Þjóðviljinn - 09.08.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI
Gróði lyfsalanna
Sú staöreynd aö sextán af tæpum fjörutíu
lyfsölum landsins eru í hópi skattkónganna í ár
hefur undanfarnar vikur dregiö athygli al-
mennings að óeðlilegum gróöa þessarar fá-
mennu stéttar. Þeir eru ekki fáir sem hafa
spurt: hvernig stendur á því aö meðan stór-
felldur samdráttur á sér staö í flestum geirum
heilbrigöiskerfisins og alþýða manna kveinkar
sér undan miklum hækkunum á lyfjaveröi, þá
skuli gróöinn af lyfsölunni aldrei hafa verið
meiri en nú?
í umfjöllun Þjóöviljans á þessu máli hefur
veriö bent á ýmsa samverkandi þætti sem
valda hinum fjallháa gróöa lyfsalanna.
í fyrsta lagi búa þeir viö ákveðin forréttindi
sem nánast engin önnur grein verslunarinnar
hefur. Þeir hafa algera einokun á markaðnum
og þurfa ekki aö standa í samkeppni af neinu
tagi. Einungis mjög takmarkaður fjöldi lyfsölu-
leyfa er jafnframt gefinn út, þannig aö sérhver
lyfsali situr einsog alvaldur kóngur yfir mark-
aðnum á sínu svæði og þarf ekki aö óttast aö
keppinautarnir næli sér í skerf af gróðanum.
I ööru lagi er lyfsölum heimilt að leggja
geysiháa smásöluálagningu á lyf, eöa hvorki
meira né minna en 72 prósent! Til skamms
tíma var þessi álagning raunar enn hærri. Til
samanburðar má geta þess aö smásöluálagn-
ing á aðrar nauösynjavörur er yfirleitt ekki
hærri en 15 til 30 prósent. Hvernig stendur þá
á því aö álagning á lyf er svona miklu hærri?
Málsvörn lyfsalanna ertvíþætt. Annars veg-
ar segjast þeir hafa lagaskyldur til aö hafa
miklar birgöir lyfja og þar sem endingartími
þeirra sé takmarkaður veröi kostnaöur sökum
fyrningar lyfjanna mikill. í annan stað benda
þeir á aö hlutföll í launakostnaði séu allt önnur í
apótekum en annarri verslun, þar sem þeir
þurfi sérhæfðari og dýrari vinnukraft.
Þessar röksemdir standast hvorugar. Þjóö-
viljinn hefur sýnt fram á aö kostnaður vegna
fyrningar lyfja er sáralítill og þaö hefur veriö
staðfest af lyfjaheildsölum. Á móti röksemd-
inni um dýrara vinnuafl vegur líka aö lyfsalar fá
aö leggja smágjöld einsog afhendingargjald,
símalyfseðilsgjald og eftirritunargjald ofan á
hið skráða lyfjaverð, einmitt til aö standa
straum af umstangi kringum lyfin.
í stuttu máli: það er harla erfitt að koma auga
á réttlætingu fyrir hinni háu álagningu enda
sýna skattar lyfsalanna aö vel er smurt.
Enn má svo nefna aö á síðastliðnú ári fengu
lyfsalar aö leggja sérstakt gengisálag ofan á
lyfjaverö sökum áætlaös gengissigs. Gengiö
hélst hins vegar stöðugt en þrátt fyrir þaö var
lyfjaverð ekki lækkað og lyfsalarnir héldu hin-
um rangfengna gengisgróða óáreittir.
Síöastnefnda dæmiö sýnir í sjálfu sér betur
en flest annaö þær ógöngur sem lyfjaverö-
lagsmál á íslandi hafa rataö í. Á lyfsölum virki-
lega aö leyfast að halda röngum gengisgróða
einungis af því reglurnar um útreikning lyfja-
verös eru svo vitlausar?
Á þeim aö leyfast að nota einokunaraðstööu
til að taka sérstakt gjald fyrir þaö eitt aö af-
henda vörurnar sem þeir eru að selja?
Og á það er rétt aö benda, aö ekki hefði þurft
að lækka hina geysiháu smásöluálagningu á
lyfjum um nema nokkur prósent til aö ná fram
svipuðum sparnaöi og ríkið hugðist gera með
því að hækka lyfjaverð til almennings í júní-
byrjun.
Það þarf því aö stokka upp reglur um lyfja-
verö og Lyfjaverðlagsnefnd. Það þarf að sjá til
þess að sá samdráttur og sparnaöur sem á sér
nú stað í heilbrigðiskerfinu komi ekki einungis
niöur á sjúklingum heldur líka á þeim sem
hagnast af sölu lyfja.
Meira um
Framsókn
í Ieiðara Þjóðviljans í gær var
fjallað um þá miklu fylgiskreppu
sem Framsóknarflokkurinn er
kominn í samkvæmt nýjustu
skoðanakönnun Hagvangs.
Framsókn er með minna fylgi en
Alþýðubandalagið og myndi
glata þriðjungi þingmanna sinna
ef kosningar færu fram nú.
Á meðan formaður Framsókn-
arflokksins unir sæll í kúrekaleik í
LA og kemst ódýrt inn á Ólym-
píuleikana skrifar kollegi hans,
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins, fréttaskýring-
ar í DV um ástæður þess að svona
illa sé komið fyrir maddömunni í
tíð Steingríms. Þar sem þeir
deildu báðir súru og sætu í vist-
inni hjá Gunnari Thoroddsen,
Svavar og Steingrímur, er rétt að
birta hér sýnishorn af skýringum
félaga Svavars á því hvers vegna
svona illa sé nú komið fyrir flokki
Steingríms.
Svik
Svavar segir í greininni í DV:
„Fyrir síðustu kosningar og á
árunum þar á undan vildi Fram-
sóknarflokkurinn hafa virkt
verðlagseftirlit og Ólafur Jó-
hannesson hélt fast um ákvæði
eldri laga í ríkisstjórninni 1974-
1978. Nú hefur Framsóknarf-
lokkurinn algjörlega snúið við
blaðinu og líður íhaldinu það að
innleiða löglegt vaxtaokur í
landinu.
Framsóknarflokkurinn vildi að
ríkisstjórin hefði meira með
vaxtamál að gera og gagnrýndi
harðlega afskipti Seðlabankans
af þeim málum með kröfum um
að ríkisstjórnin tæki þau mál í
sínar hendur. Þess vegna féllst
Framsóknarflokkurinn á þá
kröfu Alþýðubandalagsins 1979
að afurða- og rekstrarlán heyrðu
undir ríkisstjórnina. Nú sam-
þykkir Framsóknarflokkurinn að
afhenda viðskiptabönkunum allt
vald í vaxtamálum. Þar með er
fallið frá grundvallarsjónarmiði
félágshyggjumanna, því að verja
fólkið með lögum og lýðræðis-
legum ákvörðunum fyrir okri
fjármagnsins.
Framsóknarflokkurinn segist
vera byggðaflokkur. Staðan er nú
þannig að landið er að sporð-
reisast; ördeyða er í atvinnumál-
um á landsbyggðinni og atvinnu-
leysi blasir við í fjölmörgum
byggðarlögum. Stefna ríkis-
stjórnarinnar birtist sem bein að-
föf að landsbyggðinni og hags-
munum þeirra sem þar búa.
Meiri svik
Framsóknarflokkurinn segist
vera þeirrar skoðunar fyrir kosn-
ingar að meirihluti stórfyritækja
eigi að vera í eigu íslendinga.
Eftir kosningar lýsir stóriðjuleið-
togi Framsóknarflokksins því yfir
að þess konar sjónarmið séu
þjóðremba.
Framsóknarflokkurinn segist
styðja samvinnuhreyfinguna sér-
staklega. Eftir kosningar tekur
hann þátt í því að setja skattalög
sem auðvelda hlutafélögum um-
fram samvinnufélög að tryggja
sér fjármagn.
Framsóknarflokkurinn segist
fyrir kosningar vilja halda aftur af
hernaðarframkvæmdum hér á
landi. Eftir kosningar samþykkir
Framsóknarflokkurinn meiri
hernámsframkvæmdir hér á landi
en nokkru sinni fyrr. Fyrir kosn-
ingar var Framsóknarflokkurinn
á móti því að ríkisfyrirtæki styrki
Vinnuveitendasamband íslands.
Eftir kosningar samþykkir Fram-
sóknarflokkurinn að öll ríkisfyr-
irtæki gangi í Vinnuveitendasam-
band lslands.
Fyrir kosningar lýsti framsókn-
arforystan því yfir að stofna yrði
sterka ríkisstjórn eftir kosningar
til þess að draga úr erlendum lán-
tökum. Eftir kosningar eru
elendar lántökur meiri en nokkru
sinni fyrr og nú síðast eru allar
gáttir opnaðar með því að leyfa
viðskiptabönkunum að fjár-
magna afurðalán með erlendum
lántökum.
Fyrir kosningar lýsti Fram-
sóknarflokkurinn því yfir að bæta
yrði hag húsbyggjenda. Eftir
kosningar grípur Framsóknar-
flokkurinn til efnahagsaðgerða,
meðal annars vaxtahækkana og
kjaraskerðingar sem hafa það í
för með sér að íbúðabyggingar
fara nú minnkandi og eru svo að
segja horfnar í einstökum byggð-
arlögum úti á landi.
Fyrir kosningar lýsir Fram-
sóknarforystan því yfir að hún
muni standa vörð um hagsmuni
bænda. Nðurstaðan er sú að
vegna efnahagsaðgerða ríkis-
stjórnarinnar getur fólk ekki
lengur keypt landbúnaðarafurðir
eins og áður og um leið er dregið
stórlega úr niðurgreiðslum á
landbúnaðarafurðum.
Fyrir kosningar, einkum þegar
ríkisstjórnin var mynduð 1980,
lagði Framsóknarflokkurinn
höfuðáherslu á það að jafnvægi
yrði að mást í ríkisfjármálum. Nú
stendur framsóknarforystan fyrir
ríkisstjórn sem sýnir hraklegri út-
komu ríkissjóðs en nokkru sinni
fyrr.!!
Dómurinn
Svavar Gestsson lýkur grein
sinni í DV með spádómsorðum
um nauðsyn þess að minnka fylgi
Framsóknarflokksins. Það er
eins og hugur formannsins hafi
fylgt straumi kjósendanna því að
könnun Hagvangs gefur til kynna
að hrunið sé þegar byrjað. f lok-
akaflanum segir Svavar m.a.:
„Hér er komið að alvarlegum
þætti í lýðræðisskipulaginu: Að
flokkum skuli liðið að snúast
þannig eins og skopparakringlur
og snúa við blaðinu gjörsamlega
eins og framsóknárforystan hefur
gert. En leiðin til þess að svara
slíkri framkomu er einföld: Hún
er sú að refsa Framsóknarflokkn-
um í næstu kosningum fyrir
íhaldssamvinnu svo rækilega að
munað verði um langa framtíð.
Framsóknarflokkurinn er úr sög-
unni sem úrræði félagshyggju-
manna. Hann hefur nú tekið að
sér það hlutverk að vera hækja
íhaldsins. Það þarf að sýna hon-
um hið fyrsta að kjósendur hafa
fyrirlitningu á kollsteypum eins
og þeim sem framsóknarforystan
ber ábyrð á. Það er eitt brýnasta
verkefni íslenskra stjórnvalda að
afhjúpa loddarana. Alþýðu-
flokkurinn hefur aldrei - nema
skamma stund 1978 - beðið þess
bætur að hafa þjónað íhaldinu í
12 ár og þar með glatað sjálfum
sér. Framsóknarflokkurinn þarf
að fá sams konar áminningu. í
kosningunum 1978 fékk hann
slíkt kjaftshögg að það dugði
Steingrími til þess að hann sagði
fyrir kosningarnar 1979 að það
ætti að mynda vinstri stjórn. Á
þeirri yfirlýsingu vann Framsókn
kosningasigur 1979. Sú yfirlýsing
var svikin í fyrra eins og allar hin-
ar sem taldar voru upp hér að
framan. Framsóknarforystan var
búin, fyrir kosningar, að taka
ákvörðun um að mynda stjórn
með íhaldinu, „sterka stjórn“
eins og það var kallað. Fram-
sóknarforystan leyndi hins vegar
samkomulaginu þar til eftir kosn-
ingar. Þess konar framkoma er
svik við kjósendur. Fyrir slíkt á
að refsa. Það refsivald er í hönd-
um kjósenda.“ -óg
DJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fróttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
hóðinsson.
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Utlit og hönnun: Björn Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofuatjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvaröardóttir.
Auglýsingastjóri: ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýslngar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverö: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. ágúst 1984