Þjóðviljinn - 23.08.1984, Side 7
LANDÐ
Tuttugasta og sjötta þing
Fjórðungssambands Norðlend-
inga verður haldið að Reykjum í
Hrútafirði dagana 30. ágúst til 1.
sept. n.k. Rétttil þingsetu hafa94
fulltrúar sveita- og sýslufélaga á
Norðurlandi, auk alþingismanna
og annarra gesta.
Formaður Fjórðungssam-
bandsins, Þórður Skúlason,
sveitarstjóri á Hvammstanga,
setur þingið með ávarpi. Greint
verður frá framlögðum málum
nefnda og Fjórðungsráðs. Fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, Áskell Einarsson,
flytur skýrslu um starfsemi þess.
Tillögur endurskoðunarnefndar
sveitarstjórnarlaga verða
kynntar af ritara nefndarinnar,
Hólmfríði Snæbjörnsdóttur. Þá
flytja gestir ávörp og fram fara
almennar umræður.
Reykjaskóli í Hrútafirði þar sem fjórðungsþing Norðlendinga verður haldið.
Fjórðungsþing
Menntunarmál dreifbýlisins
aðalumræðuefnið á Fjórðungsþingi Norðlendinga
Á föstudag flytur Friðfinnur K.
Daníelsson, iðnráðgjafi, skýrslu
sína og Einar Eyþórsson segir frá
atvinnuráðgjöf í Noregi. Síðan
verður rætt um nýjar leiðir í at-
vinnuinálum þar sem þeir hafa
framsögu Ingjaldur Hannibals-
son, forstjóri Iðntæknistofnunar,
Eyjólfur K. Jónsson, alþm. og
Torfi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri. Seinnipart dagsins
verður aðalumræðuefnið
menntunarmál dreifbýlisins -
fjárhagsleg staða og stjórnun.
Framsögumenn: Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, Valgarður Hilmarsson,
oddviti og Snorri Björn Sigurðs-
son, sveitarstjóri. Guðmundur
Ingi Leifsson kynnir rekstur
fræðsluskrifstofa og Atli Guð-
mundsson, formaður Menning-
arsamtaka Norðlendinga, ávarp-
ar þingið. Á föstudagskvöld
verður samkvæmi með kynning-
ardagskrá í boði Vestur-
Húnvetninga. Síðari hluta
laugardags er svo ætlunin að
þinginu ljúki með afgreiðslu mála
og kosningu fjórðungsráðs og
nefnda.
Fyrir þinginu liggja tillögur um
eftirgreind mál: Staðarval stór-
iðju. Fræðslustarfsemi í iðnþró-
un. Iðnþróunarsjóði. Almenna
atvinnuráðgjöf. Iðnfræðslu.
Stöðu Kröfluvirkjunar. Hags-
munasamstöðu innan sveitarfé-
laga. Atvinnustöðu sveitanna.
Skólamál í dreifbýli. Ferðamála-
samtök. Langtímavegaáætlun.
Flugvallaframkvæmdir. Skipu-
lagslög. Merkingu bændabýla.
Samræmingu á gjaldi ríkisstofn-
ana. Tengsl við menningarsam-
tökin. Norðurlandsleiki
æskunnar. Endurskoðun út-
varpslaga. Háskólakennsla á
Norðurlandi. Tillögur frá Menn-
ingarsamtökum Norðlendinga.
Valddreifingu og byggða-
jafnvægi. Framtíðarhlutverk
landshlutasamtaka. Frumvarp til
sveitarstjórnarlaga. Tekjustofn
sveitarfélaga. - mhg.
ísafjörður
Rýmist um
Mjólkur-
stöðina
Viðbygging í
undirbúningi
Áformað hefur nú verið að
stækka húsnæði Mjólkurstöðvar-
innar á ísafirði, enda er orðið
bagalega þröngt um starfsemi
hennar. Með hinni fyrirhuguðu
nýbyggingu vex húsrýmið um
helming eða 311 ferm. Þar verða
rannsóknarstofa, tvær skrifstof-
ur, búningsherbergi, kaffistofa,
frystir og kælir.
Leitað var tilboða í bygginguna
og bárust 6 tilboð. Voru 5 þeirra
frá ísafirði og 1 frá Bolungarvík.
Lægsta tilboðið var frá Gísla
Guðmundssyni sf. og var því
tekið. Hljóðar það upp á 4,4 milj.
kr. og er 2,4% undir kostnaðará-
ætlun. Hæsta tilboð var hins veg-
ar 14,8% hærra en áætlunin.
Húsið verður byggt í áföngum
og var útboðið miðað við það. Er
að því stefnt að steypa húsið og
ljúka við það að utan fyrir 1. nóv.
n.k. Síðan verður aftur hafist
handa 1. apríl og á húsið að verða
fullbyggt 1. okt. að hausti.
-mhg
Ferðamál
Hornstrendingur
Nýr ferðamannabátur
Ferðamenn leggja nú leið sína
í síauknum mæli til Hornstranda
og mun engan undra, sem þang-
að hefur komið. Fagranesið sér
um flutninga þangað og, að því er
fregnir herma, á það fullt í fangi
með að anna þeim, enda hefur
það í fleiri horn að líta.
Nú er kominn á flot nýr bátur,
sem ætlað er að flytja ferðamenn
til Hornstranda og fleiri staða, ef
Glatt á hjalla á Homströndum.
svo vill verkast. Heitir farkostur-
inn Hornstrendingur, keyptur,
ófullgerður, í Noregi en síðan
gerður „sjóklár" í Reykjavík, og
fýlgdist Siglingamálastofnun
grannt með því verki.
Eigendur Homstrendings eru
Hallvarður Guðlaugsson og fjöl-
skylda hans, Tryggvi Guðmunds-
son og Kjartan Sigmundsson,
sem sjá mun um flutningana.
Báturinn verður rekinn í sam-
vinnu við Ferðaskrifstofu Vestf-
jarða.
-mhg
Út er komið 4. tbl. Sveitar-
stjórnarmála þ.á., fjölbreytt að
efni og smekklegt að frágangi.
Meðal efnis að þessu sinni er
langt og fróðlegt viðtal við
Hjálmar Vilhjálmsson, fyrrver-
andi ráðuneytisstjóra, sem nú er
áttræður. Hjálmar hóf störf að
sveitarstjórnarmálum 1930 og
kann frá mörgu að segja af þeim
vettvangi. Jón Eiríksson, oddviti
í Vorsabæ á Skeiðum, segir frá
endurbyggingu Reykjarétta á
Skeiðum, í daglegu tali nefndar
Skeiðaréttir. Þær voru upphaf-
lega byggðar 1881 og þótt þær
entust afburðavel var svo komið
1975 að þörf þótti orðin á að
endurbyggja þær. Var því verki
lokið á aldarafmæli réttanna og
voru þær vígðar 29. ágúst 1981.
Réttirnar héldu fyrra formi og
byggðar úr sama efni og áður,
hraungrýti. Sigurþór Skærings-
son, fyrrum bóndi á Rauðafelli
undir Eyjafjöllum, hlóð réttirnar
og eru þær mikið listaverk.
Þá ritar dr. Ólafur R. Dýr-
mundsson grein um orlofsbyggð
á ríkisjörðum, Þorvarður Jóns-
son, yfirverkfræðingur, um nýj-
ungar í símatækni, Ágúst Guð-
mundsson hjá Landmælingum
um notkun loftmynda og Arn-
Tímarit
Sveitarstjórnarmál
ljótur Björnsson, prófessor, um
skaðabótaábyrgð sveitarfélaga.
Einnig eru birtar greinar um
orkuspamaðarátakið, sem yfir
stendur, boðveitur sveitarfélaga,
varnir gegn tannskemmdum með
flúorskolun. Og svo eru hinir
föstu efnisdálkar: Frá almenn-
ingsbókasöfnum, Fjármál
sveitarfélaga, Frá landshlutasam-
tökunum, Á Lögbergi og Kynn-
ing sveitarstjórnarmanna. Á
kápu blaðsins er litprentuð ljós-
mynd af Skeiðaréttum.
Ritstjóri Sveitarstjómarmála
er Unnar Stefánsson en ábyrgð-
armaður Björn Friðfinnsson.
-mhg
Patreksfjörður
Tilboð í
Strandgötu
Opnuð hafa verið tilboð í vinnu
við Strandgötuna á Patreksfirði.
Sex tilboð bárust. Tekið var til-
boði frá Vinnuvélum á Patreks-
firði og Hagvirki í Hafnarfirði, 2,89
milj. kr. Tilboð Barðs sf. á Akur-
eyri var raunar ívið lægra, 2,83
milj. en það barst of seint.
Óðinn, Hvolur og Verktækni
buðu 3,47 milj., Vesturfell á ísa-
firði 3,86 milj., Guðmundur Ó.
Kristjánsson, Kópavogi, 4,18
milj. og Ræktunarsamband V-
Barðastrandarsýslu 4,31 milj. kr.
Athygli vekur að öll vom til-
boð langt undir kostnaðaráætlun,
sem er 6,18 milj. kr. Er tilboð
Vinnuvéla og Hagvirkis hartnær
helmingi lægra.
-mhg
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7