Þjóðviljinn - 28.08.1984, Qupperneq 13
U-SIÐAN
Ætlar að verða
eðlisfræðingur
Það eru ekki margir sex ára
krakkar sem geta státað sig af
því að vera í „alvöru" vinnu.
Viðmælandi okkar í dag getur
það þó. Hann heitir Heimir
Magni Hannesson og er sex
ára en er að verða sjö.
Það sem Heimir er að gera
þessa dagana er að vinna á lager
með pabba sínum. Og hvað ætli
sex ára strákur geri í lagervinnu?
Heimir sagðist vera að raða
kössum og ýmsu dóti í hillur, svo
sagðist hann hjálpa henni Jónínu,
mat- og kaffíkonu staðarins.
Hann er að bera fyrir hana kaffið
og kókið og stússast ýmisiegt. Og
launin eru kók og eitthvað meira.
„Þetta er ofsalega gaman og ekk-
ert erfitt.“
Heimir sagði að hann byggi í
Mosfellssveit og hann hefur alltaf
átt heima þar og hann vildi ekki
flytja þaðan, „að fara frá öllum
vinum mínum, nei alls ekki.“
Hann og vinir hans ieika sér í
bflaleik, með pleymódót og
margt fleira. Hann sagði að rétt
þar sem þeir eiga heima, þar er
lækur, ekkert djúpur, og þar væri
ýmislegt hægt að gera. Nú til
dæmis að vaða í stígvélunum, svo
smíðuðu þeir fleka og eru að láta
hann sigla. Að vísu gekk það
svona og svona en var þó gaman,
sagði Heimir. Á veturna sagði
hann að þeir væru alltaf uppi á
fjalli, þ.e. fyrir ofan þar sem þeir
eiga heima er lítið fjall og er til-
valið til þess að renna sér á snjó-
þotu og vera í bflaleik eða hvað
sem er.
Heimir sagði að hann hafi átt
hund sem hét Kátur. Hann var
orðinn svo gamall og veikur að
hann dó. „Það var þannig að þeg-
ar ég var farinn að sofa þá varð
hann mjög veikur, og dýralækni-
rinn kom, og þegar ég vaknaði
daginn eftir þá var hann dáinn.
Við jörðuðum hann í garðinum
okkar og ég smíðaði kross á leiðið
hans. Eg sakna hans mikið en
þegar ég verð stór þá ætla ég að fá
mér annan hund og skíra hann
Kát.“
Heimir verður sjö ára í nóv-
bember og þá verður hann byrj-
aður í skóla. Hann var í sex ára
bekk í fyrra og lærði þá að skrifa
stafina en næsta vetur ætlar hann
að læra að lesa og skrifa. Fram-
tíðaráætlunin er að fara í
Menntaskólann við Sund og síð-
an í Háskólann og læra eðlisfræði
svo hann geti unnið í sama her-
bergi og bróðir sinn. Síðan ætlar
hann að verða lögga og flugmað-
ur svo hann geti farið til útlanda.
Það má segja að þessi ungi
maður hafi tiltölulega ákveðna
skoðun um framtíðina og þá er
bara að óska honum góðs gengis.
HS
Við smíðuðum fleka en hann fór nú svona og svona. Mynd:eik.
Minnisleikur
Skoöið þessa mynd nákvæmlega í eina mínútu, flettið svo síð-
unni og athugið hversu marga hluti þið munið.
Þessi leikur fyrir tvo er einskonar veiðiferð. Þið eigið aö strika
eftir línunum í sömu átt og örvarnar snúa og veiða sem flesta fiska.
Með því að leggja saman númerin á þeim fiskum sem þið veiðið
sjáið þið hvor er meiri veiðikló.
Þriðjudagur 28. ágúst 1984 ÞJÓÐViLJINN - SÍÐA 17