Þjóðviljinn - 05.08.1984, Blaðsíða 5
Albert safnar
pappakössum
Á undanförnum mánuðum
hefur Albert off endurtekið
hótun sína um að láta af störf-
um sem fjármálaráðherra.
Hótunin hefur verið endur-
tekin það oft að engin tekur
orðin lengur alvarlega.
Samkvæmt heimildum í
Fjármálaráðuneytinu ákvað
Albert því nú í kjölfar síðustu
ráðstafana ríkisstjórnarinnar
að gefa hótuninni aukinn
þunga og hagaði svo fyrir að
safnað yrði saman pappak-
össum svo hann geti búið sig
til brottfarar.
Ýmsir forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa lengi
verið þreyttir á Albert og segja
sumir að hinn raunverulegi til-
gangur efna-
hagsráðstafanana hafi ein-
mitt verið sá að storka Albert
þannig að hann geri alvöru úr
hótunum sínum.B
Denni
kúreki
Það var eins gott að forsætis-
ráðherrann hafði með sér
nafnspjöld þegar hann fór til
Ameriku. Ekki bara svo hann
kæmi vandamönnum sínum
inn á opnunina á ólympíuleik-
unum og fengi svolítið af bugti
og beygjum, sem hann fær
víst ekki í því landi sem kaus
hann forsætisráðherra um
árið, heldur einkum og séri-
lagi vegna þess að ella hefði
víst enginn trúað hver hér var
á ferð. Eða hverjum skyldi
detta í hug að maður í þessari
múnderingu væri forsætis-
ráðherra lslands?B
Og enn um
Steingrím
Menn velta því fyrir sér, hvort
kúrekastæll Steingríms Her-
mannssonar forsætisráð-
herra og formanns Fram-
sóknarflokksins muni
breiðast út meðal framsókn-
arbænda. Kúrekahatturinn
þótti fara forsætisráðherra
einkar vel, þar sem tekið var
við hann viðtal í sjónvarpi
vestur í Los Angeles um dag-
inn. Forsætisráðherra mun
hafa keypt nokkra kúasmala-
hatta í viðbót þar vestra og
ætla að hafa með sér heim.
Má fullvíst telja að formaður
þingflokks Framsóknar, Páll
bóndi Pétursson á Höllustöð-
um, fái fyrsta hattinn hjá
Steingrími. Páll hefur sem
kunnugt er stundað mikinn
bófahasar norður í Húnaþingi
og átt í illdeildum við sherriff-
inn á svæðinu, sýslumann
Húnvetninga, út af hrossum.
Verður gott fyrir Pál bónda að
hafa hatt eins og Steingrímur,
þegar hann fer að smala
hross af heiðunum núna
seinnipartinn í ágúst.B
Þrjár mestu seldu vasabrotsbækurnar í sumar. „Elenl“ eftlr
Nlcholas Gage er á hraðri upplelð upp vlnsældallstann. „The
Name of the Rose“ eftir Umberto Eco er geysivlnsæl um allan
helm og miklð tískulesefni. „ Cry in the night“ eftir Mary Hlggins
er einnig mjög mlkið seld. Mynd-elk.
Mest selda
lesefnið
Hjá bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar var fjöldi fólks
að kaupa sér lestrarefni fyrir
ferðalagið þegar Þjóðviljann
bar að garði. Var okkur sagt
að karlmennirnir kaupi sér
skák- og bridgeblöð en kon-
urnaroft og tíðum ástarsögur.
Erlendu vasabrotsbækurnar
eru einnig mikið keyptar í
sumar. Afgreiðslufólk sagði
að margir færu eftir vinsælda-
listanum sem hangir upp á
vegg. Mest selda bókin er
„The Name of the Rose“ eftir
Umberto Eco. „Enda góð“
sögðu þau í bókabúðinni,
höfðu lesið hana vandlega.
„Hún er um munka sem
hverfa úr klaustrinu á dular-
fullan hátt og finnast í slæmu
ástandi". söaðu bau.
Víkingar
æfa
Víkingasveitarmenn gráir fyrir
járnum sáust á æfingu á dög-
unum, endaþurfaþeiraðvera
tilbúnir til að taka á móti ýmsu
óvæntu ef þeir yrðu kallaðir
út. Voru þeir kallaðir út vegna
„hryðjuverkamanns" og ekki
látnir vita að hér væri aðeins
um æfingu að ræða. Barst
leikurinn út fyrir bæinn. En lík-
lega hefur þeim ekki veitt af
æfingunni, því sagan segir að
þegar einn víkingurinn tókst á
við hryðjuverkamennina, sem
lék hlutverk sitt af mikilli rögg-
semi og hélt víkingnum föst-
um í greip sinni, hafi víkingur-
inn bleytt buxurnar af
hræðslu....H
HAGKAUP
Skeifunni Akureyri Njarðvik
Endurtekur ævintýrið.
5 þriggja tíma
vhs myndsegulbandsspólur
í pakka á aðeins
spólan.
Ekki kasta krónunni og spara aurinn
veljið það besta frá Panasonic,
stærsta VHS framleiðanda heims.