Þjóðviljinn - 25.07.1984, Síða 2
Bónus
Atvinnusjúkdómar hrjá marga
Mjöggóð svörun í könnun á vinnutilhögun ífata- og fiskiðnaði
Athyglisverðar niðurstöður Gottsamstarfvið verkafólk og verkalýðsfélög
Þessi könnun var framkvæmd
árið 1982 um allt land og
beindist að þeim greinum sem
byggjast mest á vinnuafli ófag-
lærðra kvenna, fiskiðnaði og
fata- og vefjaiðnaði. Við sendum
út um ellefu hundruð spurninga-
lista og fengum mjög góða
svörun, eða 93 prósent í fisk-
vinnslunni og 91.5 prósent í fata-
iðnaði.
Þetta sagði Sigurlaug
Gunnlaugsdóttir, ein þeirra sem
hefur starfað í Vinnuverndar-
hópnum, sem sá um könnun á
vinnuumhverfi og sjúkdómum
starfsfólks í ofangreindum starfs-
geinum, sem greint er frá á for-
síðu í dag.
Gott samstarf við
verkalýðshreyfinguna
„Þessi óvenju góða svörun
byggðist á því að áður en við
gerðum spurningalistana fórum
við á flest landshorn, á Austfirði,
Vestfirðina, ýmsa staði hér á suð-
vesturhorninu, Norðurland og til
Eyja, og höfðum fundi með trún-
aðarfólki á vinnustöðum. Á
fundunum kynntum við hug-
myndir okkar og lögðum fram
skissur okkar að spurningalistun-
um. Við fengum mjög góð við-
brögð og spurningalistarnir
breyttust verulega frá hinum
upphaflegu hugmyndum okkar
eftir samráð við fólk út um allt
land. Eftir að við sendum út list-
ana höfðum við svo aftur sam-
band við þetta fólk og fengum
það til að hvetja starfsfólkið til að
skila spurningalistunum. Síðan
fórum við líka sjálf á alla staðina
til að safna listunum" og Sigur-
laug brosir við tilhugsunina um
allar saumastofurnar og öll frysti-
húsin sem hún er búin að
heimsækja í tengslum við könn-
unina.
„En svörunin var samt ótrú-
lega góð. Ég held að skýringin sé
til dæmis sú, að fólkið sjálft hafði
áhuga á henni og gerði sér grein
fyrir nauðsyn hennar“.
- A hvaða vegum er könnunin
gerð?
„Það var í rauninni jafnréttis-
nefnd Norrænu ráðherranefndar-
innar sem hafði frumkvæði að
könnuninni og naut til þess
stuðnings félagsmálaráðuneytis-
ins. En það var svo sjálfur Vinnu-
verndarhópurinn sem fram-
kvæmdi könnunina fyrir þessa
aðila. Það er líka rétt að geta þess
að allan tímann áttum við mjög
gott samstarf við verkalýðsh-
reyfinguna hér á fslandi og það er
eiginlega afráðið að hún muni sjá
um að gefa út niðurstöður könnu-
narinnar, þegar þær Iiggja endan-
lega fyrir“.
Vöðvabólga
„Þessa stundina erum við að
leggja síðustu hönd á skýrslu til
ráðherranefndarinnar, sem mun
fjalla um könnun okkar á af-
kastahvetjandi launakerfum í
fata- og fiskiðnaði en við höfum
nú þegar kynnt hluta af niður-
stöðunum ásamt öðrum gögnum
á fundum með forystu verkalýðs-
hreyfingarinnar, bæði hjá Iðju,
Verkamannasambandinu og
miðstjórn ASÍ og fengum, held
ég, bara góðar undirtektir".
„Þess má geta“, sagði Sigur-
laug, „að ég held að niðurstöðum
okkar beri ágætlega saman við
skýrslu sem var fyrir skömmu
gefin út hjá Vinnueftirlitinu um
atvinnusjúkdóma. Ég vil að vísu
taka fram að ég hef ekki haft tök á
að kynna mér þá skýrslu mjög
náið en þar kemur fram einsog
við fundum líka, að bæði
heyrnarskemmdir og sjúkdómar í
öndunarfærum eru mjög ofarlega
á blaði yfir atvinnusjúkdóma.
Við hinsvegar spurðum sérstak-
lega um vöðvabólgu en það er
víst ekki hefð fyrir því að kalla
vöðvabólgu atvinnusjúkdóm
þannig að það er ekki von þó
þeirra sé ekki að miklu getið í
skýrslu Vinnueftirlitsins. Læknar
virðast ekki gera mikið af því að
tilkynna slíka sjúkdóma sem at-
vinnusjúkdóma til Vinnueftirlits-
ins, þó þeir segi hins vegar kon-
unum ósjaldan að vöðvabólgur
sem þær þjást af stafi af atvinnu
þeirra“.
-ÖS
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir er ein þeirra sem hafa unnið (vinnuvemdarhópnum
sem gerði könnun á bónusvinnu í starfsgreinum sem byggjast mest á vinnuafli
ófaglærðra kvenna.
Stóriðja
Hvað kosta nefndirnar?
Ekki vitað um kostnaðinn afnefndum Birgis Isleifs og
Jóhannesar Nordal. Nefndarstörf víða um lönd.
-Það liggja engar tölur frammi Árnason skrifstofustjóri í iðnað- nefndarstörfum samninganefnd
um kostnaðinn af störfum þess- arráðuneytinu, þegar Þjóðviljinn ar undir forystu Jóhannesar Nor
ara tveggja nefnda, sagði Árni spurði hann um kostnaðinn af dal annars vegar og störfum stór
Gmnnskólinn í Stykkishólmi mun taka að starfa í nýrri skólabyggingu í haust. Framkvæmdir eru nú í fullum gangi og er nú
verið að Ijúka múrverki og frágangi hússins að utan. Mynd - eik.
Stykkishólmur
iðjunefndar undir forystu Birgis
ísleifs Gunnarssonar hins vegar.
Eftir því sem samningur Sverr-
is Hermannssonar dragast á lang-
inn við Alusuisse verður kostnað-
urinn af nefndarstörfum samn-
inganefndarinnar meriri. Nefnd-
in hefur haldið fundi erlendis og í
Reykjavík á því ári sem liðið er
frá því hún hóf störf. Kostnaður-
inn er talinn vera orðinn mjög
mikill um leið og rýr árangur hef-
ur orðið af þessu fundaþófi.
Stóriðjunefnd Birgis ísleifs
hefur farið víða um heim í þeim
erindagjörðum að semja við út-
lendinga um raforkukaup og
stóriðju á íslandi.
-Þetta eru nú nefndir sem eru
nokkuð sér á parti. Þeirra störf
eru það umfangsmikil og viður-
hlutamikil miðað við þá stjórnar-
stefnu sem iðnaðarráðherra stýr-
ir eftir, sagði Árni Árnason skrif-
stofustjóri. Árni kvað illmögu-
legt að draga saman kostnaðinn,
en hann yrði væntanlega ljós og
samandreginn fyrir næstu ára-
mót.
-óg
Verslunarmannahelgi
Fjör
við
Galtalæk
Um verslunarmannahelgina
munu íslcnskir ungtemplarar og
Umdæmisstúka Suðurlands
gangast fyrir bindindismóti í
Galtalækjarskógi og hefur slíkt
mótshald verið árviss atburður í
aldarfjórðung.
í frétt af bindindismótinu segir
að boðið verði upp á vandaða og
fjölbreytta dagskrá og eru nefnd
nokkur dæmi. Hljómsveit Ólafs
Gauks og Svanhildur leika og
syngja, Stefán Baxter mun sýna
breikdans, barnadansleikur
verður á palli og
skemmtikraftrarnir Jörundur
Guðmundsson, Sigurður Sigur-
jónsson og Örn Árnason
skemmta á kvöldvöku. Aðgangs-
eyrir er 600 kr. fyrir fullorðna en
börn yngri en 12 ára þurfa ekkert
að borga.
Nýi skólinn í hnust Karlarverri ökumenn?
Fjárveitingar til skólabyggingarinnar knappar
6 ár síðan framkvœmdir hófust
„Þetta er fyrsti hluti af bygg-
ingu grunnskólans í Stykkishólmi
sem verður væntanlega tekinn í
notkun á næsta ári og að hiuta til í
haust“, sagði Sturla Böðvarsson
sveitarstjóri um byggingafram-
kvæmdir sem vöktu athygli Þjóð-
viljamanna á leið þeirra inn
Stykkishólm og bæjarbúar sögðu
langþráða skólabyggingu.
„Byggingarframkvæmdir hóf-
ust árið 1978“, sagði Sturla. „Svo
sem víða hafa fjárveitingar til
skólabygginga verið mjög knapp-
ar og hefur því framkvæmd bygg-
ingarinnar legið þungt á sveitar-
sjóði. Á þessu ári verður unnið
fyrir 10 milljónir en fjárveiting
ríkissjóðs var 1 Vi milljón og
nægði ekki til þess að greiða
skuld ríkissjóðs vegna byggingar-
innar um síðustu áramót“.
Samkvæmt lögum um bygg-
ingu skólamannvirkja greiðir rík-
issjóður helming byggingar-
kostnaðar og er gert ráð fyrir því
að framkvæmdum ljúki á 4 árum.
„Það er alls ekki hægt nema ríkið
standi við sinn hluta, því
sveitarfélag á stærð við Stykkis-
hólm ræður engan veginn við hlut
ríkisins jafnhliða öllum öðrum
verkefnum“, sagði sveitarstjór-
inn við Þjóðviljann.
-jp
Rúmlega 300 urðu fyrr slysum
í umferðinni fyrstu 6 mánuði ársins
281 karlmaður sat undir stýri
en aðeins 60 konur þegar slysin urðu
|»rjú hundruð manns slösuðust í
■ umferðinni fyrstu 6 mánuði
ársins hér á landi og er þar um
heldur fleiri að ræða en árið
áður. Þá létust 8 manns á þessu
tímabili sem er sami fjöldi og
fyrstu 6 mánuði í fyrra.
Þegar litið er á aldursskiptingu
þeirra sem slasast eða látast í um-
ferðinni kemur í ljós að fólki á
aldrinum 17 - 20 ára er hættast
því hvorki fleiri né færri en 63
þeirra sem verða fyrir meiðslum
eru á þeim aldri. Flestir eru karl-
ar eða 203 en 104 konur. Lang-
flestir ökumannanna sem ullu
slysunum eru karlar eða 281 á
móti 60 konum.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. júli 1984