Þjóðviljinn - 10.11.1984, Side 9

Þjóðviljinn - 10.11.1984, Side 9
var ég í Reykjavík og gerðist af- greiðslumaður Verkalýðsblaðs- ins, vikublaðs sem Brynjólfur Bjarnason ritstýrði." „Hverjir voru helstu samstarfs- menn þínir í Sambandi ungra kommúnista?“ „Þeir voru allmargir, t.d. Haukur Bjömsson og Áki Jak- obsson, sem vom um skeið for- menn Sambands ungra kommún- ista, Eðvarð Sigurðsson, Stefán Ögmundsson, Hallgrímur Hall- grímsson, Björgúlfur Sigurðsson, Eggert Þorbjarnarson og svo síð- ar Snorri Jónsson o.fl.“ Árangur baráttunnar „Þegar þú lítur til baka, hverju finnst þér kommúnistaflokkurínn hafa áorkað?“ „Mér finnst hann hafa áorkað furðu miklu og raunar stórum meira en stærð hans eða kosn- ingafylgi gáfu tilefni til. Ég tel td. að barátta Kommúnistaflokksins gegn atvinnuleysinu á þessum ámm hafi verið verkalýðshreyf- ingunni mjög mikils virði.“ „Með hverjum hætti?“ „Viðbrögð borgaraflokkanna gegn kreppunni voru þau að draga saman seglin í atvinnumál- um og reyna að lækka kaupið. Við þessu reyndum við að sporna, kröfðumst aukinnar at- vinnu, m.a. atvinnubótavinnu, og stóðum fast gegn kauplækkun. Það tókst jafnvel að hækka smá- vegis tímakaup verkafólks víða um land á þessu tímabili, og veitti ekki af, þar sem vinnustundirnar vom helst til fáar. Ég held að þessi barátta okkar hafi ekki ein- göngu komið verkafólki til góða heldur þjóðfélaginu í heild og m.a. orðið til þess að ráðamenn hættu að kljást við vanda krepp- unnar með því einu að ráðast að launum verkafólks. Hitt var þó kannski enn meira virði að fólki skildist nú enn betur en áður hvers virði samstaðan er - og að hún getur skilað árangri, jafnvel við erfiðustu aðstæður. Það jók því bjartsýni og kjark.“ „Nefnir þú nokkuð fleira?“ „Jú, ýmislegt fleira mætti tína til, t.d. fræðslumálin. Þegar Al- þýðuflokkurinn var stofnaður 1916 var mesti móðurinn mnninn af sósíaldemókrötum á Norður- löndum, og átti það líka við um fræðslu- og útbreiðslumálin. Al- þýðuflokkurinn sinnti þessum málum heldur ekki sem skyldi. Úr þessu reyndum við að bæta með ýmiskonar útgáfustarfsemi. Það var ekki fyrr en 1938 eftir að við höfðum hafist handa, að Al- þýðuflokkurinn setti á fót Menningar- og fræðslusamband alþýðu, sem leysti gott starf af hendi. Kommúnistaflokkurinn lagði sig þó alltaf miklu meira fram um að fræða flokksmenn sína og stuðningsmenn og út- breiða sósíalískar hugmyndir.“ „Fleira?" „Kommúnistaflokkurinn var mjög virkur. Hann lagði meira upp úr því en nokkur annar flokkur að félagar hans og fylgis- menn létu mál til sín taka. Og af þessum framantöldu ástæðum kom það m.a. í hans hlut öðrum fremur að ala upp þann kjarna sem verkalýðshreyfingin bjó að lengi síðan.“ Vankantar „Telur þú þá enga vankanta hafa verið á starfsemi kommún- istaflokksins?“ „Að sjálfsögðu hefur hann misstigið sig líkt og aðrir flokkar og sjónarmið hans stundum verið of þröng. Ég nefni t.d. hinar hörðu deilur innan Kommúnista flokksins sem hófust um og upp úr 1933. Þar var m.a. deilt um afstöðuna til sósíaldemókrata, hvort þeir væru höfuðstoð auðvaldsskipulagsins og hvort eingöngu skyldi stefnt að sam- fylkingu neðan frá (þ.e. við óbreytta liðsmenn) eða hvort samfýlking ofan frá (þ.e við for- ingja og fylgismenn) kæmi líka til greina, deilt var um hentistefnu ofl. Þessar deilur voru að sjálf- sögðu að verulegu leyti enduróm- ur af átökum sem áttu sér stað í Alþjóðasamtökum kommúnista um þessar mundir. Þar hafði því verið haldið fram að kreppan leiddi til þess að hlutlægari að- stæður til þjóðfélagsbyltingar gætu skapast, en áhrif sósíaldem- ókrata kæmu í veg fyrir að alþýð- an notfærði sér þessar aðstæður. Afleiðingarnar af hatrömmum átökum kommúnista og sósíal- demókrata upp úr fyrri heimsstyrjöldinni, einkum í Mið- Evrópu, sem og hörð andstaða flestra sósíaldemókrata við rússnesku byltinguna áttu og vís- ast einhvern þátt í þessum við- horfum, sem ekki verða rakin frekar hér.“ „Tókst þú einhvem þátt í þess- um deilum?“ „Það get ég varla sagt. Vetur- inn 1932-33 var ég heima á Þing- eyri og 1933-34 var ég á Siglu- firði. Deilurnar voru einkum bundnar við Reykjavík þótt ang- ar þeirra næðu víðar, ma. tilSiglu- fjarðar og Vestmannaeyja. Eg hef oft hugsað um það seinna, að eiginlega sé það furðulegt hversu heill flokkurinn kom út úr þessari deilu og hversu fljótur hann var að ná sér. Strax árið 1935 var næstum því sem ekkert hefði gerst, og í Alþingiskosningunum 1934 hafði flokkurinn staðið sig sæmilega. Flokkurinn var ungur og röskur og trúði á möguleika sína.“ Heimspeki og framboð „Hvað segir þú mér af högum þínum á þessum árum?“ „Um haustið 1932 hélt ég heim til Þingeyrar. Ég veiktist þá skömmu seinna allhastarlega og lá í 3-4 vikur, lengst af á spítala. Þegar ég rétti við tók ég að fást við tímakennslu í erlendum mál- um, íslensku og reikningi.“ „Og hvað aðhafðistu fleira?“ „Ég las allmikið þennan vetur, og raunar á það við um báða vet- urna, sem ég var heima um þetta leyti, þ.e. veturna 1932-33 og 1934-35. Og ég var stundum að reyna að semja eitthvað, t.d. var ég að bjástra við að berja saman grein um heimspekilegt efni þ.e: um efnishugtakið og breytingar þess. Hún var hugsuð sem svar við skrifum ýmissa hér heima á þessum árum um hvarf efnisins og fallvaltleik orsakalögmálsins. En víðkunnir erlendir vísinda- menn, eins og t.d. ensku stjam- fræðingamir A.S. Eddington og J.H. Jeans, aðhylltust þá slíkar hugmyndir. Ekki man ég lengur hvort það var heldur fyrri eða síðari veturinn sem ég var heima, að ég var að fást við þetta. En þessi ritgerð mín var einar 20-30 blaðsíður, og efni hennar var að sjálfsögðu ekki spunnið úr eigin visku, heldur stuðst við ýmislegt sem ég hafði lesið.“ „Og hvað var það helst?“ „T.d. Materialismus und Em- pirikritizismus eftir Lenin, sem ég hafði lesið allrækilega, bók eftir Norðmanninn Erling Se- hreiner: Naturvidenskap og Re- ligion og svo ýmsar greinar í tíma- ritinu Unter dem Banner des Marxismus, sem ég keypti nokk- uð reglulega. Þ.ám. vom greinar eftir Ladilaus Rudas sem mér þótti jafnan skemmtilegur greina höfundur allt frá því að ég las ritdóm hans um bók G. Lukacs: Geschichte und Klassenbewusst- sein í Arbeiterliteratur 1924.“ „Sumarið 1934 muntu hafa verið í framboði til Alþingiskosn- inga.“ „Já, ég bauð mig þá fram fyrir Kommúnistaflokkinn í Norður- -Þingeyjarsýslu. Gísli Guð- mundsson, sem átti kjördæmið að kalla, var í framboði fyrir Framsókn, Sveinn Benedikts- son fyrirSjálfstæðisflokk, Jón Sig- fússon frá Ærlæk fyrir Bænda- flokkinn og Benjamín Sigvalda- son fyrir Alþýðuflokkinn. Ég fékk 32 atkvæði, einu atkvæði fleira en Benjamín, að mig minnir, svo að uppskeran var ekki mikil. En ég hafði gaman af þessu framboði og mér fannst Norður-Þingeyingar opnari fyrir ýmsum hlutum en fólk sem ég hafði kynnst sumstaðar annars staðar. Alþýðuflokkurinn vann mikinn sigur í þessum kosning- um, fékk 10 þingmenn kjörna. Um sumarið myndaði hann ríkis- stjórn með Framsóknarflokkn- um, stjóm hinna vinnandi stétta er svo var nefnd. Og raunar má segja að næstu þrjú árin hafi verið eitt róttækasta og happadrýgsta skeiðið í sögu hans.“ „Hvað tókstu þér svo fyrir hendur?" „Að kosningafundunum lokn- um skrapp ég heim til Þingeyrar, en var á Siglufirði um sumarið. Um haustið andaðist móðir mín og fór ég þá heim til að vera við jarðarförina, var svo á Þingeyri um veturinn og fékkst m.a. við málakennslu. Næstu tvö-þrjú árin var ég svo ýmist á Siglufirði eða í Reykja- vík, á Siglufirði á sumrin við síld- arvinnslu oftast lausráðinn, og í Reykjavík á veturna þar sem ég reyndi að hafa ofan af fyrir mér með tímakennslu.“ „Bók þín Marxisminn mun hafa komið út 1937.“ „Það er víst rétt. Ég var þá sjálfur erlendis og gat ekki fyigst með útgáfunni eða lesið prófark- ir. En þetta er, eins og þú sjálf- sagt veist, lítil bók, samin upp úr fyrirlestri, sem ég hafði haldið, og undirtitillinn „fáein frum- drög“.“ „Eg mun hafa lesið bókina 1943 eða ’44 og mig langar til að bæta því við, að við endurlestur fannst mér hún jafnvel enn betri enáður.Og næst á eftir Komm- únistaávarpinu ætla ég að þessi bók þín hafi verið einna mest not- uð í sósíaliskum leshringjum og námskeiðum næstu 12-15 árin eftir útkomu hennar. Stendur ekki til að gefa hana út aftur?“ „Ekki er mér kunnugt um það.“ í Sovét „Þú varst um tíma í Sovétríkj- unum eða var ekki svo?“ „Jú, ég fór þangað í ágúst 1937 og dvaldist þar fram á næsta vor. Ég stundaði þarna nám við Lenínskólann sem rekinn var á vegum Alþjóðasambands komm- únista og átti að þjóna hinum ýmsu flokkum innan þess. Þarna fór fram kennsla í þjóðfélags- fræðum fyrir róttækt fólk víðs vegar úr heiminum. Kennt var á þýsku og ensku, frönsku og spænsku, ítölsku og kínversku, rússnesku og fleiri málum. Ég hlýddi mest á kennslu á þýsku og smávegis á ensku. Auk þess lagði ég stund á rússnesku, en varð aldrei almennilega stautfær og hef nú týnt niður því litla sem ég kunni.“ „Hvaða greinar voru kenndar þarna?“ „Að sjálfsögðu var fjallað þarna um marxismann og kenn- ingar hans á ýmsum sviðum; kennd var í ágripi hagsaga og stjórnmálasaga síðustu tveggja alda eða svo, sem og yfirlit um sögu verkalýðshreyfingarinnar og pólitískra flokka hennar - og þá einkum miðað við þau lönd sem nemendur voru frá.“ „Og hvernig sóttist þér svo námið?“ „Sæmilega að ég held. Annars hafði ég gluggað talsvert í þessi fræði áður, og bætti því ekki miklu við mig, enda námstíminn ekki langur, 6 eða 7 mánuðir. Þetta var líka á síðasta snúningi. Ófriðarblikur voru á lofti og fas- isminn í sókn víða í Evrópu. Og að því var unnið að leggja skól- ann niður í þáverandi mynd og flytja kennsluna til heimalanda viðkomandi flokka eftir því sem kostur væri. Fasistalöndin voru þar að sjálfsögðu undanskilin." „Hvenær komstu svo heim aft- ur?“ „Það var um vorið 1938.“ „Þú hefur þá náð að sitja stofn- þing Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalistaflokksins. “ „Ekki man ég hvort ég var einn af hinum 150 kosnu fulltrúum á þinginu; ég held ekki, en ég fylgdist að sjálfsögðu með því og gekk í nýja flokkinn. Um haustið 1938, fór ég í útbreiðsluferð á vegum Æskulýðsfylkingarinnar um Austfirði og Norðurland og um veturinn (1938-39) fékkst ég m.a. við kennslu í nýjum flokks- skóla í Reykjavík ásamt Arnóri Sigurjónssyni og fleirum." Aflur við nám „Hvað lá svo fýrir?“ „Vorið 1939 hélt ég til Siglu- fjarðar. Sósíalistar og Alþýðu- flokksmenn höfðu þá meirihluta í bæjarstjórn þar, og Áki Jakobs- son hafði verið kosinn bæjar- stjóri. Ég vann þama m.a. á veg- um Sósíalistafélagsins á staðnum, og um haustið var ég ráðinn starfsmaður þess.“ „Var það um þetta leyti sem þú giftist?“ „Já, ég kvæntist í desember 1939 Sigríði Sigurhjartardóttur, hálfsystur Þórodds Guðmunds- sonar; og starfsmaður flokksfé- lagsins á staðnum var ég til árs- loka 1941.“ „Að hverju snérir þú þér þá?“ „Ég tók mig til og fór að lesa undir stúdentspróf. Ég sótti um leyfi til að taka það utanskóla á Akureyri, og var það fúslega veitt.“ „Hvernig tók svo Sigurður skólameistari þér?“ „Hann tók mér mjög vel og vildi allt fyrir mig gera. Um vorið tók ég svo prófið.“ „Og um haustið fórstu svo í framboð fyrir Sósíalistaflokk- inn?“ „Jú, þetta var á Seyðisfirði, ég féllst á að hlaupa þarna í skarðið rir einhvern, mig minnir helst rna heitinn Ágústsson. Ég tók þetta að mér, með því að ekki var líklegt að ég næði þarna kosn- ingu, en það hefði komið sér fremur ilia fyrir mig, því að ég hafði ákveðið að setjast í Há- skólann um haustið. Þarna voru í framboði auk mín: Karl Finn- bogason kennari fyrir Framsókn, Lárus Jóhannesson fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og Jóhann Guð- mundsson, forstjóri Síldarverk- smiðjunnar á staðnum, á vegum Alþýðuflokksins. Lárus hlaut kosningu. Mig minnir að ég hafi fengið um 70 atkvæði." „Þú innritaðir þig svo í Há- skólann um haustið?“ „Já, í heimspekideild í íslensk fræði þ.e. íslenska málfræði, bók- menntir og sögu, með málfræði sem kjörsvið. En í málfræði hafði ég reynt að fylgjast nokkuð með á undanförnum árum og létti það mér námið.“ „Hvaða ritgerðarefni valdirðu þér svo í málfræði?“ „Mér var það nú ekki alveg í sjálfsvald sett. Náminu var þá skipt í fyrri og síðari hluta. Rit- gerð mín til fyrrihlutaprófs fjall- aði um kenningar í Númarímum, en lokaprófsritgerðin var um forskeyti í íslensku.“ „Og hvenær tókstu svo loka- prófið?“ „Það var um vorið 1945. Þá um haustið fluttist ég svo suður og settist að í Kópavogi. Fyrst eftir prófið fékkst ég talsvert við þýð- ingar, en í maí 1947 hóf ég störf við Orðabók Háskólans og hef unnið þar síðan.“ „Mér er kunnugt um að þú haf- ir komið við sögu eftir 1945, bæði í Kópavogi og Reykjavík og víðar. En hér nemum við staðar og ég þakka þér fyrir viðtalið.“ Haraldur Jóhannsson. Málfrœ&lngurlnn hugar a& se&lum f or&abók háskólans. Sunnudagur 11. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.