Þjóðviljinn - 28.08.1984, Blaðsíða 2
Hjörleifur Guttormsson
Hef áhyggjur af
viðræðunum
Hjörleifur Guttormsson: Nú er verið að tæpa á 14 millidölum sem niðurstöðu
meðan Ghana semur um 17.5 og Grikkirfá 20.5 millidali
Óttast að Alusuisse sé að leika svipaða leiki og 1966 og 1975
Stjórnarandstaðan og almenningurfá ekki marktækar upplýsingar
Ofsalega var Steingrímur
klár, aö ætla að snúa á sveita-
varginn fyrir vestan. Hann er
líka þéttbýlistöffari - meö rad-
arinn í lagi.
VR
Biðstaða
Það hafa engir fundir verið
boðaðir með okkur og vinnu-
veitendum og raunar má segja að
það hafí ekkert gerst síðustu tvær
til þrjár vikurnar, sagði Magnús
L. Sveinsson, formaður Verslun-
armannafélags Reykjavíkur við
Þjóðviljann síðdegis í gær.
„Það var samkomulag um það
þegar við óskuðum eftir við-
ræðum þann 7. ágúst, að sjá til
hvað gerðist hjá öðrum félögum.
Það var reyndar forsenda fyrir
samningum af hálfu vinnu-
veitenda að þeir yrðu gerðir á
sem breiðustum grundvelli,
þannig að ég hef ekkert verið að
ýta eftir fundum meðan vitað er
að það eru einhverjar viðræður í
gangi hjá öðrum félögum. Málið
er í biðstöðu eins og er“. -ÖS
Gengið
kol-
fallið
Gengi íslensku krónunnar er
kolfallið en ríkisstjórnin þrjósk-
ast við að viðurkenna það, sagði
Ólafur Þ. Þórðarson í ræðu á
kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins í Bolungarvík um helg-
ina.
Framsóknarmennirnir á fund-
inum voru harðorðir um byggða
og atvinnustefnu ríkisstjórnar-
innar samkvæmt heimildum
Þjóðviljans og máttu Steingrímur
og ríkisstjórn hans mæta meiri
andstöðu og óánægju en nokkru
sinni. —óg
Varðandi raforkuverðið er ver-
ið að tæpa á 14 millidölum
sem niðurstöðu á sama tíma og
þróunarríki einsog Ghana semur
um 17.5 millidali við mjög erfiðar
aðstæður og gerðardómur í Sviss
dæmir Grikkjum 20.5 millidali.
Stjórnarandstaðan og almenn-
ingur fær ekkert marktækt að
vita um gang viðræðnanna en að-
alforstjóri Alusuisse segir að
skapast hafí ,Jétt andrúms!oft“ á
samningafundum sem flestir eru
haldnir erlendis. Þetta og margt
fleira veldur því að ég hef miklar
áhyggjur af gangi þessara við-
ræðna og óttast að menn séu enn
að láta Alusuisse vefja sér um
fíngur einsog 1966 og 1975, sagði
Hjörleifur Guttormsson m.a. í
viðtali við Þjóðviljann þegar
blaðið leitaði álits hans á nýjustu
tlðindum af viðræðunum við Alu-
suisse.
- Þessar viðræður hafa teygst
mjög á langinn og stjórnarand-
staðan fær engar upplýsingar um
gang mála fremur en almenning-
í svari við bréfi 20 manna um
flutning á íslensku efni fyrir sjón-
varpsfréttir, segir Pétur Guð-
fínnsson m.a. að tíminn milli
táknmálsfrétta og frétta sé „sí-
breytilegur“ og vegna lesmáls-
skilta sem þá þurfí að birtast sé
ekki talið rétt að flytja efni sem
krefjist einbeitingar og næðis.
Segir Pétur Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins að
ljóða og sagnalestur hljóti að
ur í gegnum fjölmiðla. Hið eina
sem fram kemur frá formanni ís-
lensku viðræðunefndarinnar, dr.
Jóhannesi Nordal, eru almennar
yfirlýsingar eftir hvern samnings-
fund um að þessu þoki í rétta átt.
Nú síðast að verulegur árangur
hafi náðst. En efnislega kemur
ekkert marktækt fram.
- Ég ætla að vona að frétt
sjónvarpsins sl. föstudagskvöld
byggð á viðtali við fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins dr. Gunnar G.
Schram um að von sé á 50% ábót
ofan á raforkuverðið frá bráða-
birgðasamkomulaginu hafi ekki
við rök að styðjast. Þetta þýddi
14 millidali á sama tíma og 20
millidalir væri eðlileg samnings-
niðurstaða. Ég trúi því ekki að
óreyndu að ríkisstjórnin taki við
slíkri niðurstöðu sem þýddi
áframhaldandi stórfellda með-
gjöf innlendra raforkunotenda
með álverinu.
- Forsætisráðherra hefur talað
um 18 millidali sem lágmark og
iðnaðarráðherra tæpir á svipuð-
um tölum. Það er því furðulegt að
njóta sín illa í þessu samhengi.
„Sjónvarpið mun því hér eftir
sem hingað til flytja slíkt menn-
ingarefni á veglegri stað í fyrir-
fram auglýstum dagskrárliðum
með mynd flytjenda eða með
myndefni sem hæfir efni því sem
flutt er hverju sinni“. Á hinn bóg-
inn segir framkvæmdastjórinn
„sígild lög af léttara tagi“ koma
vel til greina á þessum tíma.
Hann segir íslenskt efni af þeim
samningamenn stjórnarflokk-
anna eru að gefa í skyn allt aðrar
og lakari niðurstöðu. Þessar mót-
sagnakenndu yfirlýsingar ráð-
herra og samninganefndarmanna
hljóta að veikja samningsstöðu
okkar svo ekki sé minnst á furðu-
skrif Guðmundar G. Þórarins-
sonar og ummæli Gunnars G.
Schram að undanförnu varðandi
nýjan samning í Ghana.
- í sambandi við gömlu
deilumálin og fyrirhugaða dóms-
sátt, - er ekki aðeins unnið and-
stætt því sem bráðabirgða-
samkomulagið í fyrra gerði ráð
fyrir og hátíðlegar yfirlýsingar
iðnaðarráðherra á Alþingi sl.
vor. Heldur virðist sem samn-
inganefndin hafí nú fengið um-
boð ráðherra til að stinga þessum
málum undir stól. í stað þess að
reka skattsvikamálið fyrir gerð-
ardómi einsog samningar gera
ráð fyrir, eru málin fyrst sett í
flókið nefndarkerfi að kröfu Al-
usuisse, og nú hefur vinna í aðal-
nefndinni verið stöðvuð og ekki
einu sinni minnst á málið í síðustu
toga hafa verið flutt fram að
þessu, en mætti auka flutning
slíks efnis þann tíma sem enn er
til stefnu. Hins vegar muni þetta
umdeilda bil milli táknmálsfrétta
og frétta hverfa með breytingum
á dagskrá 1. október
næstkomandi. í lokin þakkar
framkvæmdastjórinn fyrir áhuga
á starfsemi sjónvarpsins og „kveð
yður með virðingu".
-óg
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. ágúst 1984
Höfn. Bragi Bjarnason og Björn Gunnlaugsson að gera við humartröll í lok vertíðar. „Við erum ekkert svo öánægðir með
humarvertíðina í ár. Hún var svolítið lengri en í fyrra og eitthvað meiri afli.“ (Myndina tók Gerður Oskarsdóttir sem var á
ferð um Suð-Austurland á dögunum).
Sjónvarpið
Hafnar sagnalestri
Hinn umdeildi tími milli táknfrétta og almennra frétta
ekki fallin til efnis sem krefst einbeitingar og nœðis
Hjörleifur Guttormsson: Enn eru við-
ræðurnar ekki til lykta leiddar og unnt
ætti að vera að rétta af kúrsinn.
fundalotu að sögn Jóhannesar
Nordal.
- Menn geta rétt ímyndað sér
hvort svona vinnubrögð eru lík-
leg til að styrkja stöðu okkar. Þar
fyrir utan eru hér verulegar upp-
hæðir á ferðinni, þarsem krafa
fjármálaráðuneytisins nam 10
miljónum dollara eða um 300
miljónum íslenskra króna.
- Bráðabirgðasamkomulagið í
fyrra var að mínu mati afleitur
gjörningur og hafði að geyma
ýmis atriði sem Alusuisse gat
beint gegn íslendingum í áfram-
haldandi viðræðum. Reyndin til
þessa hefur orðið enn lakari en ég
gerði mér í hugarlund. Allir
bókaðir frestir eru löngu liðnir og
íslensku samninganefndarmenn-
irnir eyða púðri sínu í árásir á mig
og síðustu ríkisstjórn og leggja
um Ieið Alusuisse vopnin uppí
hendurnar. Það er ekki amalegt
fyrir auðhringinn að lesa það eftir
Gunnari G. Schram og Morgun-
blaðinu að eiginlega þýði þre-
földun á raforkuverði í Ghana
aðeins 5.6 millidali!
- Ég vona að áhyggjur mínar
af gangi samningaviðræðnanna
reynist ástæðulausar. Enn eru
þær ekki til lykta leiddar og unnt
ætti að vera að rétta af kúrsinn,
sagði Hjörleifur Guttormsson að
lókum.
-óg
Bankarnir
Verður
þeim
fækkað?
Nýlega var sett á laggirnar
þriggja manna nefnd sem á að
gera tillögur um fækkun og sam-
einingu viðskiptabanka samhliða
færslu viðskipta og útibúa milli
banka. En áhugi á fækkun banka
og þeim sparnaði sem því er sam-
fara hefur lengi verið mikill með-
al alþýðu þessarar bankaríku
þjóðar.
Tillögurnar eiga að fela í sér
drög að skipulagsbreytingum
sem leiða til eðlilegs hlutfalls
milli skuldbindinga og ráðstöfun-
arfjár bankanna, góðs jafnvægis í
útlánum bankanna til einstakra
atvinnugreina, bættrar þjónustu
þeirra við atvinnulífíð og síðast
en ekki síst til lægri kostnaðar við
bankarekstur.
Viðskiptaráðherra fól þremur
valinkunnum mannvitsbrekkum
að sitja í nefndinni, þeim Gylfa Þ.
Gíslasyni prófessor, Sigurgeiri
Jónssyni aðstoðarbankastjóra í
Seðlabankanum, að ógleymdum
Birni Líndal, deildarstjóra í við-
skiptaráðuneytinu.
-ÖS