Þjóðviljinn - 09.08.1984, Side 14

Þjóðviljinn - 09.08.1984, Side 14
m útsma Htism ómistmmi n m q np?n tUU uáú § SAMBANDSINS MZEROWATT ARMULA3 SIMAR 38 900 - 38 903 VERSLUNARMIÐSTOÐ VESTURBÆJARIN m vurur — J f Z fá rá á markaðsverði. 2 p «'r RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni OPIÐ: mánud.-fimmtud. &-19 föstud. 9-22 LOKAÐLAUGARDAGA í SUMAR Hringbraut 121 Sími 10600 Ávaxtasalat. Salatdagar Ávaxtasalat Vi hvítkálshöfuð ólífuolía svartur pipar 250 g grœri vínber 250 g blá vínber 2 epli 2 appelsínur 2 mandarínur (eða klementínur) flórsykur sítrónusafi eða hvítvínsedik Raspið niður hvítkálið eftir að hafa hreinsað vel utan af því og skolað það. Hellið síðan nægilega mikilli ólífuolíu yfir til að mýkja það og kryddið með salt og pipar. Setjið lok yfir og geymið í ísskáp í 1-2 klst. Flysjið vínberin og fjarlægið steinana úr þeim, flysjið einnig eplin, hreinsið þau og skerið í þunnar skífur. Afhýðið appel- sínur og klementínur, skiptið klementínunum í báta en skerið appelsínurnar smátt niður. Fjar- lægið alla steina. Sigtið ca. 2 slétt- fullar matskeiðar af flórsykri yfir og 2 msk. af sítrónusafa eða hvít- vínsediki. Setjið lok á og geymið í ísskáp í 1-2 klst. Blandið síðan saman hvítkáli og ávöxtum í salatskál og berið fram. Uppskeruhátíðin 750 g nýjar íslenskar kartöflur 250 g belgbaunir 2 epli (flysjuð og hreinsuð) Sósan: 1 dl rjómi 1 dl majonnes safi úr ’/2 sítrónu salt og pipar sinnep Sjóðið kartöflurnar og hitið baunirnar í vel söltu vatni. Látið síðan kólna vel. Skerið síðan kartöflurnar í teninga og eplin í skífur. Sósuna útbúið þið þannig: Hálfþeytið rjómann og hrærið hann vel saman við majonnesið. Bætið síðan kryddi, sítrónusafa og sinnepi út í og hrærið vel með sleif. Ef sósan ætlar að verða of þykk má bæta smávegis af sjóð- andi vatni út í. Setjið síðan epli, kartöflur og belgbaunir í skál, hellið sósunni yfir og berið fram. Kínverskt salat kínakál 2 appelsínur 3 ananashringir 2-3 tómatar % pk sósuduft (green pepper) majonnes og rjómi persilja Þvoið kínakálið og skerið þver- sum í þunnar sneiðar, flysjið app- elsínurnar og hreinsið úr þeim steinana, skerið þær í bita. Skerið ananashringina í mjög smáa bita og skerið tómatana í báta. Sósuna búið þið til þannig að þið hrærið saman sósuduftinu, majonnesi og rjóma. Síðan leggið þið salatblað á disk, hrærið sam- an appelsínum, kínakáli, ananas- hringjum og tómötum og setjið á salat-blaðið. Sósuna berið þið síðan fram með salatinu. Einfalt og gott 1 kg tómatar 4 meðalstórir laukar. Saxið laukinn mjög smátt, skerið síðan tómatana niður í bita, hrærið saman og geymið í kæli í 2 klst. áður en þið berið- fram. Petta salat er mjög gott með flestum fiskréttum. Gullæðið 1 dós af maísbaunum :A af gúrku 1 grœn paprika 1 msk. majonnes 2 msk rjómi sítrónusafi Skerið bæði græna papriku og gúrku mjög smátt, hrærið saman við kornið eftir að hafa hellt vatn- inu af því. Hrærið síðan majonn- esi, rjóma og sítrónusafa saman við og mjög gott er að bæta Vi tsk. af sykri út í. Mjög gott að bera fram með grilluðum kjúklingum og svínakjöti. 14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.