Þjóðviljinn - 28.08.1984, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 28.08.1984, Blaðsíða 6
NSKÓLI SIGURSVEINS D KRISTINSSONAR Innritun og greiösla námsgjalda fyrir haustönn verður þriöjudaginn 28., miðvikudaginn 29., fimmtudaginn 30. og föstudaginn 31. ágúst kl. 15 til 19, að Hellu- sundi 7, alla dagana. Nemendur sem sóttu um framhaldsskólavist á síðast- liðnu vori þurfa að staðfesta umsóknir sínar með greiðslu námsgjalda fyrir 1. september. Eftir það falla úr gildi þær umsóknir sem ekki hafa verið staðfestar og verða þá nýir nemendur innritaðir í stað þeirra umsókna. Upplýsingar um stundarskrárgerð og fl. verða veittar við innritun. Ekki verður svarað í síma á meðan á innritun stendur. Skólastjóri Kennarar - Kennarar Kennara vantar að grunnskóla Eyrarsveitar Grundar- firði. í skólanum eru 140 nemendur, frá forskóla og upp í 9. bekk. Skólinn er að stórum hluta í nýlegu húsnæði með sérkennslustofum og góðu skólasafni. í Grundarfirði búa liðlega 700 manns. Húsnæði er fyrir hendi. Æskilegar kennslugreinareru: Enska, danska, stærð- fræði, eðlisfræði, kennsla yngri barna og kennsla í athvarfi. Upplýsingar gefur skólastjóri Gunnar Krist- jánsson í síma 93-8619 - 8695 eða 8802. Frá Flensborgarskóla Flensborgarskólinn tekur til starfa mánudaginn 3. september n.k. Nýir nemendur komi í skólann kl. 10. Eldri nemendur komi kl. 13.30. Þann dag verða afhentar stundatöflur og innheimt nemendagjald að upphæð kr. 1.000,- fyrir skólaárið. Kennarafundur verður í skólanum föstudaginn 31. ág- úst kl. 9. Skólastjóri Kvennaskólinn í Reykjavík Skólinn verður settur mánudaginn 3. september kl. 9 (þá verða afhentar stundaskrár og bókalistar gegn greiðslu skólagjalds kr. 800.-). Kennsla hefst þriðjudaginn 4. september samkvæmt stundaskrá. Skólastjóri Vonarland - Sambýli Egilsstöðum Vegna opnunar Sambýlisins á Egilsstöðum eru laus til umsóknar nokkur pláss til langtímavistunar fyrir fatl- aða á Vonarlandi og Sambýlinu að Stekkjartröð 1, Egilsstöðum. Umsóknir sendist til Svæðisstjórnar Austurlands um málefni fatlaðra, fyrir 10. september n.k. !S! BORGARSPÍTALINN !S! — *•< r+ -n 'I' 'I' Sendill Óskum eftir að ráða lipra manneskju til sendiferða innanhúss sem fyrst. Upplýsingar um starfið veitir Brynjólfur Jónsson í síma 81200 — 368. Auglýsið í Þjóðviljanum 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. ágúst 1984 HEIMURINN meirihluta nema í samkrulli við Le Pen. En ef forystumenn Gaul- lista og Giscard-sinna hafna allri samvinnu við hægri öfgamann- inn, þannig að styrkur þeirra á þinginu takmarkast við þessa 24 þingmenn, eru þeir búnir að gera marklausan þann háværa áróður, sem hefur verið kjarninn í mál- flutningi þeirra undanfarnar vik- ur og mánuði, að þeir séu komnir í mikinn meirihluta og allt fylgi hrunið af vinstri flokkunum. Þjóðernissinnar Korsíku fengu nú sex þingmenn kjörna, og urðu úrslitin mikill ósigur fyrir sjálf- stjórnarsinna, sem töpuðu miklu fylgi og fengu aðeins þrjá þing- menn í stað sjö áður, en talsverð- ur sigur fyrir sjálfstæðissinna, sem buðu fram í fyrsta skipti og fengu einnig þrjá þingmenn. Óvíst er að svo stöddu hvaða af- stöðu þjóðernissinnar taka á þinginu. Eftir þessi kosningaúrslit óttast menn að Korsíkuþing verði „patt“ eins og áður og við taki aftur upplausn, flokkadrættir og „ættbálkarígur". En niðurstaðan er samt nokkuð uppörvandi fyrir vinstri flokkana. e.m.j. Kínverjar leita að „apamanni“ En Sovétmenn efast nú um að hann sé til... Mikill eltingaleikur er nú á döfinni í Kína, því að í haust á að reyna að handsama hinn dularfulla „apamann" eða „snjómanninn ógurlega“ eins og hann er stundum kailaður. Fyrst um sinn verða veiðarnar takmarkaðar við miðhéröð Kína, Hunan, Guizhou og Gu- angxi, og fær hver sá sem get- ur handsamað apamann lif- andi 10.000 yuan, eða um 157.000 krónur, í verðlaun, en helmingi minna ef um hræ er að ræða. Síðar verða einnig gerðar tilraunir með slíkar veiðar í öðrum héröðum, þar sem menn telja sig hafa séð apamenn, svo sem Hubei og Yunnan og að sjálfsögðu Tí- bet, þar sem fornar heimildir eru til um „snjómanninn ógur- lega“ eða yeti. Kínverjar líta málið mjög al- varlegum augum. Árið 1981 stofnuðu þeir félag til að rann- saka apamanninn, og var þá haf- ist handa um að safna saman öllum „sönnunum" og vitnis- burði um tilveru þessarar dular- fullu skepnu. í janúar 1983 hafði dagblað í Shanghai það eftir ein- um framámanninum í félaginu að 300 sjónvitni, þar á meðal margir vísindamenn, hefðu séð apa- menn undanfarin ár, og hefðu leiðangrar fundið 2000 spor, sem eignuð væru apamönnum. Ein skaðsöm skepna Frásagnir vitnanna eru svo ná- kvæmar að kínversk blöð hafa getað birt lýsingar á apamannin- um. Samkvæmt þeim er hann mjög hávaxinn (um tvo metra á hæð), alþakinn gráum eða brún- um hárum, sem geta verið um 12 sm á lengd, með 35 sm langa il og einhvers konar klær. Apamaður- inn er að sögn mjög sterkur en ákaflega fælinn og kastar gjarnan steinum á þá sem reyna að nálg- ast hann. Einnig er sagt að hann sé auðþekkjanlegur úr talsverðri fjarlægð vegna þess megna þefs sem af honum er. Telja Kínverjar að þessi vera sé millistig milli órang-útan apa og manna. Ýmsar sögur eru til um sam- skipti apamanna og mennskra manna: Tíbetbúi að nafni Poqu skýrði nýlega frá því að apakona hefði komið í heimsókn í kofann til hans að kvöldlagi og reynt að nauðga honum en lagt á flótta vegna neyðarópa hans. Á sama hátt átti ung bóndakona í Hubei fótum fjör að launa þegar síð- hærður og tveggja metra hár apa- maður reyndi að fá hana til lags við sig. Árið 1960 dó ungur mað- ur, sem talinn var vera afkom- andi apamanns og bóndakonu. Þeir sem trúa á tilveru apa- manna hafa á reiðum höndum skýringu á því hvernig þeir hafi getað lifað í einangrun á þessum slóðum öldum og jafnvel árþús- undum saman: í vesturhluta Hu- bei er fjallið Shennungjia, og á hásléttunni umhverfis það er mikill fjöldi af æfafornum dýra- og jurtartegundum, sem eru löngu horfnar á öllum öðrum stöðum á jörðinni. Það er á þess- um stað sem mestar heimildir eru til um apamenn, og telja Kínverj- ar að þeir hafi getað lifað þar í hellum í óratíma. Á fundi sem nýlega var haldinn í Félaginu til rannsóknar á apamönnum var einmitt skýrt frá því að slíkir hell- ar hefðu nýlega fundist. Sovétmenn vantrúaðir En meðan verið er að undirbúa þessar miklu apamannaveiðar í Kína kveður við annað hljóð í So- vétríkjunum. Eftir að hafa boðað það árum saman að „snjómaður- inn ógurlegi“ sé til í raunveruleik- anum snúa sovéskir vísindamenn nú við blaðinu: „Snjómaðurinn er ekki til“ fullyrti Vadim Ranov, sérfræðingur frá Pamir, nýlega. Hélt hann því fram að enginn hefði nokkurn tíma getað fundið minnstu verksummerki um snjó- manninn í Pamír eða í Himalaja- fjöllum, hvorki bein né annað, og hin svokölluðu „spor snjó- manna“ væru af öðrum uppruna. Ranov hafnaði einnig með öllu þeirri kenningu að snjómaðurinn gæti verið afkomandi Neander- thals-manna, því hún væri í alg- erri andstöðu við allt sem vitað væri um þróun mannsins. Vadim Ranov taldi að lokum að allur vitnisburður um apamenn væri ávöxtur taumlauss ímyndunar- afls. Fyrir þremur árum vakti það þó miida athygli, þegar málgagn æskulýðssamtaka sovéska kom- múnistaflokksins, Komsomol- skaya Pravda, skýrði frá því að leiðangursmenn í Pamir hefðu rekist á apamann í fjöllunum þar. Greinilegt er að Sovétmenn og Kínverjar geta ekki einu sinni haldið apamanninum utan við deilur sínar... (eftir Libération).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.