
ur í „break“ dansi og seglbretta-
sjóskíða- og bátasýning, sagði
Eggert að lokum.
HS
Leiðrétting
í Þjóðviljanum 19. júlí
sl. birtist grein eftir Guð-
mund H. Þórðarson lækni
og virðist vinnsla hafa far-
ið úrskeiðis. Á einum stað
var farið með rangt ártal
því í stað áranna 1979-81
átti að standa árabilið
1970-81.
Kvenlegu stjórnmálasamtökin
eru nýkomin úr 4700 kfló-
metra hringferð um landið og
héldu blaðamannafund í síðustu
viku um farir sínar barasta slétt-
ar: 27 fundir og viðkoma á meira
en sextíu stöðum við góðar undir-
tektir og móttökur. Forsvars-
menn ferðalanga kváðust hafa
fundið sterkan hljómgrunn
stefnumálum sínum og urðu varir
við mikinn áhuga á útbreiðslu
Samtaka um kvennalista. Þegar
spurt var hvort boðið yrði fram
um allt land næst var svarið: Það
er engin spurning.
í ferðinni var leitast við að
kynna starf samtakanna og ýmsa
starfsemi kvenna á höfuðborgar-
svæðinu. Frumvarp þingmanna
samtakanna um fæðingarorlof
var ofarlega á dagskrá og að
frumkvæði stuðningsmanna á
Egilsstöðum er nú byrjað að
safna undirskriftum málinu til
framgangs: orlof úr þremur mán-
uðum í sex og lágmarksupphæð
til allra kvenna.
Erindrekar Kvennalistans af
suðvesturhominu kynntu sér
einnig viðhorf landsbyggðar-
manna, einkum kvenna, og
sögðu fiilltrúar þeirra á fundinum
að helstu áhyggjuefni væru fá-
breytni atvinnulífs, lág laun og lé-
legjr menntunarkostir, bæði
bama og kvenna af venjulegum
skólaaldri. Bónusmál vom ofar-
lega á baugi í viðræðum gesta við
heimamenn og ekki síður misrétti
í kjömm, - aðeins á einum við-
komustaða var heimsóttur vinnu-
staður þarsem konur og karlar
höfðu sömu laun fyrir sömu
vinnu, á Árskógsströnd.
Hringferðin stóð frá 4. til 29.
júní og lauk með samkomu á
Þingvöllum þarsem á annað
hundrað félags- og stuðnings-
menn Samtaka um kvennalista
hylltu konur á Lögbergi og köst-
uðu blómum í Drekkingarhyl til
minnis um fómarlömb karlveldis
fyrr og síðar.
-m
Ný sumarhús
í Vík
- leigð almenningi í sumar
Sumarhúsin í Vík í Mýrdal standa rétt ofan við veginn og er stutt úr
þeim í Víkurskálann. Mikið fuglalíf er í fjallinu ofan við húsin og stutt í
fjöruna. Eins og sjá má á myndinni eru húsin mjög hugguleg og vel
gengið frá í kringum þau. Inni eru tvö stór herbergi, bað og eldunarað-
staða. Oll húsgögn eru ný og stór sólverönd fyrir framan húsin. Þeir
sem hafa áhuga á að gista í sumarhúsunum geta pantað í gegnum
Samvinnuferðir-Landsýn eða Hótel Vík.
Þrl&judagur 24. júll 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19