Þjóðviljinn - 01.12.1984, Side 14
UM HELGINA
Hjartans þakkir sendi ég til allra þeirra sem sendu mér
skeyti og sýndu mér aðra virðingu á áttræðisafmæli
mínu hinn 23. nóvember s.l.
Páll Helgason
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Innritun í öldungadeild veröur 3.-5. desemb-
er frá kl. 16-18.
Rektor
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Vélfræðikennara vantar að Iðnskóla ísafjarðar til að
kenna vélskólanemum 1. og 2. stigs frá áramótum.
Nánari uþþlýsingar gefur skólastjóri í síma 94-4215
milli 10-12 og í síma 94-3502 á kvöldin.
Menntamálaráðuneytið
Viðgerðarstarf
Laghentur, vanur maður óskast til starfa á verkstæði
Rafbúðar Sambandsins, að Ármúla 3. Starfið er fólgið
í viðgerðum saumavélaog smærri heimilistækja. Nám
í skrifvélavirkjun eða rafeindavirkjum æskilegt, en ekki
skilyrði. Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra, er
veitir frekari uþplýsingar. Umsóknarfrestur er til 10.
des. n.k.
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉLAG A
STARFSMANNAHALD
LINDARGÖTU 9A
Frá Borgarbókasafni
Sögustundir í hverri viku í Borgarbókasafni.
Aðalsafni Þingholtsstræti 29a
þriðjudaga kl. 10-11.
Bústaðasafni Bústaðakirkju
miðvikudaga kl. 10-11.
Sólheimasafni Sólheimum 27
miðvikudaga kl. 11-12.
Ykkur er óhætt að líta inn því margt getur skemmtilegt
skeð í sögustund.
Fóstrur og dagmömmur athugið að ef þið komið með
hópa, látið okkur þá vita í tíma.
Borgarbókasafn.
81333
Er ekki tilvalið
að gerast áskrifandi?
Leggjum ekki af staö i feröalag í lélegum bíl eöa illa útbúnum.
Nýsmuröur bíll meöhreinnioliuog yfirfarinn t.d. á smurstöö er lík-
legur til þess að komast heill á leiöarenda.
mÍIMFERCAR
Whád .
Kjarvalsstaðir:
Fimm á
Kjarvals-
stöðum
í dag klukkan 14 hefst samsýn-
ing 5 ungra myndlistarmanna í
austursal Kjarvalsstaða. Þeir
hafa allir sýnt áður á einkasýning-
um og samsýningum. Þetta eru
þeir Steingrímur Þorvaldsson,
Magnús V. Guðlaugsson, Stefán
Axel, Ómar Skúlason og Pétur
Stefánsson.
Steingrímur og Magnús sýna
málverk, unnin á árunum 1983-
Fjórir af listamönnunum en sá fimmti, Stefán Axel, var ókominn frá Hollandi.
F.v.: Ómar Skúlason, Pétur Stefánsson, Steingrímur Þorvaldsson og
Magnús V. Guðlaugsson. Ljósm.:EO
1984, en Stefán og Ómar með þessu ári. Sýningin stendur til
splunkunýjar myndir. Pétur jóla og verður opin alla daga frá
verður með teikningar unnar á 14-22. -GFr
Kjarvalsstaðir:
Ljósmyndasýning
Harðar Vilhjálmssonar
í dag hefst ljósmyndasýning
Harðar Vilhjálmssonar á Kjar-
valsstöðum og sýnir hann þar 35
ljósmyndir í lit, landslagsmyndir
og haustliti. Þetta er fyrsta einka-
sýning hans.
Hörður lauk námi hjá Óla Páli
Kristjánssyni, ljósmyndara, 1971
og stundaði framhaldsnám við
Harrow College og Technology
and Art veturinn 1975-1976.
Hann hefur starfað sem Ijós-
myndari við Landsbókasafn ís-
lands og Dagblaðið, rak ljós-
myndastofu um skeið en hefur
starfað hjá Sjónvarpinu síðan
Hörður með myndir sínar. Ljósm.: EÓ 1981.
Gerðuberg
Þoipið
Nemendur sem stunda nám á
öðru ári í Leiklistarskóla íslands,
munu flytja „þorpið" eftir Jón úr
Vör undir stjórn Helgu Bach-
mann í Gerðubergi á sunnudag
kl. 15.30.
Er þetta fyrsta dagskráin af
flutt í Gerðubergi
nokkrum sem stendur til að flytja
í Gerðubergi á aðventunni.
Næstu sunnudaga munu rithöf-
undar lesa úr verkum sínum, þar
sem gestir geta setið yfir kaffi-
bolla og heimabakkelsi og notið
lífsins. Fólk má gjarnan taka
þetta sem hvatningu um að eyða
ekki öllum sunnudeginum í jól-
aundirbúning og yfirvinnu, held-
ur drekka eftirmiðdagskaffið sitt
í Gerðubergi og fá þessa
skemmtun um leið.
Musica
Sunnudaginn 2. desember n.k.
verða haldnir fyrstu tónleikar
MUSICA ANTIOUA á þessum
vetri. Þau Camilla Söderberg,
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og
Snorri Örn Snorrason flytja tón-
list frá endurreisnar og barokk-
tímanum, verk eftir van Eyck,
John Dowland, Francesco Manc-
ini, Pierre Philidor, Arcangelo
Corelli o.fl.
Þau Camilla, Ólöf Sesselja og
Snorri Örn léku þessa efnisskrá á
Antiqua
Skálholtstónleikum 14. og 15.
júlí í sumar en síðan var ferðinni
heitið til Svíþjóðar og Austurrík-
is þar sem þau héldu fjölda tón-
leika við mjög góðar undirtektir.
Hljóðfærin sem þau leika á eru
blokkflautur, viola da gamba og
lúta, allt eftirlíkingar af gömlum
hljóðfærum sem smíðuð voru á
endurreisnar og barokktíman-
um. Tónleikarnir verða í Krists-
kirkju og hefjast kl. 16:00
Gallerí íslensk list
Einar G. Baldvinsson
sýnir á Vesturgötu
í dag 1. desember opnar einn af
þekktustu listmálurum þjóðar-
innar Einar G. Baldvinsson sýn-
ingu á verkum sínum í galleríinu
íslensk List, að Vesturgötu 17.
Einar sýnir þar 22 olíumálverk,
sem flest eru máluð á síð-
astliðnum tveimur árum. Nú eru
liðin fimm ár síðan þessi þekkti
málari hélt síðast einkasýningu,
þó hann hafi síðan tekið þátt í
mörgum samsýningtím. bæði er-
iendis og hér á landi. En þessi
sýning er áttunda einkasýning
Einars.
Á málverkasýningu Einars í
Galleríinu á Vesturgötu 17, eru
mörg málverk frá sjávarsíðunni á
íslandi, bátar þorp, og fólk að
störfum, auk landslagsmynda.
Allt verk sem eru dæmigerð fyrir
hinn sérstæða og sterka stfl Ein-
ars G. Baldvinssonar.
Sýningin er opin daglega kl. 9-
17 á virkum dögum og kl. 14-18
um helear.
Musica Antiqua sklpa Camilla
Söderberg, Snorri Órn Snorra-
son og Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir
Ossa
Afmæli hjá Ossu
í tilefni af því að listmuna- og
gjafavöruverslunin Ossa átti fyrir
skemmstu tveggja ára afmæli
verður opið hús í versluninni í
Glæsibæ í dag.
Opið verður frá klukkan tíu til
fjögur. Afmælisafsláttur 10-20%.
Meðal muna eru handunnin
teppi frá Mexíkó, og antikteppi
frá ýmsum öðrum löndum. Einn-
ig norskur sérhannaður kristall
frá Hadeland, finnskir listmunir,
handgerðir kínverskir dúkar og
ýmiss konar fallegar keramík- og
j textflvörur.
Eigandi verslunarinnar er
i Oddný Ihitimársdóttir.