Þjóðviljinn - 09.08.1984, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.08.1984, Qupperneq 6
FURÐUR Matseljur - Ritari Eftirtaldar stööur viö grunnskóla Kópavogs eru lausar til umsóknar. Heilt starf matselju við Snælandsskóla, hálft starf matselju við Hjallaskóla 60% staða matselju við Kópavogsskóla 50% staða ritara við Kópavogsskóla. Umsóknum sé skilað fyrir 15. ágúst á skólaskrifstofu Kópavogs Digranesvegi 12, sími 41863. Skólafulltrúi. „Á elleftu stundu“ Fundur veröur viö bandaríska sendiráöiö viö Laufásveg í kvöld kl. 22.00 til aö minnast fórnarlamba kjarnorkuárása Bandaríkja- manna á Hirósima og Nagasaki í ágúst 1945 og til aö mótmæla kjarnorkuvígvæðingu stór- veldanna. Samtök herstöðvaandstæðinga. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða og bifhjóla í Hafnarfirði, Garðakaup- stað og í Bessastaðahreppi 1984. Skoðun fer fram sem hér segir: 14. ágúst þriðjudagur G- 1 - G- 400 15. ágúst miðvikudagur G- 401 - G- 800 16. ágúst fimmtudagur G- 801-G- 1200 17. ágúst föstudagur G- 1201 -G- 1600 20. ágúst mánudagur G- 1601 -G- 2000 21. ágúst þriðjudagur G- 2001 - G- 2400 22. ágúst miðvikudagur G- 2401 - G- 2800 23. ágúst fimmtudagur G- 2801 - G- 3200 24. ágúst föstudagur G- 3201 - G- 3600 27. ágúst mánudagur G- 3601 - G- 4000 28. ágúst þriðjudagur G- 4001 - G- 4400 29. ágúst miðvikudgur G- 4401 - G- 4800 30. ágúst fimmtudagur G- 4801 - G- 5200 31. ágúst föstudagur G- 5201 - G- 5600 3. sept. mánudagur G- 5601 - G- 6000 4. sept. þriðjudagur G- 6001 - G- 6400 5. sept. miðvikudagur G- 6401 - G- 6800 6. sept. fimmtudagur G- 6801 - G- 7200 7. sept. föstudagur G- 7201 - G- 7600 10. sept. mánudagur G- 7601 - G- 8000 11. sept. þriðjudagur G- 8001 - G- 8400 12. sept. miðvikudagur G- 8401 - G- 8800 13. sept. fimmtudagur G- 8801 - G- 9200 14. sept. föstudagur G- 9201 - G- 9600 17. sept. mánudagur G- 9601 -G-10000 18. sept. þriðjudagur G-10001 -G-10400 19. sept. miðvikudagur G-10401 -G-10800 20. sept. fimmtudagur G-10801 - G-11200 21. sept. föstudagur G-11201 -G-11600 24. sept. mánudagur G-11601 -G-12000 25. sept. þriðjudagur G-12001 - G-12400 26. sept. miðvikudagur G-12401 - G-12800 27. sept. fimmtudagur G-12801 -G-13200 28. sept. föstudagur G-13201 -G-13600 1. okt. mánudagur G-13601 -G-14000 2. okt. þriðjudagur G-14001 -G-14400 3. okt. miðvikudagur G-14401 — G-14800 4. okt. fimmtudagur G-14801 -G-15200 5. okt. föstudagur G-15201 -G-15600 8. okt. mánudagur G-15601 -G-16000 9. okt. þriðjudagur G-16001 - G-16400 10. okt. miðvikudagur G-16401 -G-16800 11. okt. fimmtudagur G-16801 -G-17200 12. okt. föstudagur G-17201 -G-17600 15. okt. mánudagur G-17601 -G-18000 16. okt. þriðjudagur G-18001 -G-18400 17. okt. miðvikudagur G-18401 - G-18800 18. okt. fimmtudagur G-18801 -G-19200 19. okt. föstudagur G-19201 -G-19600 22. okt. mánudagur G-19601 og yfir Skoðað verður við Helluhraun 4 Hafnarfirði frá kl. 8.15 - 12.00 og 13.00 - 16.00 alla framantalda daga. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bif- reiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið Ijósastillt eftir 1. ágúst s.l. Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Einkabifreiðar, sem skráðar hafa verið nýjar á árinu 1982 og síðar, eru ekki skoðunarskyldar að þessu sinni. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði og i Garðakaupstað. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. 7. ágúst 1984 Elnar Ingimundarson. Skjástefnur nýfjarskiptatækni í viðskiptaheiminumfœrist óðum í vöxt að haldafundi með aðstoð gervihnatta. Það sparar tíma og ferðakostnað enforstjórarnir tapa líka af kokteilunum á kvöldin oggolfinu eða laxinum daginn eftir Kostnaðarsöm og tímafrek ferðalög fjársýslumanna sem þurfa að endasendast í viðskiptaerindum milli horna verslunarheimsins kunna nú innan skamms að verða óþörf sökum splúnkunýrrar fjarskiptatækni. Með því einu að kveikja á sjónvarpsskermi og ýta á nokkra takka geta viðskiptajöfrar nú komist með aðstoð fjarskiptahnattar ofar jörðu í samband við kollega sína á öðru heimshorni. Á þennan hátt er hægt að halda ráðstefnu með mönnum sem kunna að vera staddir íTókíó, París eða London, án þess að viðkomandi þurfi að skreppa með olíufrekri einkaþotu ellegar hoppa upp í Concorde þotuna hljóðfráu. Á enskri tungu er þessi nýja ráðstefnutækni nefnd „video - conferencing“ sem á tungu mæð- ranna mætti sem best kalla skjá- stefnu. Skjástefnur á spottprís Þessi tækni hefur þegar verið notuð til að halda nokkrar skjá- stefnur með amrískum stjórn- málamönnum og evrópskum blaðamönnum og nú færist óðum í vöxt að viðskiptajöfrar notfæri sér þetta form til að halda skyndi- fundi á öldum ljósvakans og spjalla þá hver við annan á sjón- varpsskermi með aðstoð fjar- skiptahnattarins. Enn sem komið er mun þessi tækni svo dýr að einungis stór fyr- irtæki færa sér hana í nyt. í dag mun til dæmis kosta milli 10 og 40 þúsund dollara að halda klukku- stundar skjástefnu milli Lundúna og New York. Ný tækni er hins vegar á leiðinni sem mun snar- lækka verðið. Þannig er amrískt fjarskiptafyrirtæki í þann mund að hefja sölu á skjástefnum milli þessara borga fyrir litla 3 þúsund dollara á stundina. En samkeppnin mun harðna enn meir í þessum fjarskiptageira með tækniþróuninni og enn ann- að fyrirtæki (Intercontinental Hotel Intelmet) ráðgerir að selja klukkutímann milli sömu borga á minna en 2 þúsund dollara, þegar líður á árið. Mikill sparnaður Stór fyrirtæki sem eyða mikl- um tíma og peningum í ferðalög yfirmanna og sölufólks telja sig geta sparað háar upphæðir með skjástefnutækninni. Eitt þeirra fyrirhugar að spara miljón doll- ara á ári í ferðalög með þessu móti. Jafnframt færist í vöxt að fyrírtæki með útibú á ýmsum stöðum komi sér upp mögu- leikum til skjástefnuhalds milli útibúanna og eitt þeirra, trygg- ingafélagið Aetna Life Insurance taldi sig geta á þann hátt sparað 6 þúsund klukkustundir sem ella hefðu farið í ferðalög milli útibú- anna. Annað fyrirtæki, Atlantic Richfields, kom sér upp búnaði til skjástefnuhalds milli útibúa og þurfti að verja til þess 17 miljón- um dollara. En sú upphæð er snögg að skilast til baka: sparnað- urinn af skjástefnum er nefnilega metinn á 7 miljónir dollara ár- lega. Skjástefnur komust ekki í brennidepil fyrr en í frægu verk- falli flugumferðarstjóra í Banda- ríkjunum 1981. Fjármálajarlar sem þurftu nauðsynlega að kom- ast frá Bandaríkjunum til Evrópu sátu í öngum sínum í miðju verk- falli og komust hvergi. Þá brugðu margir á það ráð að halda skjást- efnur með aðstoð fjarskipta- hnattanna. Laxinn og golfið tapast í ljós kom að þetta var hinn tryggasti miðill, og eitt fyrirtæki komst að því að klukkustundar- stefna kostaði það 34 prósent - eða 15 þúsund dollurum - minna en hefði ráðstefnan verið haldin með hefðbundnum hætti öðru hvoru megin Atlantsála. Annað fyrirtæki sparaði 97 ferðalög yfir hafið, sem svaraði til 28 þúsund dollara, fýrir utan tím- ann sem slíkir leiðangrar drápu. Af þessum sökum er nú gert ráð fyrir að skjástefnuhald muni vaxa hraðfluga, enda er nú gert ráð fyrir að á næstu tíu árum muni hvorki meira né minna en 200 fjarskiptahnettir komast í gagnið - þar af 36 á næstu þremur árum - þannig að möguleikarnir til skjástefna ættu að vera nógir. Á skjástefnum er þó einn meinbugur sem margir forstjórar láta sér illa lynda: með þeim tap- ast nefnilega hið hefðbundna skemmtanalíf sem viðskipta- stefnum að öðru jöfnu fylgir. Kokteilarnir á kvöldin og golfíð eða laxinn daginn eftir... -ÖS 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.