Þjóðviljinn - 08.09.1984, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 08.09.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI Spilaborg formannanna: Stðri vandinn er eftir Eftir margra vikna viðræður hafa forystumenn ríkisstjórnarflokkanna sett saman loforðalista sem á engan hátt snertir lausnir á hinum raunverulegu vandamálum í íslensku efnahagslífi. Tilkynning bankakerfisins um að peningamálin væru komin í svo stóran hnút að loka yrði á öll ný lán og framlen g ingar afhjúpaði rækilega þá spilaborg sem Þor- steinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson hafa verið að búa til. Á lista formannanna eru nokkrar sjálfsagðar lag- færingar á stimuðu kerfi sem fyrir löngu hefði átt að framkvæma ef stjórnarflokkarnir sjálfir hefðu ekki komið í veg fyrir þær. Þessar breytingar gera þó ekki stórt hvað snertir bætt lífskjör eða traustara efnahagslíf. Afgangurinn í þessari spilaborg erætt- aður úr smiðju markaðskreddunnar og mun ein- göngu hækka verð á nauðsynjavörum almennings og gefa gróðaöflunum lausan tauminn. Það sýnir hins vegar vel skipbrot ríkisstjórnarinn- ar í glímunni við hin raunverulegu efnahagsvand- amál að í skrautlistanum er ekkert að finna um leiðir út úr hinu stóra strandi sem nú blasir við. Þjóðviljinn birtir í dag fréttir um að viðskiptahali- inn á þessu ári stefni í 4000 miljónir króna. Hallinnl á vöruversluninni gagnvart útlöndum hefur á fyrstu sjö mánuðum þessa árs numið 2200 miljónum króna. Skuldastaða bankakerfisins er nú 3500 milj- ónir í mínus og nemur skuldin við Seðlabankann þar rúmum 2000 miljónum króna. Verslunin hefur dregið út úr bankakerfinu 5500 miljónir króna og hafa almennar lántökur kaupmanna og kaupfélaga aukist um 1800 miljónir króna á síðustu tóif mánuð- um. Sá hornsteinn efnahagsstefnunnar sem fólst í stöðvun erlendrar skuldasöfnunar er mölbrotinn. Eriendar skuldir stefna á þessu ári í 64% en í upphafi árs sagði fjármálaráðherrann að ríkis- stjórnin ætti skilyrðislaust að fara frá ef hlutfallið færi yfir 60%. Fyrir fjórum vikum vísaði hann því á bug sem vitleysu sem ekki gæti staðist að hlutfallið yrði svo hátt. Nú situr hann sjálfur með yfirlýsingu formannanna í höndunum. Þar segir að á næsta ári eigi Albert að koma hlutfallinu úr 62%-64% niður í 61%. Þetta eru nú alvörukarlar! Viðskiptahallinn og gífurleg skuldaaukning gagnvart útlöndum eru bara tvö af hinum mörgu stóru vandamálum sem duttu út af borðinu þegar verkefnalistinn var settur saman. Ekki er stafkrókur um hvernig eigi að tryggja hallalaus fjárlög eða koma saman fjárfestingar- og lánsfjáráætlun. Það er að vísu reynt að gera mikið úr 500 miljónum til nýsköpunar í atvinnulífinu en það eru nú bara smápeningar þegar verslunin skuldar bankakerf- inu tíu-sinnum hærri upphæð og skuldir bankanna aagnvart Seðlabankanum eru rúmar 2000 miljónir. rspilaborginni er heldur ekkert að finna um stóra strandið í peningamálunum og eflingu innlends sparnaðar á sama tíma og bankarnir loka á ný lán, refsivextirnir í Seðlabankanum eru komniryfir 50% og innlánabreytingin síðan „tímamótabreytingin", sem ríkisstjórin tilkynnti með álíka brambolti í júlí, hefur bara skilað 200 miljóna minnkun innlána! Þessi stóru og raunverulegu vandamál efnahags- kerfisins eru algerlega utan við skrautlistann. Ekk- ert er þar heldur um hinn mikla vanda atvinnuveg- anna en tapið í frystingunni er komið í 10%-16% af heildartekjum. Og auðvitað er heldur ekki stafur um hvernig eigi að bæta lífskjörin hjá almenningi. Því var lofað í fyrra að fórnin væri bara tímabundin og strax árið 1984 kæmi betri tíð fyrir launafólk. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur Hermannsson ættu að hætta þessum pappírsleik og snúa sér að hinum hrikalegu vandamálum efnahagslífsins. Ó-ÁLIT „Það er svo erfitt að fá einkaritara nútildags að það borgar sig ekki að vekja hana. Hún gæti móðgast og sagt upp.“ STOÞNUN KlklS UðÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson. Ðlaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur- dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurösson (íþróttir), össur Skarp- héðinsson. Liósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Útlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Bjömsson,Svava Sveinsdóttir, Þröstur Haraldsson. Handrit*- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Auglýslngastjóri: ólafur Þ. Jónsson. Auglýslngar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ðergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmi&ja Þjó&viljans hf. Prentun: Bla&aprent hf. Ver& í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskrlftarverð á mánu&i: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. september 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.