Þjóðviljinn - 08.09.1984, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 08.09.1984, Qupperneq 13
D/CGURTONLIST 1 Hvað er rokk og ról? Margir hafa spurt og aldrei linnir for- vitnum. En ætli það séu ekki til jafnmörg svör við þessari spurningu og þátttakendur þessa fyrirbæris eru margir, tíska og stíll breytast unnvörpum, rokkaðdáendur og gagnrýnendur halda áfram að hafa áhrif... og áhuga...? Margir hafa spáð rokki og róli bráðum dauða og enn höfum við slíka spámenn á meðal vor. Líkt og rokktónlistin sé eitthvert graftarkýli á andliti þjóðfélags; enn frekar hvíli hún á samvisku menningarinnar. Og það er ekki bara ljósgrái maðurinn sem vill stundum drepa rokkið með orð- unum einum saman, heldur og margir úr röðum rokkara. Chrissie Hynde, sú kona sem fjallað verður lítillega um hér, lét hafa eftir sér, að hún „spýti á rokk og ról“, ennfremur: „ég hata rokk og ról, það er hvort sem er dautt!“ Samt er hún enn að og ef hún fer ekki að hætta í bransanum hvað úr hverju er víst og klárt að nafn hennar og hljóm- sveitarinnar The Pretenders verður gert ódauðlegt í hinni skrítilegu sögu rokksins. Chrissie Hynde fæddist í Bandaríkjunum nánar í Akron í Ohio þann 7. september 1952 (sumir segja ’51). Gekk þar í Kent State University lista- skólann í 3 ár og vann jafnframt fyrir sér á kvöldin sem þjónust- ustúlka á bar. Árið 1973 fékk Chrissie sig fullsadda af því hreyfingarleysi sem henni þótti lífið í heimaborg sinni einkennast af, kvaddi og hélt til Lands englanna. Hennar árásargjama og opinskáa, oft kaldhæðnislega náttúra hrelldi hvem meðalkurteisan Breta og féll hún þegar ágætlega í jarðveg með þeirri pönkbylgju sem þá, einsog allt sem sprettur af vem- legri þörf, var fersk undiralda í þeirri ládeyðu sem hafði lagst yfir breskan rokkbransa. Hennar fyrsta starf var að vinna í pönk- fatatískuverslun Malcolms McLaren, Sex, og tók drjúgan þátt í litríkum uppátækjum hans áður en Sex Pistols urðu til. Var vinur Sids Vicious og Nancy Spungeon unnustu hans, sem Sid Laugardagur 8. september 1984 ÞJÓÐVILJINN — SfÐA 13 Pretenders var síðar ákærður fyrir að myrða og svipti sjálfan sig lífi er hann slapp úr prísundinni á skilorðs- bundnum dómi. Gerðist Chrissie Hynde síðan plötugagnrýnandi hjá New Mus- ical Express og þótti ritstíll henn- ar grimmilega háðskur. Enda var það fátt sem Chrissie hélt ekki vatni yfir. Sjálf sagði hún: „Ég var aldrei alvöm blaðamaður. Þeim á blað- inu fannst ég ekki skrifa nægilega mikið, báðu mig að skrifa meira. En hvað var meira hægt að skrifa? Um hvað?? Þá vildu þeir að ég tæki saman sögu og áhrif hljómsveitarinnar Velvet Under- ground, og ég sagði bless! Hvem- iggeturþeim dottið íhug að til sé einhver Unglingamenning lengur! Hverjum er ekki sama um það sem einhver afkáralegur hljóðgerflagæi hefur að segja? Frekar færi ég á barinn með Mose Allison!" (Mose er amerískur blús-karl, fæddur 1927). Chrissie Hynde var eldri en flestir meðalpönkarar í byrjun pönktímabilsins, og afneitaði aldrei þeim ljóðrænu tónlistar- straumum sjöunda áratugarins, sem hún hafði alist upp við. Hún fágaði rödd sína í mörgum skammlífum pönkgrúppum: „Ég var vön að fara inní fataskáp og syngja einsog lungum leyfðu mér, rétt til þess að heyra mögu- leikana". Og þegar hún svo stofn- ar hljómsveit sína The Pretend- ers á hún orðið fátt sameiginlegt með pönkumnum vinum sínum annað en „töff“ framkomu. Saga Pretenders frá stofnun hljómsveitarinnar er með áhrif- ameiri sögum úr rokkheiminum. Sápuópera segja sumir sem þekkja til: Öll sú dramatík með tilheyrandi sorg og gleði, ást og hatri, fæðingu og dauða hefur fylgt Pretenders eftir frá upphafi og ógnað tilveru þeirra. Tveir af upphaflegum meðlimum, þeir James Honeyman-Scott og Pete Famdon, féllu báðir í valinn af völdum ofneyslu kókaíns, Jimmy í júní 1982 en Pete nokkmm mán- uðum síðar, í apríl ’83. En með tilkomu þriðju hljóm- plötu undir nafni Pretenders, Le- arning To Crawl, er ljóst að Chrissie Hynde hefur staðið af sér allar raunir og tekist með undarverðum hætti og þrautseigju að halda áttum. Hún ól stúlkubam með Ray Davis, forsprakka Kinks, í janúar ’83, sem var rétt farin að skríða er platan kom á markað. „Ég von- aði að ég þyrfti aldrei að útskýra hvað ég átti við með nafni nýju plötunnar, Að læra að skríða (Learning To Crawl). Það tekur á að hugsa til baka um allt það sem dunið hefur yfir síðustu árin. Það var náttúrulega augljós stað- reynd að ég átti bam sem var læra að að skríða, en nafnið höfðar einnig til hinna nýju Pretenders. Eftir allt, þá emm við rétt nýlega byrjuð að skríða saman.“ Chrlssle Hynde gekk nýlega í hjónaband með Jim Kerr, söngv- ara Slmple Minds; aldrei verið sœlli... Chrissie áttl 32 ára afmæll f gær 7unda steptember. Þeir tveir meðlimir sem tóku sæti Honeymans og Famdons, og skriðu fyrstu skrefin sín innan sveitarinnar á hinni nýju plötu, eru þeir Robbie Mclntosh á gítar og bassaleikarinn Malcolm Fost- er. „Ég hugleiddi alvarlega um tíma hvort sú hljómsveit sem við stofnuðum aftur gæti heitið Pret- enders. Jimmy, Pete, Martin (Chambers trommuleikari) og ég höfðum unnið svo lengi saman að þeim sérstæða stíl sem einkenndi okkur þá, og ég vissi að það yrði erfitt verkefni framundan að reyna að viðhalda þeim sérkenn- um með tilkomu nýrra með- lima“. En þegar hlustað er á plötuna Að læra að skríða er það glöggt að ekkert af hinum sér- stæða Pretenders sjarma hefur skolast niður eða dáið. Öllu held- ur má segja að hljómsveitin sé orðin fágaðri og melódískari. Chrissie Hynde ræður yfir breiðara tónsviði og meiri ögun raddarinnar. Hún hefur ætíð sungið með afbrigðum vel, en nú er þroski hennar sem skapandi söngkonu mun dýpri og tjáning- arríkari. Chrissie hefur samið flest lög og texta Pretenders frá byrjun og á að mínu viti skilið að verða kosin einn hæfileikaríkasti texta- og lagasmiður sem uppi er í rokkmúsík í dag. Ég get ekki ann- að sagt um þessa plötu en að hún sé með þeim bestu sem völ er á, dæmi mig hver sem er. Við skulum að endingu gefa Chrissie Hynde orðið: „Eftir allan sársaukann og öll vandræðin hefur lífið tekið stefn- una uppávið. Það hefur verið vonin sem leiddi okkur áfram í gegnum vandræðin. Líkt og Á hljómlelkum ’83 að kynna nýja plötu og nýja hljómsveltarmeð- llml: Chrlssle, Malcolm Foster, Martln Chambers og Robbie Mclntosh. eitthvað hafi verið að prófa okk- ur allan tímann; og ef heppnin er með sjáum við uppskeru erfiðis- ins. Mér finnst ég hafi staðist þau próf sem lögð voru fyrir mig og launin eru bamið mitt og hin nýja skífa okkar. Bamið hefur svo sannarlega gefið mér ástæðu til að þrauka áfram; verið minn innblástur. Veistu, maður verður stundum að ganga í gegnum mikla erfiðleika til þess einfald- lega að kunna að meta hver mað- ur er og hvað maður hefur til bmnns að bera. Ég er mjög þakk- lát þessa stundina." -9 Fyrlr fáum árum kom út Ijósmynd- abókin „Rokkstjörnur á nærhald- inu“. Hefur hún þessa mynd að geyma af Chrlssie Hynde.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.