Þjóðviljinn - 23.08.1984, Page 1
Erlingur Sigurðarson afhendir forsætisráðherra undirskriftimar í gær. Mynd-eik.
Steingrímur
Ekki álver ef fólkið er á móti
Forsœtisráðherra: Stóriðjuver eru ekki skemmtilegir vinnustaðir.
Álversandstœðingar frá Eyjafirði afhentu Steingrími 3289 undirskriftir í gœr.
Mér finns t ekki koma til greina
að byggja álver þar sem íbú-
arnir eru á móti því og ég er sam-
mála ykkur að stóriðjuver eru
ekki skemmtilegir vinnustaðir,
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í gær þegar
starfshópur gegn álveri við
Eyjafjörð afhenti honum undir-
skriftir 3.289 íbúa við Eyjafjörð.
Þar er byggingu álvers í héraðinu
mótmælt og skorað á stjórnvöld
að beita sér fyrir uppbyggingu
annarra nýgreina í atvinnulífi
ásamt eflingu þeirra atvinnu-
greina sem fyrir eru i héraðinu.
„Það verður aldrei byggt stór-
iðjuver ef íbúar eru á móti því“,
sagði forsætisráðherra við af-
hendinguna. Fulltrúar starfs-
hópsins sem afhentu mótmæla-
undirskriftimar, Erlingur Sigurð-
arson kennari á Akureyri, Gunn-
hildur Bragadóttir sjúkraliði á
Akureyri og Bjarni Guðleifsson
ráðunautur á Möðruvöllum í
Hörgárdal, voru að vonum
ánægðir með orð forsvarsmanns
ríkisstjómarinnar.
„Við væntum þess að ríkis-
stjórnin taki tillit til undirskrift-
anna. Þetta var enginn smá hópur
sem skrifaði undir á aðeins 4 vik-
um í sumar“, sagði Erlingur Sig-
urðarson. Hann sagði mikilvægt
að með undirskriftasöfnuninni og
fundum í sumar auk blaðaskrifa
hefði komist á umræða um at-
vinnumál héraðsins almennt.
„Rökin gegn álveri við Eyjafjörð
em orðin fleiri og þyngri en í upp-
hafi umræðunnar. Þá vom nátt-
úmfarsleg rök mest áberandi en
nú er ekki síður rætt um efna-
hagsleg rök gegn álverinu. Það er
þjóðinni mjög dýrt vegna virkj-
unarkostnaðar og auk þess er
þetta seinvirk leið til að skapa at-
vinnutækifæri. Hvert starf í álveri
er 50 sinnum dýrara en í al-
mennum iðnaði og vinnan þar er
afar einhæf“. Erlingur sagði að
starfshópur gegn álveri væri þver-
pólitískur og á undirskriftalistann
hefði jöfnum höndum skrifað
fólk utan flokka sem innan. -jp
Hœkkanir
Álmálið
Knýjum á um úrslit
Sverrir Hermannsson vonast til aðfá hœrra verð en!8
millidali verði ný verksmiðja reist. Álviðrœður íZiir-
ich. Gerðardómsdeilurnar skiptimynt ísamningun-
um? Árangur í Ghana og Grikklandi lyftistöng.
Launin sitja eftir
Heita vatnið 137 prósent.
Launin 18 prósent.
Iútvarpsþætti um málefni BSRB
í síðustu viku komu fram mjög
fróðlegar tölur hjá Einari Ól-
afssyni, formanni Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana, um þróun
verðlags á ýmsum nauðsynja-
vörum frá því í mars 1983 og
þangað til í mars á þessu ári.
Einsog sést á meðfylgjandi töflu
hefur kaupið hækkað miklu
minna en vörur á þessu tímabili.
Hækkanir f rá 1. mars 1983 til 1.
mars 1984
Bensín 44 prósent
Hitaveita Reykjavíkur
137 prósent
Olíatilhúshitunar 21 prósent
Afnotagjald síma 49 prósent
Rafmagn til heimilisnota í
Reykjavík 59 prósent
Laun 18 prósent
í ljósi þessara upplýsinga virð-
ist eifitt að halda því fram einsog
sumir atvinnurekendur hafa gert
að undanfömu, að kaupkröfur
launþega kunni að sliga ýmsar
undirstöðugreinamar. Stað -
reyndin er einfaldlega sú að laun
hafa hækkað miklu minna en
flestar nauðsynjavömr.
Igær hófst viðræðufundur Alu-
suisse og íslensku samninga-
nefndarinnar í Zurich og mun
orkuverðið sjálft vera helsta
dagskrárefni. Sverrir iðnaðar-
ráðherra Hermannsson sagði við
Þjóðviljann ■ gær að 18 millidalir
á kflóvattstund væru ekki langt
frá framleiðslukostnaði og von-
aðist hann eftir enn hærra verði á
raforku til nýrrar verksmiðju ef
af yrði.
I máli ráðherra kom fram að
Alusuisse-menn hafa þegar gert
tillögur um að leysa deilumál ís-
lendinga um hækkun í hafi og
fleira á annan hátt en með gerð-
ardómi, og virðist ljóst að þessi
mál em notuð sem nokkurskonar
skiptimynt í samningaviðræðun-
um.
Sverrir kvaðst óánægður með
gang viðræðnanna; „nú hljótum
við að knýja mjög harkalega á um
úrslit í málinu". Fréttir um
frammistöðu Grikkja og Ghana-
manna ættu að verða samninga-
r
Igær voru stíf fundahöld með
Vinnuveitendasambandinu og
Verkamannasambandinu fyrir og
eftir hádegi.
Heimildarmenn Þjóðviljans
kváðu aðila fyrst og fremst hafa
verið að kanna viðhorf hvor ann-
ars og töldu litla ástæðu til
bjartsýni um skjóta lausn
deilunnar.
„Þetta fór þó allt fram með
friði og spekt og það er alltaf góðs
nefndinni lyftistöng í viðræðun-
um. _m
Sjá bls. 3
viti“, sagði einn af forystu-
mönnum Verkamannasam-
bandsins og bætti því við að
stríðir fundir þýddu að minnsta
kosti að menn hefðu eitthvað til
að tala um!
Viðmælendur blaðsins töldu
að með helginni væri búið að
kanna vígstöðuna nægilega til að
einhverrar hreyfingar væri að
vænta upp úr því.
-ÖS
Samningarnir
Stífir fundir