Þjóðviljinn - 23.08.1984, Side 4
LEIÐARI
Magapína Sjálfstæðisflokksins
í leiðara Morgunblaðsins í gær er ráðist með
háði og spéi að Framsóknarflokknum. Sjálf-
stæðisflokkurinn vill spotta Framsókn vegna
þess hve flokkurinn hefur haft lítið frumkvæði í
stjórnarsamvinnunni. Orðrétt segir Morgun-
blaðið: „Framsóknarflokkurinn hefur lítið sem
ekkert frumkvæði sýnt í ríkisstjórninni". Þess í
stað segir Morgunblaðið að Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins hafi lagt hinar
pólitísku línur í stjórnarsamstarfinu. Fram að
þessu hefur fyrrverandi fulltrúi Vinnuveitenda-
sambands íslands verið blaðafulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í raun. Þannig spáði einnig
Styrmir Gunnarsson Morgunblaðsritstjóri fyrir
honum. En Morgunblaðsritstjórinn Matthías
Johannesen hefur hins vegar bent á að Þor-
steinn Pálsson sé Morgunblaðsungi - og síð-
an hefur blaðið gert hann að sínum manni.
Og nú er komið að þeim tímapunkti, sem
sker úr um pólitíska framtíð þessa Morgun-
blaðsunga og fyrrverandi framkvæmdastjóra
Vinnuveitendasambands íslands; tekst hon-
um að verða ráðherra í ríkisstjórninni hjá
Steingrími Hermannssyni? Sjálfur hefur
Steingrímur lýst því yfir að hann sé því fylgj-
andi að fá Þorstein í sitt lið við ríkisstjórnar-
borðið, en bendir á að það sé mál Sjálfstæðis-
flokksins.
Morgunblaðið segir í leiðara sínum í gær:
„Framsóknarþingmönnum er augljóslega
misboðið vegna þess hve mikið frumkvæði
hefur verið hjá sjálfstæðismönnum í stjórnar-
samstarfinu" - og stoltið leynir sér ekki yfir
auðmýkingu samstarfsflokksins.
í leiðara Nútímans í gær er slegið á Fram-
sóknarstrengina í stjórnarsamstarfinu. „Sjálf-
ur stjórnarsáttmálinn er ekki til meðferðar",
segir í leiðara Tímans þvert á túlkun Sjálfstæð-
isflokksins. Þar er því haldið fram að stefna
ríkisstjórnarinnar sé ágæt eins og hún er. Þá
segir málgagn Framsóknarflokksins að það sé
„mikill misskilningur að hér sé um leiftursókn-
arstefnu að ræða“. Þarna mælir NT gegn betri
vitund, enda hefur Morgunblaðið margoft ít-
rekað að stefna ríkisstjórnarinnar sé leiftur-
sóknarstefnan gamla frá Verslunarráðinu.
Viðræður ríkisstjórnarinnar eru einsog hver
annar skrípaleikur. Annarflokkurinn heldurþví
fram að um endurskoðun stjórnarsáttmála sé
að ræða, hinn flokkurinn segir að verið sé að
skoða málin. Báðir segjast hins vegar flokk-
arnir standa þannig að viðræðunum, að for-
menn flokkanna muni kalla til ráðuneytis á
viðræðufundum menn sem þekkja til hinna
ýmsu málaflokka. Þess vegna vekur það at-
hygli að á fyrsta viðræðufundinn er kallaður til
skrafs og ráðagerða Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra. A nú að byrja endurskoðun
stjórnarsáttmálans á uppstokkun í utanríkis-
málum?
Það fer mjög fyrir brjóstið á Morgunblaðinu
að Þjóðviljinn skuli geta Steingríms forsætis-
ráðherra í vinsamlegum tóni. Það gerir Þjóð-
viljinn á grundvelli þess að forsætisráðherra
hefur hreinskilnislegá burði til að bera á stund-
um. Þannig gefur Steingrímur forsætisráð-
herra ríkisstjórnarstefnu sinni þá einkunn í við-
tali að eftir standi að kjör launafólks í landinu
hafi versnað. Og Steingrímur er ekki einsog
Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að breiða yfir
mistök sín með blekkingum og sjónhverfing-
um. Hann kemur oft til dyranna einsog hann er
klæddur.
Hinar raunverulegu viðræður í ríkisstjórninni
verða ekki um endurskoðun stjórnarsáttmál-
ans. Þær verða aðallega um vætanlega kjara-
samninga í haust. Þær verða að miklu leyti
bundnar við Sjálfstæðisflokkinn. Meðal ann-
ars vegna þess að fjármálaráðherra hefur
hlaupið á sig í samskiptunum við launafólkið
hjá BSRB. Og ekki síst vegna þess að nú
upphefst hin þjáningarfulla magapína Sjálf-
stæðisflokksins; hvaða ráðherra á að víkja
fyrir Þorsteini. Það er því íhaldið sem engist nú
á hinum pólitíska velli. Á meðan verður lítt af
setningi slegið í stjórnarherbúðunum, þar sem
nú er deilt um frumkvæði stjórnarflokka um
ekki neitt.
GuAmundur G. l*oririnv-
ii.i•'
H,M' |
jfhcnl
Volla AllH
cr i cijtu fyr^fl
old* »g Kaiscr v
s(*rstuállramlcl
FramlciAslugcf
IKLIPPT OG SKORIÐI
Mánudaqur 20. *gú»t 1984 1 2
Guðmundur G. Þórarinsson:
Nýr orkusamningur í Ghana
■ Islcndingar gcra scr v»nir
um að nýi orkusammngunnn i
Ghana vem »g gcrðardómur
mn. scm nylallinn cr varðandi
orkuvcrð (il álvcrs Pcchincy i
Grikklandi. slyrki þá i loka-
hrinu samninganna við Alu-
vuissc. Á þvi ci cnginn vafi að
okkur cr (aisverður slyrkur af
þessum tvcim atriðum
Fréttir rikisfjölmiðlanna af
orkusamningum í Ghana hafa
vcrið ónákvimar og zskilcgt
cr að mcnn geri sér almcnnt
bctur grem fyrir hvað um cr að
rarða. Alusuissc fylgisl na-
kvzmlcga mcð nýjum samn-
ingum og vcit i smájj
hvcruig þcir
Alusuissc ‘ “
Sammngar hofðu Maðiö i Ih
mánuði ct niðurstaða náðist
Orkuvcrðið cr háð l.MF-vcrði
undattgcgninna h manaða »g
hrcylilcgt cftir þvi hvorl nxgi
lcg orka cr afhcnt til tvcggja
kcrskala cða fjogurra cða
fimm.
Formiilan. scm gildir cforka
cr afhcnt til fjoguira kcrskála.
Orkuvcrð - 5 61 x W Vj^
(LMIi i c/lbs|/73 mill/1
verðiðvar5.6lji '
ingana
I v rir 4 kciskála cr hins vcgar
lagmarksvcrðið III mill/kWh.
cn gxti nað 24 mill/kWh við
alvcrð 120 c/lbs.
I inuritið. scm l.andsvirkjun
hclur unmð. sýnir samhcngi
þcssara stxrða og cf menn
skoða það sjá þcuAuðv itað að
það cr lal^ik^^Bfoldun að
ifisam-
kftekið
cru mikilvxgar. Ma þar nctna
að aðalsammngur vcrður
cndurskoðaður IUKX »g siðan
tckjuskalt
knnlcndir nolcndur hafa
\xga »rku
^sammngi var orkuaí-
^1241 GWh/ari. cn cr
mwh/a‘ri
Skattprós
harkkar ur 4tru i 4h"„. cn ckki
cr Ijost að þctla valdi harri
skattgrciðslum vcgna brcyttrar
viðmiðunar. -
Pcim vorullokkunt. sein
vcrksmiðjan rr:i flytja inn
tollfrjalst. cr fxkkað. þii’cru
þxr vorur. scm notaðar cru
bcint við rcksiur og viðhald.
ckki lollaðar Arðgrciðslur
Valco cru skattlagðar um 15"..
og 10“.. skattur cr lagður a
vaxtagiciðslur Valco (il cr-
lcndra lánadrottna ncma til
Ex/lm bankans
(ihana fxr siðan tvo mcnn i
stjorn fyrirtxkisins og rctt til
að kaupa allt að 20".. hlutatjar-
Tclja vcröur þvi að Ghana-
monnum hafi vcgnað vcl i
sammngunum. þott ckki sc
alvcg cinfall að ihcta' mður-
stoðurnar.
Ghana, Gi jnnar og Gut Imundur
liiil iil
„Freltir nkisfjolmiðlanna
af orkusamningnum i
(ihana hafa veriö ona-
kvxmar og arskilegt er að
mcnn geri ser almennt
belur grein fyrir hvað er
um að raröa."
Þióðtríljaræknsið
pjóðviljinn hefur nu náð þv i
Hgfxringar flcin hafa marki að vcrða helsta sorpblað
Hamcnn fengið fram scm Islcndinga. Morgum góðum og
gcgnunt Alþyöubandalag*-
monnum cr raun uð skritum.
utliti og ofgum PjvKÍviljans
F.inn þingmaður Alþýðu-
bandalagsins sagði við mig um
daginn. ,.f:g vcit ckki hvað
Pjóðviljinn a að gcra cf eitt-
hvað skcöur i þjóðfélatinu
Pcir nota heimssiyrjaldarlctur
á hverja smatrcttina eftir aðra
Lf citthvað markvcrl gerist
vcrða þcir bara með cinn staf
a siöu "
öll skrif Þjrtðvíljans bcra
vott um ofgar og fordóma
Á einhvern oskiljanlegan
hátt hafa þcir talið samninginn
i (ihana asta-ðu til þess að
ráðast sérstaklega á íslcnsku
samninganefndina
I stað þess að rcyna að sctja
sig inn i malin notar blaðið
slcggjudoma og cinlaldar full-
Hljóðir og
hógværir
menn
Það eru hljóðir og hógværir
menn sem hitta fulltrúa Alusuisse
að máli í Ziirich í dag. Nú er ekki
talað um jákvæðan árangur, að
málin þokist, að samkomulags-
horfur séu í flestum greinum, og
senn taki þrefinu að ljúka. Dr.
Jóhannes Nordal segir í viðtali
við Morgunblaðið í gær að hann
sé hóflega bjartsýnn á þessar við-
ræður, sem væntanlega þýðir á
venjulegu máli að hann sé mjög
svartsýnn. „Meiningin er að ræða
aðallega um orkuverðið og reyna
að komast að raun um hvort skil-
yrði fyrir samkomulagi eru að
skapast eða ekki.“ Og síðar í við-
talinu segir hann „að nú vildu
menn reyna að komast svolítið
áfram með viðræður um raforku-
verðið“.
Við skulum vona að hér sé um
að ræða það sem enskurinn kallar
„understatement" og að dr. Jó-
hannes ætli að koma okkur á
óvart með samningum á næstunni
sem sómi sé að. En núverandi
ríkisstjórn sem ætlaði að drífa af
samninga við Alusuisse er komin
á sitt annað aldursár án þess að
nokkuð sé farið að rofa til.
Áróður stjómarflokkanna gegn
Hjörleifi Guttormssyni iðnaðar-
ráðherra á sínum tíma var eitt
versta hervirki sem framið hefur
verið í íslenskum stjórnmálum og
alþjóð sér eftir hið langa samn-
ingaþóf „herramannanna“ að
hann var gjörsamlega tilhæfu-
laus. Þetta er „þungaiðnaður“
eins og Sverrir Hermannsson hef-
ur réttilega sagt eftir á að hyggja
og má þar hvorki skorta herslu né
samstöðu.
Stóryrðin
innávið
peir eru ekki tilætlunarsamir í
orðum íslensku samningamenn-
irnir gagnvart Alusuisse og ekki
fellur stóryrði í garð svissnesku
samningamannanna af þeirra
tungu. Guðmundur G. Pórarins-
son á þó ekki tregt tungu að
hræra þegar að því kemur að
hella fúkyrðum yfir samlanda
sína sem ekki vilja þola svik né
undirverð á raforku af hálfu Alu-
suisse. Svona fallega talar hann
um okkur Þjóðviljamenn í NT:
„Þjóðvilinn hefur nú náð því
marki að verða helsta sorpblað
íslendinga... Öll skrif Þjóðviljans
bera vott um öfgar og fordóma.
Á einhvern óskiljanlegan hátt
hafa þeir talið samninginn í
Ghana ástæðu til að ráðast sér-
staklega á íslensku samninga-
nefndina.
í stað þess að reyna að setja sig
í málin notar blaðið sleggjudóma
og einfaldar fullyrðingar. Ég held
helst, að jafnvel Rússar myndu
roðna ef þeir læsu þessi skrif
Þjóðviljans og kalla þeir ekki allt
ömmu sína í þessum efnum þegar
snúa þarf staðreyndum gjörsam-
lega við.
Nýjasti leiðari Þjóðviljans,
Ghana, Guðmundur og Gunnar
sýnir hversu þeim Þjóðvilja- og
Álþýðubandalagsmönnum líður
nú illa. Þeir vita að þeir hafa stór-
skaðað íslenska hagsmuni um
ófyrirsjáanlega framtíð með frá-
leitum vinnubrögðum sínum á
undanförnum árum. Þeir eru
greinilega svo hræddir um að við-
unandi samningar náist við Alu-
suisse að þeir eira engu.
Hitt vita flestir íslendingar að
ef ekki hefðu komið til eindæma
fáránleg vinnubrögð þessara aula
værum við löngu búnir að ná
samningum og líklega betri en
þeim sem Ghanamenn náðu.“
Vefjist honum
eigi tunga um
höfuð í Sviss
Það er kjaftur á keilunni! Sjá
menn Guðmund G. Þórarinsson
standa frammi fyrir þeim Alu-
suissemönnum í Zurich svo
kjaftagleiðan að verja íslenska
málstaðinn í áldeilunni? Ein-
hvern veginn gengur erfiðlega að
koma þeirri mynd sér fyrir hug-
skotssjónir. Klippara þótti rétt að
birta þessi snöfurlegu ummæli ef
vera kynni að einhver hefði gefist
upp á að éta sig í gegnum talnar-
unur Guðmundar í NT áður en
kom að rúsínunni í pylsuendan-
um. Þjóðviljamenn eru hinsvegar
ekkert hræddir um að góðir
samningar náist í Zurich. Þeir
yrðu fyrstir manna til þess að
fagna því og hefja Guðmund til
skýjanna. Hinsvegar eru þeir
haldnir nokkrum ótta, ekki verð-
ur því neitað, um að viðunandi
samningar náist ekki. Og rétt er
líka að minnast á ástæðuna fyrir
skammarflaumi Guðmundar,
sem þrátt fyrir allt bendir til þess
að hann sé ekki eins og ærulaus
íhaldsmaður heldur haldi enn í
gamlan Framsóknarsóma dauða-
haldi. Við leyfðum okkur að
segja að ekki mætti í milli sjá
hvort þeir Guðmundur G. og
Gunnar G. væru blaðafulltrúar
Alusuisse eða samningamenn
fyrir íslands hönd. Er nokkuð of-
sagt með þeim orðum?
Klippari óskar Guðmuridi G.
svo góðrar ferðar til Zurich og er
vonandi að honum nýtist kjaftur-
inn til þess að kveða samninga-
menn Álusuisse í kútinn. En vara
má hann sig á því að tungan vefj-
ist honum ekki um höfuð í við-
skiptum við glúrna Svissara.
-ekh
DJÓDVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fróttaatjórar: óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víöir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
héðinsson.
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Lftltt og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Bjömsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Framkvœmda8tjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Utkeyrslo, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmíðja Þjóöviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Askriftarverð ó mónuði: 275 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. ágúst 1984