Þjóðviljinn - 10.11.1984, Side 15
MENNING
Bækur
Ekkert mál
Ný bók eftir feðgana
Njörð P. Njarðvík og
Frey Njarðarson
Út er komin hjá Setbergi bókin
„ Ekkert mál“ eftir þá feöga Njörö
P. Njarðvík og Frey Njaröarson
sem byggirá beiskri reynslu af
heimi eiturlyfja.
„Ekkert mál“ er saga um ver-
öld og líferni sem flestum finnst
víst fjarri sér, en er í raun ískyggi-
lega nálæg. Þetta er saga um ís-
lensk ungmenni sem lifa á valdi
heróíns, nánast á heljarþröm mitt
í velferðinni og hinu félagslega
öryggi.
Bókin gerist í Reykjavík þar
sem fyrstu sporin inn í heim
eitursins og hugarfar eiturneyt-
andans eru stigin. Síðan tekur
Kaupmannahöfn við þar sem
dýpst er sokkið og svo aftur
Reykjavík þar sem aðstandendur
sögupersónanna koma til og
reyna með hjálp lækna að bjarga
því sem bjargað verður.
Faðir og sonur hafa skrifað bók
sem í senn er átakanleg og spenn-
andi.
I heimi heróínistans getur allt
gerst. Morgundagurinn er í
órafjarlægð og framtíðin er næsta
fix. Næstum hver mínúta er þjak-
andi ótti við hryllileg fráhvarfs-
einkenni og snýst eiginlega að-
eins um eitt: Hvernig næ ég í pen-
inga fyrir næstu sprautu?
„Ekkert mál“ er um íslenska
fjölskyldu sem kynntist heimi
heróínfólksins - og tókst á við
þann draug. Saga þeirra Njarðar
og Freys er líka alvarleg aðvörun
til okkar hinna sem kannski ugg-
um ekki að okkur.
Djass
Saxófón-
snillingur
Bandaríski saxófónsnillingur-
inn Anthony Braxton leikur á
tónleikum í Félagsstofnun stúd-
enta á sunnudag kl. 21 en hann er
í fremstu röð nútímadjassleikara.
Píanóleikarinn Marilyn Crispell
leikur með Braxton á tónleikun-
um. Grammið stendur að þessum
hljómleikum.
Braxton varð fyrst verulega
stórt nafn í djassheiminum árið
1970 þegar hann stofnaði hljóm-
sveitina Circle með píanóleikar-
anum heimsfræga Chick Corea.
Síðan hefur hann starfrækt
hljómsveitir undir eigin nafni og
samið verk fyrir stærri hljóm-
sveitir. Hann leikur á mörg hljóð-
færi, bæði á allar gerðir saxófóna
og klarinetta og hefur margsinnis
verið kjörinn besti klarinett-
leikari ársins í gagnrýnendakosn-
ingum Down Beat.
-GFr
Theódór Júlíusson og Sunna Borg í hlutverkum sínum.
Leikfélag Akureyrar:
Ævintýralegt einkalrf
Nýlega frumsýndi Leikfélag
Akureyrar gamanleikinn Einka-
líf eftir Noéls Coward. Leikurinn
heitir á frummálinu „Private Li-
ves“ og er eitt vinsælasta leikrit
leikritahöfundarins, leikarans,
lagasmiðsins, leikstjórans og rit-
höfundarins Noel Coward, sem
Bretadrottning sló reyndar til
riddara fyrir leikhússtörf árið
1970.
Leikurinn fjallar um fráskilin
hjón sem hittast af tilviljun á nýj-
an leik, þar sem bæði eru í brúð-
kaupsferð með nýjum mökum á
frönsku sumarhóteli árið 1930.
Það kviknar í gömlum glæðum og
eftirleikurinn verður ævintýra-
legur.
Leikurinn var frumsýndur í
Þjóðleikhúsinu 1953 í þýðingu
Sigurðar Grímssonar en nú hafa
þau Signý Pálsdóttir og leikstjór-
inn Jill Brooke Árnason þýtt
hann, á nýjan leik. Leikmynd og
búningar eru eftir Unu Collins og
Alfreð Alfreðsson lýsir. f aðal-
hlutverkum eru þau Sunna Borg,
Gestur E. Jónasson, Guðlaug
María Bjarnadóttir og Theódór
Júlíusson. Leiknum hefur verið
vel tekið. Næsta sýning er í kvöld,
laugardag.
BETRIKOSTUR
Reglulegur samanburður er gerður á kjörum Hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum. Og er það stefna Samvinnubankans að Hávaxtakjör
verði alltaf betri kostur en verðtryggð kjör hjá bankanum.
Betrí björ bjóðast varla.
Hækkandí vextír
Hávaxtareikningur ber stighækkandi
vexti, 17% í fyrstu sem strax eftir
2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði
uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan
12 mánaða sparnað hækka vextirnir
síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5%
upp frá því.
m
Arsávöxtun
Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og
31. desember ár hvert og fer því
ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en
getur náð 27,58% sem ræðst af því
hvenær ársins lagt er inn.
Vextir frá stofndegí
Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings
reiknast frá stofndegi og falla aldrei
niður á sparnaðartímanum. Þannig
tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu
kjörin.
Nýstárlegt fyrírkomulag
Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri
innborgun og er hvert stofnskírteini til
útborgunar í einu lagi. Því er sjálfsagt að
deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir
úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess
að vaxtakjör eftirstöðva rýrni.
Óbundinn
Hvert skírteini er laust til útborgunar
fyrirvaralaust.
Laugardagur 10. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Auglysmgastofa Ernst Backman