Þjóðviljinn - 16.12.1984, Page 6
getin börn, þau voru á þessum
tíma um tíu af hundraði. En hver
gift kona hér lagðist oftar á sæng
en húsfreyjur í öðrum löndum.
Það má leiða að því líkur, að ein
helsta ástæðan sé sú að lítið var
um að íslensk börn væru höfð á
brjósti; við það styttist tíðatöf og
móðirin varð fyrr reiðubúin til
nýs getnaðar. Hér blasir við mjög
undarleg og dapurleg mynd.
Drjúgur hluti kvenna er af ýms-
um ástæðum, ekki síst vegna gild-
andi hjúskaparskilyrða, hindrað-
ur í því að eignast börn, en sá
hlutinn sem er í hjónabandi dæm-
ist til mjög tíðra barneigna.
Þessi skipting landsmanna í
„frjóa“ og „ófrjóa“ hefur svo ým-
islegar félagslegar afleiðingar.
Verulegur hluti þeirra sem fæðast
er dæmur til að lækka í þjóðfé-
lagslegri stöðu miðað við foreldr-
ana - færast niður í stöðu vinnu-
hjúa. A máli félagsfræðinga er
þetta kallað „félagslegur hreyf-
anleiki niður á við.“ I ættfræðum
kemur þetta hinsvegar þannig út
að furðumargir íslendingar eru af
„höfðingjum“ komnir!
Kurr og
óánœgja
- Hver vill ekki verða sjálfs
síns herra? segir í leikriti Brechts
um Galileo. Ef við gefum okkur
þá forsendu að það sé náttúrleg
hneigð hjá fólki, sem er að vaxá
upp, að brjótast undan beinum
yfirráðum annarra, en þjóðfé-
lagið leggur svo strangar hömlur
á þá hneigð sem raun ber vitni -
má ekki sjá þess merki að af slíku
ástandi spretti kurr, óánægja og
uppsteytur?
- Það er ekki nema eðlilegt að
spurt sé, en erfitt hinsvegar að
gefa skýr svör. Svo mikið er víst,
að við höfum engin dæmi um op-
inskáan uppsteyt og samtök í lík-
ingu við lágstéttarhreyfingar úti í
löndum. En ýmis teikn um þetta
má finna. Nefnum til dæmis þess-
ar sífelldu umkvartanir yfirvalda
um leti og óhlýðni vinnufólks. Að
vísu er engu líkara en slíkt nöldur
sé einskonar skylduþula hjá
valdsmönnum á einveldisöld, en
samt: Það mun ekki út í hött að
túlka þessar umkvartanir sem
vitnisburð um niðurbælda óá-
nægju. Mörg vinnuhjú munu
hafa fundið til þess, að umbun
væri ekki í neinu samræmi við erf-
iði, uppskeran af striti þeirra
næsta lítii. En áður en nokkuð fór
að slakna á því þjóðfélagsgang-
virki, sem fjallað er um, var það
flestum einskonar vítahringur
sem mjög erfitt var að brjótast út
úr - að óbreyttum framleiðslu-
háttum og þjóðfélagsaðstæðum.
Við metum það svo, nútíma-
menn, að uppeldisviðhorf á þess-
um tímum hafi fyrst og fremst
einkennst af harðneskju og misk-
unnarleysi. Kannski má líta svo
á, að fullorðnir hafi þá naumast
haft „efni“ á að reyna að setja sig í
spor barna. Við getum hneyksl
ast á þessu, við sem tökum mið af
þeim nútímahugmyndum um
bernsku og uppeldi að brýnt sé að
skilja þarfir barns, reyna að setja
sig í þess spor. En spyrja má,
hvort slík afstaða hafi ekki sem
forsendu ákveðin efnahagsleg og
þjóðfélagsleg skilyrði, sem
sköpuðust ekki fyrr en það tíma-
bil, sem ég hef athugað, var um
garð gengið.
ÁB skráði
Ef Hússtjórnar Stéttin legöi alúð á að temja og venja,
bæði með Lærdómi og Lifnaði, sín Börn og Hjú, til Guðs
Ótta og góðra Siða, og framaren hún nú um stundir gjörir
með Guðrækilegum Húsaga að aftra þeim frá Glæpum og
Löstum, mundi eigi Kennidóms-Stéttinni svo torsækt
vera, sem henni nú annars er, að fá fólk til að láta af illu og
læra gottaðgjöra... Og eigi munduþá svo margir íLandinu
þurfa að kenna á Refsingar vendi Veraldlegrar Valdstéttar,
né að rétta Hálsinn undir Böðuls-Öxina.
Sr. Björn Magnússon. Formáli að þýddri bók, Christenn Hwss-
Fader edur velmeint Raadlegging til Allra Guð-hræddra Huss-fedra.
Cmt
HiRSCHHOLMs-(í£>(ot/ frCK 3í)ie Junii Ao. 1746.
•we*- tíatt*- -♦$»!$*--wieN-
Xn?ft uí>t í>anö aJíajefiá. op Uhiverfitxts-95oðtnjffcriiv
tif ‘jt-'lwu 3oiucn £101 ffiur.
Skrítlur
Vitið þið, lesendur góðir, hvað
smáþorp er?
Það er staður, þar sem ná-
granninn hefur auga með kon-
unni þinni fyrir þig.
Hansi ók þrjá hringi umhverfis
blokkina án þess að finna bíla-
stæði.
- Það er alltaf sama sagan með
þig, hnussaði konan hans.
- Það geta allir fundið sér bíla-
stæði nema þú.
Hann Benni sendi okkur bréf
nýlega og sagðist halda upp á
kvennaárið á sinn hátt. Hann lyft-
ir upp fótunum, þegar konan er
að ryksuga.
Maðurinn kom hlaupandi inn í
svefnherbergið. Eiginkonan lá í
rúminu.
- Hvað eigum við að gera?
hrópaði hann. - Húsið brennur!
- Bjargið húsgögnunum,
heyröist úr klæðaskápnum.
Frú Petrína var að ræða málin
við nýgifta dóttur sína.
- Já stúlka mín - nú gæti verið
að þú verðir orðin móðir eftir níu
mánuði...
- Það er nú samt sennilegra, að
þú verðir orðin amma eftir sex
mánuði...
Kennarinn: Vinnumaurar
geta borið byröi sem er fimmtíu
sinnum þyngri en þeir sjálfir.
Hvaða ályktun getur maður dreg-
ið af því?
Jens: Að þeir hafi lélegt stétt-
arfélag.
- Hvers vegna eruö þér hér?
spuröi fangelsispresturinn.
- Sjálfsmorðstilraun.
- Ekki er mönnum hegnt fyrir
það.
- Ja, sko, ég ætlaði að gera það
úti í skógi, en varð svo nervus að
ég hitti dádýr...
Fjölskyldan var á vetrarferða-
lagi í Austurríki. Anna litla spurði
pabba sinn:
- Hvað þýðir „Gruss Gott"?
- Eitthvað svona í líkingu við
„Sæll sért þú í guðs nafni“.
- Þá er sannarlega munur á
Austurríkismönnum og íslend-
ingum. Þegar Austurríkismenn-
irnir hittast, segja þeir „Gruss
Gott“, og þegar íslendingarnir
hittast segja þeir „Hver fjandinn,
ert þú hérna líka"?
GORAN TUNSTROM
JÓLA
ÓRATORÍAN
Göran Tunström hlaut bók-
menntaverðlaun Noröurlandaráös
áriö 1984 fyrir skáldsögu sina Jóla-
óratórian, sem út kom í fyrra. Svið
sögunnar er heimabyggð höfund-
ar í Svibjóð, en hún teygir anga
sina alla leið til Nýja-Sjálands. Líkt
og smiður Jólaóratóriunnar, Bach,
leikur Tunström af mikilli list á
marga strengi, sem spanna allt frá
myrkustu einsemd og þjáningu til
leiftrandi kátinu, og njóta blæbrigði
sögunnar sin einstaklega vel i þýð-
ingu Þórarins Eldjárns.
Jólaóratórian verður gefin út
bæði innbundin og sem UGLA.
Verökr.889.—
Félagsverð kr. 720.—
UGLU-verð kr. 448.—
glæpuR
OG~
ÞYDD.
SKALDVERK
WILLIAM HEINESEN
GLATAÐIR
SNILLINGAR
Margir telja Glataða snillinga
meistaraverk Williams Heinesen,
og vist er að enginn sem les þessa
bók mun geta gleymt hinum list-
hneigðu sonum Korneliusar vind-
hörpusmiös og örlögum þeirra i
þessu litla þorpi á eyju úti iregin-
hafi Glataðir snillingar eru eins og
. stór hljómkviða, þar sem hver
persóna hefur sina eigin rödd, og
bera frásagnargáfu Heinesens
einstakt vitni.
Glataöir snillingar eru áttunda
bókin i sagnasafni Williams Heine-
sen i rómaðri þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar.
Verðkr.988.—
Félagsverð kr. 840.—
MARTIN
ANDERSEN NEX0
FJODOR DOSTOJEVSKI
DITTA GLÆPUR
MANNSBARN OG REFSING
Skáldverkið mikla um Dittu,
stúlkuna af stóru mannsættinni,
kom fyrst út i Danmörku á árunum
1917 — 1921. Höfundur þess, Mar-
tin Andersen Nexo, hlaut sess i
heimsbókmenntasögunni fyrir
áhrifamiklar lýsingar sinar á kjör-
um fátækra um aldamótin og minn-
isstæðar persónur bókarinnar, ekki
sist Dittu sjálfa.
Sagan kom fyrst út á islensku i
öndvegisþýöingu Einars Braga
skálds 1948—49. Af þvi tilefni skrif-
aði Halldór Stefánsson rithöfundur
um bókina: „Ditta er öreigans
„mater dolorosa" . . . hún, hin fá-
tækasta allra, er gjöful á kærleik og
umhyggju, hvernig sem að henni
er búið i þeim gráa heimi, þar sem
henni er markaöur bás. Mannúðin
er alls staðar grundvallaratriðið í
skáldskapNexa." •
Verökr. 1150.—
Félagsverö kr. 978,—
Mál
Svið þessarar mögnuðu sögu er
Pétursborg á árunum upp úr 1860:
ört vaxandi stórborg iöandi af lit-
riku mannlifi. i miðdepli er einfarinn
Raskolnikof, tötrum búinn stúdent
með stórmennskudrauma, sem
hann fyrir hvern mun vill gera að
veruleika. Spennan, mannlýsing-
arnar og heimssýnin sameinast
um að gera Glæp og refsingu að
einhverri eftirminnilegustu skáld-
sögu siöaritima.
Glæpur og refsing eftir Fjodor
Dostojevski er gefin út i heimsbók-
menntaröð Máls og menningar.
Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi úr
rússnesku.
Verökr. 1170.—
Félagsverðkr.995.—
qefutn cjóðar bœkur
og menning
- Kameldýr getur unnið í 30
daga án þess að drekka!
- Er það eitthvað mikið? Blaða-
maður getur drukkið í 30 daga án
þess að vinna!
Það var reikningstími í skólan-
um og afleysingakennari sem
kenndi.
- Þú þarna, Ijóshærði, getur þú
sagt mér hvað tvær appelsínur
og þrjár appelsínur eru margar
appelsínur?
Sá Ijóshærði hugsaði sig um
smástund.
- Við höfum bara lært að reikna
með eplum...
Tveir menn í fjölmennu kvöld-
boði ræðast við.
- Frekar leiðinlegt hér, finnst
yður ekki?
- Jú, mjög.
- Eigum við ekki að stinga af?
- Get það ekki - ég er gestgjaf-
inn.
'I'