Þjóðviljinn - 08.09.1984, Side 3
FRETTIR
Samningar
Koma Blaðaprentsblöðin út?
Þjóðviljinn, Tíminn og Alþýðublaðið sem eru utan VSÍ bjóða prenturum sérsamning
eftil verkfalls kemur. Allar líkur áverkfalli, segirformaður Félags bókagerðarmanna
Fulltrúar Félags bókagerðar-
manna áttu í viðræðum í allan
gærdag við útgefendur Alþýðu-
blaðsins, NT og Þjóðviljans um
gerð sérstaks kjarasamnings fyrir
starfsfólk í Féiagi bókagerðar-
manna á þessum fjölmiðlum.
Áðumefnd blöð eiga ekki að-
ild að Vinnuveitendasamband-
inu. Á fundum þeirra með bóka-
gerðarmönnum í gær kom m.a.
fram að þau em tilbúin með
samning sem gildi fyrir prentiðn-
aðarfólk á blöðunum verði af
boðuðu verkfalli prentara á
miðnætti annað kvöld. Slíkur
samningur gilti einungis meðan á
verkfallinu stæði og tryggði út-
komu þessara blaða. Samkvæmt
heimildum blaðsins var m.a. rætt
á fundunum í gær um 9% hækkun
á gmnntöxtum og 6% hækkun á
sérkj arasamningum.
MagnúsE. Sigurðsson formað-
ur Félags bókagerðarmanna
staðfesti í samtali við Þjóðviljann
í gær að félagið hefði staðið í við-
ræðum við áðurnefnd blöð í gær.
„Menn hafa verið að ræðast við
óformlega en lengra nær það
ekki. Þetta hefur ekki einungis
verið bundið við Blaðaprents-
blöðin, það hafa fleiri aðilar verið
í þreifingum við okkur“, sagði
Magnús.
Ríkissáttasemjari hefur boðað
prentara og útgefendur til fundar
í dag kl. 14 en ekkert nýtt hefur
komið fram á þeim samninga-
fundum og almennt búist við að
til boðaðs verkfalls prentara
komi á miðnætti annað kvöld.
„Maður er frekar vondaufur á að
samningar náist fyrir þann tíma“,
sagði Magnús E. Sigurðsson í
gær.
Félag bókagerðarmanna held-
ur almennan félagsfund í Iðnó kl.
14 á morgun, sunnudag, þar sem
staðan í samningamálunum verð-
ur rædd. Að loknum þeim fundi
munu fulltrúar félagsins eiga
fund með útgefendum Blaða-
prentsblaðanna og er alls ekki
útilokað að bráðabirgða-
samkomulag takist á þeim fundi
fyrir þau blöð.
-lg-
Álsamningur
Engar tölur gefnar upp
Samningamenn ríkisstjórnarinnar hœstánœgðir. „Vel yfir 14 mills“.
Enginn samningur um raforkuverð til nýs álvers. Deilumálin lögð í salt?
r
Eg er eftir atvikum ánægður,
sagði Jóhannes Nordal, for-
maður samninganefndar ríkis-
stjórnarinnar þegar hann kom
ásamt fylgdarliði sínu frá Am-
sterdam síðdegis í gær. í töskunni
hafði Jóhannes rammasamning
um raforkuverðið og deilumálin
við Alusuisse en um innihaldið
vildi hann ekki frekar ræða.
„Ég er mjög ánægður, þetta
var mjög árangursrík ferð“, sagði
Guðmundur G. Þórarinsson.
„Þegar tölurnar verða birtar
munu menn sjá hvaða árangri
nokkurra mánaða vinna fárra
manna hefur skilað. Það varð
samkomulag um að skýra ekki frá
niðurstöðunum og ég get aðeins
sagt að það er vel yfir 14 mills“.
Jóhannes Nordal sagðist nú
myndu kynna forsætisráðherra
samkomulagið en iðnaðarráð-
herra er erlendis. í framhaldi af
því mun ríkisstjómin og stjóm
Alusuisse fjalla um það og bjóst
Jóhannes við að ekkert yrði gert
opinbert um innihaldið fyrr en
eftir viku til 10 daga. Eftir væri að
koma samkomulaginu í samn-
ingsbúning og yrði haldinn annar
fundur í október.
Því hefur verið fleygt að samið
hafi verið um tvenns konar raf-
orkuverð, - eitt fyrir gömlu ál-
bræðsluna og annað og hærra
fyrir stækkað álver í Straumsvík.
„Það var aðeins samið um gömlu
álbræðsluna", sagði Jóhannes,
„það er óraunhæft að semja um
raforkuverð til nýrrar bræðslu
þar sem gagnaðilann vantar". Á
hann þar við nýjan eignaraðila,
sem Álusuisse hefur gert kröfu
um að komi inn í byggingu nýs
álvers. _ÁI
FRÉTTASKÝRING
Álsamningurinn
Hvaða verði
er hann
keyptur?
Þegar menn koma úr samning-
aviðræðum jafn ánægðir og
samningamenn ríkisstjórnarinn-
ar við Alusuisse eru nú, hlýtur
þeim að hafa orðið vel ágengt.
„Þetta vr mjög árangursrík ferð“
sagði Guðmundur G. Þórarins-
son í samtali við Þjóðviljann og af
svipbrigðum manna á Keflavík-
urflugvelli hlýtur maður að
álykta að þeir hafi náð samning-
um um a.m.k. 18-20 mills sem er
lágmarksframleiðsluverð á raf-
orku frá Landsvirkjun. Það er
enda ekki óeðlileg lending eftir að
forsætisráðherra hefur lýst því
yfir að 17-18 mills sé algert lág-
mark og iðnaðarráðherra hefur
tekið undir það.
í þessu sambandi er rétt að rifja
upp hvað viðhorf almennings og
stjórnmálamanna hafa breyst
varðandi raforkuverðið frá því
Hjörleifur Guttormsson, þáver-
andi iðnaðarráðherra setti fyrst
fram kröfuna um leiðréttingu á
því haustið 1980. Fram að þeim
tíma hafði enginn maður orðað
slíkt heldur fremur látið að því
liggja að það væri nálægt réttu
lagi eins og það þá var, 6,5 mills.
Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og engum dettur lengur í
hug að bjóða almenningi upp á
samning sem er lægri en 18 mills.
Þar spilar inní vitneskjan um
Ghana-samninginn upp á 17,5
mills, gríski samningurinn upp á
20,5 mills og sú staðreynd að
meðalframleiðsluverð Lands-
virkjunar er nálægt 20 mills.
Ástæðan er sú að almenningur
var fram til síðustu kosninga vel
upplýstur um þessi mál og fylgist
grannt með framvindu þeirra
ennþá, þrátt fyrir þann leyndar-
hjúp sem núverndi ríkisstjóm
hefur reynt að sveipa viðræðum-
ar. Það sást best á viðbrögðunum
við því þegar Gunnar G. Schram
glopraði tölunni 14 mills út úr sér
í viðtali við fréttamann sjónvarps
í fyrri viku. Almenningur á kröfu
á því að vita nákvæmlega um
hvað var samið í Amsterdam og
það strax. Þangað til hljóta menn
að draga ályktanir af einstaka
orðum og jafnvel svipbrigðum
samningamanna eins og nefnt er
hér að framan.
Eftir er aðeins að vita hvaða
verði samningurinn hefur verið
keyptur en rammasamkomulagið
tekur einnig til deilnanna við Al-
usuisse um hækkun í hafi og
skattsvikanna á liðnum ámm.
Með sigurbros á vör: Guðmundur G.
Þórarinsson við komuna til Keflavík-
ur■ Ljósm. - Atli.
Jóhannes Nordal varðist allra frétta á Keflavíkurflugvelli en í töskunni góðu er
nýr samningur við Alusuisse um raforkuverðið, hækkun ( hafi og skattamálin.
Ljósm.-Atli.
Menn hljóta að spyrja hvort gef-
ist hafi verið upp í skattadeilunni
þar sem kröfur fyrrverandi ríkis-
stjórnar voru um 10 miljón doll-
ara endurgreiðslur eða á fjórða
hundmð miljón íslenskra króna.
í því sambandi er rétt að rifja upp
að s.I. vor tók iðnaðarráðherra af
öll tvímæli á alþingi um að skatta-
kröfunni yrði ekki stungið undir
stól. Hann myndi aldrei fallast á
annað en að þau mál gengju til
dóms. Menn hljóta líka að spyrja
hvort skattaákvæðunum hafi ver-
ið breytt, - kannski eins og gert
var 1975 þegar samið var um raf-
orkuverðshækkun en skatta -
ák væðum breytt þannig að tekjur
ríkisins af álverinu urðu minni
eftir en áður! Og menn hljóta að
spyrja hvort Alusuisse hafi verið
gefið vilyrði um stækkun álvers-
ins í kaupbæti og hvort ákvæðun-
um um kaupskyldu ísals af
Landsvirkjun hafi verið breytt.
Við þessum spumingum fást eng-
in endanleg svör fyrr en leyndar-
hjúpnum hefur verið létt, en fyrr
er ekki hægt að leggja heildarmat
á dæmið, hversu hátt sem rafork-
uverðið er.
Menn hljóta að vona að samn-
ingamennimir frá Amsterdam
hafi komið heim með samninga
um 18-20 mills fyrir raforkuna án
þess að slaka nokkuð á kröfum
um endurgreiðslur skatta eða
gefa Alusuisse frekari ívilnanir.
Til þess áttu þeir að hafa fulla
burði þar sem samningsstaða ís-
lands er sterk. -ÁI
Laugardagur 8. september 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3