Þjóðviljinn - 09.08.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.08.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR Skatturinn Gjaldþrot heimila blasir við Samtök kvenna á vinnumarkaði: Þessi ríkisstjórn hefur harðastgengið fram í að skerða kjörin. Samtök kvenna á vinnumark- aðinum mótmæla harðlega nýjustu aðgerðum ríkisstjórnar- innar sem skerða kjör launafólks. Vaxtahækkanir þyngja afborg- unarbyrði þeirra sem eru að tryggja sér þá frumþörf að hafa þak yfir höfuðið. Við konur á vinnumarkaðinum njótum þess jafnréttis að borga óskerta skatta af iaununum okkar. Sumar hafa lagt trúnað á ioforð ríkisstjórnar- innar um skattalækkanir, minnkandi verðbólgu og bætt lífs- kjör. Nú þegar við tókum við fyrstu launaumslögunum okkar eftir að skattskrá var lögð fram þá blasir við eitt allsherjar gat og gjaldþrot heimilanna, því þessi ríkisstjórn hefur harðast gengið fram í að skerða kjörin. Aldrei hafa Stigamenn þjóð- félagsins notið þvílíkra hlunninda og nú. Ríkisstjómin hefur með aðgerðum sínum unnið rösklega að því að auka stéttaskiptinguna í þjóðfélaginu svo að engum getur nú dulist lengur að í landinu búa tvær þjóðir. Þeir sem ráða fjár- magninu annars vegar og hins vegar hinir sem vinna myrkranna á milli og ná þó ekki endum sam- an. Nú er mælirinn fullur og þess vegna hafa Samtök kvenna á vinnumarkaðinum ákveðið að efna til aðgerða föstudaginn 17. ágúst. Við skorum á allar konur að hafa samband við okkur í Kvennahúsinu í síma 21500 frá og með 9. ágúst milli klukkan 6-8 sfðdegis og vera með í aðgerðun- um. Einnig munu Samtök kvenna á vinnumarkaðinum efna til funda síðar í ágúst til að ræða aðgerðir í haust. Samtök kvenna á vinnumarkað- inum. Félagsmálastofnun 25 sóttu um 2 íbúðir Sigríður Stefánsdóttir hjá Fé- lagsmálastofnun Akureyrar sagði í samtali við Þjóðviljann að mikil ásókn væri í íbúðir stofnun- arinnar þegar þær losnuðu. Til dæmis voru tvær íbúðir auglýstar nýlega og sóttu 25 manns um þær, fyrst og fremst einstæðar mæður og öryrkjar. Sigríður sagði að í svona 20 manna hóp væri í mesta lagi 3-4 sem maður gæti sagt við sjálfan sig með góðri samvisku að hlytu að spjara sig á eigin spýtur. Að því er hina varðaði væri ákaf- lega erfltt að gera upp á milli þeirra við úthlutun íbúðanna því í rauninni þyrfti fólkið aðstoðar við. Þetta fólk réði hreinlega ekki við leiguna á hinum almenna markaði. Sigríöur sagði að Félagsmála- stofnun ætti nú 71 íbúð og væri það mest allt góðar íbúðir og hefði verið gert stórt átak á síð- ustu árum til að útrýma heilsu- spillandi húsnæði í bænum. Fyrir tveggja herbergja íbúð væri leigan 2500-3000 kr., fyrir þriggja herbergja íbúð 3200-3700 kr. Þá er miðað við leiguna eins og hún verður eftir 15% hækkun 1. september nk. þá Akureyri Byrjað á 23 íbúðum Samkvæmt upplýsingum Jóns Geirs Ágústssonar bygging- arfulltrúa hefur verið byrjað á 23 íbúðum á Akureyrí á þessu ári. Á síðasta ári var byrjað á 22 íbúðum, 1982 var byrjað á 97, 1981 var byrjað á 56, 1980 var byrjað á 165 og 1979 var byrjað á 187 íbúðum. Af þessu má ráða það hrun sem orðið hefur í bygg- ingariðnaði á Akureyri. Enda hefur félögum í Trésmíðafélagi Akureyrar fækkað um 40-50 manns síðan 1982 að sögn Guð- mundar B. Friðfinnssonar for- manns félagsins. þá Á langri göngu í góðu veðri er gott að setjast ögn niður og hvíla lúin bein. Þessa mynd tók Guðmundur Svansson Ijósmyndari Þjóðviljans á Akureyri. , Akureyri Vantar peninga Ríkisstjórnin hœkkaði útborgunarhlutfall. 15 verkamannabústaðaíbúðir í haust. NORPASS Nýjar hugmyndir um félagslega þjónustu Ihaust verður hafin smíði 15 nýrra Ibúða á vegum Verka- mannabústaða. Að sögn Helga Guðmundssonar formanns stjórnar Verkamannabústaða á Akureyri verður hér um 100 fer- metra raðhúsaíbúðir að ræða sem byggðar verða við Fögru- síðu. Ibúðirnar verða auglýstar innan tíðar en talið er að þær muni kosta um tvær miljónir króna. Þar sem eitt af afrekum núver- andi ríkisstjórnar var að hækka útborgun kaupenda úr tíu í tutt- ugu prósent þurfa þeir að snara út 400 þús. kr. og kann að reynast mörgum erfitt. Þar sem ekkert fjármagn hefur verið veitt til Verkamannabústaða á þessu ári gætu framkvæmdir ekki hafist í haust nema með sameiginlegu átaki kaupenda, banka og verk- taka. Fyrir nokkrur voru seldar þrjár íbúðir hjá Verkamannabústöð- um á Akureyri og sóttu 30 manns um þær. Miðað við reynslu und- anfarinna ára má gera ráð fyrir að ekki færri en 60 muni bítast um íbúðirnar fimmtán og segir það sína sögu um ástandið. þá Fasteignasalar Minnka útborgun Nýjar leiðir við skipulagningu félagslegrar þjónustu verða kynntar á námskeiði í Norræna húsinu á föstudag og laugardag. Námskeiðið er haldið á vegum NORPASS sem er norræn kennslu- og ráðgjafarstofnun. Þeir sem standa að NORPASS vilja koma á framfæri nýjum hug- myndum um eðli og framkvæmd félagslegrar þjónustu við þá hópa sem þarfnast sérstakrar aðstoðar. Markmiðið er að sú þjónusta sem veitt er mæti með sem áhrifarík- Afmæli 80 ára er í dag, Þórkatla Bjarn- adóttir Grundargötu 28 Grund- arfirði. Hún tekur á móti gestum í Gaflinum í Hafnarfirði milli kl. 15 og 18 í dag. ustum hætti þörfum þeirra sem hana þiggja. Á námskeiðinu verða fyrirles- arar frá Þrándheimi og London. Er þegar fullbókað þessa daga en fyrirhuguð eru fleiri námskeið. -jP- Fasteignasalar á Akureyri segja að nú sé meira framboð á húsnæði en oft áður. Ekki vildu þeir kannast við það að ábcrandi straumur fólks sé burt úr bænum enda „þjóna slíkar sögur ekki hagsmunum bæjarins“ eins og einn þeirra komst að orði. Út- borgunarhlutfallið í fasteignavið- skiptum á Akureyri er 55-60% og eftirstöðvarnar verðtryggðar til 4, 6 og jafnvel 8 ára. Einn fast- eignasalinn á Akureyri sagði að það væri ekki rétt hjá kollegum sínum í Reykjavík að þeir gætu ekki haft áhrif á útborgunarhlut- fallið. Á Akureyri hefðu fast- eignasalar nú í ársbyrjun staðið að því að minnka útborgun og auðveldað þannig kaup og sölu. Þetta væri í bráð og lengd best fyrir kúnnana. Allir voru sammála um það að leigumarkaðurinn hefði skánað enda rykju menn ekki til og seldu íbúðir sínar þótt þeir þyrftu í burtu í atvinnuleit, heldur leigðu þær til að byrja með. Þetta ætti einkum við um iðnaðarmenn sem „fylgja toppunurrí' þar sem þeir eru. þá 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.