Þjóðviljinn - 28.08.1984, Blaðsíða 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
MOÐVIUINN
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 193. tölublað 49. árgangur
Radarstöðvarnar
Gífurleg óánægja!
Allt uppíloft á kjördœmisþingi Framsóknarflokksins á Vestfjörðum.
Forsœtisráðherra kom sjálfur í veg fyrirmótmœlaályktungegnradarstöðinni. Tveirflutningsmannagenguaffundi.-
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum samþykktimótmceligegnradarstöðinni. Radarstöðvarnar víðarrœddar um helgina.
Mikil óánægja braust út á kjör-
dæmisþingi Framsóknar-
manna á Vestfjörðum sem haldið
var í Bolungarvík nú um helgina.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra breytti tillögu frá
11 fundarmönnum um andstöðu
við staðsetningu radarstöðvar á
Vestfjörðum og fundarstjórinn,
Benedikt Kristjánsson bæjar-
fulltrúi úr Bolungarvík ákvað
einhliða að bera tillöguna upp
eins og forsætisráðherra vildi.
Tveir flutningsmanna þeir
Heiðar Guðbrandsson og Guð-
mundur Jónas Kristjánsson
gengu út af fundinum í mótmæla-
skyni við málatilbúnað þennan.
Ys og þys varð uppi á fundinum
og engin tillaga um þessi mál var
afgreidd.
Á kjördæmisþinginu voru 40
manns þannig að 11 þeirra stóðu
að tillögunni. Með breytingartil-
lögu Steingríms og afgreiðslu
radarstöðvarsinnans Benedikts
Kristjánssonar á henni reyndi
aldrei á meirihlutann. „Ég tel að
tillaga okkar hefði verið sam-
þykkt ef breytingartillagan hefði
eicki komið fram“, sagði Dag-
björt Höskuldsdóttir útibússtjóri
í Tálknafirði og einn flutnings-
manna í viðtali við Þjóðviljann
um þetta mál. Aðrir bentu og á,
að þar sem engin tillaga hefði ver-
ið samþykkt á þessu kjördæmis-
þingi, gilti um þetta ályktun frá í
fyrra, þar sem andstaða við rad-
arstöð væri undirstrikuð.
Um sömu helgi var kjördæmis-
ráðstefna Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum haldin á ísafirði.
Þar var samþykkt mótmælaálykt-
un við radarstöð einróma. Á að-
alfundi Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi var mótmælaályktun
" Herinn
Vellinum lokað fyrir
friðarráðstefnunni
Hvergi verið neitað um aðfara inn í herstöð nema á Islandi ogí Sovétríkjunum,
sagði Carl Gustav Jacobsen. Bandaríkjamennirnir fengu ekki að sjá
hvernig skattpeningum þeirra er varið.
Mér hefur hvergi verið neitað
að fara inn í herstöð nema í
Sovétríkjunum og hér á íslandi,
sagði Carl Gustav Jacobson pró-
fessor við Miami háskóla í Flor-
ida, eftir að fulltrúum á ráðstefnu
Friðarsambands norðurhafa
hafði verið neitað uni að fara í
kynnisferð um Keflavíkurher-
stöðina.
Allt lögregluliðið á Keflavíkur-
flugvelli hafði verið kvatt út þeg-
ar rúta ráðstefnugesta kom að
Vallarhliðinu á sunnu-
dagsmorgun. Lögreglan lokaði
einnig veginum niður í Helguvík.
Útlendingunum fannst þessi við-
kvæmni hersins hin spaugilegasta
og var ekki laust við að það mætti
ráða af fasi íslensku lögreglu-
mannanna að þeim þætti hún
Brunablettirnir
Ráðnar
aftur
Sjólastöðvarmenn
báðust afsökunar og
réðu stúlkurnar aftur
Á fimmtudaginn voru tvær
stúlkur reknar úr vinnu á Sjóla-
stöðinni i Hafnarfirði vegna
brunabletta í veggfóðri á kvenna-
klósetti. Þær hafa nú verið
ráðnar aftur.
Ábending sem verkstjórar
fengu um skaðvaldana reyndist
haldlaus og voru hinar brott-
reknu beðnar afsökunar og
ráðnar aftur. Þær stúlkur sem
fóru með þeim úr húsi á
fimmtudag eru allar komnar aft-
ur í vinnu, - en strákarnir tveir
sem reknir voru um svipað leyti
og stúlkurnar vinna hinsvegar
ekki lengur í Sjólastöðvarfiski og
halda verkstjórar því fram að
brottrekstur þeirra hafi verið
þessu máli óviðkomandi. -m
kyndug líka.
Þegar þess var fyrst farið á leit
við hernaðaryfirvöld á Vellinum
að ráðstefnugestir fengju að fara í
hefðbundna kynnisför um her-
stöðina var tekið vel í það. Var
rætt um að hópurinn fengi að sjá
vídeósýningu hjá blaðafulltrúa
hersins, síðan yrði farið með
Verð á kartöflum lækkaði í
gær. Kartöflubændur fá nú
um helmingi lægra verð fyrir
uppskeru sína því sex manna
nefndin hefur ákveðið nýtt
bráðabirgðaverð þangað til
endanlegt haustverð kemur á
kartöflur. Heildsöluverð Græn-
metisverslunarinnar hefur verið
32 krónur til verslana en lækkar
nú í 19,23 krónur fyrir kflóið.
Sex manna nefndin hefur
ákveðið verð til bænda sem nem-
ur 17 krónum fyrir kíló af 1.
flokki en það eru kartöflur yfir
ákveðinni lágmarksstærð. Áður
fengu þeir 30 krónur fyrir kílóið.
hann í bílferð undir stjórn
leiðsögumanns og loks gæfist
tækifæri til þess að leggja fram
nokkrar spurningar. Þegar stað-
festa átti þessa Vallarför var ann-
að hljóð komið í strokkinn og
upplýstu hernaðaryfirvöld það,
að herinn hefði ekki áhuga á að
hitta þetta fólk og það gæti
Fyrir smærri kartöflur fá þeir nú
13 krónur í stað 25 króna fyrir
kílóið.
„Þetta er bráðabirgðaverð
þangað til endanlegt haustverð
verður ákveðið og það er líklegt
að meðalverð á kartöflum verði
ekki fjarri þessu í haust“, sagði
Ingi Tryggvason formaður Stétt-
arsambands bænda sem situr í 6
manna nefndinni og er stjórnar-
formaður Grænmetisverslunar
landbúnaðarins. „Uppskeran er
fljótt á ferðinni í ár og komið að
því að menn vilja fara að taka
upp. Þá hefur verðið ávallt verið
lækkað. Endanlegt haustverð
skoðað „basana“ í eigin Iöndum.
Bandaríkjamennirnir sem sóttu
ráðstefnuna vildu halda því fram
að þeir hefðu að minnsta kosti
rétt á því að aðgæta hvernig
þeirra skattpeningum væri varið í
herstöðinni. Þeim rökum var
einnig hafnað.
kemur aftur á móti ekki fyrr en
hægt verður að flokka kartöflur
eftir stærð og gæðum. Það verður
gert í september en ekki er hægt
að bjóða kartöflunum meðferð
flokkunarvélanna um leið og þær
koma úr garðinum“ sagði Ingi
Tryggvason.
Gunnlaugur Björnsson for-
stjóri Grænmetisverslunarinnar
sagði Þjóðviljanum í gær að mjög
sæmileg sala hafi verið á kart-
öflum þeirra í ágúst. Þær komu á
markað 1. ágúst en venjulega
hafa nýjar íslenskar ekki komið
fyrr en um 20 ágúst í sölu.
-jP
-ekh
Rútan með fulltrúum og fyrirlesurum á ráðstefnu Friðarsambands norðurhafa var stöðvuð í Vallarhliðinu. Ekki fékk hún
að fara niður í Helguvík heldur, en þrátt fyrir rigningarveður var gott útsýni inn á Völlinn og til tóla hersins og þótti
Suðurnesjaferðin fróðleg.
Kartöflur
Helmings verðlækkun
við staðsetningu radarstöðvar á
Norð-Austurlandi felld með
naumum (þriggja atkvæða)
meirihluta. Á friðarráðstefnunni
í Félagsstofnun í Reykjavík var
nokkuð fjallað um radarstöðvar
og þýðingu þeirra í hernaðarneti
stórveldanna.
-óg
Sjá bls. 3.
ísafold
Sveinn R.
meðal
hluthafa?
Hulduherinn
tengist
ísfilm
Sveinn R. Eyjólfsson stjórnar-
formaður Frjálsrar fjölmiðlunar
mun einnig vera meðal hluthafa í
málgagni Hulduhersins, ísafold,
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans.
Sveinn R. Eyjólfsson er út-
gáfustjóri DV, og einn aðal hlut-
hafa Frjálsrar Fjölmiðlunar.
Hann tengist þannig fleiri blöð-
um og tímaritum. Þá er á að
minna að Frjáls fjölmiðlun á hlut
í ísfilm sem stærstu fyrirtæki á
íslandi mynda. Þannig tengist
ísafold ísfilm, samkvæmt heim-
ildum Þjóðviljans.
-«g
Námsmenn
Stærsta
skerðing
til þessa
Stúdentar hóta
Ragnhildi
aðgerðum
„Með afstöðu sinni og augljósu
viýaleysi til að leysa fjárhags-
vanda Lánasjóðs íslenskra náms-
manna, ber menntamálaráð-
herra ábyrgð á einni stærstu
skerðingu sem námsmenn hafa
mátt þola til þessa“ segir í afar
harðorðri ályktun frá Stúdenta-
ráði Háskóla íslands.
í ályktuninni er ríkisstjórnin og
menntamálaráðherra fordæmd
sérstaklega fyrir afnám víxillána
til 1. árs nema og kallað „ein gróf-
asta aðför að LÍN og náms-
mönnum, sem gerð hefur verið
lengi", enda stangist hún á við þá
grundvallarhugsun að allir hafi
jafnan rétt til náms, óháð efna-
hag, búsetu eða kyni. í lok álykt-
unarinnar segir: „Stúdentar hafa
verið seinþreyttir til vandræða en
við svo búið verður ekki lengur
unað“.
—óg