Þjóðviljinn - 23.08.1984, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
DJðÐVILJINN
Flmmtudagur 23. ógúst 1984 189. tölublað 49. árgangur
Albert
Kunningjarnir fá kauphækkun
Mikil reiði í ríkiskerfinu vegna geðþóttakauphœkkana
fjármálaráðherrans sem neitar að semja við opinbera starfsmenn
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra, sem neitar að af-
henda BSRB gagntilboð í yfir-
standandi samningaumleitunum,
hefur að undanförnu hækkað
laun einhliða hjá ýmsum starfs-
mönnum. Nýjasta dæmið um
þetta er, að starfsmaður ríkis-
stofnunar bað Alhert að koma því
um kring að laun hans yrðu
hækkað. Eftir örfáa daga fékk
launadeild ráðuneytisins til-
skipun frá ráðherra um að hækka
þennan niann í launum úr 14.
launaflokk í 17. flokk. Á vinnu-
stað mannsins ríkir mikil óá-
nægja með þetta vinnulag ráð-
herrans sem neitar að gera sæm-
andi samkomulag við stéttar-
samtök opinberra starfsmanna.
Tildrög málsins eru þau að
maðurinn sem unnið hefur í ára-
tugi hjá sömu ríkisstofnun hafði
reynt ýmsar leiðir til að knýja
fram kauphækkun. í viðtali við
Þjóðviljann kvaðst hann hafa
gefist upp á hinum hefðbundnu
leiðum og leitað til fjármálaráð-
herra, sem brást vel við. Hér er
ekki um há laun að ræða; maður-
inn kvaðst hækka í launum úr
19.400 krónum í 21.700 krónur.
Hins vegar eru samstarfsmenn
mannsins og launafólk í öðrum
ríkisstofnunum, sem þekkir svip-
uð dæmi, ævareitt við fjármála-
ráðherrann, Albert Guðmunds-
son, sem tileinkar sér vinnubrögð
„í 19. aldar stfl“, einsog einn við-
mælandi blaðsins komst að orði.
„Þetta er í hæsta máta ósmekk-
legt“, sagði einn samstarfsmanna
mannsins. Fleiri tóku í sama
streng og einn hafði á orði að
næst þyrfti að sýna Albert flokks-
skírteini í Sjálfstæðisflokknum
eða hlutabréf í stórfyrirtæki til að
fá kauphækkun.
-ekh/óg/gal
Iðnverkafólk
Lágmarkslaun verði 14 þúsund
Svipuð kröfugerð og hjá Verkamannasambandinu. Hafnað umsvifalaust af iðnrekendum
Kröfur iðnverkafólks eru mjög
svipaðar kröfum Verka-
mannasambandsins, við viljum
14 þúsund krónur sem alger lág-
markslaun og endurröðun í
launaflokka að einhverju leyti.
Þetta sagði formaður Lands-
sambands iðnverkafólks, Guð-
mundur Þ. Jónsson, við Þjóðvilj-
ann í gær. Kröfugerð sambands-
ins gagnvart atvinnurekendum
var þá lögð fram á fundum með
iðnrekendum og síðar Vinnu-
málasambandi samvinnufélag-
anna. Iðnrekendur höfnuðu um-
svifalaust en Vinnumálasamb-
andið svarar eftir viku.
í kröfunum er líka farið fram á
að tímakaup fyrir yfirvinnu verði
1 prósent af föstum mánaðar-
launum. Jafnframt er krafa um
að við 30 ára aldur fari starfsfólk í
iðnaði aldrei neðar en á taxta sem
miðast við tveggja ára starfsald-
ur, og eftir 35 ára aldur ekki neð-
ar en á þriggja ára taxtann. Þetta
nýmæli er ekki að finna í kröfum
Verkamannasambandsins.
Ennfremur er gerð krafa um að
samið verði sérstaklega um laun
fyrir afbrigðilegan vinnutíma.
Þar er átt við fólk sem vinnur til
að mynda einvörðungu á nótt-
unni, einnig sérstakar tólf tíma
vaktir, líka nýmæli sem færist í
vöxt í fataiðnaði og felst í vinnu
utan hins hefðbundna vinnutíma.
Þensla í ýmsum iðnaði, til dæmis
saumaskap, er nú slík að til að
anna eftirspum eru settar upp
vaktir eftir að vinnutíma lýkur.
Gróin fyrirtæki í fataiðnaði á
Reykjavíkursvæðinu hafa þannig
tekið upp vaktir frá 6 til 10 á
kvöldin.
„Ég get ekki séð annað en
þetta séu mjög réttlátar og sann-
gjarnar kröfúr“, sagði Guð-
mundur Þ. Jónsson. „Það er nú
mikil eftirspurn eftir fólki í sumar
greinar iðnaðar og góð afkoma
þar, þannig að ég fæ ekki annað
séð en það sé gott olnbogarými til
að greiða hærri laun“.
-ÖS
Kartöflur
Hvað er
heild-
sala?
Gunnlaugur Björnsson for-
stjóri Grænmetisverslunar Ríkis-
ins vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér í gær þegar Þjóðviljinn spurði
hann um þá staðhæfingu sem
kom fram í DV í gær að núgild-
andi sölukerfl á kartöflum væri
að hrynja.
„Hvað er heildsala?“, spurði
hann þegar blaðamaður spurði
hann um álit hans á þeirri ákvörð-
un Landbúnaðarráðuneytisins að
leyfa bændum að selja kartöflur
sínar beint’til smásala á annan
hátt en í heildsölu. „Grænmetis-
verslunin er númer 1, 2 og 3 fyrir
kartöflubændur- og neytendur“,
sagði hann ennfremur.
I Þjóðviljanum í gær birtist við-
tal við Sigurjón Gunnarsson á
Hofi í Öræfum þar sem Sigurjón
gagnrýnir dreifinguna á kart-
öflum og telur að þær fari í gegn-
um hendur of margra aðilja áður
en þær komist til neytandans svo
gæðin rými. Sigurjón nefnir sem
dæmi að hans kartöflur séu flutt-
ar fyrst að Svínafelli þar sem
þeim er pakkað í neytendaum-
búðir, þaðan fari þær með bfl til
Hafnar, frá Höfn með skipi
jafnvel kringum land til
Austfjarða og Vestmannaeyja.
„Þetta er þeirra mál“, sagði
Gunnlaugur um þennan flutn-
ingsmáta, „og spuming um flutn-
ingsverð".
Um sölukerfið almennt og
hvort það væri að hrynja vildi
Gunnlaugur ekkert láta hafa eftir
sér. -gat
Akureyri
Þolanlegar
undirtektir
Kröfum verslunar-
manna ekki illa tekið
Fulltrúar kaupmanna og KEA
tóku alls ekki illa í kröfur okkar
skrifstofu- og verslunarfólks á
Akureyri þegar við lögðum þær
fram, sagði Jóna Steinbergsdóttir
við Þjóðviljann í gær, að loknum
fundi milli atvinnurekenda á Ak-
ureyri og félags Verslunar- og
skrifstofufólks.
Einsog Þjóðviljinn greindi frá í
gær, vill félagið fá 25 prósent
kauphækkun. „Þeir höfnuðu
kröfugerðinni ekki, en sögðust
hins vegar þurfa að ráðfæra sig
við þá fyrir sunnan“, sagði Jóna.
Á Austfjörðum, Suðumesjum og
í Árnessýslu era verslunarmenn
einnig að kynna atvinnurekend-
um kröfur sínar um þessar mund-
ir. _ÖS
Seyðisfjörður
Bágt
atvinnuástand
Á fundi bæjarstjórnarinnar á
Seyðisflrði þann 16. ágúst komu
fram áhyggjur vegna atvinnuá-
standsins í kaupstaðnum, en nú
yfir hásumarið eru hátt í 100
manns atvinnulausir vegna rek-
strarerfiðleika í sjávarútvegi og
fískvinnslu, skipin sigla með
aflann í staðinn fyrir að landa
honum heima til vinnslu.
í ályktun bæjarstjómarinnar
sem samþykkt var samhljóða er
þess krafist að „höfuðatvinnu-
vegi þjóðarinnar verði búin við-
unandi rekstrarskilyrði“ og
minnt á að um 75% gjaldeyris-
tekna þjóðarinnar komi frá sjáv-
arútvegi. -gat
Málfræðingarnir í góða veðrinu
Málfræðingarnir, Höskuldur Þráinsson prófessor í Háskóla Islands og Helgi Bernódusson skjalavörður háttvirts Alþingis,
brugðu undir sig betri fótunum í góða veðrinu í gær. Hvort þeir voru að styrkja málbeinin fremur en aðra líkamshluta vitum
við ekki. „Er greiðslan í lagi?" spurðu þeir þegar myndinni var smellt af þeim. Mynd -eik.