Þjóðviljinn - 02.08.1984, Page 4
______________________LEIÐARI__________________
Vaxtahækkunin:
Ágreiningur milli stjórnarliða
Eina atriðið í aðgerðum ríkisstjórnarinnar
sem virtist verulega skýrt fólst í tilkynningu um
vaxtahækkanir og sjálfdæmi bankanna um
stærðargráðu þeirrar hækkunar. Nú er hins
vegar komið í Ijós að verulegur ágreiningur var
um þetta atriði í þingflokkum ríkisstjórnarinnar
og málgögn stjórnarflokkanna túlka þessa
vaxtahækkun á mjög mismunandi veg. Þar
nær ágreiningurinn frá yfirlýsingum um að hér
sé á ferðinni mesta kerfisbreyting í peninga-
málum í áratugi og yfir í það að einungis sé um
mjög afmarkaða og tímabundna aðgerð að
ræða sem verði jafnvel afturkölluð strax í sept-
ember.
Um leið og niðurstöður ríkisstjórnarinnar
voru kynntar sagði Þorsteinn Pálsson formað-
ur Sjálfstæðisflokksins í viðtali við DV um ný-
skipunina í vaxtamálum: „Þetta er ein mesta
breyting á stjórn peningamála sem gerð hefur
verið hér á landi í langan tíma“. í leiðara Morg-
unblaðsins í gær er þessi skoðun Þorsteins
Pálssonar svo ítrekuð. Þar segir: „Þorsteinn
Pálsson telur þessa leið sambærilega við það
þegar viðreisnarstjórnin steig markverð skref í
frjálsræðisátt á árunum 1959 og 1960 með því
að gefa innflutningsverslunina frjálsa og af-
nema gjaldeyrishöft og skömmtun". Þessar
yfirlýsingar og leiðaraskrif gefa til kynna að
forysta Sjálfstæðisflokksins telur að hér sé á
ferðinni umfangsmikil og varanleg kerfis-
breyting sem marki þáttaskil í efnahagsstjórn-
inni.
í leiðara málgagns Framsóknarflokksins,
NT, kemur hins vegar fram allt önnur túlkun.
Þar segir að einungis sé um að ræða tíma-
bundnarákvarðanirsem verði teknartil endur-
skoðunar strax á næstu mánuðum. Þessi
skoðun er ítrekuð oft í leiðara NT í gær. Þar
segir m.a.:
„Framsóknarflokkurinn taldi það skyldu
sína öðrum flokkum fremur að sporna gegn
þessari öfugþróun. Þess vegna sætti hann sig
við viss skilyrði af hálfu samstarfsflokksins
sem hann hefði ekki gert annars.
Mikilvægast þessara skilyrða er hin tíma-
bundna vaxtahækkun. Samkvæmt sam-
komulagi stjórnarflokkanna hækka vextir á al-
mennum sparisjóðsbókum um 2% en Seðla-
bankinn mun veita viðskiptabönkunum svig-
rúm til að ákveða aðra vexti, jafnt innláns- og
útlánsvexti. Hvort tveggja verður þetta tíma-
bundið.
Tilgangurinn með þessum aðgerðum á að
vera sá að draga úr þenslu og innflutningi en
viðskiptahallinn við útlönd hefurfarið vaxandi.
Að mati margra Framsóknarflokksmanna
er það hæpið að vaxtahækkun nái þessum
tilgangi. Hér eru nú ríflegir raunvextir og veld-
ur því vafalítið margt annað þenslunni en að
ekki fáist raunvextir af innlánsfé. Hins vegar
má óttast að vaxtahækkunin geti leitt tii
verðhækkana, þyngt rekstur atvinnuveg-
anna og hleypt fjöri í kaupkröfur. Fram-
sóknarmenn féliust því aðeins tímabundið
á þessar aðgerðir svo að kynnast mætti
staðhæfingum þeirra sem telja uppboð á
sparifé lausn alls vanda.
Það verður svoennáný að árétta að hér er
aðeins um tímabundna vaxtahækkun eða
tímabundna tilraun að ræða“.
Þessar tilvitnanir í leiðara málgagns Fram-
sóknarflokksins og ummæli Þorsteins Páls-
sonar og leiðara Morgunblaðsins sýna að al-
varlegur ágreiningur er innan ríkisstjórnarliðs-
ins um vaxtaákvarðanirnar. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins segir að hér sé á ferðinni var-
anleg kerfisbreyting en málgagn Framsóknar-
flokksins varar eindregið við þessari breyt-
ingu, hún sé bara tímabundin, verði endur-
skoðuð strax í haust og „þá verði að taka
raunhæft á þessum málum en láta ekki kredd-
ur ráða“. Þjóðviljinn tekur undir þessi lokaorð
leiðara NT í gær.
KLIPPT 0G SKORIÐ
Stóriðjuriddari
tekur til máls
Guðmundur G. Þórarinsson
samninganefndarmaður við Alu-
suisse hefur stílvopn sitt á loft í
NT í gær og ætlar að skrifa um
stóriðju. Hins vegar tekst Guðm-
undi ekki lengi að halda þræði um
það mál, því bræðin hefur greini-
lega náð yfirhöndinni - og ræðst
hann af mikilli heift gegn AI-
þýðubandalaginu og Hjörleifi
Guttormssyni fyrrverandi iðnað-
arráðherra sérstaklega. Grein
Guðmundar er um margt tákn-
ræn fyrir þann þankagang sem
ræður nú ríkjum íslandsmegin í
samningaviðræðum við
Alusuisse-hringinn.
1000 miljónir
dollara
í upphafi greinar sinnar segir
Guðmundur að þarsem undir-
stöðuatvinnugrein fslendinga,
landbúnaður og sjávarútvegur,
eigi í „tímabundnum erfið-
leikum" sé nauðsynlegt að stór-
iðja komi til sögunnar. Þessi mál-
flutningur kallar á spurningar af
þeim toga, hvort stóriðjupostular
sjái áhugamáli sínu sérstakan hag
af því, að undirstöðuatvinnuveg-
irnir séu reknir með tapi?
Guðmundur telur að fara þurfi
út í stóriðjuframkvæmdir út öld-
ina fyrir 1000 miljónir dollara.
Þarsem þetta séu svo fjármagns-
frekar framkvæmdir sé óhugs-
andi að hafna þátttöku erlendra
aðilja í atvinnulífsuppbygging-
unni.
Fjósamaður
Alusuisse?
Alltíeinu verður Guðmundur
G. Þórarinsson stjórnarformaður
Þýsk-íslenska verslunarfélagsins
heimspekilegur í greininni:
„Heimurinn er stöðugt að
minnka og samskipti þjóða að
aukast. Þar mega íslendingar
ekki einangra sig, ekki reyna að
gera landið að eins konar þjóð-
legu fjósi þarsem enginn geisli er-
lendra samskipta kemst inn“.
í framhaldi af þessu fer grein-
arhöfundur að bölsótast útí Al-
þýðubandalagið. í sjálfu sér er
það flokkslegt sjónarhorn
greinarhöfundar að tala um fjós
og geislann sem brýst inní það.
En af greininni má ráða að ein-
hverjir hafi blindast af þessum
geisla „erlendra samskipta" og
væri ekki gott afspurnar ef landar
vorir hefðu ráðist til fjósa-
mennsku hjá Alusuisse.
Virk yfirráð
Guðmundur vill meina að það
sé létt verk að fást við erlenda
aðilja í stóriðjusamskiptunum:
„Framsóknarmenn hafa sett fram
þá stefnu að íslendingar haldi
„virkum yfirráðum“ yfir stór-
iðjufyrirtækjum hér á landi“.
Guðmundur segir að um þetta
séu leiðbeinandi línur í stefnu-
skrá Framsóknarflokksins. Ann-
að hvort hefur Guðmundur sjálf-
ur aldrei lesið þessar leiðbeinandi
h'nur ellegar þá að Framsóknar-
flokkurinn hafi einfaldlega varp-
að þessari stefnu sinni fyrir róða,
því það eru mörg misseri síðan
flokkurinn hafnaði kröfum um
slík virk yfirráð. Sjálfur hafði
Guðmundur G. Þórarinsson
forgöngu um að hafna slíkum
kröfum í álviðræðunefndinni á
síðasta stjórnarári ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsen, einsog
frægt varð. Hins vegar gæti mörg-
um þótt það álitamál hversu virk
yfirráð Alusuisse eru yfir
mönnum og flokkum uppá ís-
landi.
Að halda
samninga
Þegar hér er komið sögu í grein
Guðmundar G. Þórarinssonar í
NT hefur maðurinn misst allt
vald á viðfangsefninu - „samn-
ingum um stóriðju". Guðmundur
segir: „Af viðraeðum mínum við
erlenda aðilja á undanförnum
mánuðum verður mér æ betur
Ijóst hversu Alþýðubandalagið
hefur skaðað Islendinga með
málflutningi sínum og iðnaðar-
ráðherra síns á liðnum árum“. og
síðar: „í viðræðum við japanska
fyrirtækið Sumitomo um þátt-
töku þess í járnblendifélaginu
kom hvað eftir annað fram
spurningin: Haldið þið samn-
inga?
Fimbulfamb Guðmundar G.
Þórarinssonar á sumsé að skilja
þannig að íslendingar hafi ekki í
iðnaðarráðherratíð Hjörleifs
Guttormssonar staðið við gerða
samninga við Alusuisse. Stað-
reyndin er hins vegar sú, sem
Guðmundur G. Þórarinsson veit
manna best, að Alusuisse hefur
hlunnfarið íslendinga í við-
skiptum. Og Alþýðubandalagið
er ekki eitt um það að hafa kom-
ist að þeirri niðurstöðu, heldur
allra flokka menn, innlendar og
erlendar rannsóknarnefndir.
Meiraðsegja Guðmundur var í
langa tíð sömu skoðunar.
Hver skaðar
hvern?
Niðurstaða Guðmundar er að
Alþýðubandalagið hafi stór-
skaðað málstað íslendinga. Mál-
staður íslendinga er væntanlega
sá að fá amk. kostnaðarverð raf-
orku fyrir söluna til Alusuisse
auk þess að tilskilin gjöld séu innt
af hendi og íslendingar fái að
fylgjast nákvæmlega með rekstri
fýrirtækisins. Alþýðubandalagið
setti fram kröfur um þessi atriði
og vildi sækja með öllum lög-
tækum leiðum. Hins vegar
hljópst Guðmundur G. Þórarins-
son undan merkjum í deilunni við
Alusuisse á sínum tíma og stóð
ekki að baki kröfum iðnaðarráð-
herra um áðurnefnd atriði.
Hvað er
framundan?
Guðmundur G. segir Alþýðu-
bandalagið styðjast við „þjóðern-
isrembing“, vilji aldrei gera
samninga við útlendinga. Það
vilji að þjóðin lifi af fegurð nátt-
úrunnar og hækka kaupið. Oft
hefur meiru verið logið. En hins
saknar maður; hvaða efnisleg tök
hníga að samkomulagi við Alu-
suisse nú og hver á sú niðurstaða
að verða. Um þetta getur ekki
Guðmundur G. Þórarinsson - og
er þó búinn að sitja marga fundi
með Alusuisse. Skuldar hann
ekki þjóðinni upplýsingar um slík
atriði? -óg
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Einar Kad Haraldsson.
Fróttastjórar: Oskar Guömundsson, Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guöjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
hóðinsson.
Ljósmyndlr: Atli Arason, Einar Karisson.
Utllt og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Umbrot og setning: Prentsmlðja Þjóðviljans hf.
Augiýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson. Prentun: Blaðaprent hf.
Auglýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir. Verð í lausasölu: 22 kr.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Sunnudagsverö: 25 kr.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Áakriftarverð á mánuði: 275 kr.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóðlr: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: ólöf Siguröardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. ágúst 1984