Þjóðviljinn - 01.12.1984, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 01.12.1984, Qupperneq 2
FRETTIR Námsmenn Sendiráðin umsetin Sendíráð Islands í Ósló, Stokk- hólmi og Kaupmannahöfn og ræðismannsskrifstofan í Óðins- véum voru umsetin náms- mönnum í gær og kröfðust þeir svara menntamálaráðherra um stefnu stjórnvalda í málefnum Lánasjóðs námsmanna. Skeyti sama efnis bárust einnig til menntamálaráðherra frá náms- mönnum í París, Gautaborg, New York, Amsterdam, Berlín og London. Eins og Þjóðviljinn hef- ur greint frá vantar Lánasjóðinn um 41 miljón króna til að standa við skuldbindingar sínar í des- ember og að mati sjóðstjórnar- innar er fjárhæð sú sem ætluð er til sjóðsins í fjárlagafrumvarpi næsta árs um 300 milj of lág. Ragnhildur Helgadóttir varpar allri ábyrgð af málefnum sjóðsins á Alþingi og neitar að gefa upp stefnu ríkisstjórnarinnar í mál- inu. í svari sínu til námsmanna í Kaupmannahöfn og Ósló segir hún að það sé ekki í hennar valdi að ákveða framlög til sjóðsins, endanleg ákvörðun um það verði tekin við afgreiðslu fjárlaga fyrir 1985 á Alþingi. Hins vegar lýsti hún því yfir að hlutfallstala af framfærslukostnaði yrði ekki minnaen 95%. Hún lýsti þvíjafn- framt yfir að haustlán 1. árs nema frá þessu hausti sem eru í formi bankavíxla yrðu tekin yfir af Lán- asjóðnum eftir áramótin, en ekki er gert ráð fyrir því í fjárlaga- frumvarpinu. Þá sagði Ragnhild- ur í svari sínu að verið væri að vinna að lausn á desembervanda sjóðsins, og taldi hún að óskert útborgun myndi koma í mánuð- inum. Þeirri kröfu námsmanna að á ný yrði tekin upp skylduaðild að Síne, samtökum námsmanna erlendis, hafnaði ráðherrann. Þjóðviljinn hafði samband við Árna Þór Sigurðsson í sendi- ráðinu í Ósló og Kristján Ara Arason í sendiráðinu í Kaup- mannahöfn. Ámi sagði að um 30 náms- menn hefðu komi í sendiráðið í Ósló í gærmorgun. Sagði hann að þeir væru að ræða svar ráðherr- ans, sem hann taldi allsendis ó- fullnægjandi þar sem svo virtist sem ríkisstjómin vildi ekki taka ábyrga afstöðu í málefnum sjóðs- ins. Kristján Ari sagði að náms- menn í sendiráðinu í Kaup- mannahöfn hefðu verið um 50. Kristján sagði að sú ráðstöfun að vísa 1. árs nemum á víxillán í bönkum væri að mati náms- manna brot á lögum sjóðsins, og vitað væri að bankarnir hefðu synjað mörgum námsmönnum um slík lán. Ráðherra sagði í svari sínu til námsmanna í Kaup- mannahöfn að 1. árs nemum næsta árs yrði vísað á bankalán ef nægileg fjárveiting fengist ekki til sjóðsins. -ólg. Lánasjóður ísl. námsmanna Námsmenn í fýluferð Ráðherra ekki til viðtals við námsmenn. Albert ræður í málefnum sjóðsins, segir Námsmenn fóru fýluferð í menntamálaráðuneytið í gær. Það voru Stúdentaráð, nemendur Tækniskólans og fulltrúar Síne sem íjölmenntu í ráðuneytið til þess að krefja ráðherrann svara um stefnu hennar í málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Ráðherra var ekki viðlátinn formaður Stúdentaráðs. þannig að námsmenn gátu ekki sett fram kröfur sínar og ályktan- ir. Stefán Kalmansson formaður Stúdentaráðs sagði í samtali við Þjóðviljann að námsmenn hefðu verið búnir að boða komu sína óformlega. Hann sagði að um 50- 60 námsmenn hefur verið mættir, og væru þeir vonsviknir yfir fram- komu ráðherrans. Stefán sagði að svo virtist sem ekki væri sam- komulag í ríkisstjóminni í mál- efnum Lánasjóðsins og ráðherra reyndi þannig að varpa ábyrgð sinni á Alþingi. Ég held að það sé Albert sem ráði í þessu máli, sagði Stefán að lokum. ólg. „Skrftin blanda" Ólympíuskákmótið: Þrjú jafntefli gegn Sovétmönnum Helgi Ólafsson líklega með tapaða biðskák gegn Beljavskí ...sagði Brigid Er ólokið var biðskákum á Ol- ympíuskákmótinu í gær var Is- land í fjórða sæti eftir að hafa fengið IVz vinning gegn hinu sterka liði Sovétmanna. Helgi á líklega tapaða biðskák gegn Belj- avskí á 1. borði en á öðrum borð- um var jafntefli. Margeir gerði jafntefli við TúkmakofT, Jóhann við Jússúpoff og JónL.við Sólók- off. Kvennasveitin tapaði á öllum borðum í viðureign sinni við Frakka. Biðskákir karlasveitarinnar gegn Kínverjum í 10. umferð enduðu allar með jafntefli og unnu því ísiendingar Kínverja með 2Vz vinningi gegn íVi. Sovétmenn eru enn efstir á mótinu með 30Vi vinning og eina biðskák. í öðru sæti eru Banda- ríkjamenn með 28Vi, í þriðja sæti Ungverjar með 26'/2 vinning, í fjórða sæti íslendingar með 26 vinninga og eina biðskák og í fimmta sæti Svíar með 26 vinn- inga. Einhverjar þjóðir geta komist þarna upp á milii að lokn- um biðskákum sem tefldar voru í gærkvöldi. Þess skal getið að viðureign So- vétmanna og íslendinga var sýnd á sérstökum heiðurspalli á mót- inu í gær. -GFr 1. desember Ogmundur og sr. Baldur hjá stúdentum Stúdentar minnast fullveldis í dag í Félagsstofnun við Hring- braut, og verður dagskránni út- varpað frá klukkan tvö. Meðal dagskráratriða eru kaflar úr Sól- eyjarkvæði í flutningi Háskóla- kórs og Stúdentaleikhúss, en að- alræðumenn dagsins eru Ög- mundur Jónasson fréttamaður og séra Baldur Kristjánsson. Vinstrimenn í Háskólanum sjá um daginn og hafa valið til kjör- orðin: Frelsi, jöfnuður, réttlæti. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðinemi flytur ávarp stúdents á dagskránni, strengja- kvartett úr Tónlistarskóla leikur og Egg-leikhús Viðars Eggerts- sonar kemur við sögu. f Skálka- skjóli, kaffi- og léttvínshúsi stúd- enta, verður djassað af kappi, og um kvöldíð heidur l.des.- nefndin ball í Sigtúni. -m 5 Jólin koma!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.