Þjóðviljinn - 25.07.1984, Side 7
UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
Svipmyndir frá niðurrifi Fjalakattarins í gær. Þar meö er lokið sögu þessa merka húss og má búast við steinsteypuflykki í þess stað áður en langt um líður. Ljósm. eik.
In memoriam
Fjalakötturinn
ífyrradag var byrjað að rífa fyrsta og elsta leikhús ó íslandi
og elsta kvikmyndasal sem vítað er um í heiminum
Horft upp Bröttugötu nú (t.v.) og fyrir 1927 þegar Gamla Bíó var í Fjalakettlnum.
í fyrradag var byrjað að rífa
járn utan afgamla
leikhússalnum í Fjalakettinum
við Aðalstræti og verður hann
sennilega rifinn til grunna
næstu daga þó að
þjóðminjavörður,
umhverfismálaráð
Reykjavíkur og fjölmargir
aðrir aðilar hafi beðið þessu
merkilega gamla húsi griða.
Saga Fjalakattarins hefuroft
verið rifjuð upp að undanförnu
og hér verður lítillega minnst
leikhúss- og
kvikmyndasalarins - svo sem
eins og í minningarskyni.
Sumarið 1893 eða fyrir rúmum
90 árum lét Valgarður
Breiðfjörð, þáverandi eigandi
hússins Aðalstræti 8, reisa
leikhússal fyrir ofan það. í Fjall-
konunni 18. júlí 1893 segir svo
um þetta framtak:
„Þetta hús er hið fyrsta hér á
landi, sem byggt er sem leikhús.
Það er 27 álna langt og 14 álna
breitt, tvíloftað og kjallari undir
því ölllu. Leiksalurinn er yfir allt
húsið uppi og er 8 álnir undir loft.