Þjóðviljinn - 08.08.1984, Page 5
OL-íslendingar
Verðlaunum frestað
til 1988
Einar sjötti í spjótinu, gott hjá Oddi í 400 metrum en Kristján
og Iris komust ekkert
Spjótkastarinn frækni Einar
Viihjálmsson var fyrirfram helsta
von íslands um verðlaunasæti á
Ólympíuleikunum í Los Angeles.
Keppnin fór fram aðfaranótt
mánudags og var æsispennandi
og um tíma hafði Einar forustu.
Keppninni lyktaði þó með því að
Einar hlaut sjötta sætið sem er í
sjálfu sér dágóður árangur, en
lengsta kastið átti Finninn vin-
sæli, Harkonen. Þess má geta að
Islandsmet Einars, 92,42 metrar,
er talsvert lengra en vinningskast
Harkonens.
Sjötta sæti Einars dugði þó til
þess að ísland fékk stig á Ól-
ympíuleikunum, en þetta er ein-
ungis í annað sinnið sem við
náum þeim árangri. Það var ein-
mitt faðir Einars, þrístökkvarinn
góðkunni, Vilhjálmur Einarsson
núverandi skólameistari mennta-
skólans á Egilsstöðum, sem náði
þeim árangri í fyrsta skiptið. Það
var á Ólympíuleikunum í Melbo-
urne í Astralíu 1956, þegar Vil-
hjálmur spjótkastarafaðir hlaut
silfrið í þrístökki.
Annar íslendingur tók þátt í
spjótkastkeppninni, Sigurður
Einarsson. Hann komst hins veg-
ar ekki í úrslitakeppni og kastaði
raunar ekki nema tæpa sjötíu
metra sem er allnokkuð frá besta
kasti hans.
Gott 400
metra hlaup
Oddur Sigurðsson keppti í 400
metra hlaupi og stóð sig vel.
Áttatíu keppendur kepptu í tíu
riðlum, átta menn í hverjum og
Oddur hljóp í fjórða riðli, ásamt
heimsmeistaranum, Bert Camer-
on frá Jamaica. Oddur varð ann-
ar í riðlinum og komst í aðra um-
ferð. Þar hijóp hann í þriðja riðli,
sem var allerfiður og varð sjöundi
og komst því ekki í undanúrslit.
En tími hans þar nægði eigi að
síður til að tryggja 21. sætið í 400
metra hlaupinu sem verður að
teljast góður árangur.
íris langt frá
sínu besta
Þrátt fyrir strangar æfingar að
undanförnu náði Iris Grönfeldt
ekki að komast í úrslit í spjótkasti
kvenna og var langt frá sínu
besta. Þess má geta að allar stúlk-
urnar voru langt frá sínu besta, og
var duttlungafullum misvindum
inná leikvanginum kennt um.
22. sætið í
langstökkinu
Kristján Harðarson lang-
stökkvari náði ekki að komast í
úrslit í langstökkskeppninni, en
hlaut þó 22. sætið í keppninni
sem er ágætur árangur. Þess má
geta að í riðli með honum keppti
Carl Lewis, sem síðar hlaut gullið
í langstökkinu. -ÖS/m
OL-spjótkast
OL-handbolti
Slappt!
Naumur sigur gegn Japan og Alsír. Is-
lenska liðið verður að standa sig betur á
móti svissurum í dag.
Afsaka ekkert
Mistök við upphitun, segir Sigurður
Frá Jóni Jenssyni fréttaritara
Þjóðviljans í Los Angeles:
íslenska landsliðinu í hand-
knattleik hefur stundum verið
líkt við furðudýrið kameljón sem
hefur þá náttúru að skipta litum
eftir umhverfi sínu. Þessi samlík-
ing á ekki illa við það lið sem nú
klæðist bláhvíta búningnum í Los
Verðlaun skiptust þannig eftir
þióerni að loknum níunda degi
Ólympíuleikanna í Los Angeles í
fyrradag: G S B alls
Bandaríkin 46 39 16 101
Rúmenía 16 10 7 33
Kina 13 6 5 24
Ítalía 9 3 6 18
V-Þýskaland 8 12 13 33
Kanada 7 8 7 22
Japan 7 4 8 19
Finnland 4 3 4 11
Ástralía 3 8 10 21
Bretland 3 4 15 22
Frakkland 2 2 6 10
Holland 2 2 4 8
S-Kórea 2 2 1 5
Nýja-Sjáland 2 - 1 3
Mexíkó 1 2 1 4
Belgía 1 1 2 4
Júgóslavía 1 1 2 4
BrasUía 1 1 1 3
Svíþjóð 4 5 9
Sviss 2 2 4
Danmörk 1 2 3
Noregur 1 2 3
Austurríki 1 1 2
Grikkland 1 1 2
Kolumbía 1 . 1
Perú 1 . 1
Spánn 1 - 1
Jamaica - 1 1
Portúgal - 1 1
Tævan . 1 1
Venesúela . 1 1
Angeles. Jafntefli við sterka júgó-
slava í leik sem sagður er hafa
verið í heimsklassa, síðan eðlilegt
tap fyrir sterkum rúmenum, slak-
ur sigur gegn japönsku liði sem
tapaði fyrir júgóslövum með 17
marka mun, - loks naumur sigur
á alsíringum eftir hörmulegan
leik, eða leikleysu, hjá íslenska
liðinu. Leikurinn við Sviss í dag
gerir gæfumuninn og sker úr um
sæti í A-riðli næstu heimsmeist-
arakeppni.
íslendingar náðu góðri forystu
í byrjun leiksins við japani, kom-
ust í 3-0 og héldu henni frammí
miðjan hálfleik. Þá tókst jap-
önum að jafna, 6-6 og 7-7, ís-
lendingar í 9-7 en jafnt í ieikhléi,
9-9. Japan komst yfir í byrjun
síðari hálfleiks, 11-10 og 12-11
og fór nú að fara um landann en
fjögur íslensk mörk í röð, þaraf
þrjú víti frá Kristjáni Arasyni,
björguðu málunum og lokatölur
urðu 21-17. Kristján Arason var
maður dagsins með góðum leik í
seinni hálfleik, skorði 7 mörk.
Jakob skorði þrjú, Atli, Bjami,
Guðmundur, Sigurður Gunnars-
son tvö, Alfreð, Þorbjörn og
Þorgils eitt.
Eftir kléna frammistöðu gegn
japönum stóð til að rótbursta als-
írmenn en það fór á annan veg og
má raunar hrósa happi yfir sigri.
Alsíringar tóku íslensku sóknina
með lágtrompi frammeftir öllum
leik, léku maður á mann í vörn-
inni og sú aðferð virðist hafa
gleymst við undirbúninginn hjá
landanum. Sóknarleikurinn fór
úr böndunum og skyttur ónýttu
hvert færið af öðm. Hafi leikur
íslenska liðsins gegn júgóslövum
verið besti leikur liðsins lengi var
leikurinn við alsírmenn allra slak-
astur þeirra sem elstu menn
muna. Alsír hafði forystu allan
fyrri hálfleikinn, en löndum tókst
að jafna fyrir leikhlé, 7-7. Alsír-
menn hófu síðari hálfleik vel og
komust í 11-9 en íslendingum
tókst aftur að jafna og sigu
frammúr á síðustu tíu mínútum
leiksins, úr 13-13 í 19-15. Einar
stóð í markinu og varði vel á úr-
slitastundu um miðjan seinni
hálfleik, en íslensku leikmenn-
irnir voru að öðru leyti einsog
heillum horfnir og verða að taka
sig duglega á í leiknum í dag.
Mörk íslendinga: Sigurður
Gunnarsson sex, Guðmundur
fjögur, Jakob Sig og Atli þrjú,
Álfreð, Kristján og Þorgils eitt.
Þjóðhollum er ráðlagt að
skyrpa töluvert í vesturátt um
sexleytið í dag; sigur gegn svissur-
um er hvergi nærri nálægt því að
vera í höfn hins sveiflótta lands-
liðs okkar. -m
Leikir helgarinnar í handbolt-
anum:
A-riðill:
Spánn-S.-Kórea 31:25
V.-Þýskal.-Svíþjóð 18:17
Danmörk-Bandar. 19:16
V.-Þýskal.-S.-Kórea 37:25
Spán-Bandar. 17:16
Danmörk-Sviþjóð 19:16
B-riðHl
Ísland-Japan 21:17
Júgóslavla-Alsír 25:10
Rúmenía-Sviss 23:17
Ísland-Alsír 19:15
Júgóslavía-Svlss 25:11
Rúmenía-Japan 28:22
Staðan í riðlunum fyrir síðustu
umferð:
A-riðill
Danmörk..........4 4 0 0 97:79 8
V.-Þýskaland....4 4 0 0 94:77 8
Sviþjóð..........4 2 0 2 93:85 4
Spánn............4 2 0 2 80:80 4
Ég afsaka ekki neitt, sagði Sig-
urður Einarsson eftir að hafa fall-
ið úr keppni í spjótkasti á laugar-
daginn, - en held að reynslulcysið
hafi átt stærstan þátt í hvernig
fór. Ég tek þetta ekki nærri mér,
en þetta er auðvitað leiðinlegt
fyrir fólkið sem stóð á bakvið
mig.
Besta kast Sigurðar í undan-
riðli var 69,82 metrar, langt frá
því sem búist var við af honum.
Sigurður hafnaði í síðasta sæti í
sínum riðli, og varð í 26. sæti af 28
keppendum.
- Ég er ekki eins vonsvikinn og
við væri að búast, sagði spjótkast-
arinn við fréttaritara Þjóðviljans,
- ég gerði mistök í upphituninni,
og þau mistök stöfuðu af reynslu-
leysi. Ég hitaði upp á öðrum velli
en keppt var á, og þegar ég kom á
OL-handbolti
Rúmenar
og danir
í úrslit?
Bandaríkin.4 0 0 4 69:78 0
S.-Kórea...4 0 0 4 101:135 0
Danir eiga eftir að leika við V-
Þjóðverja, Svíar við Spánverja,
Bandaríkjamenn við S-
Kóreumenn; úrslitaleikir um 1.,
3. og 5. sæti í riðlinum.
aðalvöllinn hélt ég að ég hefði 45
mínútur til að kasta í upphitun-
inni. Þegar ég var búinn að kasta í
fimm mínútur var ég kallaður í
biðherbergið, „call room“, og sat
þar í einn og hálfan tíma fyrir
keppnina sjálfa.
Ég leyni því ekki að ég stefndi á
úrslit og var bjartsýnn um árang-
ur. En mér finnst ég vera rétt að
byrja í íþróttinni og veit að ég á
mun meira inni í greininni en
þetta.
Ég get ekki skýrt hvað gerðist,
ég er í góðu formi og var vel upp-
lagður. Ég lít ekki á þetta sem
ósigur fyrirmig. Ólympíuleikarn-
ir eru langstærsta mót sem ég hef
tekið þátt í og þetta var mér
ómetanleg reynsla. Ég vissi til
dæmis ekki hvernig ég virkaði
undir pressu, - en var ekki tauga-
veiklaður. Ég gerði mistök, sagði
Sigurður, - en ég afsaka ekki
neitt.
B-riðill
Rúmenía...........4 4 0 0 102:72 8
Júgóslavia........4 3 1 0 104:58 7
fsland............4 2 1 1 79:80 5
Svlss.............4 2 0 2 67:79 4
Alslr.............4 0 0 4 59:88 0
Japan............4 0 0 4 67:101 0
Leikir eftir: Rúmenía-
Júgóslavía, Ísland-Sviss, Alsír-
Japan. Júgóslavar þurfa að vinna
Rúmena til að komast í leikinn
um gullið, Rúmenum nægir jafn-
tefli. Júgóslavar hafa prýðilega
markatölu og þurfa ekki að óttast
að lenda neðar en í öðru sæti þótt
þeir tapi og íslendingar vinni
Svissara. Jafntefli nægir íslend-
ingum gegn Sviss til að ná þriðja
sætinu og keppa um fimmta, við
Spán eða (sem er sennilegra) Sví-
þjóð.
K lÁnwn
HkUI