Þjóðviljinn - 08.08.1984, Page 19
MINNING
Björn Sigurðsson
verkamaður
F. 13.9. 1926 - D. 30.7. 1984
í gær 1. ágúst bárutn við
stjórnarmenn í Dagsbrún Björn
Sigurðsson verkamann til grafar.
Hann var jarðsettur frá Fossvog-
skapellu.
Björn var fæddur 13. septemb-
er 1926 í Reykjavík. Foreldrar
hans voru Sigurður Hreinsson,
verkamaður, sem enn er á lífi há-
aldraður og Guðrún Björnsdótt-
ir, sem er látin. Hann ólst upp hjá
afa sínum og ömmu. Þau hétu
Björn Björnsson og kona hans
Margrét Jónsdóttir hér í bæ. Þau
bjuggu að Ásvallagötu 39 í verka-
mannabústöðunum og í sömu
íbúð bjó móðurbróðir Björns,
Jón Björnsson sem var verka-
maður hjá Eimskip og látinn er
fyrir nokkrum árum, einstakur
heiðursmaður. En eftirlifandi
kona Jóns er Ester Högnadóttir.
Jón og Ester áttu 4 börn sem öll
eru uppkomin. Stundum bjó
þriðja fjölskyldan í þessari
þriggja herbergja íbúð og þar
voru ekki deiíurnar þó þröngt
væri setinn bekkurinn.
Við Bjöm kynntumst ungir.
Ég held að það hafi verið í byrjun
stríðsins um 1940. Þá bjó hann í
Verkamannabústöðunum á Ás-
vallagötu 39.
Björn byrjaði kornungur að
vinna sem verkamaður en eina
tvo vetur var hann nemandi í
Verslunarskóla íslands. Ég held
að hugur hans og hæfni hafi stað-
ið til frekara náms, en fjárhagur-
inn og aðstæður bannað. Við
Björn unnum saman a.m.k. hluta
úr tveim sumrum. Björn var þá
þegar orðinn framámaður á sín-
um vinnustað, sem var í pakkhús-
um Eimskipafélags Islands í
Haga. Hann hafði frábæra vöru-
þekkingu, glöggskyggni og af-
burða stærðfræðigáfu.
Hann tók snemma þátt í störf-
um Dagsbrúnar, hefur sennilega
setið í trúnaðarráði Dagsbrúnar í
tæp 40 ár. Ég held að hann hafi
setið öll ASÍ-þing fyrir Dagsbrún
allt frá árinu 1948 og ég man eftir
árinu 1950, þegar við sátum þar
saman hlið við hlið. En oft
höfðum við setið hlið við hlið í
röðum ungra sósíalista, en þar
var Björn virkur félagi um árabil.
Björn sat í varastjórn Dagsbrún-
ar í nokkur ár, í uppstillingar-
nefnd félagsins um árabil og síð-
ustu 10 árin var hann endurskoð-
andi félagsins. Björn var valinn af
félagsmönnum strax kornungur
til ótal trúnaðarstarfa fyrir
Dagsbrún, en hann talaði lítið á
félagsfundum og sóttist ekki eftir
félagslegum frama, sem hæfni
hans stóð þó til. Hann var einn af
þessum mönnum, sem mynduðu
kjarna félagsins, styrkur þeirra
fólst ekki í ræðuhöldum eða
auglýsingum í nafni sínu, en með-
al vinnufélaga sinna höfðu þeir
traust.
Hugsjónir Björns voru ákaf-
lega skýrar, hann vildi hindra að
troðið væri á fátæku verkafólki,
af slíku fóiki var hann kominn og
með slíku fólki ólst hann upp.
Hann vildi standa fast á rétti
verkamannsins. Þjóðfélag
bræðralags og réttlætis voru hans
hugsjónir. Sjálfur var hann
verkamaður allt sitt líf.
Við Björn vorum nánir per-
sónulegir vinir, og það er þungt
að missa þennan vin sinn langt
um aldur fram. Og ég skal segja
sannleikann afdráttarlaust að
þegar flóknir launaútreikningar
vöfðust fyrir mér þá hringdi ég í
vin minn Björn og bað hann
ásjár. Oftast leysti hann það
gegnum símann, stundum kom
hann á skrifstofuna og útskýrði
fyrir mér, hvernig bæri að reikna
flóknustu launadæmi. Aldrei gat
Björn þess hve oft ég leitaði til
hans. Það var aðeins samhjálpin,
þessi nafnlausa samhjálp, sem
var þessum látna vini mínum svo
rík í huga. Hann starfaði hjá Eim-
skipafélagi íslands allt til dauða-
dags að nokkrum árum undan-
skildum er hann annaðist út-
keyrslu hjá Kron, en hvarf eftir
nokkurra ára starf þar aftur til
fyrri starfa. Aldrei hefur hvarflað
annað að mér eitt augnablik en
að Björn hafi goldið skoðana
sinna og trúmennsku við Dagsb-
rún. Vöruþekking hans, trútt
minni og reikningsgeta hefði að
öllu eðlilegu átt að gera hann að
verkstjóra.
Ég veit ekki, hvort Björn hafi
svo mikið grátið það, aðrar hug-
sjónir voru honum ofar í huga.
Árið 1959 þann 12. sept. gekk
hann að eiga eftirlifandi eigin-
konu sína Ásu Ásmundsdóttur.
Þau eignuðust eina dóttur barna
Guðrúnu. Hún var föður sínum
ákaflega kær og hann bar velferð
fjölskyldu sinnar mjög fyrir
brjósti. Og mér fannst Björn eins
og barn í gleði sinni, þegar hann
sagði mér frá fæðingu dótturdótt-
ur sinnar sem dóttur hans og
tengdasyni Benedikt Harðarsyni
fæddist s.l. vetur.
Síðustu æviár sín gekk Björn
Sigurðsson ekki heill til skógar.
Mannskæður hjartasjúkdómur
herjaði þungt á hann ásamt
fleiru. Og ég held, að hin mikla
vinna æskuáranna þegar hann
gekk ótrauður fram í vöru-
skemmum Eimskips hafi hefnt
sín, því trú mín er sú að sá erfiði
og langi vinnudagur stríðsáranna
og eftirstríðsáranna hafi tekið
sinn toll af þreki og heilsu Björns.
Síðustu árin vann hann við
launaútreikninga verkamanna
hjá Eimskipafélaginu, þar nutu
sín vel glöggskyggni hans og
reikningsgáfa.
Megi blessun hvfla yfir eftirlif-
andi eiginkonu hans, dóttur hans
og dótturdóttur hans svo og öðr-
um ástvinum hans.
Við Dagsbrúnarmenn bárum
til grafar einn besta vin okkar,
samherja og félagsmann. Hann
var lagður til moldar í Fossvogs-
kirkjugarði.
Megi sól Dagsbrúnar verma
minningu hans og megi hún lýsa
ástvinum hans og félögum fram á
veg.
Farðu vel, Björn Sigurðsson.
Guðm. J. Guðmundsson
„Mannkynið hlýtur að lifa af
vinnu sinni“, og fram á þessa öld
vann það vart sér til matar, þótt
nálega allir legðu hönd á plóginn.
En flest átti og flestu réð sáralítill
hópur, sem öðru sinnti. í því
skyni að leiða fólk í sannleika um
náttúrulegar og félagslegar or-
sakir þessa var dagblað þetta
forðum stofnað og í þeirri trú, að
„frelsun öreiganna hlyti að vera
þeirra eigið verk“. Og að svo
miklu leyti sem þeir eru orðnir
sjálfs sín herrar, er það fyrir til-
verknað samtaka þeirra, verka-
lýðshreyfingar, samvinnufélaga
og stjórnmálaflokka.
Mótun stefnu stjórnmála-
flokka verkafólks hefur frá þriðja
áratugnum færst í hendur starf-
andi stjórnmálamanna, en liðs-
sveit þess innan þeirra hefur með
afli atkvæða og undirtektum sín-
um ráðið ferðinni. Einn úr þeirri
traustu liðssveit var Björn Sig-
urðsson. Hann gekk á unga aldri í
Æskulýðsfylkinguna (og vorum
við samtíða innan hennar og eitt
ár samtímis í stjórn). Síðan naut
Verkamannafélagið Dagsbrún
félagslegrar atorku hans. Sat
hann fyrir hönd Dagsbrúnar þing
Alþýðusambands Islands hálfan
fjórða áratug, og síðustu ár var
hann félagslegur endurskoðandi
hennar.
Einn kveður, annar kemur.
Starfsgreinum fjölgar og
þjónustustörfum, en staða
launþega er söm og áður, þótt
yfirbragð samtaka þeirra verði að
nokkru annað. Stjórnmálaflokk-
ar þeirra hljóta að laga sig að að-
stæðum, en er jafnframt á þessari
kjarnorkuöld enn meiri þörf en
fyrr að halda stefnu sinni á stétt-
laust sameignarþjóðfélag á
grundvelli frelsis, jafnréttis og
bræðralags, á hið fyrirheitna land
verkalýðshreyfingarinnar allt frá
upphafi hennar.
Reykjavík, 7. ágúst 1984.
Haraldur Jóhannsson
Tillwnnirig
til hluthafa
Amarflngs
Þann 15. ágúst nk. rennur út frestur sá sem hluthafar Arnarflugs hafa til að nýta sér
forkaupsrétt sinn að nýju hlutafé í Arnarflugi, samkvæmt samþykkt aðalfundar
félagsins 11. júlí sl.
Á aðalfundinum var samþykkt að hækka hlutafé félagsins um kr. 40.560.000 með
áskrift nýrra hluta, þannig að heildarhlutafé félagsins verði kr. 48.360.000. Hluthafar
hafa forkaupsrétt að hinum nýju hlutum í samræmi við skráða hlutafjáreign sína, enda
skrái þeir sig fyrir nýjum hlutum fyrir 15. ágúst nk.
Skrifstofa Arnarflugs í Lágmúla 7 tekur við hlutafjárloforðum og veitir allar
upplýsingar.
Vakin er athygli á því að framlög manna til atvinnurekstrar eru frádráttarbær frá
skattskyldum tekjum samkvæmt ákvæðum laga nr. 9/1984.
Þeir hluthafar sem óska að neyta forkaupsréttar síns verða að tilkynna það skriflega til
skrifstofu Arnarflugs fyrir 15. ágúst nk. og vísast í því sambandi til bréfs um
hlutafjáraukninguna sem öllum hluthöfum hefur verið sent.
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 29511
«ÉÉ Lausar stöður
Á skattstofu Norðurlands vestra er laus til
umsóknar ein staða fulltrúa til starfa við
skatteftirlit.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu endur-
skoðendur eða hafi lokið prófi í lögfræði, hag-
fræði eða viðskiptafræði eða hafi staðgóða
þekkingu á bókhaldi og skattskilum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu-
neytinu fyrir 10. ágúst n.k.
Fjármálaráðuneytið,
10. júlí 1984.
Miðvikudagur 8. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
AUGLÝSINGAPJÓNUSTAN