Þjóðviljinn - 05.08.1984, Page 9
Hann á eigin bát, sem hann
heldur úti til fiskveiða frá Fre-
deriksháb (Pamiut), sem er
2400 manna bær á vestur-
strönd Grænlands. Hann er
jafnframtforseti Stórstúkunn-
arog starfsmaður hennar, í
hálfu starfi.
Grænlendingar hafa ekki frem-
ur en mörg samfélög, sem búið
hafa að eigin menningu, í einang-
run, farið varhluta af innrás vest-
rænna áhrifa, sem oftast hafa í för
með sér miklar breytingar á lifn-
aðarháttum og röskun, sem er
fráleitt jákvæð í alla staði. í þessu
viðtali segir forseti stúkunnar í
Grænlandi frá sorglegu vanda-
máli, sem orðið er óskaplegt þar í
landi, drykkjuskap.
„Því er ekki að leyna, drykkju-
skapur er hrikalegt vandamál á
Grænlandi“ sagði Karl M. Josefs-
en, forseti stórstúku Grænlend-
inga, en hann kom hingað til
lands með hóp grænlenskra ung-
linga. Tóku þeir þátt í æskulýðs-
móti templara, sem haldið var að
Varmá í Mosfellssveit nú í enda-
ðan júlí. „Almennur drykkju-
skapur er orðið stórkostlegt
samfélagslegt og efnahagslegt
vandamál hjá okkur“, sagði Karl,
„og hefur aukist gífurlega".
Við hittum Karl M. Josefsen á
' mótsvæðinu uppi í Mosfellssveit í
rigningunni á dögunum. Það var
heldur vætusamt í tjaldbúðum
mótsgesta, eftir úrhelli undan-
genginna daga. Þar var umhorfs,
líkt og oft vill verða á sumarsam-
komum unglinga hér á landi, þar
sem veðurguðirnir leggja sorg-
lega sjaldan blessun sína yfir sam-
kunduna, for og drullupollar.
Hins vegar var hér allt með ró og
spekt, hvorki háreisti né sukk,
svo sem stundum vill verða í
tjaldbúðum á sumarsamkomum
hér á landi, enda er Bakkus hér
víðs fjarri.
Mótsgestir mötuðust í félags-
heimilinu Hlégarði. Þar sat Karl
ásamt tveimur ungum löndum
sínum, frísklegum strákum, sem
óðar voru komnir út í suddann í
boltaleik. Við spurðum hann
hvort drykkjuskapur hefði aukist
meðal unglinga á Grænlandi, eða
hversu gamait íóik væfl yfíriCIÍt,
þegar það byrjaði að drekka.
„Það byrjar yfirleitt um 16 ára
aldurinn. Ungiingar eru ekkert
áberandi hvað óreglu varðar.
Hún er útbreidd og almenn með-
al alls fullorðins fólks, hjá ungum
sem öldnum. Þetta eru sorglegar
staðreyndir og ástandið verður æ
ískyggilegra í þessum efnum“.
Fyrir tveimur árum var
drykkja Grænlendinga 12,3 lítrar
á hvert mannsbarn í landinu, að
sögn Karls, en aukningin hefur
verið ótrúleg nú allra síðustu ár
og nú er þessi tala komin í 21,3
lítra á mann! Það eru raunar tölur
frá 1983. Þetta er nærri fimm
sinnum meira magn en íslending-
ar létu ofaní sig á síðasta ári, pr.
mann. Danir, sem stunda stífast
drykkju allra norðurlandabúa
drukku 12,43 pr. mann árið 1982
og þeir eru ofarlega á blaði í þess-
um efnum í Evrópu.
„Þetta eru ógnvænlegar tölur“,
segir Karl M. Josefsen. „Við höf-
um þann vafasama heiður að vera
„fremstir" að þessu leyti.
Drykkjuskapurinn kemur orðið
niður á öllum þáttum þjóðlífsins.
Menn afrækja vinnu vegna ölv-
unar, mæta seint, eða alls ekki.
Börn eru ekki send í skóla vegna
áfengisneyslu foreldra. Atvinnu-
lífið bíður stórtjón af þessum
ósköpum. Mörg fyrirtæki eru
lömuð dögum saman vegna þess
að svo og svo margir starfsmenn
velta einhvers staðar um ofurölvi
í stað þess að stunda starfann
sinn“.
„Það er sorglegt að horfa upp á
þetta“ hélt Karl áfram. „Menn
liggja oft afvelta út um grundir og
móa. Þegar vínbúðir eru opnaðar
á mánudagsmorgnum hópast fólk
þangað. Og klukkan eitt eftir há-
degi vafrar kannski fjöldi manna
um ofurölvi. Bjórdósir og vín-
flöskur liggja eins og hráviði út
Karl M. Josefsen, forseti
stórstúkunnar ó Grœnlandl:
um allt. Þessu fylgja svo auðvitað
pústrur, stimpingar, áflog og oft
stórslys. Lögreglan hefur ekkert
undan að taka menn úr umferð.
Sjúkrahúsin hafa ærinn starfa af
því að gera að meiðslum, sem
verða í drykkjulátum".
Tölur tala sínu máli. Áfengis-
neysla þykir til dæmis ærin í Finn-
landi. Þar er vínneysla sem svarar
7,92 lítrum á mann (tölur frá ’82)
og er það þó rétt rúmlega þriðj-
ungur þess sem gerist á Græn-
landi. I Svíþjóð er drukkið sem
svarar 6,10 lítrum af alkóhóli á
mann og í Noregi 4,86 lítrar. En
drykkja hefur minnkað síðustu
árin í báðum þessum grann-
löndum okkar. „Það sem okkur,
sem berjumst gegn þessu böli,
SVÍður hvað sárast", sagði Karl
M. Josefsen, „er að pcSSl
ógnvænlega þróun skuli eiga sér
stað á sama tíma og hugmyndir
um heimastjórn og sjálfstæði
Grænlendinga eru að fá byr undir
vængi. í hugum okkar stúku-
manna er baráttan gegn áfengis-
ofneyslunni tengd sjálfstæðisbar-
áttunni. f okkar augum hefur
landsstjórnin brugðist illa í þess-
um málum. 1979 voru settar
skorður við áfengisneyslu. Sam-
kvæmt þeim reglum fékk hver
maður að kaupa 3 kassa af áfengu
öli á mánuði og eitthvað samsvar-
andi af sterkari drykkjum. Það
vildi að vísu við brenna að svind-
lað væri á þessum reglum. Þeir
sem ekki drukku skammtinn sinn
fóru sumir hverjir að versla með
hann og skapaðist af þessu tals-
vert brask. Þetta varð til þess að
stjórnin afnam hömlurnar. Ég tel
að það hafi verið mikið glap-
ræði“, sagði Karl.
Á Grænlandi eru engar stofn-
anir, sem sinna áfengissjúkling-
um, eða aðstoða fólk við að losna
við drykkjusýki, líkt og meðferð-
arheimili SÁÁ og fleiri stofnanir
hér á landi. Sjúkrahúsin hafa
ekki aðstöðu til þess að sinna
þessu hlutverki. f blaðinu „Folk-
et“, sem fjallar um áfengismál,
segir 25. júlí síðastliðinn frá rann-
sókn, sem fjórir danskir læknar
eru að gera á áfengisvandamálinu
á Grænlandi. Telja þeir að það
auki heilsugæslunni og sjúkra-
stofnunum í landinu stórlega erf-
iðið. Mikill hluti sjúklinga
sjúkrahúsanna eigi mein sín að
rekja til eigin drykkju, eða hafi
orðið fyrir barðinu á ölæði ann-
arra, hlotið áverka og meiðsl.
Læknarnir segja að sjálfsmorðs-
tíðni á Grænlandi sé tvisvar og
hálfu sinni meiri en í Danmörku
og þeir fullyrða að manndráp séu
tiltölulega margfalt tíðari en í
Kaupmannahöfn.
En hvernig er hægt að snúast
gegn þessari ógnvæniegu þróun?
„Við viljum gera það með öllum
tiltækum ráðum“ sagði Karl.
„Stórstúkan „I.O.G.T." er ung á
Grænlandi og telur aðeins á
fjórða hundrað félaga, þar af eru
um 200 í Frederiksháb. Mér
finnst að sá áróður, sem við höf-
um rekið þar hafi borið nokkurn
árangur. I haust boðum við full-
trúa allra sveitarfélaga á Græn-
landi til fundar í Knud
Rasmussens-skólanum í Hol-
steinsborg (Sisimiut) til þess að
ræða þessi mál. Þetta mót verður
raunar öllum opið. Þar á að ræða
tillögur til landsþingsins um á-
fengismál. Ég tel að hefja verði
mikia áröðursherfe.rö gegR
áfengi, með fræðslu, auglýsing-
um og hvers kyns ráðum. - Við
erum reiðubúnir til samvinnu við
alla aðila í þessari baráttu. Bar-
áttumál Góðtemplarareglunnar
eru bindindi, bræðralag og
friður. Við teljum að þessi mál-
efni fari vel saman og það er
sannarlega ekki vanþörf á að
berjast fyrir þeim á Grænlandi.
Við verðum að einbeita okkur að
börnunum og reyna að koma í
veg fyrir að þau gangi þessa
braut. Bindindisáróður í skólun-
um hefur verið fremur slælega
rekinn, sérstaklega þar sem
kennararnir drekka sjálfir. Við
höfum líka áhuga á að komið
verði upp meðferðarheimili fyrir
drykkjusjúka. En við verðum að
sníða slíka starfsemi að okkar
vexti“, sagði Karl, „Við getum
naumast byggt slíkar stofnanir á
sömu forsendum og gert er t.d. í
Danmörku eða hér“.
Varðandi önnur vímuefni,
taldi Karl að neysla þeirra hefði
einnig aukist, þótt minna væri um
það vitað. En árangur eina hass-
hundsins á Grænlandi, sem stað-
settur er í Godtháb, sýndi að tals-
verðu væri smyglað af kannabis-
efnum til landsins. Hann hefur
fundið talsvert magn í
póstsendingum til dæmis.
„Við erum fámenn þjóð, að-
eins 52000 manns, en við eigum
fallegt land. Það gat að líta stór-
kostlega sjón daginn, sem ég hélt
að heiman, 14. júlí. Sjór spegil-
sléttur og sól glampaði á ísurn.
Það er sannarlega von okkar að
við getum lifað í landinu sjálfráð
og að okkur takist að reka þann
vágest sem drykkjuskapurinn er
af höndum okkar“, sagði forseti
stórstúkunnar á Grænlandi að
lokum. JH
kjuskapur
er hrikalegt
vandamál
Sunnudagur 5. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9