Þjóðviljinn - 08.09.1984, Side 10
TONLIST
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald-
dagi söluskatts fyrir ágúst mánuð er 15. september.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til launa-
® skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein-
dagi launaskatts fyrir mánuðina júní og júlí er 17.
september n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga
skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt
er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda aö greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og af-
henda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
f;rr. * I '
MIKIL VERÐLÆKKUN
Á DEMPURUM!!!
DÆMIUM VERÐ
FRAMDEMPARI í VW GOLF KR. 995
Auói
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahúsið á Húsavík óskar að ráða hjúkrunar-
deildarstjóra og hjúkrunarfræðinga í fastar stöður nú
þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir hjúkr-
unarforstjóri í síma 96-41333 alla virka daga.
Sjúkrahúsið á Húsavík S/F
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Jóhannes Dagbjartsson
bifvélavirki
Álfhólsvegi 43, Kópavogi
verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19,
mánudaginn 10. september n.k. kl. 13.30
Halldór Laufland Jóhanness. Rannveig Skaftadóltlr
Kolbrún Sigríður Jóhannesd. Guðmundur Sigurðsson
og barnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir
Magdalena Jósefsdóttir
Efstasundi 55
áður Stigahlíð 24
Verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. sept-
ember kl. 15. Jarðsett verður í kirkjugarðinum við Suöur-
götu. Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vilja minnast
hinnar látnu, er bent á líknarsjóði.
Hulda Valdimarsdóttir
Birgir Valdimarsson
Helga Valdimarsdóttir Elías Valgeírsson
Margrét Jónsdóttir
Píanótónleikar
Edith Picht-Axenfeld
Edith Picht-Axenfeld
Fyrstu tónleikar fyrir styrktarfé-
lagaTónlistarfélagsins voru
haldnir í Austurbæjarbíói þriðju-
daginn 4. september. Þýski pían-
óleikarinn Edith Picht-Áxenfeld,
prófessor við Stadlichen Hoch-
sciile í Freiburg, lék verk eftir
Mozart, Beethoven og Schubert.
Áður en tónleikarnir hófust
minntist Rut Magnússon for-
mannsTónlistarfélagsins, Ragn-
ars Jónssonar, sem er ný-látinn,
og bað áheyrendur að rísa úr
sætum í virðingarskyni við hinn
merka og göfuga forystumann ís-
lensks tónlistarlífs.
Það ætlaði ekki að blása byr-
lega fyrir frú Axenfeld í byrjun.
Píanóstóllinn reyndist vera ónot-
hæfur og eftir nokkrar tilraunir
frúarinnar til að stilla hann rétt,
gafst hún upp og fór út af sen-
unni. Þessu var kippt í lag með
því að koma með réttan stól, en
hinn hafði verið settur þama af
vangá. Þetta, og fleira sem angr-
aði bæði hlustendur og þó sér-
staklega píanóleikarann, varð ef
til vill til þess, að fyrstu verkin á
efnisskránni, fantasía í c moll, K
475 og sónata í c moll, K457, urðu
dálítið utangátta í meðferð lista-
mannsins. Það var vissulega
margt vel gert í þessum verkum,
en sérstaklega varð undirritaður
fyrir vonbrigðum með fyrsta þátt
sónötunnar. Þessi þáttur er mjög
sérkennilega skrifaður, því þar
skiptist á forte-sterkt og piano-
veikt og ekkert þar á milli, allan
þátt út. Axenfeld lét lönd og leið
fyrirmæli Mozarts um þetta
mikilvæga atriði og spilaði alveg
slétt og án teljandi styrkleika-
breytinga. Ekki einu sinni hinar
dramatisku áherslur í enda þátt-
arins fengu að vera með. Hægi
þátturinn var aftur á móti fallega
mótaður, en síðasti kaflinn ein-
kennilega órytmiskur á köflum.
Næst á efnissicránni voru tvö verk
eftir Beethoven, fantasía op. 77
og sónata í e moll op. 90. Axen-
feld gerði báðum þessum verkum
mjög góð skil, bæði frá tæknilegu
og músikölsku sjónarmiði. Sér-
staklega var túlkun hennar á són-
ötunni sannfærandi. Sama má
segja um síðasta verkið á efnis-
skránni, A dúr sónötu Schuberts,
sem er ein af þrem síðustu sónöt-
um hins mikla meistara. Axen-
feld fór fínlegum höndum um
verkið en þó hefðu mátt vera
meiri átök þar sem það átti við og
frá tæknilegu sjónarmiði var spii-
amennskan ekki alveg hnökra-
laus. Edith Picht-Axenfeld er
mjög merk listakona eins og hún
hefur áður sýnt hér heima. Hún
hefur tvisvar haft hér námskeið
fyrir nemendur og kennara, hald-
ið fyrirlestur um Schubert og spil-
að fyrir Musica Nova. Á þeim
tónleikum spilaði hún verk eftir
Schönberg, Lachenmann, Hol-
liger og Luigi Nono. Sérstaklega
fannst mér áhugavert verkið eftir
Nono en það er samið fyrir tón-
band og píanó. Edith Pitch-
Axenfeld var sannarlega í essinu
sínu á þeim tónleikum. Hún spil-
aði þessi flóknu verk með ágæt-
um- -R.S.
■N
UMBUOASAMKE PPNI
Umbúöasamkeppni Félags ísl. iönrekenda veröur nú haldin í
sjöunda sinn.
Samkeppnin er fyrir allar geröir umbúöa, svo sem flutningsumbúöir,
sýningarumbúöir og neytendaumbúöir. Veröa þær aö vera hannaöar
á íslandi og hafa komiö á markaö hér eöa erlendis. Allir ísfenskir
umbúöaframleiöendur og umbúöanotendur geta tekiö þátt í sam-
keppninni, svo og aðrir þeir sem hafa meö höndum gerö og hönnun
umbúöa. Einungis er leyfilegt aö senda inn umbúöir sem komiö hafa
fram frá því aö umbúöasamkeppnin fór síðast fram, eöa frá miöju ári
1981.
Fimm aöilar skipa dómnefnd og eiga sæti í henni formaöur Orrí
Vigfússon, fulltrúi Félags ísl. iönrekenda, Guöbergur Auöunsson frá
Félagi ísl. teiknara, Ragnar Guömundsson frá Kaupmannasamtökum
íslands, Siguröur Brynjólfsson frá Myndlista- og handíðaskólanum
og Steinar Haröarson frá Neytendasamtökunum.
Allar umbúöír sem sendar eru tíl þátttöku á aö afhenda í þremur
eintökum og skulu, ef unnt er, tvö þeirra vera meö innihaldi, en eitt
án innihalds. Fyrir sérstakar gerölr umbúöa má þó veita undanþágu
frá þessu skilyrði.
Umbúöirnar ásamt upplýsingum um nafn og heimilisfang þátttak-
anda, umbúöaframleiöanda, umbúöanotanda og þann sem hefur
séö um hönnun umbúöanna, skal senda til Félags íslenskra iönrek-
enda fyrir 15. október nk.
Ritari nefndarinnar er Þórarinn Gunnarsson, skrífstofustjóri FÍI, og
geta þátttakendur snúiö sér til hans með allar fyrirspurnir í síma
27577.^^
FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA
Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík.
UMBÚÐASAMKEPPNI