Þjóðviljinn - 01.08.1984, Blaðsíða 10
Heimur í spéspegli
TJÍ
LAWN and
SARDENCENT
' VpiAKtt - I
V lfcoD,
> l M \ TTr tU
Áttu nokkur pizzafræ?
Auðvitað var ég fljótur að hlaupa. Það þurfti átta
krakka til að vinna mig.
1 15
MrNaujfht Synd.. tnr
þteSTeR-
Grínari, skrítluhöfundur, galdramaður, heimspeking-
ur, skáld, - já þú hefur svo sannarlega alla þá kosti
sem við viljum að veðurfræðingur hafi
Þetta er áreiðanlega síðasta kreditkortið sem ég fæ
mér.
s, iy«4
McN»u(fht Synd.. Inc
cl?c»4
-HeSTERs
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skundum á Þingvöll
Sumarferð Alþýðubandalagsins í ár verður laugardaginn 18. ágúst. Farið
verður frá Reykjavík til Þingvalla. Valinkunnir leiðsögumenn, vönduð dag-
skrá, - Halldór Laxness mun lesa kafla úr Islandsklukkunni á Þingvöllum.
Leikir og þrautir fyrir börn á öllúm aldri munu gera ferðina bráðskemmti-
lega.
Allar nánari upplýsingar verða birtar í Þjóðviljanum. Skráning farþega og
sala farmiða er á skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105. Eru allir
hvattir til að panta sér far og eigi síðar en 15. ágúst. Síminn er 17500.
Ferðanefndin.
Alþýðbandalagið í Reykjavík
Munið Gíróseðlana fyrir fyrsta hluta flokks og
félagsgjalda ársins 1984
Stjóm Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá sem enn hafa ekki gert
skil á fyrsta hluta flokks- og félagsgjalds ársins að gera það nú um þessi
mánaðamót.
Verum öll minnug þess að starf ABR byggist á því að félagsmenn (allir)
standi í skilum með fólagsgjöldin. e,. ABD
Allir samtaka nú. Stiórn ABR
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Verslunarmannahelgin - Sumarferð
Alþýðubandalagið á Vesturlandi fer í sína árlegu sumarferð í Eyjafjörð og
Þingeyjarsýslu um verslunarmannahelgina 4. til 6. ágúst.
Farið verður frá Akranesi og Borgarnesi á laugardagsmorgun 4. ágúst.
Gist að Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í tvær nætur. Tjaldstæði -
svefnpokapláss - hótelherbergi, eftir ósk hvers og eins. Leiðsögumaður
Erlingur Sigurðarson. í hagstæðu veðri verður farið Sprengisand aðra
leiðina. Þátttaka tilkynnist til eftirtalinna sem allra fyrst: Akranes Jóna s.
1894 - Ingunn 2698 - Guðbjörg 2251. Borgarfjörður Rikharð s. 7072 -
Halldór 7355. Hellissandur Skúli s. 6619. Ólafsvík Jóhannes s. 6438.
Grundarfjörður Ólöf s. 8811. Stykkishólmur Þórunn s. 8421. Dallr Kristjón
4175. Ferðin er öllum opin og fyrir alla fjölskylduna.
- Kjördæmlsróð.
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Sumarferö á Kjöl og í Hvítárnes
um verslunarmannahelgina 4.-6. ágúst.
Sumarferðir Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra hafa verið mjög
vinsælar. Að þessu sinni verður farið um Kjalveg og tjaldað í Hvítárnesi um
verslunarmannahelgina.
Lagt verður af stað laugardaginn 4. ágúst, annars vegar frá Siglufiröi og
farið um Hofsós og Sauðárkrók, en hins vegar Hvammstanga um Blöndu-
ós. Allur hópurinn mætist við Svartárbrú í Langadal kl. 10.30. Síðan liggur
leiðin um Blönduvirkjunarsvæðið og Hveravelli suður í Hvitárnes suð-
austan Langjökuls. Daginn eftir verður sérstök ferð farin í Kerlingarfjöll fyrir
þá sem vilja. Kvöldvaka verður í ferðinni. Á mánudaginn verður ekið af stað
heim á leið og ýmsir markverðir staöir skoðaðir.
Ferðin kostar 1200 kr. en börn og unglingar undir 14 ára aldri græða hálft
gjald.
Nánari upplýsingar gefa:
Sverrir Hjaltason Hvammstanga (s: 1474), Elisabet Bjarnadóttir
Hvammstanga (s: 1435), Eðvarð Hallgrímsson Skagaströnd (s: 4685),
Guðmundur Theodórsson Blönduósi (s: 4196), Hulda Sigurbjörnsdóttir
Sauðárkróki (s: 5289), Stefán Guðmundsson Sauðárkróki (s: 5428), Gísli
Kristjánsson Hofsósi (s: 6341), Hannes Baldvinsson Siglufirði (s: 96-
71255) og Ragnar Arnalds Varmahlíð (s: 6128) og Reykjavík (s: 83695).
Suðurnesjamenn - Sumarferð
Alþýðubandalagsfélögin Suðurnesjum fara sína árlegu skemmtiferð helg-
ina 18. til 19. ágúst n.k. Farið verður um Sigöldu, Landmannalaugar og
Fjaltabaksleið nyrðri í Eldgjá. Gist verður við Öfæru. Sunnudaginn 19.
verður ekið niður í Skaftártungur og Vestursveitir. Komið verður við í
Hjörleifshöfða og Vík í Mýrdal. Byggðasafnið í Skógum verður skoðað.
Einnig verður gerður stuttur stans við merka sögustaði á þessari leið.
Komið verður til Keflavíkur kl. 22.00 til 23.00 þann 19. ágúst. Þátttakendur
láti skrá sig hjá Sólveigu Þórðardóttur í síma 92-1948 og hjá Torfa
Steinssyni í síma 7214 og Elsu Kristjánsdóttur sími 7680.
10 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 1. ágúst 1984
SKÁK
Það leynast oft skemmtilegir
möguleikar í stöðum sem annars
virðast sléttar og felldar á yfir-
borðinu. Það er um að gera að
sökkva sér niður í stöðuna og láta
ímyndunaraflið á fulla ferð áfram.
Þessi saklausa staða kom upp í
skák milli tveggja Svía, Olson og
Carlson í Sænsku meistara-
keppninni 1984. Olson lék nú 18.
- Hd2l! 19. Da4 (Hrókurinn erfrið-
helgur út af Rh3+.) 19. -Hxg2+
20. Kh1 Hxh2+! 21. Kxh2 Dh5+
22. Kg1 Bc5+ og hvíturgafstupp.
BRIDGE
Nokkurt lán var með sveit Úr-
vals í bikarleiknum við sveit Stef-
áns Pálssonar. Lítum á síðasta
spil viðureignarinnar, sem réði
úrslitum:
Norður
S10754
H 10942
T 5
L DG86
Austur
S KG8632
H K7
T K6
L 1032
Suður
S A
H AD5
TADG10872
L K9
Þegar Stefáns menn héldu á
N/S spilunum, var vikið á austur
spilin, eftir tvö pöss, á 2 spöðum.
Stefán doblaði og eftir tvo sagn-
hringi dóu sagnir út í 4 tíglum,
sem er ágætur bútur í erfiöu spili.
Eða hvar viltu reyna úttekt?
Út kom spaði og 10 slagir feng-
ust. Vestur gaf, vitaskuld, lauf
kóng sagnhafa og enginn mögu-
leiki að komast inn í borð til að
fækka tapslögum.
Við hitt borðið var dirfskan
meiri. Skoðum stuðið:
V N A S
pass pass 1-S dobl
2-S pass pass 4-T(!)
pass 4-H(!) pass pass
Ekki veit ég hvort stökk Ás-
mundar í 4 tígla neitar öðrum lit,
en ég tel það líklegt. Það er þá,
umtalsverður kjarkur að bjóða
upþ á hjarta úttekt á brakið í
norður, en staðan er óskemmti-
leg.
Nú, „geimið" vinnst alltaf með
eðlilegri spilamennsku eins og
kortin liggja. Út kom spaði. Farið
strax í tígulinn, ás og tígull tromp-
aður og kóngur kom. Hjarta svín-
að og tekið á ás.
Vestur er nú lengstur í tromp-
inu, en það kemur ekki að sök.
Lauf ás er jú á réttri hendi og lauf
tían kemur niður þriðja. Hvort
tveggja nauðsynlegt. Norður spil-
aði vitanlega tíglum og vestur var
klemmdur, spöðum kastað úr
borði og vörnin er hjálparvana.
Sveifla til Úrvals og leikurinn
unninn með 10 „impum".
Stuð á „gömlu" mönnunum.
Vestur
S D9
H G863
T 943
L A754