Þjóðviljinn - 25.07.1984, Qupperneq 1
MENNING
HEIMURINN
Álmálið
Island að tapa?
Stjórnvöld ámálga niðurfellingu gerðardómsnefndanna.
Alusuisse að setja skilyrði fyrir raforkuverðshœkkun?
Nýfallinn alþjóðlegur gerðardómur um 20 mills í Grikklandi.
Ríkisstjórnin kiknar í hnjáliðunum andspœnis Alusuisse.
Veruleg hætta er á því að gerð-
ardómsnefndirnar sem settar
voru niður við bráðabirgða-
samkomulagið í september í
fyrra, verði lagðar niður, og að
þarmeð yrðu hugsanlegar fjár-
kröfur íslendinga á hendur AIus-
uisse sem taldar eru nema miljón-
um dollara úr sögunni. Sam-
kvæmt upplýsingum Jóhannesar
Nordal formanns samninga-
nefndar íslands við Alusuisse er
verið að kanna nú hvort sættir
kunni að takast í ágreiningsmál-
unum sem nú eru fyrir gerðar-
dómsnefndunum.
Ágreiningsmál íslands við Al-
usuisse voru tekin úr alþjóð-
legum gerðardómi við bráða-
birgðasamkomulagið í fyrra og
sett í þrjár gerðardómsnefndir.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra lýsti því yfir að á-
greiningsmálin yrðu aldrei tekin
úr dómi og opinberlega lýstu
stjórnvöld því yfir að beðið yrði
úrslita gerðardómsnefndanna.
Nú er hins vegar svo komið að
taka á málin úr gerðardóms-
nefndunum. Heimildir Þjóð-
viljans, sem þekkja vel til gangs
þessa máls, telja að Alusuisse
hafi farið mjög halloka fyrir gerð-
ardómsnefndunum, þarsem ál-
hringurinn stendur efnislega
mjög illa að vígi. Alusuisse óttist
því óhagstæðar niðurstöður
nefndarinnar og reyni að notfæra
sér óþol íslenskra með því að
neita að semja um raunverulega
hækkun raforkuverðs, nema öll
svindlmálin um hækkun í hafi,
yfirverð á rafskautum og fleira
verði úr sögunni. Svipuð staða
mun hafa verið uppi 1975 þegar
deilumálum var stungið undir
stól. Óttast margir tæknimenn að
nú eigi að endurtaka þann leik.
Nýfallinn er úrskurður í al-
þjóðlegum gerðardómi um deilu
franska álhringsins Pechiney og
grískra stjórnvalda, á þann veg,
að álhringnum er gert að greiða
19.5 mills á þessu ári og 20.5 mills
á næsta ári. Ennfremur aftur-
virka hækkun úr 15 í 18.6 mills
fyrir árið 1983. Hér fær álhringur-
inn raforku á 9.5 mills.
Á síðasta ári ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsen var Hjör-
leifí Guttormssyni þáverandi iðn-
aðarráðherra mjög legið á hálsi
fyrir að hafa ekki náð samkomu-
lagi um raforkuverðshækkun og
önnur ágreiningsefni við Alus-
uisse fyrir mörgum árum, en nú
hefur Sjálfstæðisflokkurinn farið
með ráðuneytið í rúmt ár, án þess
að nokkuð hafi náðst fram - og
líkur á að verði hopað. -óg.
Sjá bls. 2 og 16
Niðurrifsmenn á þaki Fjalakattarins í gær sem innan fárra daga heyrir sögunni til. Ljósm. eik.
Fjalakötturinn
rifinn
Ífyrradag hófust framkvæmdir
við niðurrif Fjalakattarins við
Aðalstræti og var þeim haldið
áfram í gær. Samtökin Níu líf
sendu frá sér tilkynningu í gær
þar sem þau lýsa því að þau hafi
ítrekað reynt að komast að
samkomulagi við eiganda hússins
en f fyrradag hafl hann lýst yfir að
tilmælum samtakanna verði ekki
svarað. Samtökin harma að hér
eigi sér stað menningarsögulegt
slys.
í tilkynningu frá Níu lífum
segir að samtökin hafi ítrekað
reynt að komast að samkomulagi
við eiganda hússin og á fundi með
honum 8. maí sl. hafi hann lýst
því yfir að húsið og lóðin væru
ekki til sölu en hins vegar myndi
ekki ráðist í niðurrif að svo
stöddu. Samtökin komu þá fram
með tvær hugmyndir til bjargar
þessu máli. í fyrsta lagi að sam-
tökin tækju húseignina á leigu til
skamms tíma, þannig að eigand-
inn yrði ekki fyrir fjárútlátum
vegna eignar sinnar. Hins vegar,
ef stefnt yrði að niðurrifi eigi að
síður, að því yrði hagað á þann
veg að fjalirnar yrðu ekki
skemmdar, þannig að ekki yrði
útilokaður sá möguleiki að hægt
yrði að koma húsinu upp aftur,
þó að annars staðar yrði. Pessum
hugmyndum var komið á fram-
færi bréfleiðis, en formleg svör
hafa aldrei borist.
Af hálfu samtakanna liggur
fyrir verkáætlun og fjárhagsáætl-
un ef þannig yrði að verki staðið,
en aldrei var gefið færi á við-
ræðum og ekkert vilyrði af hálfu
eiganda.
Þess skal getið að ekkert liggur
fyrir um hvað koma skal í stað
hússins, -GFr.
Sjá bls. 7
Bónus
Mikið líkamlegt slit
Vöðvabólgur, heyrnarskemmdir ogsjúkdómarí öndunarfœrum
eru efstáblaði atvinnusjúkdómafiskvinnslufólks
Hæstu
gjaldendur
í Reykjavík
og Reykjanesi
Sjá bls. 3
Um 71 prósent kvcnna og 55
prósent karla sem vinna bón-
usvinnu í fiski þurfa árlega að
leita sér lækninga, samkvæmt ný-
legri, óbirtri könnun.
Helstu sjúkómarnir eru vöðva-
bólga sem hrjáir 32 prósent
kvenna og 11 prósent karla. Sjúk-
dómar sem rekja má til umhverf-
isins eru líka tíðir, þannig þjást
um 30 prósent karla af heyrnar-
skemmdum og um 20 prósent
kvenna. Sjúkdómar í öndunar-
færum sem rekja má til kulda,
dragsúgs og hitasveiflna í vinnu-
umhverfinu voru líka algengir,
svo sem hálsbólga og bronkítis.
Yfir 93 prósent svörun var í
könnuninni, en spurningalistar
voru sendir um allt land. Könn-
unin var gerð á vegum Norrænu
ráðherranefndarinnar og félags-
málaráðuneytisins og fram-
kvæmd af Vinnuverndarhópn-
um. Starfið var einnig styrkt fjár-
hagslega á seinni stigum af verka-
lýðshreyfingunni á lslandi.
-ÖS
Sjá bls. 2
Ríkisstjórnin
Engin
úrræði!
- Engar beinar tillögur eða
hugmyndir til lausnar sjávarút-
vegsvandanum voru ákveðnar á
þriggja stunda lögnum fundi
ríkisstjórnarinnar i gær, sam-
kvæmt upplýsingum Magnúsar
Torfa Ólafssonar blaðafulltrúa
ríkisstjórnarinnar.
Árdegis í dag á sjávarútvegs-
ráðherra fund með útgerðar-
mönnum á Austfjörðum og þing-
mönnum kjördæmisins um vanda
sjávarútvegsins og verða síðustu
Austfjarðatogararnir kallaðir í
land um kvöldmatarleytið í kvöld
hafi ráðherrann engar úrlausnir í
farteski sínu. - óg