Þjóðviljinn - 01.12.1984, Síða 11
Every man has a woman.
Umboð: Fólkinn h/f.
Loksins, loksins! hrópaði ég
yfir mig þegar ég frétti af útkomu
safnplötu (af öllum plötum!!) og
fann fögnuðinn víbra í
eymarsneplunum, spékoppnum
og hjartanu öllu. Trú mín á
mannkynið kviknaði að nýju;
eitthvert dásamlegt fólk hefur
tekið sig saman og sungið nokk-
ur lög og texta Yoko Ono inn á
plötu, gömul og ný, ólíkir lista-
menn sem finna sig knúna að tjá
virðingu sína þessari merku konu
og túlka pöplinum mikilvægi
hennar.
Mikilvægi hennar og framlag í
sögu rokktónlistar, Ijóðagerðar
og mannlegrar hugsunar verur
ekki orðum ofaukið; fleiri og fleiri
skammast sín orðið fyrir þröng-
sýna afstöðu sína gagnvart Yoko
Ono og þá hugsun að hér færi
einhver meirihátar ga-ga per-
sónuieiki með enga hæfileika
nema til að hneyksla almenning.
Á meðan óvandað fólk úr öllum
áttum gerði aðsúg að henni og
grimmilegar árásir, var Yoko á
sinn sérstæða hátt að segja
mannkyninu frá góðsemi þess og
ónotuðum hæfileikum til sjálfs-
þekkingar; reyna að útrýma ver-
sta óvini hverrar manneskju, sem
er þröngsýni hennar.
Platan hefst á lagi sem Yoko
söng fyrst inn á Double Fantasy,
Every man has a woman who lov-
es him, hér sungið af John Lenn-
on sjálfum, og spilaði hann einnig
á gítarinn, en gítarleikur Johns
varð einn sá sérstæðasti sem
heyrst hefur í rokktónlist og ber
spil hans í þessu lagi því glöggt
vitni.
Góðvinur þeirra hjóna, og fé- j
lagi Lennon fram til dauðadags 1
hins síðamefnda, Harry Nilsson,
syngur þrjú lög Yoko, Silver
Horse, Dream Love og Loneli-
ness, tvö fyrrnefndu rólegar mel-
ódíur sem Nilsson gerir afbragðs-
góð skil, hið síðastnefnda þykir
mér þó bera af í túlkun hans sem
er mjög rokkuð útfærsla á þessu
bráðum tíu ára gamla lagi Ono.
Lögregluþjónninn Eddic Mon-
ey (áður Mahoney), sem lagði
lögguhúfu sinni og tók upp söng,
syngur I’m moving on, sem finnst
einnig á Double Fantasy, geysi-
vel og kröftuglega, röddin eilítið
rám, sjarmerandi.
Rosanne Cash, dóttir kántrý-
söngvarans ameríska Johnny |
Cash, flytur ljúfri röddu lag frá;
’81, Nobody sees me like you do, j
sem finnst á plötunni Seasons of
Glass. '
Hljómsveit, sem kallar sig Alt-
ernating Boxes og undirrituð hef-
ur ekki heyrt getið fyrr, flytur eitt
frumlegasta lag þessarar plötu,
Dogtown (Seasons of Glass),
þannig, að líklega verður ekki
betur um bætt í framtíðinni.
Roberta Flack, konan sem
lærði klassískan píanóleik og spil-
aði undir hjá óperusöngvurum,
syngur af mannbætandi ljúfleika
reggei-útsett lag af Gler árstíðun-
um, Goodbye Sadness, og lýkur
þar með hlið eitt.
Hlið tvö hefst svo á lagi sem er í ‘
hvað mestu uppáhaldi hjá mér af
lögum Yoko Ono, það kom út á
smáskífu í janúar ’81 og var það
fyrsta sem Yoko sendi frá sér eftir
dauða eiginmanns síns: Walking
on Thin Ice. Það kom í hlut Elvis
Costello og hljómsveitar hans
The Attractions að flytja þetta
lag. Þótt ég gerði mér grein fyrir
snilli Costello og sérkennum hans
sem tónlistarmanns og söngvara,
átti ég tæpast von á jafn frábærri
útsetningu og þvílíkum söng sem
hér hefur orðið raunin á.
Grallaramir þýsku í Trio, sem
ófáir þekkja, minnugir lagsins
með einum allra mergjaðasta
texta samtímans, Dadada, syngja
og leika Wake Up, lag á It’s Al-
right ’82. Njóta þeir aðstoðar
þýska bassaleikarans Klaus Vo-
orman, sem víða hefur komið
við, lék m.a. með Plastic Ono
bandinu víðfræga, með Lou
_____QÆGURMÁL
Ó YOKO
Reed á Transformer og hefur
leikið inná plötur allra hinna Bítl-
anna auk þess að eiga teikningar
þær sem prýða Revolver piötu
þeirra fjórmenninga.
Andlegi kórinn, eða Spirit
Choir, sem samanstóð af John og
Yoko, Elephant’s Memory og
Plastic Ono bandinu, flytja af
andaktugheitum ljúfa bæn til
mannkynsins, Now or never, og
segja okkur að hefja strax handa
við upprætingu fólskuverka, við
megum engan tíma missa, það er
nú eða aldrei. Lag þetta var sam-
ið fyrir tólf árum og hefur texti
þess eflaust sjaldan verið meira
við hæfi en nú á tímum.
Sá sem lýkur plötunni er 10 ára
sonur Yoko og Johns, Sean Ono
Lennon, og þykir mér það vel við
hæfi. Hann flytur okkur áríðandi
skilaboð um að missa aldrei trúna
á eitthvað betra þó að erfitt kunni
stundum vera að líta framan í
heiminn, og segir þannig muni
betur fara: It’s Alright.
Hvar sem á er litið, þykir mér
þessi safnplata með lögum Yoko
Ono hin mesta gersemi, og er
þetta í einu af örfáum tilvikum
sem okkur Andreu finnst við hæfi
að hvetja fólk til að eignast plötu.
Allir þeir listamenn sem á þessari
plötu koma við sögu gera lögum
Yoko svo góð skil að oft er um
hreinustu snilld að ræða. Og þeir
sem aldrei hafa umborið sér-
kennilega rödd Yoko en skynjað
mikilúðleik manneskjunnar ættu
óhikað að komast í tæri við um-
rædda plötu, hún veitir góða inn-
sýn í verk þessarar yndislegu
konu. o
Frökkunum
HUO A
. Launaþrællinn
L Svartur gítar
A Leyndarmál frægðarinnar
% Giftu þig 19
m 10.000 kr. frétt
HLIÐ B
Lili Marlene
Blindsker
Snertu mig
Fallen angels
Bönnum verkföll
FALKINN
Þessi plata er framleidd með svokallaðri DMM Teldec tækni (Direct Metal Mastering) sem
hefur i för með sér mun betri hljómgæði en á*ur hefur tíðkast. Hljómurinn er í senn tærari og
i öflugri og hvorki bergmál né suð spilla fyrir ánægjunni af tónlistinni.
ÞETTA ER PLATAN!
GÚÐA HELGI!
gramm
ffÚl) er komin!
Lili Marlene,jómfrúarplata/
DAS KAPITAL er komin út! k
BUBBI MORTHENS, gitarleikari.
söngvari. munnhörpuleikan
og lagasmiður, Aður i hljóm-
sveitunum Utangarðsmönnum
og Egó.
MIKE POLLOCK. gitarleikari. 4«
söngvari og lagasmiður.
Áður i Utanyarðsmönnum. GUÐMUNDUR GUNNARSS0N.
Bodies. Baðvörðunum og trommuleikari. Aður
i Tappa Tikarrassi
JAKOB MAGNÚSSON. hassa
leikari og lagasmiður.
Aður í Tappa Tíkarrassi
Laugardagur 1. deaamber 1984 ÞJÓÐVIUINN - SfÐA 11
Almenna auglýsingastofan hf