Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Falsanir Steingríms Þegar formenn stjórnarflokkanna birtust í Þingsjá sjónvarpsins fyrr í vikunni sáu áhorf- endur aö þar voru komnir bugaðir menn. Þá skorti alla sannfæringu. Þeir stóðu á gati þegar knúið var á um svör við spurningum um framtíð- arstefnu ríkisstjórnarinnar. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra fann að hann sat uppi með slæman málstað. Vörnin fólst í því að grípa til falsana. Forsætisráðherrann dró upp línurit um þróun kaupmáttar og benti á strik sem sýna átti að nánast allt hrun kaupmáttarins hefðigerst þeg- ar ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen var við völd. Samkvæmt striki Steingríms hefði aðeins orðið pínulítil breyting á kaupmættinum þégar hin nýja ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins svipti kjarasamningunúm burtu með gerræðislögunum frægu. Það er nánast einsdæmi að ráðherra leyfi sér slíkar blekkingar og eru íslendingar þó ýmsu vanir úr orðaskaki stjórnmálanna. Það sýnir best hve Steingrímurtelur málstað sinn vondan að hann skuli grípa til þeirra ómerkilegu vinnu- bragða sem felast í línuritafölsunum af þessu tagi. Hann þorir ekki lengur að kannast við kjarnann í verkum eigin stjórnar og reynir með plati að klína óþverranum upp á Gunnar Thor- oddsen og Alþýðubandalagið. Fölsun Steingríms Hermannssonar er í raun ótrúlega ómerkileg. Hann flytur fyrsta verk sinn- ar eigin ríkisstjórnar, afnám verðbóta á laun um 22%, algerlega yfir á ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen. Aðferðin er að draga strikið við dag- setningu á stjórnarskiptunum og sleppa því al- gerlega úr myndinni að ef engin stjórnarskipti hefðu þá farið fram þá hefði kaupið hækkað um 22%. Þegar fyrsta verk ríkisstjórnar Framsókn- arflokksins og Sjálfstæðisflokksins var að stela þessum verðbótum með bráðabirgðalögum þá þarf sérkennilega ósvífni til að bókfæra þann hornstein nýju stjórnarinnar hjá fyrri valdhöfum. Það vekur óneitanlega spurningar um hvers vegna Steingrímur Hermannsson þorir ekki lengur að kannast við það sem sameinaði allt Tiið nýja ráðherralið. Hvers vegna reynir forsæt- \ isráðherra að falsa bókhaldið? Ástæðurnar fyrir þessum blekkingaleik eru sjálfsagt margvíslegar. Steingrímur finnur ill- þyrmilega fyrir fylgistapinu og hinu mikla van- trausti sem ríkir í garð ríkisstjórnarinnar. Hann hefur ekki manndóm til að horfast í augu við mistök stjórnarinnar. Hann viðurkennir ekki ó- sigurinn líktog Hermann Jónasson hafði kjarktil að gera 1958. Þess í stað hleypur forsætisráð- herrann eins og hræddur pottormur bak við hús- horn og fer að benda á aðra. Líkt og óþægir krakkar sem vita upp á sig skömmina en hræðast refsinguna fer Steingrímur að Ijúga sök upp á aðra. Hann kemur með falsað línurit til að plata þjóðina. Þetta er allt Svavari að kenna. Ekki mér. Ekki mér. Fyrir nokkrum mánuðum var boðskapur for- sætisráðherrans að 22% kjaraskerðingin í upp- hafi stjórnarsamvinnunnar hafi verið nauðsyn- leg til að ná verðbólgunni niður. Fórnin hefði að vísu verið mikil en bent var á minnkun verðbólg- unnar til að réttlæta kjaraskerðinguna. Þegar öllum er Ijóst að þessi spilaborg er hrunin er Steingrímur Hermannsson svo lítill karl að fara að kenna Svavari Gestssyni og Alþýðubanda- laginu um stóru kjaraskerðinguna í júní í fyrra. Eru engin takmörk fyrir því hve djúpt forsætis- ráðherra landsins getur sokkið? Þjóðviljinn ráðleggur Steingrími Hermanns- syni að halda um helgina upp til fjalla og rifja upp karlmennsku og manndóm Hermanns Jónas- sonar. Ættlera viljum við ekki hafa. þiúdviuinn Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandl: Útgáfufélag'Þjóðviljans. Ritstjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphóöinsson. Rttstiómarfulltrúl: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlööversson. Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víöir Sigurðsson (íþróttir). Ljóamyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson. Otlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarfcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvœmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Auglýalngastjóri: Ragnheiður óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgroiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Sfmavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Krístjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf HúnQörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson. Útkeyrsla, afgreiösla, auglýsingar, ritstjórn: Síöumúla 6, Reykjavfk, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóöviljans hf. Prentun: Blaöaprent hf. Verö f lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverö: 25 kr. Áskriftarverð á mónuöi: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.