Þjóðviljinn - 02.08.1984, Blaðsíða 6
HEIMURINN
Ítalía:
Unnusti minn, sonur og bróöir
Jónatan Valgarðsson
Framnesvegi 17
lést af slysförum 31. júlí.
Jarðarför auglýst síðar.
Margrét Jónsdóttir Þórlaug Bjarnadóttir
systkini.
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
Skarphéðinn Magnússon
Hraunbæ 92
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. ágúst
kl. 13.30.
Aðalheiður Sigurðardóttir
Magnús Skarphéðinsson
Reynir Skarphéðinsson
Sigrún Jónsdóttir Kundak Omer B. Kundak
Sig. Ægir Jónsson Helga Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur, afi og tengdafaðir
Björn Sigurðsson
Rauðarárstíg 20
fést í Landakotsspítala 31. júlí síðastliðinn.
Ása Ragnheiður Ásmundsdóttir
Guðrún Björnsdóttir Benedikt Harðarson
Sigurður Hreinsson
Ása Hlín Benediktsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur samúð og
hlýhug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Bjarna Guðmundssonar
Strandgötu 10, Neskaupstað.
Lára Halldórsdóttir
Sigurbjörg Bjarnadóttir Hjörtur Árnason
Birna Bjarnadóttir Hjálmar Ólafsson
Guðmundur Bjarnason Klara ívarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn. •
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall
Hjálmars Ólafssonar
Nanna Björnsdóttir
Vigdís Esradóttir Einar Unnsteinsson
Dóra Hjálmarsdóttir Robert Frank
Björn Hjálmarsson Herdís Haraldsdóttir
Helgi Hjálmarsson Helga Waage
Ólafur Hjálmarsson Eiríkur Hjálmarsson
og aðrir aðstandendur
Alúðarþakkir til allra sem minntust
Ragnars Jónssonar
með virðingu og vinarhug.
Þökkum samúð og hlýju.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks B-deildar Borg-
arspítalans, Reykjalundar og Landspítalans.
Björg Ellingsen Erna Ragnarsdóttii
Auður Ragnarsdóttir Davíð Helgasor
Jón Óttar Ragnarsson Elfa Gísladóttii
Edda Ragnarsdóttir Árni Guðjónssor
Valva Á. Fuller Thomas G. Fullei
Krataforinginn
úr ráðherrastól
Pietro Longo var meðlimur í leynistúkunni P-2.
Hneykslismálin elta ítalska hœgrikrata.
Pietro Longo,
fjármálaráðherra stjórnar
sósialistans Craxi á Ítalíu,
hefur neyðst til að segja af
sér. Nærvera Longo í
stjórninni var fyrir löngu orðin
mikið vandræðamál fyrir
stjórnina, en Pietro Longo er
einn þeirra sem eru á skrá yfir
meðlimi frímúrarastúkunnar
P-2, sem uppvís hefurorðið
að margskonar spillingu og
gott ef ekki er af henni sá
samsærisþefur gegn
lýðræðinu, sem einna
stækastur hefur orðið á Ítalíu
á seinni árum.
Það er að vísu deilt um það, að
hve miklu leyti megi líta á P-2
sem frímúrarastúku - því er líka
haldið fram, að sá erkibófi Gelli,
sem stúkuna stofnaði, hafi mis-
notað skipulagsform og aðstöðu
frímúrara, til að koma sér upp
einskonar mafíu fínni manna í
landinu. Nema hvað: nógu margt
er vitað um P-2 til þess að ekki
þykir lengur við hæfi að hafa
mann úr slíkum félagsskap yfir
fjárlagasmíð á Ítalíu.
Spilltur flokkur
Longo er formaður PSDI,
flokks ítalskra sósíaldemókrata.
Sá flokkur er upphaflega klofn-
ingssamtök út úr Sósíalista-
flokknum, samtök þeirra hægri-
krata sem vildu ekki taka upp
samstarf við kommúnista í bæjar-
stjórnum og verkalýðsfélögum,
sem lengi hefur verið mikið og
víðtækt. Natóvinátta og and-
kommúnismi hafa verið höfuð-
einkenni þessa hægrikrataflokks,
sem hefur lengst haft 4-5% at-
kvæða í kosningum og fer það
fylgi heldurfyrnandi. Flokkurinn
hefur nefnilega orð á sér fyrir
spillingu - og kalla ítalir ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Til að
mynda hrökklaðist Tanassi, sá
sem var formaður ítalskra sósí-
aldemókrata á undan Pietro
Longo, út úr ítalskri pólitík vegna
aðildar sinnar að illræmdu mútu-
máli: Það var þegar
Lockheed-flugvélaverksmiðj-
urnar voru að dæla peningum í
áhrifamenn til að hafa áhrif á
pantanir þeirra fyrir heri og ríkis-
rekin flugfélög.
Öðruvísi stjórn
Aðild Longo að P-2 er eitt af
mörgum málum sem hefur hrjáð
stjórn Benedettos Craxi að und-
anfömu. Meðal annars hafa ýms-
ir áhrifamenn úr hópi atvinnu-
rekenda látið að því liggja að
stjórninni muni ekki takast að ná
neinum tökum á fjármálum og
verðbólgu ef stjórnað sé áfram í
fjandskap við þann flokk Ítalíu
sem nú er stærstur - Kommún-
istaflokkinn. Fréttaskýrendur
eru mjög að velta því fyrir sér,
hvort einhver flötur sé á því að
taka kommúnista í samstarf um
stjórn - annaðhvort með bland-
aðri stjórn „heiðarlegra manna“
- sérfræðinga og stjórnmála-
manna, sem taki að sér ákveðin
verkefni og kerfisbreytingar, eða
með „forsetastjórn“ um svipuð
verkefni. Hitt er víst, að hinn litli
flokkur sósíaldemókrata á Ítalíu
er jafnan andvígur hverskyns
samvinnu við kommúnista.
áb.
Pietro Longo sýnlr sig í sjónvarpsþætti.
Verslunarmannahelgin 3. — 6. ágúst 1984
Mótsstjóri: Valdór Bóasson.
Dagskrá:
Föstudagur 3.ágúst.
kl. 22.00 Diskótek á palli til kl. 01.00. Plötutekið DEVO.
Laugardagur 4. ágúst.
kl. 13.00 Kajakróður á Rangá.
kl. 15.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 16.00 Ökuleikni í umsjá Bindindisfélags ökumanna.
kl. 16.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxter dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. 17.00 Leikir fyrir börn á öllum aldri á fjölskyldusvæðinu.
kl. 20.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 21.00 Mótssetning. Stefán Jónatansson, umdæmistemplar.
kl. 21.10 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek í stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
kl. 24.00 Varðeldur og flugeldasýning.
Dagskrá lýkur kl. 03.00.
Sunnudagur 5. ágúst.
kl. I4.00 Messa. Séra Björn Jónsson prestur á Akranesi.
kl. 15.00 Barnaskemmtun í umsjá Jörundar, Sigurðar og Arnar.
kl. 16.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxter dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. 17.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 20.00 Hátíðarræða.
kl. 20.15 Kvöldvaka: Jörundur Guðmundsson, Sigurður
Sigurjónsson og Örn Árnason skemmta með
aðstoð og undirleik hljómsveitar Ólafs Gauks.
kl. 22.10 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek i stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
Hátíð slitið kl. 02.00.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN