Þjóðviljinn - 28.08.1984, Side 9
SUMARFERÐ
Þórður Skúlason les um Reynisstaðabræður við varðeldinn.
Slappað af á Hveravöllum.
Sumarferð AB á Norðurlandi
vestra var að þessu sinni farin á
Kjöl og að Hvítárvatni um versl-
unarmannahelgi. Vestur-
Hún vetningar skipulögðu ferðina
undir forystu Sverris Hjalta-
sonar, rafvirkja og tókst hún með
ágætum, þótt þátttaka væri að
Oft myndi reimt á Kili
en ekki í þetta sinn
vísu nokkuð dræm úr austan-
verðu kjördæminu.
Fyrst var farið um virkjunar-
svæði Blöndu og gerði Haukur
Hafstað grein fyrir legu væntan-
legs uppistöðulóns og tilhögun
virkjunarinnar, en hann hefur í
sumar haft eftirlit með fram-
kvæmdum af hálfu Náttúru-
vemdarráðs.
Síðan var haldið til Húnavalla
og þaðan að Hvítárvatni. Veður
var ágætt á fyrsta og seinasta degi
en nokkuð rigndi á sunnudegin-
um þegar farið var í Kerlingar-
fjöll.
Við Hvítárvatn var kveiktur
eldur af nokkrum fúadrumbum
sem hafðir voru með í för og efnt
til kvöldvöku. Svo vel vildi til, að
einn helsti forvígismaður ferða-
mála í Skagafirði, Ingólfur Niko-
demusson, var með í för og félst á
að miðla af sínum mikla fróðleik
um öræfi landsins.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
hluta af hópnum við eldinn hlýða
á Þórð Skúlason lesa um hinstu
för Reynisstaðabræðra.
RA
Og ekki var kaffið forsómað.
|
Veðrið á hálendinu lék við ferðalangana.
Leiðrétting
Púkinn
ætlaði
að aðstoða
ríkis-
stjórnina
Stundum er einsog allir árar
glepjist til að hjálpa ríkisstjórn
Islands. í þann andskotaflokk
bættist prentvillupúki Þjóðvilj-
ans í Innsýnargrein um helgina.
Niður féllu línur og púkinn dikt-
aði upp launahækkun almúga-
manna - og hefði betur verið satt
að laun hefðu hækkað um 44% en
18%.
Umræddar prentvillur eru í
öðrum dálki þessarar greinar
fyrir miðju. Rétt er setningin
þannig: „Eða hvað kallar maður
þá staðreynd sem BSRB hefur
bent á að frá 1. mars 1983 til 1.
mars 1984 hafa laun hækkað um
18%, meðan heita vatnið í
Reykjavík hækkaði um 137%,
bensínið hækkaði um 44%,
síminn um 49%“ o.s.frv.
Þannig varð verðhækkun á
bensíni að launahækkun fólks og
púkinn vildi fela hækkunina á
heita vatninu - 137%. En nú er
þetta vonandi komið til skila. -óg
Við veitum
• /
m. m mmm. iwar mm m m ma
“n allt lan<
onustu
Samvinnubankinn er ávallt skammt undan
Samvinnubankinn starfrækir 19 afgreiðslustaði um land allt,
sem tryggja viðskiptavinum fjölþætta þjónustu. Auk almennra bankaviðskipta annast
Samvinnubankinn gjaldeyrisþjónustu við ferðamenn og námsmenn í flestum útibúum sínum.
Einnig er hægt að opna innlenda gjaldeyrisreikninga í sömu afgreiðslum.
Samvinnubankinn afgreiðir einnig VISA-greiðslukort, en þau eru útbreidd um allan heim.
Samvinnubankinn leggur áherslu á persónuleg samskipti í heimilislegu umhverfi.
Samvinnubankinn
Útibú í öllum landsfjórðungum