Þjóðviljinn - 01.12.1984, Page 6

Þjóðviljinn - 01.12.1984, Page 6
IÞROTTIR Körfubolti-úrvalsdeild Þeir voru á því i Noregi í gær- kvöldi að viðureign íslands og Austur-Þýskalands í gærkvöldi hefði verið albesti handknatt- leiksleikur sem sést hefur þar í landi. ísland var yfir lengi vel en mátti sætta sig við naumt tap, 23:22, gegn hinu geysisterka liði Austur-Þjóðverja, einu albesta handknattleikslandsliði I heimi. Þetta var annar leikur íslands af Qórum á Polar Cup, liðið vann Itali 25:15 í fyrrakvöld. Rétt eins og í síðustu leikjum, gegn Dönum og ítölum, var ís- lenska liðið seint í gang. Austur- Þjóðverjar skoruðu þrjú fyrstu mörkin og komust í 4:1. Skömmu síðar stóð 6:4 fyrir A-Þjóðverja en þá kom frábær kafli hjá ís- lenska liðinu - fimm mörk í röð og staðan orðin 9:6, íslandi í vil. Liðið hélt síðan forystunni út fyrir hálfleik, 13:11 í hléi. Fyrri hluta síðari hálfleiks var ísland yfir en Austur-Þjóðverj- um tókst loks að jafna um hann miðjan. Næstu mínútumar var ýmist jafnt eða ísland yfir en Austur-Þjóðverjar náðu foryst- unni þegar sjö mínútur voru til leiksloka, 21:20. Þeir skoruðu síðan tvö næstu mörk og tryggðu sér sigurinn, staðan 23:20, og tvö mörk íslands í lokin ógnuðu því ekki verulega. Allt íslenska liðið lék mjög vel, átti sannkallaðan toppleik. Engir léku þó betur en Einar Þorvarð- arson markvörður og Bjarni Guðmundsson. Einar varði frá- bærlega og Bjami hefur senni- lega aldrei farið jafnmiklum hamfömm í þeim 152 lands- leikjum sem hann hefur leikið - hann skoraði hvorki meira né minna en 11 mörk - af homi, af línu, úr hraðaupphlaupum, nán- ast af öllum gerðum. Allir aðrir stóðu sig mjög vel. Markaskorar- ar auk Bjarna vora Sigurður Gunnarsson sem skoraði 4 mörk, Atli Hilmarsson með 3, Kristján Arason 2 og Páll Ólafsson 2. Línumaðurinn snjalli Þorgils Ótt- ar Mathiesen var hvíldur í þess- um leik og munar um minna. í dag kl. 13.30 að íslenskum tíma mætir íslenska liðið Norð- mönnum. Gífurlegur áhugi er í Körfur á færibandi Njarðvík vann Val 114-98 Öruggur sigur hjá meisturunum sem hafa yfirburðaforystu í úrvalsdeildinni Bjami Guðmundsson skoraði 11 mörk í gærkvöldi - slíkt er sennilega einsdæmi gegn jafnsterku liði og því austur-þýska. Ísland-A -Þýskaland Ekki sést betra íNoregi! Austur-Þjóðverjar sigruðu 23:22 í frábœrum leik Bjarni Guðmundsson skoraði 11 mörk Noregi fyrir þeirri viðureign vegna þeirrar athygli sem ís- lenska liðið hefur vakið undan- farið og verður leiknum sjón- varpað beint þar í landi. Síðasti leikur íslands verður við ísraels- menn á sunnudag en törnin held- ur áfram um næstu helgi þegar leiknir verða þrír leikir við Svía hér á landi. Virkilega góður árangur í gær- kvöldi, gegn liði sem löngum hef- ur leikið landslið okkar grátt. - VS Körfurnar voru skoraðar á færibandi í íþróttahúsinu í Njarð- vík í gærkvöldi. Sjaldan hefur meiri flugeldasýning sést hjá tveimur liðum þar í úrvals- deildinni en hjá Njarðvík og Val og þegar upp var staðið höfðu verið skoruð á þriðja hundrað stig - Njarðvík vann öruggan sigur í þessum fjöruga leik, 114- 98. Njarðvíkingar voru yfir frá upphafi og höfðu sigurinn alltaf í hendi sér. Leikurinn var jafn framan af, staðan 20:15 um miðj- an fyrri hálfleik, síðan 34:26 þeg- ar þrjár mínútur voru til loka fyrri hálfieiks og í lokin þar var grimmt skorað, staðan 50:40 í hálfleik. Njarðvík jók fljótlega forskotið í síðari hálfleik og var komið í 94:77 þegar enn var nokkuð til leiksloka. Mestur varð munurinn 22 stig, 102:80, en lokaniðurstað- an varð 16 stiga sigur eins og áður sagði, 114:98. Njarðvík er með besta lið deildarinnar um þessar mundir, á því leikur enginn vafi. Liðið var Handbolti KR vann á Akranesi KR vann öruggan sigur á ÍA, 18-12, í l.deild kvenna á Akranesi í gærkvöldi. Úrslitin réðust í raun á fyrsta hluta leiksins, KR skoraði fimm fyrstu mörkin og hélt því forskoti til leiksloka. Staðan í hálfleik var 8-3, KR í hag. Mörk KR gerðu Sigurbjörg Sigþórsdóttir 3, Nellý Pálsdóttir 3, Snjólaug Benjamínsdóttir 3, Jóhanna Ásmundsdóttir 3, Karo- lína Jónsdóttir 3, Elsa Ævars- dóttir 2 og Valgerður Skúladóttir 1. Fyrir ÍA skoraði Karitas Jóns- dóttir 6, Sigurlín Jónsdóttir 4 og Laufey Sigurðardóttir tvö mörk. Með sigrinum komst KR í fjórða sætið í l.deild og úr mestu fali- hættunni. -VS jafnt og sterkt en uppúr stóð þó Valur Ingimundarson sem var maður leiksins. Árni Lárusson átti einnig mjög góðan leik þó hann hafi oft hitt betur. Jónas Jó- hannesson var kominn með fjór- ar villur í fyrri hálfleik og fékk þá fimmtu fljótlega eftir að hann var settur inná í þeim seinni en það kom ekki að minnstu sök. Torfi Magnússon og Jón Steingrímsson stóðu uppúr hjá Val. Torfi lenti þó í villuvand- ræðum eins og oft áður og hvarf af leikvelli nokkru fyrir leikslok. Valsarar vora ekki alltaf alveg með á nótunum, um miðjan seinni hálfleik hirti t.d. einn þeirra frákast undir eigin körfu en raglaðist svo illilega að hann skaut strax - á eigin körfu! Hann hitti ekki en Helgi Ragnsson fylgdi vel og skoraði öragglega! Sjaldan hefur verið hlegið hærra í Njarðvík..... Stig UMFN: Valur 37, Gunnar Þorvarðar- son 16, Helgi 13, IsakTómasson 11, Árni 10, Jónas 10, Hafþór Óskarsson 6, Ellerl Magnússon 6 og Teitur örlygsson 5. Stlg Val8: Torfi 19, Jón 15, Leifur Gústafs- son 14, Tómas Holton 12, Einar Ólafsson 11, Kristján Ágústsson 11, Björn Zöega 8, Jóhannes Magnússon 3 og Páll Arnar 2. Jón Otti og Sigurður Valur dæmdu leikinn vel. Staðan í úrvalsdeildinni: Njarðvík..........9 8 1 840:673 16 Haukar............6 4 2 530:470 8 Valur.............7 4 3 612:591 8 KR................6 3 3 481:446 6 ÍS................7 1 6 464:667 2 (R................7 1 6 504:584 2 - SÓM/Suðurnesjum Þorvaldur tilKA Ormarr í Fram Þorvaldur Þorvaldsson, fyrram fyrirliði Þróttara, mun leika með 2. deildarliði KA í knattspyrnu næsta sumar. KA hefur hins vegar misst hinn trausta bakvörð, Ormarr Örlygs- son, sem mun leika með Fram næsta sumar. - VS Brasilía Santana endunáðinn? Allar líkur eru á að Tele Sant- ana gerist aftur landsliðsþjálfari Brasilíumanna i knattspyrnu. Hann hefur þjálfað í Saudi- Arabíu síðan 1982 en er nú snúinn til heimalandsins á ný. 6 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. desember 1984 Handbolti Fylkir og Grótta unnu Fylkir vann góðan sigur á Þór, 22-19, á Akureyri í 2.deild karla í gærkvöldi. Fylkir komst í 6-2 í byrjun og hafði forystuna eftir það, staðan 11-9 í hálfleik. Gunnar Baldursson skoraði 7 mörk fyrir Fylki, Einar Einars- son 5, Sigurður Símonarson 3 og Kristinn Sigurðsson 3. Guðj- ón Magnússon skoraði 6 mörk fyrir Þór og Oddur Sigurðsson og Rúnar Steingrímsson 4 hvor. Grótta vann Ármann í bar- áttuleik á Seltjamamesi, 28-26. Ármann hafði 14-13 yfir í hálf- leik. Gunnar Páll Þórisson skoraði 10 mörk fyrir Gróttu og Jóhannes Benjamínsson 5 en Einar Njálsson 6 og Bragi Sig- urðsson 5 skoraðu mest fyrir Ármann. -KH/VS Santana var gagnrýndur harka- lega eftir að ftalir höfðu slegið Brassana útúr heimsmeistara- keppninni á Spáni 1982 og hann sagði af sér í kjölfar þess. Honum var gefið að sök að hafa vanrækt vamarleikinn og það hefði kost- að Brasilíu heimsmeistaratitil- inn. ítalir unnu 3:2 og vora öll mörk þeirra frekar ódýr, eitt hreinasta gjöf. Forseti knatt- spymusambands Brasilíu hefur lýst því yfir að hann vilji mjög gjama fá Santana til starfa á ný. Brasilíumenn era í riðli með Par- aguay og Bólivíu í undankeppni HM og eitt liðanna kemst í loka- keppnina í Mexíkó. Keppni í riðl- inum hefst ekki fyrr en næsta sumar. - VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.