Þjóðviljinn - 02.08.1984, Qupperneq 5
í hendur landstjórnarinnar
Tilraunir með atvinnulýðrœði á 60 vinnustöðum Samið um lausn á fjármálavanda fyrirtœkisins
Um áramótin gerast þau tíð-
indi á Grænlandi, að lands-
stjórnin tekur í sínar hendur
framleiðslu- og útflutnings-
deildir Konunglegu Græn-
landsverslunarinnardönsku,
en á hennar vegum hefur
mikið af grænlensku atvinnu-
lífi verið rekið. Um leiðverður
á fiskvinnslustöðum og í öðr-
um fyrirtækjum Grænlands-
verslunarinnar komið á fót
framleiðslunefndum með
fulltrúum fiskimanna, veiði-
manna, verkamanna og
bæjarfélaga, sem eiga í sam-
einingu að taka á sig ábyrgð á
stjórn framleiðslunnar.
í þessu máli hefur orðið ofan á
stefna Lars Emils Johanesens at-
vinnumálaráðherra Siumut-
flokksins. Hann hefur jafnan ver-
ið talinn til vinstri við forsætisráð-
herra sama flokks, Jonathan
Motzfeldt. Og þegar Siumut eftir
nýlegar kosningar tók upp sam-
starf við lítinn vinstriflokk, Inuit
Ataqatigiit, náð Lars Emil Jo-
hanesen betri stöðu til að knýja á
með hugmyndir sínar um áætl-
anabúskap og meðákvörðunarr-
étt vinnandi fólks í fyrirtækjum.
Þá hefur hann ekki aðeins í huga
Grænlandsverslunina konung-
legu. Fyrir skömmu fór Godtháb
Fiskeindustri í Nuuk á höfuðið,
en það er eitt af stærstu fyrirtækj-
um Grænlands. Og Lars Emil Jo-
hanesen kannar nú möguleika á
því að heimastjórnin yfirtaki það
fyrirtæki ásamt með samtökum
verkamanna og sjómanna.
í viðtali við danska blaðið In-
formation um þessi mál segir
Lars Emil Johanesen á þá leið, að
hann ætli ekki að svo stöddu að
„fara að gera tilraunir með
eignarform“ á Grænlandsversl-
uninni. Fyrirtækið var ríkisrekið
og verður nú rekið af landstjórn-
inni, enda þótt þær hugmyndir
njóti mikils fylgis bæði í Siumut
og hjá öðrum, að samvinnufé-
lagaform sé einna æskilegast
rekstrarform á Grænlandi.
Ráðherrann segir það skipti
mestu máli, að efla ábyrgðartilf-
inningu þeirra sem á hverjum
vinnustað eru, tilfinningu fyrir
því að þetta sé „þeirra fyrirtæki“,
en ekki rekið af utanaðkomandi
valdi. Hann gerir ráð fyrir því, að
á hverjum stað verði rekstur fyr-
irtækja Grænlandsverslunarinn-
ar í höndum framleiðsluráðs, þar
sem SIK (ASÍ þeirra Grænlend-
inga), og KNAPK (Samtök fiski-
manna og veiðimanna), eiga sér
fulltrúa ásamt fulltrúum bæjar-
stjórna. Þessar stjómamefndir
bera ábyrgð á rekstri og fjármál-
um gagnvart landstjóminni og
starfsfólki. Ekki er enn ákveðið
hvort þessar stjórnamefndir
muni ráða framkvæmdastjóra á
hvérjum stað en atvinnumála-
ráðherrann grænlenski kveðst
vona að þeir sem nú stjórna fyrir-
tækjunum muni flestir sitja áfram
eftir næstu áramót.
Nokkur ágreiningur hefur orð-
ið um fjármál hinnar Konunglegu
Grænlandsverslunar. Fyrirtækið
rekur tíu frystihús, sauðfjárbú,
togara, verslun með selskinn og
margt fleira - alls um 60 vinnust-
aði. Veltan er um miljarður
króna á ári og tapið all vemlegt.
Hallinn á rekstrinum nam 89
miljónum króna árið 1983. Á
grundvelli þess uppgjörs komu
heimastjórnin í Nuuk og Græn-
landsmálaráðuneytið danska sér
saman um að það þyrfti að útvega
105 miljónir króna í reksturinn í
ár. En þessir aðilar em ekki sam-
mála um það hvernig að því skuli
staðið.
Danska stjórnin lýsti sig þá
reiðubúna til að auka fjárveiting-
ar til Grænlands - innan hins al-
menna ramma sem þeim eru sett-
ar - um 71 miljón króna. Þá vom
eftir 34 miljónir króna til að 105
væri náð og Grænlandsverslun
gæti haldið áfram vandræðalaust.
Nýlega fór landstjórnin til
Flmmtudagur 2. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 5
Kaupmannahafnar og þar tókst
að ná samkomulagi við dönsku
stjórnina um að þessari upphæð
yrði á sparnaðar- og niðurskurð-
artímum skipt á milli Dana og
grænlensku landstjórnarinnar.
Hún mun reyna að ná inn sínum
17 miljónum með verðhækkun-
um sem ganga í gildi á næsta ári.
Það kom fram við samninga-
gerð í Kaupmannahöfn að land-
stjórnin vill gjarnan flýta fyrir því
að hún yfirtaki afganginn af
rekstri Konunglegrar Græn-
landsverslunar - vörudreifingu
og flutninga - þegar árið 1986.
Áður hafði verið um það rætt, að
þær breytingar yrðu ekki fyrr en
eftir 1990. A næstunni mun land-
stjórnin taka að sér húsnæðismál-
in sem hafa heyrt undir svo-
nefnda GTO - Tæknistofnun
Grænlands.
Stjórnarandstöðuflokkurinn
Atassut hefur gagnrýnt yfirtöku
Grænlandsverslunar og sagt að
þó Siumutmenn tali djarflega um
að „við getum þetta sjálfir“ þá
veifi þeir betlistaf í leiðinni. Þeir í
Atassut fá a heyra það í staðinn,
að þeir vilji í raun sem minnstu
breyta vegna þess að þeir „þon
ekki sjálfir". ÁB tók saman.
Danska alþýðusambandið:
Skyldugreiðslur til
krata lagðar niður
Nýtt form á styrkjum til danskra stjórnmálaflokka?
Miðstjórn LO, Danska
alþýðusambandsins, virðist á
einu máli um þá tillögu Knuds
Christensens, formanns
sambandsins, að það skuli
hætt við skyldugreiðslur
meðlima verkalýðsfélagánna
til Sósíaldemókrataflokksins
danska. Og talsmaður
Sósíaldemókrata, Sven
Auken, hefur fyrir sína parta
lýst því yfir að hann styðji
þessa hugmynd.
í vetur er leið var í borgara-
legum blöðum ráðist hart á
verkalýðshreyfinguna dönsku og
sósíaldemókrata fyrir skyldu-
greiðslur þessar. Tilefnið var það
að nokkrir strætisvagnabílstjórar
neituðu að inna þessar greiðslur
af hendi og gerðu starfsfélagar
þeirra þá verkfall til að knýja á
um að þeir yrðu reknir úr vinnu.
Valfrelsi
Samkvæmt peim hugmyndum,
sem formaður alþýðusambands-
ins leggur nú fram, getur hver og
einn hinna 1,3 miljóna meðlima í
danska alþýðusambandinu kraf-
ist þess að fá endurgreiddan þann
hluta félagsgjalda sinna sem
rennur til sósíaldemókrata eða
krafist þess að þeim peningum
verði varið í eitthvað annað. Ekki
er búist við því að sósíaldemó-
kratar tapi í raun miklu fé á
þessu. Til eru þau félög sem hafa
iðkað slíkt „valfrelsi" - og eru
það ekki margir sem nenna að
heimta aftur þær sjö krónur
danskar á ári eða svo, sem ganga
til flokks Sósíaldemókrata. En
alls hefur þessi upphæð numið
um tíu miljónum króna á ári, og
fimmtán miljónum á kosningaár-
um.
Það er ljóst að það er áfram
gert ráð fyrir því að verkalýðsfé-
lögin styðji verkalýðsflokka - og
þá ekki bara Sósíaldemókrata.
En það verður ekki um skuld-
bindingu fyrir hvem og einn að
ræða, þótt meirihluti í hans félagi
taki slíka ákvörðun.
Atvinnurekendasambandið
danska hefur hinsvegar ekki iðr-
ast synda sinna og heidur áfram
að greiða til hægriflokka með-
lima sinna án þess að spyrja um
vilja hvers og eins.
Borgaraflokkamir höfðu
reyndar ætlað að bera fram fmm-
varp á danska þinginu þess efnis,
að það yrði bannað með lögum
að verkalýðsfélög inntu af hönd-
um skyldugreiðslur til pólitískra
flokka. Nú munu forsendur fyrir
slíkri lagasetningu úr sögunni.
Aftur á móti hefur Sven Auken,
talsmaður Sósíaldemókrata, haft
það á orði, að sinn flokkur muni
bera fram hugmyndir um rfkis-
styrk við pólitíska flokka, sem fer
eftir atkvæðamagni þeirra. Einn-
ig sú hugmynd hefur hlotið
blendnar viðtökur í Danmörku:
hún þykir stefna í þá átt að frysta í
óbreyttu ástandi það pólitíska
mynstur sem nú er fyrir hendi.