Þjóðviljinn - 05.08.1984, Qupperneq 17
LEÐARAOPNA
Þjóðviljinn spyr:
Valdís
Kristinsdóttir
form. verkalýðs-
og sjómannafél.
Stöðvarfjarðar
engum bjóðandi
Bónusinn
Bónusinn er blekking fyrir það
fólk sem vinnur í honum. Sú
manneskja sem byrjar ung að
vinna bónusvinnu, endist ekki
lengi. Vinnuálagið er gífurlegt og
engum bjóðandi. Bónusinn hefur
haldið tímakaupinu niðri. Það er
staðreynd. í þessum litlu sjávar-
plássum hefur fólk getað halað
tímakaupið upp með bónus og
þannig er tímakaupinu haldið
niðri um leið. Aðalvandinn er
tímakaupið, það er alltof lágt og
það verður að bæta það á annan
hátt en með þessum gífurlega
þrældómi.
Vilhjólmur
Ingvarsson,
framkv.st.
fsbjarnarins
Bónusinn
Bónusinn á fullan rétt á sér.
Fólk sem skilar mestum af-
köstum á að hafa hæstu launin.
Það er sanngirnismál. Sá sem
skilar tvöföldufn afköstum á ekki
er sanngjarn
að fá sömu laun, hvernig sem þau
eru nú reiknuð, og aðrir. Þetta
mætti hafa í huga við aðrar launa-
greiðsiur og taxta líka. Hvað
snertir langtímareynslu af bón-
uskerfinu er erfitt að spá, þar sem
bónuskerfi í þessari mynd er svo
nýlegt. En mér finnst óréttlátt að
greiða ölium sömu laun, án tillits
til vinnuframlags og því á bónus-
inn sannariega rétt á sér.
Elísabet
Þorgeirsdóttir
Heldur tímakaupinu niðri
Bónusinn hefur aldrei verið
eins óréttlátur og einmitt nú,
vegna þess-að tímakaupið í fisk-
vinnslunni er lægra en lágmarks-
kaup í landinu í dag. Vissulega
skilar bónusinn auknum tekjum
fyrir þá sem geta hamast,fæstir
vilja æfiráða sig í fiski og þess
vegna tekur fólk þetta sem hverja
aðra ígripavinnu. Og sumir segja
að tíminn verði óendanlega lengi
að líða, ef ekki væri bónusinn að
keppa eftir. En þetta mál hefur
margar hliðar og margar mjög
ómanneskjulegar. Krakkar sem
eru að byrja hafa enga möguleika
á að ná í bónus, það tekur amk. ár
að ná þessari þjálfun. Þar við
bætist að við þetta er svo flókinn
útreikningur og venjuleg mann-
eskja er algerlega varnarlaus
gagnvart honum. Lámarkstaxt-
inn verður að hækka og það verð-
ur að finna kerfi-sem er mann-
eskjulegra en bónusinn.
Kristjón
Ragnarsson,
framkvstj.
Landsamb.
ísl. útvegsmanna
Bónusinn
Af því sem ég hefi kynnst.bón-
usvinnunni með heimsóknum í
flestöll frystihús landsins hefur
mér virst þetta skynsamlegt fyrir-
komulag og fólk sækjast eftir því.
Það er gott að geta veitt fólki
kaupauka eftir afköstum og gæð-
um, en bónusinn reiknar einnig
er skynsamlegur
gæðin. Hafandi alist upp að veru-
legu leyti í frystihúsi verð ég að
segja að mér virðist þetta fyrir-
komulag mun skynsamlegra en
það sem áður gilti og engan veg-
inn svo íþyngjandi að það réttlæti
sé lagt af. Fólk virðist yfirleitt
sækjast eftir þessu, - það á kost á
uppgripavinnu stuttan tíma eða
jafnvel hluta úr degi, ef það vill
sinna öðru, t.d. heimilisstörfum á
móti, og það nær jafnvel fullum
dagvinnulaunum samt sem áður.
Ég get því ekki annað sagt en mér
finnist bónusinn eiga fullan rétt á
sér.
Sigurlaug
Gunnlaugsdóttir
fiskverkunarkona
Bónus er
í grundvallaratriðum eru til tvö
form launagreiðslna. Það eru
laun fyrir vinnutíma og laun fyrir
framleiðslu. Ef kafað er lengra
niður í spurninguna, er aðeins um
að ræða eitt atriði sem laun eru
greidd fyrir. Og það er tími. Þeg-
ar farið er út í að greiða ákvæðis-
laun í stórum stfl (hér á landi fag-
lærðum körlum og síðan ófag-
lærðum konum) var það ætlað til
blekking
að bæta samkeppnisaðstöðu um-
ræddra greina. Það gerði það
náttúrulega, því iðnaður sem
lagar sig ekki að lögmálum
heimskapitalsins, dettur úr skaft-
inu. Spurningin er hvort við vilj-
um svoleiðis samfélag. Þess
vegna var það ekki endanleg
lausn á samkeppnisaðstöðu þess-
ara greina, að margfalda fram-
leiðnina á tímaeiningu. Aftur á
móti er þessi stundarlausn dýr-
keypt því verkafólki sem þarf að
margfalda afköst sín á tímaein-
ingu, til þess að hafa svipuð laun í
stórurii dráttum. Tekjur batna
ekki í bónusvinnu, bónusvinna
hefur ekki bætt stöðu kvenna á
vinnumarkaðinum, bónusvinna
hefur slæmar heilsufarslegar af-
leiðingar. Þess vegna er bónus
blekking gagnvart verkafólki.
Sunnudagur 5. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17